Morgunblaðið - 25.08.1992, Page 5
C 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞRÖTTIRÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1992
---------------------------------;--------
KNATTSPYRNA/BIKARÚRSLITALEIKUR KVENNA
Skemmtun frá fyrstu mínútu
ÍA varði bikarmeistaratitil sinn í bráðfjörugum og spennandi úrslitaleik
SKÁGASTÚLKUR urðu bikar-
meistarar kvenna þegar þær
sigruðu Breiðablik 3:2 í bráð-
fjörugum og einstaklega
spennandi úrslitaleik á Laugar-
dalsvelli sl. laugardag. Skaga-
stúlkur vörðu þar með bikar-
meistaratitil sinn frá því ífyrra,
en það gekk ekki þrautalaust
fyrir sig; Blikastúlkur náðu
tvisvar að jafna eftir að ÍA hafði
náð forystunni, og það var ekki
fyrr en í síðari hálfleik fram-
lengingar sem úrslitin réðust.
Skagastúlkur byijuðu leikinn
mjög sannfærandi og fengu
nokkur færi í byrjun. Blikastúlkur
virkuðu aftur á
móti mjög óstyrk-
ar, og það var í
samræmi við gang
leiksins að Skaga-
stúlkur skoruðu
fyrsta markið á 15. mínútu. Blika-
stúlkur hristu af sér slenið og
náðu í kjölfarið að komast meira
inn í leikinn. Þeim gekk hins veg-
ar erfiðlega að skapa sér vænleg
marktækifæri og náðu því ekki
að jafna fyrir leikhlé.
Skiptingin hafði áhrif
Sama var upp á teningnum í
byijun síðari hálfleiks og þess
fyrri. Skagastúlkur náðu öllum
tökum á leiknum og fengu tvö
góð færi sem þær náðu ekki að
nýta. Guðjón Reynisson þjálfari
Breiðabliks ákvað þá að skipta
Kristrúnu Daðadóttur inn á, og
hafði það mjög jákvæð áhrif á
Blikastúlkur. Nýtt líf færðist í
sóknarleikinn og á 55. mínútu
náðu þær að jafna. Breiðablik
sótti stíft eftir markið og það var
því nokkuð gegn gangi leiksins
að Skagastúikur skoruðu og kom-
ust aftur yfir á 67. mínútu.
Vftaspyma á síðustu stundu
Kópavogsstúlkur misstu damp-
inn við þetta mark og héldu nú
flestir að sigur Skagastúlkna væri
í höfn. En Olga Færseth var alls
ekki á sama máli. Þegar innan
við mínúta var til leiksloka og
forsvarsmenn KSÍ og heiðursgest-
ur leiksins voru búnir að stilla sér
upp við bikarinn, reiðubúnir að
afhenda Skagastúlkum hann,
braust Olga í gegnum vöm ÍA þar
sem brotið var á henni og rétti-
lega dæmd vítaspyrna. Úr henni
skoraði Vanda Sigurgeirsdóttir
örugglega og jafnaði þar með leik-
inn.
Grípa þurfti því til framlenging-
ar og gerðist fátt markvert í fyrri
hálfleik hennar. Allt virtist stefna
í jafntefli og því annan leik, en á
þriðju mínútu síðari hálfleiks
framlengingarinnar náði Ragn-
heiður Jónasdóttir að skora mark
sem reyndist vera sigurmark
leiksins.
Bæði lið sýndu góðan karakter
Leikurinn var mjög skemmti-
legur allt frá fyrstu mínútu og
stúlkumar léku á stundum hreint
ágæta knattspymu. Spennan var
líka mikil og lokamínútumar í
sjálfum leiknum ákaflega drama-
tískar. Bæði lið sýndu mikinn
karakter, Blikar með því að ná
tvisvar að jafna leikinn, og Skaga-
stúlkur með því að ná forystunni
eftir að hafa fengið á sig tvö jöfn-
unarmörk.
Liðin skiptust á að hafa undir-
tökin í leiknum, Skagastúlkur
virtust heldur slaka á ef þær vom
með forystuna, sem sýndi sig að
var hættulegt. Þær náðu hins veg-
ar alltaf að rífa sig upp úr meðal-
mennskunni þegar á þurfti að
halda. Fyrirliði þeirra Jónina Víg-
lundsdóttir átti skínandi leik, og
stöllur hennar á miðjunni, þær
Karitas Jónsdóttir og Halldóra
Gylfadóttir, léku einnig vel. í
vöminni stóð íris Steinsdóttir sig
einna best, og markvarsla systur
hennar, Steindóm, er sér kapítuli
út af fyrir sig. Bæði greip hún
mjög oft vel inn í leikinn, auk
þess sem góð markvarsla og vel
útfærð úthlaup glöddu augu
áhorfenda.
Af Blikastúlkum stóð aldursfor-
setinn Ásta B. Gunnlaugsdóttir
sig einna best. Hún var mjög ógn-
andi og náði oft að opna vöm IA.
Margrét Sigurðardóttir stóð sig
líka vel í vörninni. Ungu stúlkum-
ar í' liðinu stóðu sig líka vel, sér-
staklega þó Ásthildur Helgadóttir
og Olga Færseth.
Flestir leikmenn áttu reyndar
ágætan dag, og vom menn á því
að bæði lið mættu vel við una,
leikurinn hefði verið frábær og
lyft kvennaknattspymu á íslandi
á hærra plan.
Stefán
Eiríksson
skrífar
Morgunblaðið/Ámi Sæber
RagnheiAur Jónasdóttlr í þann mund að skora sigurmark Skagastúlkna í
síðari hálfleik framlengingarinnar. Sigfríður Sophusdóttir í marki Breiðabliks
kemur engum vömum við.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stund milli stríða
Blikastúlkur hvíla sig áður en flautað var til framlengingar. Á innfeldu myndinni eru þær Margrét Sigurðardóttir og Vanda Sigurgeirsdóttir UBK að reyna að
stöðva Karitas Jónsdóttur ÍA, sem átti mjög góðan leik í úrslitaleiknum.
4 a á^Jónína Víglundsdótt-
I ■ ir var með boltann
vinstra megin við vítateig
Breiðabliks á 15. mínútu, og gaf
laglega fyrir, í gegnum vömina
og á Guðlaugu Jónsdóttur,
sem lagði knöttinn fyrir sig og
skoraði með fallegu skoti ofar-
lega í vinstra homið.
1m 4 Sigrún, Óttarsdóttir
■ | gaf á Ástu B. Gunn-
laugsdóttur á 55. mínútu þar
sem hún var stödd fyrir framan
vítateig ÍA. Ásta lék inn í teig-
inn og var komin í vænlegt
marktækifæri, en gaf til hægri
á Olgu Færseth, sem skoraði
með laglegu skoti neðarlega í
vinstra homið.
2b 4 Magnea Guðlaugs-
■ I. dóttir tók hornspymu
frá hægri á 67. mínútu. HaU-
dóra Gylfadóttir stökk hæst
allra í miðjum vítateignum og
skallaði stórglæsilega í markið,
framhjá Sigfríði Sophusdóttur
markverði, sem reyndar var tru-
fluð af Helenu Ólafsdóttur.
2b Olga Færseth braust
■ áCainn í vftateig ÍA á
sfðustu sekúndum venjulegs
leiktíma og var þar keyrð um
koll af vamarmönnum ÍÁ. Ólaf-
ur Ragnarsson dómari dæmdi
réttilega vítaspymu og úr henni
skoraði Vauda Sigurgeirsdótt-
ir ákaflega örugglega.
3a Sigurlín Jónsdóttir
mmmgaí snögga sendingu
inn fyrir vöm Breiðabliks á 93
mínútu, en komið var fram í
síðari hálfleik framlengingar.
Ragnheiður Jónasdóttir náði
þar boltanum, lenti í baráttu við
Unni Þorvaldsdóttur sem f
við, lék því næst inn í teiginn,
á markvörðinn og skilaði knett-
inum í netið. Laglega gert.