Morgunblaðið - 25.08.1992, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 25.08.1992, Qupperneq 10
10 c MQRGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MÍIÐJtJDAGUR 25. ÁGÚST 1992 ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / SVEITAKEPPN115-18 ARA I GOLFI 4F Yfirburðir sveitar GR í yngri flokki FOLK ■ TVEIR keppendur í Sveita- keppni unglinga eru nýkrýndir Norðurlandameistarar. Það eru þeir Sigurpáll Sveinsson GA og Birgir Leifur Hafþórsson úr GL. Þeir voru báðir varamenn í ís- lenska karlaliðinu. ■ BIRGIR Leifur sem er með 0 í forgjöf lenti í miklum hremming- um á 13 holu á fyrsta degi móts- ins. Hann fékk á sig þijú víti, tvö fyrir að slá boltann í vatn og einu sinni er boltinn hafnaði í skurði. Hann lék holuna á tíu höggum en hún er par fímm. ■ BIRGIR Leifur var hins vegar í essinu sínu í leik gegn sveit GA á 8. holu á laugardag. Hann sló tuttugu metra högg úr glompu og boltinn fór beint ofan í holuna. ■ 92 kylfingar tóku þátt í mót- inu sem stóð í ijóra daga og ætla má að hver keppandi hafí gengið um áttatíu kílómetra í Grafarholt- inu. Hringurinn er rétt tæpir sex kílómetrar og með snúningum má ætla að hver keppandi gangi ná- lægt níu kílómetrum á hveijum hring. Algengt er að hver kylfíng- ur fari 9-10 hringi, séu æfínga- hringir taldir með. ■ BRÁÐABANA þurfti til að skera úr um hvort b-sveit GR eða GSS hiyti vinning úr ijórmenningi í keppni klúbbanna um 5. sætið í eldri flokki. Snæbjörn Eyjólfsson hélt Reykjavíkursveitinni í barátt- unni á 1. holu í bráðabananum með því að setja niður sjö metra pútt. Á 2. holu lenti GR-b í vand- ræðum en Snæbjöm tryggði sigur í fjórmenningnum með því að lyfta boltanum úr glompu og beint ofan í holuna. Þar með setti hann press- una yfír á Sauðkrækinga sem misstu stutt pútt og töpuðu leikn- um. GR-b vann viðureignina 4:1. I HELGIDAN Steinsson, varð sveitameistari í eldri flokki með Leyni á sunnudag. Hann er bróð- ir þeirra Steindóru og írisar sem urðu bikarmeistarar með IA í knattspyrnu deginum áður. ■ EINAR Lárusson úr GSS varð fyrir því óhappi að fá kylfu félaga síns í höfuðið á 4. teig á fyrsta degi mótsins. Kristín Páls- dóttir, hjúkrunarfræðingur var á næstu grösum og gaf honum kald- an bakstur. Einar sleppur þó ekki við glóðarauga. ■ TRYGGVI Pétursson, sem var í A-sveit GR í flokki 15-18 ára lék best allra fyrsta daginn. Hann kom inn á 70 höggum. A-SVEIT Golfklúbbs Reykjavíkur sigraði með yfirburðum í Sveitakeppni fjórtán ára og yngri sem fram fór í Grafarholtinu um helgina. Leikin var holukeppni ífjórmenn- ingi og tvímenningi og tapaði félagið ekki leik, sigraði alia þrjá andstæðinga sfna í keppninni 5:0. Eg hafði alltaf trú á því að við mundum vinna þá en ekki 5:0. Það er góð tilbreyt- ing að spila íjórmenning og holukeppnin er allt öðru visi en höggleikur. í Frosti holukeppninni er í lagi að Eiðsson sprengja, þú tapar bara holunni skrifar og það bitnar ekki á öllum hringnum eins og í höggleikn- um,“ sagði Þorkell Snorri Sigurðarson kylfing- ur úr GR sveitinni eftir að liðið hafði sigrað sveit GS 5:0 í úrslitaleik. í leik liðanna var keppt í tveimur ijórmenningum og þremur tvímenningum. Guðjón R. Emilsson og Þorkell Snorri sigr- uðu Öm Ævar Hjartarson og Gunnar Loga- son. í hinum fjórmenningnum sigruðu þeir Amar J. Aspar og Guðmundur J. Óskarsson þá Einar Lars Jónsson og Birgi Axelsson GS. Leikin var tvímenningur eftir hádegi og þar sigraði Þorkell Snorri Öm Ævar 2:0, Arnar J. Aspar vann Einar 4:0 og Guðmundur vann Gunnar Logason 7:0. „Við lékum illa en þeir voru mjög góðir að þessu sinni,“ sagði Birgir Axelsson úr sveit GS eftir tapið gegn GR. „Yfírleitt er ekki mikill munur á liðunum en segja má að úrslit- in hafí ráðist eftir fyrri átján holurnar þegar þeir vom 2:0 yfír.“ Morgunblaðiö/Frosti Slgurvegarar í sveitakeppninni. Sigursveit Leynis í flokki 15-18 ára er í efri röð. Frá vinstri; Reynir Þorsteinsson liðsstjóri, Birgir Leifur Hafþórsson, Þórður Emil Ólafsson, Gunnar Örvar Helgason og Helgi Dan Steinsson. A-Sveit GR sigraði í flokki fíórtán ára frá yngri. Talið frá vinstri í neðri röð; Jón Karlsson liðsstjóri, Þorkell Snorri Sigurðarson, Amar J. Aspar, Guðmundur J. Óskarsson og Guðjón Emilsson. Morgunblaöið/Froáti Haraldur Þórðarson og félagar í GR máttu sætta sig við annað sætið í eldri flokknum. Hér er Haraldur í 2. höggi sínu á átjándu holunni. Þórður tryggði Leyni sigur á síðustu holu GOLFKLUBBURINN Leynirfrá Akranesi varð á sunnudag meistari í Sveitakeppni unglinga 15-18 ára eftir sigur á A-sveit Golfklúbbs Reykjavikur 3:2 í spennandi úrslitaleik. Eins og í fyrra var það A-sveit' GR og GL sem börðust um sig- urinn. Þórður Óiafsson GL og Har- aldur Þórðarson fengu það vanda- sama hlutverk að leika síðustu hol- umar undir miklu álagi, jafnt var í viðureign klúbbanna 2:2 en Þórður hafði betur og tryggði Leyni sigurinn eftir að Haraldur hafði lent í ógöngum á 18 holunni. Upphafshögg hans lenti utan brautar vinstra meg- in, annað höggið í glompu og það þriðja var of langt, boltinn rann út af flötinni og þá var flestum ljóst að Leynir hafði varið titilinn frá því í fyrra. „Það er erfitt að leika undir svona pressu. Teighöggið á átjándu mis- tókst og annað höggið var of langt en Leynismenn eru vel að sigrinum komnir, þeir eru með mjög góða spil- ara, sérstaklega Birgi Leif og Þórð,“ sagði Haraldur. Leikið var í fjórmenningi fyrir hádegi og staðan að honum loknum var 1:1. Birgir Leifur og Þórður höfðu tryggt sér sigurinn gegn Har- aldi og Jóni S. Halldórssyni 5-0 þeg- ar sex holur vom eftir. En Tryggvi Pétursson og Ólafur Siguijónsson úr GR unnu þá Helga Dan og Gunn- ar Helgason GL 4-0 þegar þijár hol- ur vom eftir og staðan var því 1:1 fyrir síðari átján holumar sem leikn- ar vom í tvímenningi. Birgir Leifur vann Ólaf 4:0 og Tryggvi Pétursson vann Helga Dan 3:0 og klúbbamir vora því jafnir 2:2 og ljóst að viðureign Þórðar og Har- aldur mundi ráða úrslitum. „Ég vissi að þetta var allt á mínum herðum og um leið og ég hitti inn á flötina sá ég fram á að við mundum vinna. Ég var orðinn svolítið smeyk- ur um tíma en þetta hafðist þó pútt- in hafl oftast verið betri hjá mér,“ sagði Þórður. UHSLIT 15 - 18 ára: 1. umferð: GRA-GV 4,5 : 0,5 GS-GRB 3 : 2 GL-GSS 3,5 : 1,5 GKA-GA 4:1 B-RIÐILL GB-GKB 3:2 GKJ-NK .....5:0 Undanúrslit: GRA-GS...........3:2 GL-GA.........3,5 - 1,5 GV-GRB...........4:1 GSS - GK.........3:2 ÚRSLITALEIKIR: I. GL-GRA........3:2 3.GA-GS........3,5 :1,6 5.GRB-GSS........4:1 7.GKA-GV......3,5 : 1,5 9.GKJ-GB.........3:2 II. GKB-NK.......3:2 14 ára og yngri: 1. umferð: GRA-GL........ GRB-GKA....... GS-GKB........ GKJ-GAA....... B-riðill: GAB-GÓ........ Undanúrslit: GRA-GRB....... GS-GAA... GL-GKA... GKB-GKJ... ......5:0 ...3,5-1,5 ......4:1 ........5:0 ......5:0 ...............4:1 ...............3:2 .................5.0 ...............4:1 Úrslitaleikin I. GRA-GS..........5:0 3.GRB-GAA..........4:1 5.GKA-GKB..........5:0 7.GKJ-GL...........4:1 9.GSS-GAB..........5:0 II. Golfklúbburinn ÓS. ■Leiknar voru 36 holur í hveijum leik. Fyrstu átján hol- umar var leikinn fjórmenning- ur sem gaf tvö stig. í síðari átján holunum var leikinn tví- menningur sem gaf þrjú stig. Undankeppni fór fram á fímmtudag og var skor látið ráða til um niðurröðun liðanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.