Morgunblaðið - 25.08.1992, Blaðsíða 16
faém
FOI_K
KNATTSPYRNA / ÞÝSKALAND
Aðeins
Coventry
ermeð
fulit hús
COVENTRY, sem var aðeins
tveimur stigum frá falli á síð-
asta keppnistímabili, er eina lið
ensku úrvalsdeildarinnar, sem
hef ur ekki tapað stigi á yfir-
standandi tímabili.
Bobby Gould, sem var látinn fara
frá WBA á síðasta tímabili,
hefur látið hendur standa fram úr
ermum hjá Coventry. „Ég reyni að
yfírfæra hugarfarið, sem ríkti hjá
Wimbledon," sagði Gould eftir 2:1
sigur — gegn Wimbledon á útivelli!
Niðurlæging
Leeds, sem tapaði ekki leik í
fyrstu 10 umferðunum í fyrra,
mátti þola 4:1 tap fyrir Middlesbro-
ugh. Meistararnir voru sem byij-
endur og nýliðar heimamanna tóku
þá í kennslustund. Howard Wilkin-
son sagði að leikmenn sínir hefðu
ekki gert neitt rétt.
„Ég var ekki ánægður með neitt,
sem þeir gerðu. í raun gerðu þeir
ekkert rétt. Mótheijamir vom betri
á öllum sviðum og svo virtist, sem
þeir væru líka fleiri."
Middlesbrough er í fímmta sæti
og Lennie Lawrence var ánægður.
„Eg hef stjómað liði í áratug og
ekki fyrr orðið vitni að annarri eins
frammistöðu. Þetta vom atvinnu-
menn að verki.“
Manchester United fékk fyrsta
stig sitt í deildinni, gerði 1:1 jafn-
tefli við Ipswich. „Við sköpuðum
okkur að minnsta kosti fímm mark-
tækifæri fyrir hlé og áttum skilið
að gera fleiri mörk,“ sagði Alex
Ferguson. „Skiljanlega voru menn
æstir eftir 3:0 tapið gegn Everton
í síðustu viku, en vömin var betur
á verði að þessu sinni og ég hef
sagt strákunum að þeir verði að
einbeita sér að því að spila sinn
leik.“
Fyrsti sigur Arsenal
Arsenal tapaði tveimur fyrstu
leikjunum, en gerði góða ferð til
Liverpool og vann 2:0 á Anfíeld.
George Graham vildi sjá meiri
ákveðni hjá Ieikmönnum sínum, en
kappið var jafnvel of mikið — fjórir
fengu að sjá gula spjaldið fyrir brot.
En baráttan var í lagi og Arse-
nal fékk mörg tækifæri til að bæta
við. David James, markvörður,
bjargaði Liverpool frá stærra tapi,
en heimamenn voru máttlausir í
sóknaraðgerðum sínum og söknuðu
greinilega Ian Rush og Paul Stew-
art, sem vom meiddir.
„Það gengur upp og ofan hjá
„stóm“ liðunum,“ sagði Graham.
„Við lékum illa í fyrstu tveimur
leilq'unum, en gagnrýnin hefur haft
jákvæð áhrif og ég er ánægður með
það. Mótlætið hefur alltaf góð áhrif
á okkur og gagnrýnin gerir starf
mitt léttara — strákarnir vita hvað
þeir eiga að gera.“
■ Úrslit / C12
■ Staðan / C12
■ TERR Y Phelan var keyptur frá
Wimbledon til Manchester City í
gær fyrir 2,5 milljónir punda (um
252,5 millj. ÍSK) og er þar með
dýrasti bakvörðurinn í ensku knatt-
spyrnunni.
■ PHELAN, sem er 25 ára og
fæddur í Manchester, byijaði feril-
inn með City, en fór þaðan til
Leeds, svo til Swansea og loks
Wimbledon, en hann á átta lands-
leiki með írlandi að baki.
■ PHELAN gerði fímm ára
samning. „Við bórguðum meira fyr-
ir hann en við vildum, en hæfileikar
kosta sitt,“ sagði Peter Reid hjá
City.
■ NEIL Ruddock, nýskipaður
fyrirliði Tottenham, lenti í slags-
málum við Andy Thorn hjá Cryst-
al Palace og var báðum vikið af
velli.
■ GORDON Durie gerði fyrsta
mrk Tottenham á tímabilinu — í
þriðja leik liðsins.
■ ERIC Thorstvedt varði víta-
spymu í leiknum og er það annað
vítið á fjórum dögum, sem Norð-
maðurinn ver fyrir Spurs.
■ TOMMY Wright lagði upp tvö
mörk á tveimur mínútum áður en
hann gerði þriðja mark Midd-
lesbrough gegn Leeds.
■ DAVID Hirst gerði tvö mörk
fyrir Sheffield Wednesday og var
þetta í annað sinn, sem hann skor-
ar tvö í leik á tímabilinu.
■ GEORGE Weah frá Líberíu,
sem PSG keypti frá Mónakó, gerði
tvö mörk fyrir lið sitt um helgina.
■ LAURENT Fournier gerði
fyrsta mark PSG og var það jafn-
framt fyrsta mark hans á tímabil-
inu.
■ CAEN, sem tekur þátt í Evr-
ópukeppni í fyrsta sinn, fékk fyrstu
stigin í frönsku deildinni um helg-
ina.
■ FRANZ Beckenbauer stað-
festi um helgina að Lothar Matt-
hSus væri á leiðinni til Bayern
Miinchen frá Inter Milan.
■ BOBBY Robson var ekki kátur
eftir fyrsta deildarleik Sporting í
Portúgal, en liðið gerði markalaust
jafntefli við Tiense. „Menn verða
að skora til að sigra,“ sagði þjálfar-
inn.
■ JOZSEF Kiprich, ungverski
landsliðsmaðurinn hjá Feyenoord
í Hollandi, gerði tvö mörk í 4:1
sigri gegn Fortuna Sittard.
Reuter
Andreas Buck til vinstri fagnar Fritz Walter eftir að sá síðar nefndi gerði
annað mark Stuttgart gegn Niimberg.
Góð byvjun
hjá Bayem
BAYERN Múnchen vann Kais-
erslautern 1:0 í annarri umferð
þýsku úrvalsdeildarinnar og er
á toppnum, en Eyjólfur Sverris-
son og samherjar í Stuttgart
unnu góðan sigur, 3:0 gegn
Nurnberg, og fylgja fast á eftir.
Bruno Labbadia tryggði Bayern
sigur með marki um miðjan
fyrri hálfleik og er staða liðsins
allt önnur og betri en í fyrra. Þá
gekk ekkert hjá stórveldinu, sem
lét þijá þjálfara spreyta sig, en allt
kom fyrir ekki og það hafnaði í 10.
sæti.
„Við náðum undirtökunum og
héldum þeim í fyrri hálfleik,“ sagði
Erich Ribbeck, þjálfari. „Leikurinn
var góður af okkar hálfu fyrir hlé,
en öryggið var ekki hið sama í seinni
hálfleik og við áttum undirhögg
að sækja.“
Fritz Walter gerði tvö mörk fyrir
Þýskalandsmeistara Stuttgart í
fyrri hálfleik gegn slöku liði Nurn-
berg, en Svisslendingurinn Adrian
Knup átti síðasta orðið 10 mínútum
fyrir leikslok. „Einbeitinguna vant-
aði í seinni hálfleik," sagði Chri-
stoph Daum, þjálfari Stuttgart.
Éric Wynalda frá Bandaríkjunum
gerði bæði mörk Saarbriicken gegn
Karlsruhe og er liðið með þijú stig
eins og Stuttgart, Wattenscheid og
Frankfurt.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Reuter
Steve Sedgley til hægri, leikmaður Tottenham, reynir að ná boltanum af Gareth Southgate hjá Crystal Palace í
leik liðanna á White Hart Lane um helgina.
KNATTSPYRNA / FRAKKLAND
PSG fór á kostum og
er áfram á sigurbraut
PSG lék sérstaklega vel í 4:0
sigri gegn nýliðum Strasbourg
ífrönsku deildinni um helgina
og er á toppnum ásamt Mont-
pellier, en hvorugt lið hefur
tapað stigi til þessa.
PSG fór á kostum í Strasbourg
og þegar er talað um að liðið
sé best í Frakklandi. „Það er ekki
hægt að segja mikið eftir að hafa
leikið gegn svona sterku liði,“ sagði
Gilbert Gress, þjálfari Strasbourg.
„í því eru frábærir einstaklingar,
sem ná vel saman, og það eina sem
ég get gert er að óska öðrum mót-
heijum þess góðs gengis.“
„Þetta er besti leikur, sem ég hef
séð síðan ég tók við,“ sagði Bern-
hard Brochand, sem er á öðru ári
sem forseti PSG. „En ég held að
við getum jafnvel leikið betur.“
Marseille þurfti að hafa mikið
fyrir 3:2 sigri gegn Metz. „Við eig-
um mikið verk fyrir höndum, en við
bætum okkur stöðugt," sagði Jean
Femandez, þjálfari meistaranna.
„Þetta var í jámum, en úrslitin
vom sanngjöm. Ég er ánægður
vegna þess að liðið gafst aldrei
upp, en við þurfum tíma og stór-
veldið kemur aftur.“
GETRAUNIR: 111 X X 2 112 1 X X X
LOTTO: 1 7 14 29 33 +3