Morgunblaðið - 10.09.1992, Side 1
VIKUNA 11. - -17. SEPTEMBER J1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 BLAÐ U
Þórður frá Dagverð-
ará er meðal þeirra
sem segja sögu í
þættinum. A
Lifandi eftir-
myndir Jóhönnu
Lifandi eftirmyndir Jóhönnu (The Cloning of Joanna May)
nefnist mynd í tveimur hlutum sem byggð er á skáldsögu
eftir Fay Weldon. Að sögn skáldkonunnar er þetta saga
um tækni, losta og ævarandi ást. Verður fyrri hlutinn
sýndur sunnudaginn 13. september kl. 22.00.
Jóhanna May og Carl, sem er harðsvíraður fésýslumað-
ur og lífeðlisfræðingur, hafa verið fráskilin í tíu ár en eru
þó hvort enn ofarlega í huga annars. Meðan þau voru enn
í sambúð varð Jóhanna ófrísk. Carl taldi hana hins vegar
á að fara í fóstureyðingu.
Án hennar vitundar lætur hann taka úr henni eggfrumu
og rækta af henni klón. Seinna, þegar þeim hefur sinnast,
segir hann henni frá því að til séu þrjár lifandi eftirmynd-
ir hennar, fullar af æskufjöri. Hann bíði einungis eftir að
þær verði fullþroska og tilbúnar að taka við hlutverki
hennar. Jóhönnu bregður illa við tíðindin og ákveður að
hafa uppi á stúlkunum, enda þá fyrst gerir hún sér grein
fyrir að fyrrverandi eiginmaður hennar vílar ekki fyrir sér
morð og er stórhættulegur.
Seinni hluti myndarinnar verður sýndur miðvikudaginn
16. september kl. 21.45.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8
Útvarpsdagskrá bls. 2-8
Bókmennta-
hátíð 1992
Alþjóðleg bókmenntahátíð verður haldin
i Norræna húsinu og í Ráðhúsi Reykjavík-
ur dagana 13.-19. september. Á þriðja tug
erlendra rithöfunda frá Norðurlöndum,
Frakklandi, Þýskalandi, Ungverjalandi,
Austurríki og Bandaríkjunum kynna verk
sín og skeggræða skáldskap fyrr og n.ú.
Setning hátíðarinnar verður send út beint
á Rás 1 kjukkan 17.00 á sunnudag.
Ávörp flytja Óafur G. Einarsson
menntamálaráðherra, Lars-Áke Engblom
forstöðumaður Norræna hússins, Thor
Vilhjálmsson rithöfundur og danski rithöf-
undurinn og útgefandinn Klaus Rifbjerg.
Verndari hátíðarinnar, frú Vigdís Finn-
bogadóttir forseti íslands, opnar hátíðina
og Tríó Reykjavíkur leikur. Kynnir er Frið-
rik Rafnsson.
SÖGUMENN
Sjónvarpið er að taka til sýninga
um það bil 5-10 mínútna langa
þætti, sem sýndir verða seint á
sunnudagskvöldum og nefnast
Sögumenn. Sagnalist margra
þjóða á sér langa og ríka hefð, en
í nútímaþjóðfélagi er haett við að
hún sé á undanhaldi. í þessari
þáttaröð, sem gerð er í samvinnu
við UNESCO, segja sagnaþulirfrá
öllum heimshornum gamlar sögur
og nýjar. Vilja framleiðendur
þannig vekja þjóðfélög til
vitundar um hversu
mikilvægt er að þess-
ari hefð verði haldið J
við.
Sögurnar eru
ætíð sagðar í fá-
mennum hópi manna og geta
sagnaþulirnir verið staddir á krá,
markaðstorgi, í setustofu eða
hvar sem við á. Þannig er reynt
að láta staðinn undirstrika sér-
stöðu eða hefð hvers lands.
íslensku sögurnar voru teknar
upp hér á landi sumarið 1989.
Meðal þeirra sem koma fram eru
Vilborg Dagbjartsdóttir, Þórður
Halldórsson frá Dagverðará og
Iðunn Steinsdóttir. Fyrsti þáttur-
inn er 30 mínútna langur og verð-
tur sýndur nk. sunnudagskvöld
kl. 23.20. Þar verður þáttaröðin
kynnt og meðal annars rætt við
Peter Ustinov. Þýðandi er Guð-
rún Arnalds.
Þratt fyrir allt sem a undan hefur
gengið elskar Joanna enn Carl.
Myndin fjallar
ekki um hetju-
dáðir heldur
hrottaskap og
er þar af leið-
andi stranglega
bönnuð börn-
um.
STRÍÐSÓGNIR
Michael J. Fox leikur aðalhlutverkið
í gæðamyndinni Stríðsógnir (Casu-
alties of War), sem Stöð 2 sýnir
föstudagskvöldið 11. september kl.
23:55. Annar aðalleikari og ekki síðri
er Ijósmyndaraskelfirinn Sean Penn.
Fox leikur ungan fótgönguliða í
Víetnamstríðinu, sem er ásamt öðr-
um hermönnum á ferð um óvina-
svæði er þeir rekast á unga og fagra
víetnamska stúlku. Liðsforinginn, vill
handtaka stúlkuna, leyfa liðsmönn-
um að misnota hana kynferðislega
og drepa hana síðan. Allir liðsmenn-
irnir nema Michael J. Fox eru honum
sammála og í flokknum myndast
mikil spenna sem getur bara endað
á einn veg.
Bíóin í borginni bls. 8