Morgunblaðið - 24.09.1992, Side 9
I
9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
OFURMINNI
U” Námskeið I ofurminnistækni eru i
Tæknin bætir minnið og athyglis-
Tækni til að muna nöfn, númer
I ':||k||8||| Sköpun, sfml 674853.
Franskar buxnadragtir,
kjólar og blússur
Stærðir 34-50
v NEÐST VIÐ Opið virka daga frá 9-18
I mJÍ CT CT Vy DUNHAGA, og laugardaga 10-14
I X S. 622230.
i
Ávöxtun verðbréfasjóða
1. september.
Kjarabréf
Tekjubréf
Markbréf
Skyndibréf
6 mán.
7,4%
7,4%
7,8%
6,1%
Skandia
Tll hagsbota
fyrlr íslondinga
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA HF.
HAFNARSTRÆTI, S. (91) 619700 - KRINGLUNNI, (91) 689700 - AKUREYRI.S. (96) 11100
Nýtt fró Blomberg!
RENNIPLÖTUR
BLOMBERG hefur þróað nýja gerð
af brautum fyrir ofnplötur og grindur,
þannig að nú er hægt að draga þær út
hverja fyrir sig eða allar í einu, ÁN
ÞESS AÐ ÞÆR SPORÐREISIST !
Nú þarf enginn aðbrennasigáfingrun-
um, þegar steikin eða kökurnar eru
teknar úr ofninum!
Mikið úrval!
Það eru ótal ástæður fyrir því að velja
BLOMBERG. Orvalið er geysimikið:
Þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar,
eldavélar, ofnar, helluborð og margt
fleira i öllum verðflokkum.
WA 230 þvottavél.
Renniplöturnar fást í allar gerðir af
BLOMBERG eldavélum.
HSC 604 með glerhelluborði.
4 suðufletir, þar af einn tvískiptur •
Uppúrsuðuvörn • Sjálfhreinsandi
blástursofn með yfir/undirhita og grilli
• Laus ofnhurð með tvöföldu gleri
• Barnaöryggi.
Stgr.verð:
Kr.81.747
Aðrar gerðir frá
Kr. 47.405 stgr
Vinsælasta BLOMBERG þvottavélin.
15 alsjálfvirk kerfi, þ.m.t. hraðþvotta-
ullar- og sparnaðarkerfi • Sjálfvirk
skömmtun á vatni eftir magni þvottar
• 650/900 sn. vinduhraði. Stgr.verð:
Kr. 69.936
Blomberq
///-' Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 S622901 og 622900
Sögulegar sættir
í Svíþjóð
Það var á margan hátt söguleg stund
þegar Carl Bildt, forsætisráðherra Sví-
þjóðar og formaður íhaldsflokksins, og
Ingvar Carlsson, fyrrverandi forsætisráð-
herra og formaður Jafnaðarmannaflokks-
ins, héldu sameiginlegan blaðamanna-
fund í Stokkhólmi á sunnudag. Tilkynntu
þeir þar að borgaralegu stjórnarflokkarn-
ir fjórir og jafnaðarmenn hefðu náð sam-
komulagr um mjög víðtækar neyðarað-
gerðir í efnahagsmálum til að lyfta Sví-
þjóð upp úr efnahagslegum öldudal og
koma í veg fyrir gengisfall sænsku krón-
unnar. Víðtæk samstaða af þessu tagi
um efnahagsaðgerðir hefur til þessa ver-
ið talin óhugsandi í Svíþjóð.
Engin for-
dæmi
Það er margt annað
sögpilegt við þessar efna-
hagsaðgerðir. í þeim fel-
ast umfangsmestu að-
haldsaðgerðir í ríkisljár-
málum i sögu landsins.
Leiðtogum stjórnar og
stjómarandstöðu hefur
tekist að rífa sig upp úr
dægurþrasinu, brjóta
odd af pólitísku oflæti
sínu og samemast um
hagsmuni þjóðarinnar í
heild. Það að á einni helgi
skuli hafa náðst sam-
komulag um róttækari
breytingar á sænska vel-
ferðarkerfinu en tekist
hefur að knýja í gegn á
síðustu áratugum er
undravert og þýðir í raun
að það sem sænskir
stjórnmálanienn hafa
verið að karpa um fyrir
kosningar á siðustu árum
skiptir ekki máli lengur.
Ingvar Carlsson hefur
áður sýnt af sér það póli-
tíska hugrekki að þora
að gjörbylta hefðbund-
inni stefnu jafnaðar-
manna telji hami það
vera í þágu þjóðarhags-
muna. Má nefna sem
dæmi afstöðu hans til
Evrópubandalagsins og
tekjuskatta. Hinn ungi
forsætisráðherra Carl
Bildt sýnir að hann býr
yfir mikilli stjómkænsku
og er fær um að ná sátt-
um, ekki bara innan
stjórnarinnar, heldur
eimiig á breiðari grund-
velli í erfiðri stöðu.
Markaðurinn
sigraður?
En þó samþykktar hafi
verið neyðaraðgerðir er
björninn ekki unninn eins
og minnt er á í forystu-
grein í Svenska Dagblad-
et á þriðjudag: „Þrátt
fyi-ir allt tal um að stjórn-
málamenn hafi með
neyðaraðgerðunum sigr-
ast á markaðinum er það
þegar upp er staðið sá
síðaraefndi sem gefur
þessari tilraun lokaein-
kunn. Ef dæma á af þró-
unimú á mánudag virðist
hún ekki verða beysin:
Vextir héldu áfram að
hækka og hlutabréf
höfðu lækkað mikið þeg-
ar verðbréfahöllin lok-
aði.
Það er samt ástæða til
að hinkra aðeins við áður
en dómur er felldur.
Astandið í Evrópu var
enn óljóst [á mánudag]
og úrslit frönsku þjóðar-
atkvæðagreiðslunnar
urðu ekki til að stöðva
írafárið á gjaldeyrirs-
mörkuðunum. Pundið
hélt áfram að lækka og
Portúgalir fengu að upp-
lifa enn hærri milli-
bankavexti en við eða
1.000%.
Þegar litið er nokkra
daga fram í tíniann er
aftur á móti nauðsynlegt
að vextir í Svíþjóð fari
að þróast í rétta átt, og
þá ekki bara millibanka-
vextirnir, sem seðlabank-
inn lækkaði úr 500 í 50%
á mánudag. Vissulega er
það fyrsta prófraun
neyðaraðgerðanna að
hægt sé að viðhalda
„vöm“ krónuimar án af-
brigðilegra millibanka-
vaxta við neyðaraðstæð-
ur (jafnvel 50% milli-
bankavextir em óviðun-
andi í meira en örfáa
daga).
En þegar þessi nauð-
vöm krónunnar er yfir-
staðin verða einnig þeir
vextir sem við verðum
að búa við til lengri tíma
að vera viðunandi."
Sænskir vextir
ogþýskir
Áfram segir i forystu-
grein Svenska Dagblad-
eb „Ef litið er á málið frá
sjónarhorni sænsks at-
vinnulífs ættu vextir í
Svíþjóð að vera lægri en
vextir í Þýskalandi. Þetta
er þó draumsýn eins og
ástandið er í dag. I stað-
inn verður maður að
sætta sig við að vonast
eftir vöxtum sem em
jafnháir eða örlítið hærri
en þeir þýsku. Það verð-
ur að vera markmið efna-
hagsstefnunnar.
Eins og kom fram á
mánudag mun árangur
neyðaraðgerðanna ekki
bara byggjast á innihaldi
þeirra; það sem gerist í
umheiminum ræður úr-
slitum og ef ekkert lát
verður á upplausninni
innan Evrópska mynt-
samstarfsins þá skiptir
engu máli hvað sænskir
stjómmálamenn gera
eða segjast vilja gera.
En ef neyðaraðgerð-
irnar eiga að gera eitt-
hvað gagn væri það mik-
ill kostur ef iimihald
þeirra væri skýrt. Það
er skiljanlegt að hlutimir
gengu það hratt fyrir sig
í samningaviðræðum
helgarinnar að ekki gafst
tími til að koma öllu á
blað eða kanna til hlítar.
En sú óöryggistilfinning
sem virtist umleika að-
gerðirnar í gær var mjög
óheppileg.
Til að viðhalda trú-
verðugleika er það úr-
slitaatriði að eftirmeð-
ferð samkomulagsins
verði skýr og skorinort.
Það er óviðunandi að hin-
ir og þessir fulltrúar
jafnaðarmanna, eða rík-
issLjómarimiar, gangi
um og gefi mismunandi
skýringar á því hvað fel-
ist í pakkanum.
Bæði Carl Biidt og
Ingvar Carlsson verða að
taka fram að þeir beri
alla og fulla ábyrgð á
samkomulaginu. Það
hljóta að vera Bildt og
Carlsson sem skera úr
um hvað ríkisstjómin og
stjórnarandastaðan hafa
sæst á.“
WIRUS
Vandaðar
þýskar innihurðir
^ Spónlagöar, yfirfelldar innihuröir
úr Limba, mahagoni, eik og beyki.
Stgrverð frá kr. 17.160,-
4 Millihurðir meö eða án pósta,
einfaldar og tvöfaldar.
Stgrverð frá kr. 32.895,-
◄ B 30
hljóðeinangrandi eldvarnahurðir.
Stgrverð frá kr. 27.353.-
A&B
BYGGINGAVÖRUR
Skeifunni 11, sími 681570
WIRUS, vandaðar þýskar innihurðir á vægu verði