Morgunblaðið - 24.09.1992, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
Hljómeyki
________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Kammerkórinn Hljómeyki hélt
tónleika í Kristskirkju sl. þriðju-
dag og flutti söngverk eftir
Hjálmar H. Ragnarsson, Pablo
Casal, Britten, Stravinskíj og
Gunnar Reyni Sveinsson. Stjórn-
andi kórsins var Sigursveinn K.
Magnússon. Hljóðfæraleikarar
voru Gústav Jóhannesson á orgel
og Kolbeinn Bjarnason á þver-
flautu.
Tónleikararnir hófust á Ave
Maria, eftir Hjálmar H. Ragnars-
son. Þessi bæn er frábærlega
fallega tónsett af Hjálmari, þar
sem heyra má gamlar kirkjuleg-
ar tónmyndir og þverstæður í
hljómskipan unnar af smekkvísi.
Ave Maria eftir Hjálmar, sem
er perla í gullastokk íslenskrar
kórtónlistar, var mjög vel sungin
af Hljómeyki.
Hljómeyki er sannarlega góð-
ur kór, sem ræður yfir stóru
styrkleikasviði, sem auk radd-
gæða söngvaranna gerir söng
hans svo áhrifamikinn. Þetta á
sérstaklega við um flutning kórs-
ins á 0 vos omnes, eftir selló-
snillinginn Casals en þó sérstak-
lega í Hymn to st. Cecila, eftir
Britten, sem er tilbrigðamikið og
erfitt verk, er kórinn söng af
glæsibrag.
Lokaverk tónleikanna var
Missa piccola (1983), eftir Gunn-
ar Reyni Sveinsson. Þar blandar
Gunnar saman latneskum
Hjálmar H. Ragnarsson
messutexta og versum úr Passíu-
sálmum Hallgríms Péturssonar á
Gunnar Reynir Sveinsson
sannfærandi máta. í Kyrie notar
Gunnar orgel til undirleiks og í
Credo er það flauta en saman
eru þau í Agnus Dei. Flauturödd-
in í Cedro-kaflanum var oft í
tónstiga, sem gyðingar í Austur-
löndum nota í sumum lögum sín-
um, með lækkuðum yfirfrumtóni
og hækkuðum miðtóni og var
þessi stækkaða tvíund sérlega
áberandi í síðasta kaflanum
(Agnus Dei), bæði í þrástefi, sem
gekk í gegnum kaflann, svo og
í öðru tónferli kórsins og flaut-
unnar.
Bestu kaflarnir voru þeir und-
irleikslausu og reyndar er allur
kórparturinn vel unninn en notk-
un hljóðfæranna sleit nokkuð í
sundur stíl verksins, auk þess
að vera í algjöru aukahlutverki
nema í Credo-kaflanum.
Flutningur Hljómeykis var
frábærlega góður undir stjórn
Sigursveins K. Magnússonar,
enda er kórinn skipaður úrvals
söngfólki sem kom hvað best
fram í einstaka einsöngsstrófum.
Sýnishorn úr söluskrá
★ Billjardstofa með 7 borðum.
★ Lítil heildverslun með hjólbarða o.þ.h.
★ Glerskurður og innrömmun.
★ Huggulegur matsölustaður á góðum stað.
★ Rafverkstæði fyrir rafeindavirkja. Mikil vinna.
★ Snyrtivöruverslun og undirföt.
★ Hárgreiðslustofa til leigu.
★ Stór og glæsileg bókaverslun.
★ Sérverslun í HAGKAUPS-Kringlunni.
★ Húsgagnaverslun á góðum stað.
★ Stór og glæsil. sólbaðsstofa.
★ Líkamsræktarstöð í fullum gangi.
★ Dagsöluturn á mjög góðu verði.
★ Blómaverslun með sérverslun.
★ Barnafataverslun í fullum gangi.
★ Veitingahús og pöbb í miðbænum.
★ Heildverslun með rafvörur.
★ Heildverslun með smávörur.
SUÐURVE R I
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRl'MSSON.
Kynningartónleikar Sinfóníunnar
EINN af föstum liðum í vetrar-
starfi Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands er kynningartónleikar sem
haldnir eru í byrjun hvers starfs-
árs. Starfsmönnum ýmissa fyrir-
tækja og stofnana er boðið til
þessara tónleika og þá einkum
þeirra fyrirtækja er á einhvern
hátt hafa stutt við bakið á hljóm-
sveitinni.
í ár verða þessir tónleika haldnir
í kvöld, fimmtudaginn 24. septem-
ber, kl. 20.00 í Háskólabíói. Sökum
mikillar eftirspurnar verða þeir end-
urteknir laugardaginn 26. septem-
ber kl. 15, einnig í Háskólabíói.
Stjórnandi kynningartónleikanna
verður Petri Sakari sem nú er að
hefja síðasta starfsár sitt sem aðal-
hljómsveitarstjóri hljómsveitarinnar.
Einleikari verður rússneski píanó-
leikarinn Alexander Makarov en
kynnir verður Egill Ólafsson, tónlist-
armaður og leikari. Efnisskrá tón-
leikanna er að hluta tii tekin úr verk-
efnalista vetrarins og verða leikin
verk eftir Tsjajkovskíj, Glinka, Cop-
land og Gershwin.
■ >-’v. ■
Alexander Makarov píanóleikari.
Listahús við Engjateig í Laugardal
Nýjar íbúðir - séreignir á frábærum stað
Mjög glæsilegar 116 fm íbúðir á tveimur hæðum. Sérinngangur. Glæsilegar sólstofur.
Stórkostlegt umhverfi. Afh. tilb. u. trév. með fullfrágenginni sameign.
Möguleiki er að hafa t.d. 2 svefnherb., vinnuaðstöðu, stofu, eldhús og bað.
FASTEIGN ER FRAMTID
FASTEIGNA
SVERRIR KRISTJANSSON LÖGGILTUR FASTEIGNASALI
SUDURLANDSBRAUT 12, 108 REYKJAVÍK, FAX 687072
ák
MIÐLUN
SÍMI 68 77 68
FJÁBFESTING
FASTEIGNASALA ?
Borgartúni 31. Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hdl.
J Al*A Hilmar Óskarsson,
\þ jUmE jSi Steinþór Ólafsson.
Parhús f Seljahverfi
Til sölu 2ja herb. parhús í góðu standi. Þjónustuíbúð.
Hús þetta tilheyrði dánarbúi og er laust strax.
Upplýsingar gefur:
Ingi Ingimundarson hrl.,
Hátúni 2B, s. 24753 og 666326.
Toppíbúðtil sölu
5 herbergja íbúð á 4. hæð, endaíbúð, í nýlegri blokk
við Kaplaskjólsveg í Reykjavík með svölum og stórkost-
legu útsýni. Á eigninni hvílir fasteignaveðbréf til hús-
bréfadeildar Húsnæðisstofnunar ríkisins, ca kr. 4,6
millj., sem hæfur kaupandi gæti tekið að sér sem lið í
kaupverði en annað ekki. íbúðin er laus til íbúðar.
Allar nánari upplýsingar gefur:
Jón Hjaltason, hæstaréttarlögmaður og löggilt-
ur fasteignasali,
sjmi 98-11847, Heimagötu 22, Vestmannaeyjum.
Á mánudögum sfmi 13945, Garðastræti 13,
Reykjavik.
V
Sumarbústaðalönd
Til eru nokkur sumarbústaðalönd í Hvalfirði, aðeins 40
mín akstur frá Reykjavík á malbiki. Um er að ræða land
sem liggur að sjó, landið verður afgirt og vegur lagður
um svæðið. Einnig er til staðar á landinu heitt og kalt
vatn. Á svæðinu er veiðiaðstaða, golfvöllur, báta-
bryggja, veitingarekstur, hestaleiga og ýmislegt fleira,
t.d. er væntanleg sundlaug.
FJÁBFESTING
FASTEIGNASALA"
Borgartuni 31.105 Rvk., s. 624250
Lögf r.: Pétur Pér Stgurðsson hdl.