Morgunblaðið - 24.09.1992, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
11
Álandsdagar í
Norræna húsinu
DAGSKRÁ helguð Álandseyjum hefst í Norræna húsinu í *
dag, fimmtudaginn 24. september. Dagskráin er unnin í sam-
vinnu við norrænu stofnunina á Álandseyjum og kemur for-
stöðumaður hennar, Soren Hvenekilde til landsins ásamt tón-
listarfólki, rithöfundi og fyririesara. Þau koma hingað frá
Færeyjum þar sem þau fluttu svipaða dagskrá í Norðurlanda-
húsinu í Þórshöfn. Áiandsdagarnir verða formlega settir I
kvöld kl. 19.30.
Ávörp flytja Soren Hvenek-
ilde, Lars-Áke Engblom, forstjóri
Norræna hússins, og sendiherra
Finnlands, Hákan Branders, sem
setur þessa dagskrá um Álands-
eyjar. Tveir tónlistarmenn, Lars
Karlsson og Jack Mattsson, leika
á píanó og flautu við athöfnina.
Að lokum verður frumsýnd ný
fræðslumýnd frá Álandseyjum
sem Nesfilm hefur gert.
Sýning á frímerkjum frá
Álandseyjum verður opnuð í
bókasafni hússins og í anddyri
verður sýning á málverkum, sem
sýna nokkur seglskip Álendinga
frá fyrri tímum. Auk þess eru
til sýnis oktant, kíkir og skips-
klukka. Þessi málverk og munir
eru fengin að láni hjá Stýri-
mannaskólanum, en Álands Sjö-
fartsmuseum afhenti skólanum
þessa muni til varðveislu fyrir
nokkrum árum.
I kaffistofu Norræna hússins
verða tveir álenskir sérréttir á
boðstólum; fiskisúpa og álenskar
pönnukökur.
Föstudagskvöld kl. 20.30
verður boðið upp á þjóðlög og
vísur frá Álandi. Vísnasöngkon-
an Eivor Lindström syngur við
undirleik Lars Karlsson og Jack
Mattsson. Barbro Anderson og
Benita Törnqvist syngja og leika
á fornt hljóðfæri, svokallaða
snertifiðlu eða fíðlu með snertl-
um (nyckelharpa á sænsku).
Þetta hljóðfæri á uppruna sinn
frá miðöldum og var það út-
breitt víða á Norðurlöndum á
þeim tíma. Barbro Andersson var
ein af þeim fyrstu sem kynnti
fiðluna og dró hana fram úr
gleymsku á Álandseyjum.
Laugardaginn 26. september
hefst dagskráin kl. 14.00 með
fyrirlestri sem Seren Hvenekilde
heldur og sýnir hann jafnframt
litskyggnur. Fyrirlesturinn fjall-
ar um Áland í fortíð og nútíð
og er þarna kjörið tækifæri til
að fræðast um eyjarnar.
Sama dag kl. 15.00 heldur
Elisabeth Nauclér fyrirlestur
sem hún nefnir „Áland - ett ös-
amhálles framtid i Europa“. El-
isabeth er ritari sendinefndar
landstjórnar Álandseyja.
Laugardagskvöldið kl. 20.30
verða tónleikar þar sem Carl
Nielsen kvartettinn frá Dan-
mörku leikur ásamt Lars Karls-
son og Jack Mattsson sem spila
á píanó og flautu. Á efnisskránni
eru verk eftir Lars Karlsson,
Jack Mattsson og Sture Isacs-
son. í einu verkanna (Vinden
drar eftir Jack Mattsson) leika
þau Guðríður Sigurðardóttir á
píanó og Sigurður Halldórsson á
selló. Carl Nielsen kvartettinn
skipa Peder Elbæk, sem leikur á
fiðlu, Jergen Larsen fiðluleikari,
Finn Winslov lágfiðluleikari og
Svend Winslov sellóleikari.
Sunnudaginn 27. september
kl. 16.00 verða aftur tónleikar
þar sem þær Barbro Andersson
og Benita Törnqvist flytja álensk
þjóðlög og vísur og kl. 17.00
segir rithöfundurinn Ulla-Lena
Lundberg frá ritstöfum sínum
og fjallar um bókmenntir Álend-
inga. Ulla-Lena Lundberg hefur
tvisvar verið tilnefnd sem fulltrúi
Finna til bókmenntaverðlauna
Norðurlanda. Ulla-Lena Lúnd-
berg kom fyrst fram sem rithöf-
undur með ljóðabók árið 1962
og hefur síðan sent frá sér 14
bækur um margs konar efni.
Hún fjallar um siglingar Álend-
inga í nýjustu bókum sínum; Leo
(1989) og Stora várlden (1991)
og sú þriðja er á leiðinni sem
fjallar um Áland samtímans.
Þessar bækur mynda eina heild,
trílógíu.
Laugardaginn 3. október verð-
ur opnuð sýning í sýningarsölum
á grafíkverkum eftir álenska
listamenn og einn ljósmyndara.
Sýningin stendur til 25. október.
Stjórn og starfsmaður SÍK. Fremri röð frá vinstri: Hrafn Gunnlaugs-
son og Snorri Þórisson. í aftari röð frá vinstri: Ágúst Guðmunds-
son, Sigurður Pálsson, Ari Kristinsson og Tómas Þorvaldsson.
Samtök kvikmyndafram-
leiðenda halda aðalfund
AÐALFUNDUR Samtaka kvikmyndaframleiðenda (SÍK) hefur veric
haldinn fyrir árið 1992. Aðild að samtökunum eiga flest öll þau ís
lensk kvikmyndafyrirtæki sem framleitt hafa leiknar myndir.
Samtök kvikmyndaframleiðenda
eru aðili að Alheimssamtökum kvik-
myndaframleiðenda (FIAP) og
sóttu fulltrúar stjórnar aðalfund
FIAP sem haldinn var í tengslum
við kvikmyndahátíðina í Cannes í
vor. Þá er SÍK virkur aðili í samtök-
um kvikmyndaframleiðenda í Evr-
ópu.
Á aðalfundi kom fram að fjár-
hagsstaða SÍK er sterk. SÍK á full-
trúa í stjórn Kvikmyndasjóðs og
fulltrúi SIK situr í stjórn Innheimtu-
miðstöðvar gjalda. Stjórn SIK skipa
Hrafn Gunnlaugsson formaður,
Snorri Þórisson varaformaður, Ari
Kristinsson ritari. Meðstjórnendur
eru Ágúst Guðmundsson og Sigurð-
ur Pálsson. Starfsmaður SÍK er
Tómas Þorvaldsson lögfræðingur.
ISLANDI
SAMSTARFI
EVRÓPUÞJÓÐA
• EES er besti kosturinn
í samskiptum okkar við
önnur Evrópuríki.
EES tryggir hagsmuni okkar
og annar jafngóður kostur
er ekki í augsýn.
• íslendingar eiga samleið
með öðrum Norðurlanda-
þjóðum í nýju samstarfi
Evrópuþjóða.
• EES stuðlar að aukinni sam-
vinnu við evrópsk fyrirtæki
sem styrkir íslenskt atvinnulíf
og kemur í veg fyrir
einangrun.
• EES verður vettvangur
aukins samstarfs í mennta-
og menningarmálum á
komandi árum.
• Samstarf um vísindi og
rannsóknir verður sífellt
mikilvægara. EES veitir
okkur betri aðgang að
því starfi.
• Friður og öryggi í Evrópu
er best tryggt með samstarfi
þjóðanna.
ATVINNULÍFIÐ
STYÐUR EES
Vinnuveitendasamband íslands • Samband veitinga- og gistihúsa • Landssamband iðnaðarmanna
Verktakasamband íslands • Samtök fiskvinnslustöðva • Apótekarafélag Islands • Utflutningsráð Islands
Verslunarráð íslands • Félag blikksmiðjueigenda • Félag íslenskra iðnrekenda • Félag íslenska prentiðnaðarins
Landssamband bakarameistara • Landssamband veiðarfæragerða • Hárgreiðslumeistarafélag íslands
Félag löggiltra rafverktaka í Reykjavík • Landssamband íslenskra útvegsmanna
Meistara- og verktakasamband byggingamanna • Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda
Málmur (samtök fyrirtækja i málm- og skipaiðnaði) • Kaupmannasamtök íslands