Morgunblaðið - 24.09.1992, Síða 12

Morgunblaðið - 24.09.1992, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992 Straumar Myndlist Eiríkur Þorláksson Það hafa ekki margar bækur verið gefnar út hér á landi í gegn- um árin sem fjalla um þá sem færa okkur listina; listafólkið sjálft. Helst hafa verið gefnar út bækur um einstaka listamenn, en sjaldan verið gert frambærilegt yfírlit yfir starfandi listafólk og listhugsun þess. Það eru helst nokkur listafélög sem hafa gefið út rit því tagi, t.d. íslensk Grafík, Leirlistafélagið og Myndhöggv- arafélagið í Reykjavík. Nú hafa Hafnfirðingar tekið visst frumkvæði á þessu sviði með útgáfu bókarinnar „Straumar — ljósbrot í iðu hafnfirskrar listar, sem ljósmyndarinn Lárus Karl Ingason hefur unnið og gefur út í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ. í tilefni útgáfu bókarinnar stend- ur nú yfir ljósmyndasýning í Sverrissal Hafnarborgar, þar sem getur að líta myndir af því lista- fólki, sem kynnt er í bókinni. - ljósbrot Bókin er þannig' sett upp að með ljósmynd af viðkomandi lista- manni fylgir lítill texti frá lista- manninum sjálfum, þar sem kem- ur fram örlítið brot af hans lífs- sýn. Aftast er síðan að finna nokkra samantekt á ferli alls þessa listafólks, sem telur rúm- lega fjörutíu manns. Hér er um að ræða persónulegt val Lárusar Karls vegna bókarinnar á lista- fólki sem býr í Firðinum eða er alið þar upp, en er engan veginn tæmandi úttekt á hafnfirskri list og listamönnum, eins og höfundur bendir á í formála. Það er mikill fengur að þessari bók, bæði vegna góðrar ljósmynd- unar og vandaðs texta, og ekki síður vegna þeirrar fjölbreytni, sem kemur fram í henni. Hér er að finna myndlistarmenn, rithöf- unda, söngvara, myndhöggvara, tónskáld, leirlistarfólk, jassista og leikara, svo eitthvað sé nefnt. Uppsetning bókarinnar er einföld og skýr og er öll vinna við hana hin vandaðasta; enskur texti verð- ur einnig til þess að auka gildi hennar mikið sem heimildar fyrir erlenda ferðamenn og listunnend- ur. Stuðningur Hafnarfjarðarbæj- ar við þetta verk er einnig mikils- verð viðurkenning fyrir hlut menningarinnar í bæjarlífinu, eins og bæjarstjórinn bendir á í inn- gangi sínum: „Sannleikurinn er sá, að Hafnarfjörður er miklu mun auðugra bæjarfélag, ríkara sam- félag, vegna þess gróanda, sem er og farið hefur vaxandi á síð- ustu árum í menningar- og lista- lífi hér í bænum. Slík viðurkenn- ing mætti vera almennari meðal sveitarstjórnamanna sem víðast um landið, ekki aðeins í orði á hátíðarstundum, heldur einnig á borði — í fjárveitingum og fram- kvæmdum." Portrettljósmyndir Lárusar Karls í bókinni njóta sín vel á sýningunni í Sverrissal. Hann hef- ur stundum valið að mynda lista- fólkið með einhver einkennismerki listarinnar í kringum sig; rithöf- undar standa framan við bókahill- ur, tónlistarmenn sitja við hljóð- færi og myndlistarfólk innan um sín verkfæri. En hér er ekki um stöðlun að ræða; sjónarhorn eru mismunandi og verða oft til að skapa minnisstæð portrett, t.d. af jassistanum Guðmundi St. Steingrímssyni, listmálaranum Eiríki Smith og hinum ötula tón- listarmanni Agli Friðleifssyni. Lýsingin gegnir einnig miklu hlut- verki í þessum svart-hvítu ljós- myndum, t.d. í myndunum af tón- listarmönnunum Björgvin Hall- dórssyni og Finni Torfa Stefáns- syni. Hér er á ferðinni ágæt ljós- myndasýning, sem verður enn áhugaverðari fyrir þá útgáfu, sem hún tengist. Þetta ánægjulega framtak verður vonandi öðrum til eftirbreytni og er vel til þess fall- ið að vekja athygli á lifandi menn- ingarlífi Hafnfirðinga. Ljósmyndasýningin „Straumar — ljósbrot í iðu hafnfirskrar.listar í Hafnarborg í Hafnarfirði stendur til sunnudagsins 27. september. Frá æfingu á verki Stephens Mills, Rauðum rósum. Dansarar eru Hany Hadaya og Melissa Anderson. Islenski dansflokkurinn Fyrsta sýning í Þjóð- leikhúsinu í október ÆFINGAR eru hafnar hjá ís- lenska dansflokknum fyrir fyrsta verkefni vetrarins. Á sýningunni verða sýndir þrír ballettar eftir þrjá bandaríska danshöfunda. Fyrsta verkið heitir Rauðar rósir og er eftir Stephen Mills, en hann starfar með Ballet Austin í Texas og hefur getið sér gott orð sem dans- höfundur víða í Bandaríkjunum. Annað verk sýningarinnar er Noc- turna eftir William Soleau, en hann er vel þekktur danshöfundur í Banda- ríkjunum. Þriðji ballettinn, Concerto Grosso eftir Charles Czarny, er í léttum stíl þar sem meðal annars koma fyrir línudansarar, fótboltamenn og kar- ate. Czarny hefur unnið mikið í Hol- landi og Bandaríkjunum á und- anförnum árum. Frumsýning verður í Þjóðleikhús- inu föstudaginn 23. október. Tónleikar haldnir Hlíf Kára- dóttir og Ragnheiður Skúladóttir. Umgjörð ljósmyndar- innar er glerlista- verk eftir Höllu Har- aldsdóttur glerlista- konu frá Keflavík og heitir verkið Andlit. 1 Ytri-Njarðvíkurkirkju HLÍF Káradóttir sópransöngkona og Ragnheiður Skúladóttir píanó- leikari halda tónleika í Ytri- Njarðvíkurkirkju í kvöld, fimmtu- dagskvöld 24. september, og hefj- ast þeir kl. 20.30. Þær Ragnheiður og Hlíf hafa unnið saman um árabil, á tónleikum og við ýmis önnur tækifæri. Á dagskrá tónleikanna verða m.a. íslensk einsöngslög, erlend lög og óperuaríur. Tónleikarnir eru liður í M-hátíð á Suðurnesjum. Starf barnakórs Hafnar- fjarðarkirkju að hefjast í Hafnarfjarðarkirkju er að hefjast annað starfsár barnakórs- ins. Starfsemin var blómleg síð- astliðinn vetur, en þá söng kórinn við fjölskylduguðþjónustur einu sinni í mánuði og kom fram við ýmis tækifæri. í vetur verður starfsemin tvíþætt: -Undirbúningsdeild ásamt-eldri kór. Kennd verða grunnatriði í raddbeit- ingu og nótnalestri. Öll börn á aldrin- um 8-12 ára eru velkomin á kynn- ingarfund í Hafnafjarðarkirkju laug- ardaginn 26. september kl. 11. Stjórnandi kórsins er Brynhildur Auðbjargardóttir ásamt Helga Bragasyni organista. Grænlenskur leikhópur í FIMMTUDAGINN 24. september mun grænlenski leikflokkurinn Silamuit halda sýningu í menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi á trommudönsum, grímuleikjum og hefðbundnum sögnum inúita frá Grænlandi, Alaska og Kanada, sem færðar hafa verið í leikbúning, og hefst sýningin kl. 20.30. Silamuit-Ieikhópurinn er staddur hér á landi í tilefni af fimm ára afmæli Norð-Vestur- landasamstarfsins (ísland, Græn- land og Færeyjar) sem haldið verður á Akureyri um helgina. í Silamuit-leikhópnum eru fjórir ungir grænlenskir leikarar og leik- stjóri þeirra, Lars Lövström, lærði í leikhússkóla Tukak-leikhússins sem er grænlenskt leikhús sem starfar á Jótlandi og var stofnað um miðjan áttunda áratuginn. Ragna sýnir í Nýlistasafninu RAGNA Róbertsdóttir opnar sýn- ingu í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3B, laugardaginn 26. september nk. kl. 16. «. Á sýningunni eru verk úr grá- grýti, hrauni og gúmmíi auk teikn- inga á vegg. Sýningin er í öllum sölum Nýlista- safnsins og myndar eina heild. Ragna hefur sýnt víða, bæði hér á landi og erlendis, síðan 1975. Síð- ast var hún með stóra einkasýningu í Kunstmuseum í Bern í Sviss í jan- úar sl. Sýningin er opin kl. 14-18 alla daga og lýkur 11. október nk. (Fréttatilkynning) Gerðubergi Grænlenskt leikhús er tiltölulega ungt en grænlenskir leikhópar hafa farið þá leið að byggja á sameigin- legum menningararfi inúita og hugsanlega bjargað mörgum forn- um siðum, leikjum og dönsum frá glötun. í ráði er að Silamuit-leik- hópurinn verði kjarninn í Þjóðleik- húsi Grænlands sem til stendur að stofna. (Fréltatilkynning) Nýútkomn- ar bækur Skáldsagan Sálmur að leiðarlok- um eftir norska rithöfundinn Erik Fosnes er komin út hjá Máli og menningu í þýðingu Hannesar Sig- fússonar. Fosnes var gestur nýliðinn- ar Bókmenntahátíðar. Sagan kom út í Noregi 1990 og hlaut sama haust bókmenntaverðlaunin Riksmalspris- en. Bókin er innbundin, 361 blaðs- íða, unnin hjá Prentsmiðjunni Odda hf. Bókin kostar 2.980 krónur. Mál og menning hefur gefið út bók eftir annan gest Bókmenntahá- tíðar, franska rithöfundinn Pascal Quignard. Þetta er skáldsagan Allir heimsins morgnar í þýðingu Friðriks Rafnssonar. Þetta er fimmta skáld- saga Quignards. Bókin, sem er í Syrtluflokki Máls og menningar, er 80 blaðsíður, unnin í G. Ben prent- stofu hf. Bókin kostar 1.595 krónur. Mál og menning hefur einnig gef- ið út bók um Dunganon eftir Björn Th. Björnsson með leikritinu Dung-, anon, sem nú er sýnt í Borgarleikhús- inu og ritgerðinni Dunganoriíu sem segir af ævi Karls Kerúlfs Einarsson- ar. Bókin er 150 blaðsíður, gefin út í kilju og innbundin. Hún er unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Bókin kost- ar 1.490 krónur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.