Morgunblaðið - 24.09.1992, Side 18

Morgunblaðið - 24.09.1992, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992 Hugleiðingar um búsetumál fatlaðra — í ljósi nýrra laga eftir Ástu M. Eggertsdóttur Undanfarinn áratug hafa búsetu- og vistunarmál fatlaðra, verið stórt atriði í framkvæmd Iaga um málefni fatlaðra, rétt eins og húsnæðismál eru aimennt í þjóðfélaginu. Þetta er skiljanlegt vegna þess að gnindvallaratriði í iífi hvers manns er að eiga sitt eigið heimili þar sem öryggi hans er tryggt. Heimilið er undirstaða þess að hægt sé að byggja upp aðra þætti í mann- legri tilveru. Heimilið er hvers manns skjól, þar öðlast menn öryggi. Þess vegna verða heimili að ganga fyrir öðrum úrræðum, sem þó eru einnig mikils virði. Hönnun íbúða og hagkvæmni í rekstri í náinni framtíð þurfa lausnir í búsetumálum fatlaðra að vera við hæfi einstaklingsins og valfrelsi hvers og eins til búsetu þarf að virða. íbúar ættu sjálfir að hafa forræði í eigin málum, en ekki opinberir aðilar eins og tíðkast t.d. á sjúkradeildum. Við úrlausnir þarf að virða eftir bestu getu þörf einstaklingsins ann- ars vegar til að eiga einkalíf á eigin heimili og hins vegar að velja með hveijum hann vill búa á heimilinu. Fyrirkomulag á íbúðarhúsnæði fyrir fatlaða skiptir miklu máli. Það er viðfangsefni fyrir arkitekta, enda hafa margir arkitektar sýnt áhuga á hönnun íbúða fyrir fatlaða. Miðað við þjóðfélagsumræður um spamað í ríkisrekstri er líklegt að hag- kvæmni í rekstri verði þýðingarmik- ið við val á lausnum í búsetumálum fatlaðra í náinni framtíð. íbúðarhús- næði þarf að hanna annars vegar til að koma til móts við kröfu um einkalíf viðkomandi íbúa og hins vegar til að gæta að hagkvæmni í rekstri. Viðhorf fólks til nálægðar fatlaðra Staðsetningu á sambýlum fatl- aðra í íbúðarhverfum þarf að velja m.t.t. almennra þjónustustofnana og almenningsvagna. Reynslan sýnir að hægt er að auka sjálfshjálp fatl- aðra og draga úr einangrun þeirra, ef þeir komast auðveldlega leiðar sinnar í daglegu lífi. Viðhorf samfélagsins til fatlaðra almennt, þ.á m. til nálægðar þeirra við annað fólk í venjulegum íbúðar- hverfum skiptir verulegu máli. Ef sambýli fatlaðra eiga almennt að ná markmiði sínu, þ.e. vera það skjól sem venjuleg heimili í landinu eru, þarf fólk að viðurkenna rétt hinna fötluðu til að lifa í nágrenni við sig. Ný lög um málefni fatlaðra Sérlög um aðstoð við þroskahefta voru sett árið 1979, en þau lög voru rýmkuð fjórum árum síðar, þegar lög um málefni fatlaðra voru sett, en þau náðu til allra hópa fatlaðra. Áhrif fyrri laganna gætti þó mik- ið við framkvæmd þeirra seinni, einkum í búsetu- og vistunarmálum, t.d. eru flestir íbúar á sambýlum á vegum svæðisstjórna þroskaheftir, en örfáir geðfatlaðir. Á þessum árum var talið að heil- brigðismálaráðuneytið bæri alfarið ábyrgð á málefnum geðfatlaðra. Þann 1. sept. 1992 ganga í gildi ný lög nr. 59/1992 um málefni fatl- aðra. Helstu nýmæli laganna eru m.a. breytingar á sviði yfírstjórnar málaflokksins, þar sem einu ráðu- neyti, félagsmálaráðuneytinu er fal- in yfirstjóm í stað þriggja áður og kveðið er á um breytingar á svæðis- stjórnum, þær lagðar niður í núver- andi mynd, en verkefnum þeirra verður skipt í tvennt; framkvæmd á þjónustu og rekstur annars vegar, á vegum Skrifstofu málefna fatlaðra í hverju kjördæmi og eftirlit, sam- ræmingu og réttindagæslu fatlaðra hins vegar, sem verður á vegum sjö manna svæðisráða á hveiju svæði. Markmið nýju laganna er óbreytt frá fyrri lögum; þ.e.a.s. að tryggja fötluðum jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra þjóðfélagsþegna og skapa þeim skilyrði til þess að lifa eðlilegu lífi. Stefnumörkun er í höndum félags- málaráðuneytisins hvað varðar upp- byggingu á þjónustu við fatlaða m.a. í búsetumálum. Lögin eiga að gilda í fjögur ár, en þá verða þau endurskoðuð m.t.t. aukinnar ábyrgðar sveitafélaga í málefnum fatlaðra. Með nýju lögunum er stigið fyrsta skrefíð í áttina að færa framkvæmd laganna til sveitarfélaga, t.d. er ákvæði í 13. gr. um að hægt sé að gera þjónustusamning á milli sveit- arfélaga og ríkisins. Fjárframlög verði flutt frá ríkinu til sveitar- félaga, til þess að gera þeim kleift að axla ábyrgð á að veita fötluðum þjónustu í heimabyggð sinni. Hverjir eiga rétt á þjónustu Þeir hópar fatlaðra, sem eiga rétt •á þjónustu samkvæmt lögum um málefni fatlaðra eru andlega og lík- amlega fatlaðir, sem þarfnast sér- stakrar þjónustu og stuðnings af þeim sökum. Á síðustu árum hefur verið unnið að athugunum á fjölda þeirra, sem þannig er ástatt um og liggja upplýs- ingar um fjölda fatlaðra barna fyrir, en ekki er vitað með vissu um fjölda fullorðinna. Hinn fatlaði sjálfur, eða aðstand- endur, verða þess vegna að óska eftir aðstoð lögbundinna aðila, til að þörf fyrir hjálp sé skráð, en það er forsenda fyrir því, að hægt sé að vinna að úrbótum í máli hans. Réttur geðfatlaðra er gerður ótví- ræður, en fjöldi þeirra sem þurfa á aðstoð að halda í búsetu- og vistun- armálum er mikill. Talið er að á land- inu séu 120-130 einstaklingar sem þurfi á hjálp að halda, fl§stir í Reykjavík. í þeim hópi eru á milli 40-50 einstaklingar sem eiga hvergi fastan samastað. Þetta er fólk sem fer inn og út af geðdeildum, stoppar stutt við hveiju sinni og er vímu- efna- og áfengisneysla, ásamt hegð- unarvandkvæðum ekki óalgeng vandamál hjá þessu fólki. Engin búsetuúrræði eru til fyrir þennan hóp. Vandamál viðkomandi einstakl- inga eru oft flókin og verða tæplega leyst með einföldum hætti eins og t.d. vistun á sambýli. Reynsla undanfarinna ára af nið- urröðun ólíkra einstaklinga á fimm manna sambýli sýnir, að einstaka maður getur ekki svo auðveldlega búið í þetta stórum hópi, einkum ef hann á við erfið geðræn vandamál að glíma. Mismunandi búsetuform í hinum nýju lögum um málefni fatlaðra eru ákvæði (sbr. 10. gr.) um mismunandi búsetuform eftir því hvað viðkomandi einstaklingur þarf mikla aðstoð til þess að geta búið sjálfstætt eða sem sjálfstæðast. Um er að ræða m.a. eftirtalin búsetuform; félagslegar íbúðir verndaðar íbúðir, sambýli, Áfanga- staði Félagslegar íbúðir Síðastliðið ár hefur Svæðisstjórn málefna fatlaðra í Reykjavík unnið að framkvæmd á nýju búsetuformi fyrir fatlaða, - búsetu í íbúðum með stuðningi og leiðbeiningum, en ekki viðveru starfsmanna, eins og tíðkast á sambýlum. Stjórnvöld hafa lagt áherslu á að fötluðu fólki sé gefínn kostur á þessu búsetuformi og að þeim sé tryggð aðstoð, t.d. eru launagjöld starfs- manna íbúða greidd af ríkinu og borgin sér um almenna heimaþjón- ustu. Skilyrði til þess að sjálfstæð bú- seta fatlaðra í félagslegum íbúðum verði að veruleika er að fötluðum verði veittur nauðsynlegur stuðning- ur á heimilum sínum. Gert er ráð fyrir að fatlaðir íbúar í íbúðum framfleyti sér af trygginga- bótum sínum. Hæstu greiðslur frá Tryggingastofnun eru um 55 til 60 þús. kr. á mánuði. Fatlað fólk, sem þarf aðstoð opin- berra aðila til að eignast eigið heim- ili í félagslegum íbúðum, hefur í langflestum tilvikum aðeins trygg- ingabætur til að framfleyta sér. Fatlaðir greiða húsaleigu eða kostnaðarleigu, sem er ákveðin pró- senta af stofnverði íbúðar. Svo dæmi sé tekið; heildar kostnaðarleiga af lítilli einstaklingsíbúð sem kostar kr. 3,9 milljónir er 16 þús. kr. á mánuði. Annan heimiliskostnað þarf einn- ig að taka með í reikninginn, s.s. hita, rafmagn og síma, auk fastra útgjalda vegna matarinnkaupa o.fl. Stærri og dýrari íbúðir verða að sjálfsögðu dýrari í leigu. Spurning er þess vegna hvort fatl- að fólk sem ekki hefur vinnutekjur, hafi fjárhagslega getu til að þúa í félagslegum íbúðum, án fjárhagsst- uðnings hins opinbera. Verndaðar íbúðir Verndaðar íbúðir eru íbúðir þar sem margháttuð þjónusta er innan seilingar. Höfundur telur nauðsyn- legt að skilgreina betur hugtökin félagslegar íbúðir og verndaðar íbúðir m.t.t.' 10. og 11. gr. hinna nýju laga um málefni fatlaðra og væntanlegrar þjónustu á vegum svæðisskrifstofu (ríkisins) við fatl- aða sem þurfa aðstoð við búsetu í íbúðum. í 11. gr. laganna er t.d. kveðið á um að að umsóknir um búsetu í verndaðar íbúðir skuli sendar til við- komandi svæðisskrifstofu, sem á að meta þjónustuþörf umsækjenda. Dæmi um þessa tegund búsetu, sbr. greinargerð með frumvarpinu, eru íbúðir Oryrkjabandalags Islands, við Hátún 10, en íbúðirnar þar eru leiguíbúðir, sem eru alfarið reknar á vegum Öryrkjabandalagsins og hefur Svæðisstjórn (svæðisskrifstof- an) hingað til engin afskipti haft af þeim og ólíklegt að löggjafínn ætlist til þess. Á hinn bóginn á svæðisskrifstofa ekki að hafa afskipti af umsóknum um búsetu í félagslegum íbúðum, skv. lögunum. En Svæðisstjórn (svæðisskrifstofan) í Reykjavík hef- ur hlutast til um að útvega fötluðu fólki félagslegar íbúðir til leigu og er einnig að aðstoða fatlaða til bú- setu í þeim, eins og áður er greint frá. Sambýli Undanfarin ár hefur áhersla verið lögð á uppbyggingu á sambýlum fyrir fatlaða og hefur verið komið á fót um 50 heimilum á vegum ríkis- ins á landinu sl. 10 ár. Algengt er að í þeim búi fimm til Brids Umsjón ArnórG. Ragnarsson Bikarkeppnin - leikur í átta liða úrslitum í dag Einn leikur fer fram í átta liða úrslit- um í bikarkeppninni í dag kl. 17. Sveit Verðbréfamarkaðar íslandsbanka spilar gegn Suðurlandsvídeói. Spilað er á Hótel Loftleiðum, niðri, og eru áhorfendur velkomnir. Opið bridsmót á ísafirði Helgina 2.-3. október nk. verður haldið afmælismót til heiðurs Guð- mundi M. Jónssyni, sem varð 75 ára í sumar. Hann er núverandi Vest- ljarðameistari í tvímenningi en þann titil vann hann með Arnari G. Hinriks- syni á Vestfjarðamótinu í tvímenningi sem haldið var á Hólmavík helgina 5.-6. september. sl. Sérstakir gestir mótsins verða fímm af þeim sex spilur- um sem unnu heimsmeistaratitilinn í Yokohama í fyrra. Mótið hefst kl. 19 föstudagskvöldið 2. október og verða þá spilaðir tveir 20 spila sýningaleikir milli heims- Ásta M. Eggertsdóttir „Væntanleg stefnu- mörkun í búsetu- og vistunarmálum fatlaðra verður vonandi gerð með það í huga að sér- þarfir fatlaðra eru mis- munandi og lausnir verða því að vera fjöl- breytilegar. Tryggja þarf fjárframlög úr rík- issjóði til reksturs og framkvæmda.“ sex manns, sem þurfa aðstoð við athafnir daglegs lífs. Lagaákvæði um sambýli má rekja til ársins 1979. Hugtakið sambýli er heiti á heimilum fatlaðra, sem hafa ákveðið rekstrarform. Ríkið greiðir launagjöld starfsmanna, en þeir sem búa á sambýlum greiða heimilisrekstur af hluta trygginga- bóta sinna. Tryggingabætur eða ör- orkulífeyri fá þeir sem eru 16 ára og eldri og því eru þessi aidursskil- yrði sett fyrir búsetu á sambýlum. Börn fá ekki örorkulífeyri og greiðir ríkið allan kostnað á heimilum fatl- aðra barna. Greinarmunur er gerður á heimilum barna og fullorðinna vegna mismunandi rekstrarforms, en ekki að öðru leyti. Sambýli hafa þróast þannig að þau hafa tekið að hluta til við því hlutverki sem fjölmennar dvalar- stofnanir höfðu áður fyrr. í hugmyndafræðinni sem lögin meistaranna, sveitar Guðmundar M. Jónssonar og sveitar ungra spilara úr Menntaskólanum á ísafírði. Laugar- daginn 3. október verður síðan opið tvímenningsmót, barómeter, 45-62 spila. Peningaverðlaun verða fyrir fýrstu þijú sætin, 50.000 í fýrstu verð- laun, 30.000 í önnur verðlaun og 20.000 í þriðju verðlaun. Spilað verður f Stjómsýsluhúsinu á ísafírði og mun bæjarstjórinn á ísafirði, Smári Har- aldsson setja mótið. Áætlað er að tví- menningsmótið byiji kl. 11 en hægt er að breyta því ef óskað er. Þátttöku- gjald verður kr. 2.000 á parið. Nánari upplýsingar og skráning er á skrif- stofu Bridssambands íslands í síma 91-689360. Hugsanlega þarf að tak- marka fjölda þátttakenda svo menn eru beðnir um að láta skrá sig sem fyrst. Bridsfélag Suðurnesja Vetrarstarfið hófst sl. mánudag með eins kvölds tvímenningi og spil- uðu 15 pör. Lokastaðan: Valur Símonarson - Gunnar Guðbjömss. 203 KarlHermannsson-AmórRagnarsson 201 Gunnlaugur Sævarsson - Pétur Júlíusson 191 Gísli Torfason - Jóhannes Sigurðsson 188 HASKOLI ISLANDS ENDURMENNTUNARSTOFNUN STJORNUN FYRIRTÆKJA OG STOFNANA: Nokkrir mikilvægir þættir í þremur sjálfstæðum námskeiðum I. Kynning á stefnumótun. I. október kl. 16.00-22.00. Fjallað verður um markmið og gagnsemi af skipulegri vinnu við mótun skýrrar framtíðar- stefnu fyrirtækja.' Farið verður í aðferðir og vinnuferli við stefnumótun. II. Stjórnskipulag og starfslýsingar. 8. október kl. 16.00-20.00. Fjallað verður um mikilvæg atriði varðandi gerð stjórnskipuiags í fyrirtækjum og stofn- unum. Jafnframt verða kynntar aðferðir við gerð starfslýsinga. III. Frammistöðumat. 15. október kl. 16.00-20.00. Kynntar verða aðferðir við að meta frammi- stöðu starfsmanna og jafnframt verður fjall- að um fyrirkomulag frammistöðumats innan fyrirtækja og stofnana. Leiðbeinendur: Gísli S. Arason, rekstrarráð- gjafi hjá Stuðli hf., lektor við viðskiptadeild HÍ, Jóhann Magnússon, rekstrarráðgjafi hjá Stuðli hf. og Þórður S. Óskarsson, vinnusál- fræðingur. Tími og verð: 1., 8. og 15. október kl. 16.00-20.00. Þátttökugjald er kr. 11.500,- fyrir öll nám- skeiðin, en 4.800,- fyrir hvert einstakt nám- skeið. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Endur- menntunarstofnunar í símum 694923, 694924 og 694925. Tölyuendurmenntnn fyrir konnr 36 klst morgun- eða kvöldnámskeið sem veitir þjálfun í grunnatriðum tölvunotkunar. Kennt er einu sinni í viku, tölvufræði, Windows, Word ritvinnsla og tölvubókhald. Tölvu- og verkfræðiþjónustan í>° Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar Grensásvegí 16*stofnuð 1. mars 1986 ©

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.