Morgunblaðið - 24.09.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
19
eru byggð á er m.a. talið að fjöl-
mennar deildir á dvalarstofnunum
hafi ekki sömu möguleika á að veita
það persónulega umhverfi sem fá-
menn heimili fólks í venjulegum
íbúðarhverfum gera. Hugmyndin er
að aðlaga umhverfið að þörfum
hinna fötluðu þannig að það ýti und-
ir sem mesta sjálfshjálp.
Um þessar mundir eru starfrækt
17 sambýli fyrir fatlaða í 'Reykjavík
á vegum félagsmálaráðuneytisins og
búa þar 97 íbúar.
Andlegar fatlanir eru algengastar
og eru flestir íbúanna þroskaheftir
og/eða geðfatlaðir.
Framkvæmdasjóður fatlaðra fjár-
magnar framkvæmdir vegna stofn-
kostnaðar sambýla, en Öryrkja-
bandalagið hefur einnig keypt hús
og leigir þau til að starfrækja sam-
býli.
Á sambýlum í Reykjavík eru að
meðaltali 6.30 stöðugildi á hveijum
stað og vinna starfsmenn á vöktum.
Um þessar mundir eru greidd laun
samtals rúmlega 107 stöðugilda, en
algengt er að starfsmenn vinni
hlutavinnu.
Áfangastaðir
Áfangastaðir eru ætlaðir geðfötl-
uðum og miða að því að brúa bilið
á milli sjúkrahússdvalar og eðlilegs
lífs á eigin heimili.
Áfangastaðir á vegum félags-
málaráðuneytisins eru ný úrræði í
anda nýju laganna, en hingað til
hafa þeir verið reknir í tengslum við
geðlæknisfræðilega endurhæfingu.
Á áfangastöðum fer fram félagsleg
hæfing, þar sem íbúar fá félagslegan
stuðning og ráðgjöf. Fjöldi starfs-
fólks er þó í lágmarki og starfstími
oft ekki nema fjórar stundir að
kvöldlagi.
Við stofnun nýrra sambýla og
áfangastaða í framtíðinni verður að
taka tillit til sérþarfa geðfatlaðra.
Gera verður ráð fyrir sérhæfðu
starfsfólki og vakt allan sólarhring-
inn í sumum tilvikum.
Nýtt lagaákvæði um
húsnæðismál
Undanfarna áratugi hafa hags-
munafélög fatlaðra unnið ötullega
að velferðarmálum fatlaðra eins og
kunnugt er. Þau hafa m.a. verið
brautryðjendur í þróun nýrra hug-
mynda og aðferða til úrbóta í hús-
næðismálum fatlaðra. Fjáröflun Ör-
yrkjabandalags íslands, lottóið, hef-
ur t.d. gert það mögulegt að útvega
fötluðu fólki húsnæði. Síðan það kom
til sögunnar hafa margar íbúðir ver-
ið keyptar og hús byggð fyrir fatl-
aða um land allt. Með þessu móti
hefur mörgum verið gert kleift að
búa í íbúðum á eigin vegum.
í hinum nýju lögum um málefni
Meðalskor 168
Veitt voru bókaverðlaun fyrir fyrsta
sætið. Spilað er á mánudögum \ Hótel
Kristínu í Njarðvíkum og hefst spila-
mennskan kl. 19.30.
Bridsfélag Breiðholts
Sl. þriðjudag var spilaður eins
kvölds tvímenningur í 16 para riðli.
Efst urðu eftirtalin pör:
Þorbergur Ólafsson - Trausti Friðfinnsson236
Maria Asmundsd. - Steind. Ingimundars. 235
Sigurður Kristjánss. — Eiríkur Sigurðsson 230
FriðrikJónsson-RúnarHauksson ' 225
Guðm. Grétarsson - Guðm. Baldursson 224
Meðalskor 210
Næsta þriðjudag hefst þriggja
kvölda hausttvímenningur. Allir vel-
komnir. Vinsamlegast mætið tíman-
lega til skráningar eða látið skrá ykk-
ur hjá Hermanni í síma 41507 eða
Baldri í síma 78055. Spilað er í Gerðu-
bergi kl. 19.30.
A/fiM. International
Prentvólar, plötugerðartæki,
setnlngartæki og fleíri
tækl fyrlr prentlðnað.
Varityper
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavík
Slmar 624631 / 624699
fatlaðra eru ákvæði sem eiga að ýta
enn frekar undir að félagslegum
íbúðum fyrir fatlaða verði komið á
fót.
Samkvæmt núgildandi lögum um
Húsnæðisstofnun ríkisins nemur
framlag framkvæmdaaðila 10% af
kostnaðarvérði íbúðar.
Skv. nýju lögunum er Fram-
kvæmdasjóði fatlaðra heimilt að
greiða þetta framlag til fram-
kvæmdaaðila, þegar félagslegum
íbúðum er komið á fót til að leigja
fötluðum, að hálfu leyti þegar sveit-
arfélög eiga í hlut, en að öllu leyti
þegar um félagasamtök eða sjálfs-
eignarstofnanir er að ræða.?
Framtíðin, fjárframlög og
skipulag
Fjöidi fatlaðra sem þarfnast sér-
stakrar þjónustu og aðstoðar sökum
fötlunar er mikill. I Reykjavík einni
eru tvö hundruð manns sem bíða
eftir hjálp.
í umræðum um búsetumál geð-
fatlaðra og annarra fatlaðra sem
eiga við hegðunarvandamál að
stríða, hefur komið fram að margir
í hópi þeirra eiga það sameiginlegt
að eiga í samskiptaerfiðleikum við
annað fólk og þola litlar kröfur.
Fagaðilar hafa bent á mikilvægi
þess að aðlaga umhverfið að þörfum
hinna fötluðu, en ekki að búa til
ákveðið umhverfi og freista þess að
viðkomandi falli að því. Þjónustu,
hönnun og byggingu íbúðarhús-
næðis fyrir fatlaða þarf að skipu-
ieggja m.t.t. valfrelsis einstakling-
anna um hvernig þeir vilja búa og
jafnframt verður að gæta að hag-
kvæmni í rekstri vegna launakostn-
aðar aðstoðarmanna.
Væntanleg stefnumörkun í bú-
setu- og vistunarmálum fatlaðra
verður vonandi gerð með það í huga
að sérþarfir fatlaðra eru mismun-
andi og lausnir verða því að vera
fjölbreytilegar. Tryggja þarf fjár-
framlög úr ríkissjóði til reksturs og
framkvæmda.
Hvernig til tekst að mæta þörfum
fatlaðra til að eignast sitt eigið heim-
ili í náinni framtíð, er að mestu leyti
háð fjárframlagi opinberra aðila til
húsnæðismála, skipulagi á búsetu-
og vistunarmálum og heimaþjónustu
sveitarfélaga.
Miklu máli skiptir að skipulag á
opinberri þjónustu sé sniðið að þörf-
um fatlaðra undir kjörorðunum hjálp
til sjálfshjálpar, en það er skoðun
mín að sú tegund hjálpar sé farsæl-
ust fyrir alla.
Höfundur er framk væm das tjóri
Svæðissljómar málefna fatlaðra í
Reykjavík.
■ LJÓSHEIMAR, íslenska heil-
unarfélagið, hefur gefið út bókina
Lögmál ljóssins. Bókin er 76 síður
í vasabroti. í henni er að finna
umfjöllun um 57 lögmál sem nauð-
synleg eru hveijum manni að til-
einka sér, eins og segir í fréttatil-
kynningu, auk kafla um liti, lita-
meðferð o.fl. Á bókarkápu segir
m.a.: „Lögmál ljóssins er nauðsyn-
leg varða á andlegri þróunarbraut
mannsins. Án þekkingar eða skiln-
ings á þeim öðlast umsækjandinn
eða lærisveinninn ekki vitund hins
innvígða. Góður boðberi á Nýja-
Sjálandi, Ann Herbstreith, miðl-
aði lögmálum ljóssins." Bókin er
seld hjá Ljósheimum, Hverfisgötu
105, 2. hæð og í versluninni Betra
lífi.
(Úr fréttatilkynningu.)
HREINT OG
SKÍNANDI SALERNI
ÁAUGABRAGÐI
Engar vatnsfötur - engar tuskur
Loksins er komin fljótvirk og þægileg aðferð til þess að þrífa
og sótthreinsa svæðin á salerninu sem óhreinkast svo fljótt
og auðveldlega -lok og setur salernisskála, barmarnir og
skálarnar að utan svo og gólfið umhverfis. Allt sem til þarf
eru Touch-Ups hreinsiklútar og vatn. Þú vætir Touch-Ups
klútinn, en í honum eru sérstök sótthreinsunar- og ilmefni,
strýkur yfir fletina sem þú vilt þrífa, að því loknu skolar þú
klútnum niður* eða setur hann í sorpið.
Engar hvimleiðar kiósetttuskur framar!
Þú þarft aöeins
Klútarnir eru einnig afbragð til þess að þrífa handlaugar,
handlaugaborð og baðkör.
Notkun Touch-Ups klútanna er fljótvirk og þægileg leið til
þess að halda salernum og baðherbergjum hreinum
og skínandi með ferskum ilmi.
SKOLA NIÐUR
‘Þœgilegra ogfljótíegra
getur það efþi verið.
EMIL
i Kattholti
Sunnudaginn 4.október kl.14:00
Sunnudaginn H.október kl.14:00
Miðasala Þjóðleikhússins
er opin alla dasa nema mánudaga
frá kl. 13:00-20:00
á meðan á kortasölu stendur.
Miðapantanir í síma 11200
alla virka daga frá kl. 10:00
Græna línan 996160
Leikhúslínan 991015
Greiðslukortaþjónusta.
iíHjl ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Góða skemmtun!