Morgunblaðið - 24.09.1992, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
Berrisha Hunde frá Eþíópíu
Kirkjan fær að starfa
mun frjálsar en áður
í DAG eru engar hindranir á starfi Mekane Jesús kirkjunnar í
Eþíópíu og engar ofsóknir, fangelsanir eða önnur slík vandamál
sem við áttum við að glima í tíð fyrri stjórnvalda. Helsta vanda-
mál okkar nú er að fylgja eftir hinum öra vexti kirkjunnar með
nógu m.örgum prestum, leiðtogum og öðrum starfsmönnum.
Þess vegna gætum við þegið að enn fleiri kristniboðar komi
okkur til hjálpar, segir séra Berrisha Hunde frá Eþíópíu sem
staddur er hérlendis um þessar mundir í boði Sambands ís-
lenskra kristniboðsfélaga. Berrisha Hunde er nú yfirmaður suð-
ur synódu Mekane Jesús kirkjunnar en íslenskir kristniboðar
hafa starfað á svæði hennar í nærri fjóra áratugi.
-Það er mjög mikilvægt fyrir
mig að fá tækifæri til að heim-
sækja Norðurlönd og skiptast á
skoðunum við fólkið sem hefur
stutt kristniboðið í áraraðir og
að geta flutt því kveðjur og þakk-
ir frá okkur, segir Berrisha
Hunde í samtali við Morgunblað-
ið. -Það verður að ríkja gagn-
kvæmur skilningur og traust á
milli okkar í þessum ólíku lönd-
um og ég tel að samstarfið hafi
tekist sérlega vel milli íslendinga
og okkar og raunar annarra
Norðurlandaþjóða sem við eigum
samstarf við. íslensku kristni-
boðamir hafa iðulega verið
brautryðjendur og staðið fyrir
uppbyggingu nýrra kristniboðs-
stöðva í Eþíópíu, nú síðast í
Voitó-dalnum í suðurhluta lands-
ins. Það er raunveruleg fóm að
starfa á svo afskekktum stað,
fjarri ættlandi og ættingjum og
án allra venjulegra lífsgæða en
þetta hafa þeir gert til þess að
koma fagnaðarerindinu til skila
og til að bæta heilbrigðisástand-
ið hjá Tsemai-mönnum.
Þar vísar Berrisha Hunde til
sjúkraskýlisins sem reist hefur
verið í Voitó-dalnum, m.a. fyrir
fjármagn frá Hjálparstofnun
kirkjunnar. Og Berrisha Hunde
minnir á að Afríkumaðurinn
greini ekki á milli líkamlegrar
og andlegrar þjónustu heldur lít-
ur á hana sem eina heild og það
hafi kristniboðamir í raun gert
alla tíð með starfi sínu, þeir hafi
látið sér annt um líkamlega sem
andlega velferð fólksins.
Mekane Jesús kirkjan í Eþíóp-
íu er evangelísk-lúthersk og er
stofnuð í kjölfar starfs lúther-
skra kristniboða í landinu. Kirkj-
an telur nú 1,1 milljón meðlimi
og í suður-sýnódunni erú' 55
þúsund manns. Hefur þeim fjölg-
að um 20 þúsund á tveimur árum
og alls eru nú innan hennar 150
söfnuðir. En hver er skýringin á
hinum hraða vexti kirkjunnar?
-Hún er að nokkru leyti sú að
við höfum fengið að starfa mun
fijálsar og meira en í tíð fyrri
yfirvalda. Áður varð fólk að
koma saman í laumi og við gát-
um ekki notað kirkjurnar eins
og við vildum og þannig var
reynt að halda útbreiðslu kirkju
og kristni í landinu í skefjum,
segir Berrisha og má skjóta því
hér inn að á tímum byltingar-
stjórnarinnar þegar kristnir
menn voru ofsóttir fyrir trú sína
stóð hann sjálfur oft í ströngu
við að bjarga þeim og sat sjálfur
oftar en einu sinni í varðhaldi.
-í dag er það hins vegar oft
þannig að fólk sem flytur
kannski til svæða þar sem kirkj-
an starfar ekki tekur að mynda
lítinn söfnuð upp á eigin spýtur
og þegar kominn er 25 manna
hópur er formlegur söfnuður
myndaður. Þá þurfum við að
fylgja fólkinu eftir og útvega því
meiri fræðslu, prédikara og
presta. Við eigum fullt í fangi
með að annast þessa hröðu út-
breiðslu og þess vegna gætum
við þegið fleiri kristniboða!
Er hlutverki kristniboðanna
þá alls ekki lokið?
-Nei, því við höfum enn næg
verkefni fyrir þá við kennslu og
ráðgjöf og stjórnun á uppfræðslu
leiðtoga okkar. í dag starfa
kristniboðarnir hins vegar alveg
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Berrisha Hunde frá Eþíópíu og kona hans Adjúnna Gellebo eru
stödd hérlendis í boði Sambands íslenskra kristniboðsfélaga.
á vegum Mekane Jesús kirkjunn-
ar, hún ræður öllu starfi sínu en
kallar kristniboða til hinna ýmsu
verkefna hér og þar í landinu.
Margir kristniboðar starfa einnig
við margs konar heilsugæslu og
uppbyggingu hennar.
Berrisha Hunde er einn hinna
fyrstu sem gerðist kristinn í
Konsó í Eþíópíu, gekk í skóla
kristniboðsins og starfaði sem
prédikari. Hann fór síðan í
prestaskóla og var fyrsti innlendi
presturinn í Konsó og síðar
stöðvarstjóri þar. Hann kom til
íslands fyrir 19 árum eftir að
hafa dvalið í rúmt ár í Bandaríkj-
unum í framhaldsnámi.
-Ég kynntist hvíta manninum
þegar Felix Ólafsson kom til
Konsó og hóf að byggja kristni-
boðsstöðina þar. Þá var ég bara
unglingur og fylgdist með hon-
um gegnum girðinguna, þessum
hvíta manni sem ætlaði að ger-
ast vinur okkar. Móðir mín var
seiðkona og haldin illum anda
og það var Felixar bað fyrir
henni og rak illa andann úr
henni. Þetta var alveg raunveru-
legt fyrir okkur þvi þessi illi
andi stjórnaði lífi okkar. Átrún-
aðúr okkar bauð okkur að fórna
og gera allt sem andinn sagði
og þess vegna var það mikill létt-
ir og lausn að kynnast kristin-
dóminum, við fengum að kynn-
ast Jesú Kristi sem var sterkari
en illi andinn. Ég reyndi þetta
sjálfur og upp frá því hélt ég
eiginlega til á kristniboðsstöðinni
og hef starfað með kristniboðun-
um og hjá kirkjunni síðan, segir
Berrjsha Hunde að lokum.
jt
þrekhjól með tölvumæli
sem mælir hraða - tíma -
vegalengd - með þungu
kasthjóli, breiðu sæti.
Verð 19.877 stgr.
W
TONIC þrekhjól og þrekstigar
þrekhjól með púlsmæli og
fullkomnum tölvumæli 12
kg. kasthjól, breitt sæti.
Verð 23.912 stgr.
RAÐGREIÐSLUR
OPIÐ
LAUGARDAGA
FRÁKL. 10-14
SKEIFUNNI V V
VERSLUN SÍMI 679890 - VERKSTÆÐI SÍMI 679891
þrekstigi með tölvumæli
og teljara.
Verð 17.872 stgr.
TG-721
TG-730
TM-300
Góð heilsa er gulli betri!
ORNINN0*