Morgunblaðið - 24.09.1992, Qupperneq 23
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
Halldóra Rafnar formaður útvarpsráðs
Menntun vegiu* þyngra en
starfsreynsla umsækjenda
HALLDÓRA Rafnar, formaður útvarpsráðs, segir að ráðið hafi mælt
með að Adolf Erlingsson yrði ráðinn í stöðu íþróttafréttamanns hjá
sjónvarpinu og hafi þar ráðið mestu að Adolf hefur meiri menntun
en aðrir umsækjendur. Ingólfur Hannesson, forstöðumaður íþrótta-
deildarinnar, sagði í Morgunblaðinu í gær, að ef Logi Bergmann Eiðs-
son yrði ekki ráðinn í starfið eins og hann hefði mælt með, liti hann á
það sem vantraust á sín störf. Ingólfur fundaði í gær með Heimi Steins-
syni útvarpssljóra um málið.
Halldóra sagði að á fundi útvarps-
ráðs hefði verið fjallað um sex stöður
og staða íþróttafréttamanns hefði
aðeins verið ein þeirra. Allur gangur
væri á því hvort umsagnir yfirmanna
viðkomandi deilda fylgi umsóknun-
um. Svo hefði þó verið í þessu til-
viki. Það væri misskilningur að eng-
ar umræður hefðu orðið í útvarps-
ráði, verulegar umræður hefðu orðið
fyrir atkvæðagreiðslu um allar stöð-
urnar. „Það lá fyrir með öllum þess-
um fréttamönnum ákveðin skoðun
yfirmannanna en útvarpsráð tekur
sína ákvörðun óháð því. Það er tilvilj-
un að þetta fellur svona og engin
samantekin ráð sem valda því. Ég
reikna með að hver útvarpsráðsmað-
ur fari eftir menntun og starfs-
reynslu viðkomandi. Logi Bergmann
Eiðsson er með lengsta starfsreynslu
vegna þess að hann er með styttri
menntun en Adolf Erlingsson," sagði
Halldóra.
„Það er ekki hægt að reikna með
því að þegar menn koma til starfa í
gegnum afleysingar að þeir eigi rétt
á stöðunni. Það er spurning hversu
mikið forskot það eigi að veita mönn-
um þegar -aðrir sækja um sem hafa
líka langa starfsreynslu og mun
meiri menntun. Logi hefur ekki stúd-
entspróf. Þegar auglýst var eftir
fréttamönnum í' þessar stöður var
sagt að nauðsynlegt væri að umsækj-
endur hefðu háskólapróf og eða
starfsreynslu á sviði frétta- og blaða-
mennsku," sagði Halldóra.
Adolf Erlingsson hefur, að sögn
Halldóru, BA-próf auk starfsreynslu
á sviði frétta- og blaðamennsku.
Ingólfur Hannesson, forstöðumað-
ur íþróttadeildar, sagði að engin nið-
urstaða hefði orðið á fundi hans með
útvarpsstjóra, enda væri það alfarið
á valdi útvarpstjóra að taka ákvörðun
í þessu máli. „Ef fólk væri útilokað
frá stöðum einvörðungu vegna skorts
á menntun þá væri t.d. fréttastjóri
Utvarps ekki að störfum þar, vegna
þess að hann hefur ekki stúdents-
próf. Hugsanlega ætti hann að
hætta, ef útvarpsráð fengi að ráða,
með mjög langa starfsreynslu að
baki. Hvað ætla menn að gera ef
þeir.ætla að bíta sig fasta í þessa
röksemd? Það hefur líka gerst áður
að menn hafa verið ráðnir til þessar-
ar stofnunar með engu eða einu at-
kvæði,“ sagði sagði Ingólfur Hannes-
son.
Bundið slitlag
á Vatnsleysu-
strandarveg
^ Vogum.
Á VEGUM Vegagerðar ríkisins
og sýsluvegasjóðs Gullbringu-
sýslu standa yfir framkvæmdir
við lagningu bundins slitlags á
Vatnsleysustrandarveg frá Þóru-
stöðum að Litlabæ, um einn kíló-
metri að lengd.
Fyrirtækið Klæðning annast
verkið sem felst í því að vegurinn
er byggður upp, sett ný ræsi og
að lokum sett slitlag ofan á. Þessi
verkhluti kostar um 3,5 milljónir kr.
- EG
Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson
Frá busavígslu í Framhaldsskólanum í Reykholti.
Reykholt
Busað við langborð
að hætti Snorra
Kleppjárnsreykjum.
NÝIR siðir með nýjum herrum. Þannig er það langoftast og einn-
ig í Framhaldsskólanum í Reykholti en nýnemar voru busaðir
af „gamlingjum" þar með nýjum hætti nú í byrjun nýs skólaárs.
Boðið var til veislu við langborð að hætti Snorra Sturlusonar.
Skólastjórinn, Oddur Albertsson, flutti frumsamda tónlist og lék
undir á gítar við góðar undirtektir nemenda.
Héraðsskólinn í Reykholti
heitir nú Framhaldsskólinn í
Reykholti og er rekinn í fag-
legu samstarfí við aðra fjöl-
brautaskóla. í Reykholti eru
allar grunnnámseiningar auk
verslunar- og íþróttabrauta.
Nýjung er myndbanda- og leik-
starfsemi og hefur verið keypt
myndbandsklippivél sem gerir
kennslu og allt starf mun auð-
veldara.
„100% aukning hefur orðið á
nemendafjölda frá því í fyrra
og segja má að auglýsingar
okkar og þær breytingar sem
gerðar hafa verið á rekstri
skólans hafi fallið nemendum í
geð, meiri ábyrgð og meira
traust er nú sett á herðar nem-
enda. Framhaldsskólinn í Reyk-
holti getur tekið 130 nemendur
í heimavist, þannig að hægt er
að nota hluta húsnæðis og
heimavistir til ráðstefnuhalds
fyrir félög sem vilja komast í
kyrrðina og rómantíkina í
Borgarfirði," sagði Oddur Al-
bertsson skólastjóri að lokum.
- Bernhard
Aðalfundur Heimdallar í kvöld
Sjálfkjörið til sljómar
Drög að nýrri stefnuskrá Héimdallar verða lögð fram
SJÁLFKJÖRIÐ verður til emb-
ættis formanns og í stjórn hjá
Heimdalli, félagi ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, fyrir
næsta starfsár en framboðsfrest-
ur fyrir aðalfund félagsins, sem
verður í kvöld, rann út á þriðju-
dag. Kjartan Magnússon, sem var
kjörinn formaður félagsins á að-
alfundi þess í fyrra, gaf kost á
sér til endurkjörs og mun hann
því sitja áfram sem formaður.
Markús Örn Antonsson verður
heiðursgestur aðalfundarins, sem
verður í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
og hefst kl. 20. Á fundinum verður
lögð fram skýrsla stjórnar og endur-
skoðaðir reikningar fyrir starfsárið,
sem er að líða. Að venju mun fund-
Kjartan Markús Örn
Magnússon. Antonsson.
-urinn einnig taka stjórnmálaálykt-
un til afgreiðslu.
Sérstök stefnuskrárnefnd hefur
starfað á vegum Heimdallar í vetur
undir forsæti Birgis Ármannssonar,
fyrrverandi formanns félagsins.
Hefur hún samið drög að nýrri
stefnuskrá félagsins og verða þau
kynnt á aðalfundinum í kvöld en
áformað er að taka þau til af-
greiðslu á stefnuskrárráðstefnu í
október.
Eftirtaldir verða sjálfkjörnir í
stjórn Heimdallar á næsta starfs-
ári: Ari Gísli Bragason skáld, Ás-
laug Magnúsdþttir laganemi, Há-
kon Sveinsson laganemi, Hörður
H. Helgason laganemi, Kristinn
TrygKvi Þorleifsson laganemi,
Kristján Garðarsson verslunarmað-
ur, Ottar Guðjónsson hagfræðing-
ur, Sigutjón Pálsson verkfræði-
nemi, Þorsteinn Davíðsson laga-
nemi, Þóra Hjartar Blöndal mark-
aðsstjóri og Þórður Þórarinsson
heimspekinemi.
TILBOÐ
VIKUNNAR
HAGKAUP
- allt í einni ferd