Morgunblaðið - 24.09.1992, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
25
Júgóslavíu vikið úr
Sameinuðu þjóðunum
Sameinuðu þjóðunum, Sarajevo. Reuter.
JÚGÓSLAVÍA hefur misst sæti að það kyndi ekki lengur undir
sitt á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna og verður að sækja um
aðild að samtökunum að nýju.
Ólíklegt er talið að ríkið endur-
heimti sætið fyrr en ljóst þykir
Metaðsókn að
nýjustu mynd
Woody Allens
New York. The Daily Telegraph.
BANDARÍSKI kvikmyndaleik-
sljórinn Woody Allen hefur að
undanförnu ekið á milli kvik-
myndahúsa í New York í glæsi-
vagni ásamt unnustu sinni, hinni
21 árs gömlu Soon Yi Previn, og
kannað langar biðraðir áhorfenda
sem flykkjast nú á nýjustu mynd
hans, Eiginmenn og eiginkonur.
Sagt er að mikil aðsókn að mynd-
inni sanni gamalt slagorð kunnáttu-
manna í Hollywood, að öll umfjöllun
sé góð umfjöllun.
Tekjur af myndinni voru sem svar-
ar nær 200 milljónir ÍSK fyrstu sýn-
ingarhelgina. Myndir Allens hafa að
jafnaði átt litlum vinsældum að fagna
í heimalandinu, sem dæmi má nefna
að heildartekjur af síðustu mynd-
inni, Skuggar og þoka, voru aðeins
tæpar 150 milljónir ISK. En háværar
deilur Allens við fyrrverandi satnbýl-
iskonu sína, leikkonuna Miu Farrow,
og ásakanir hennar á hendur leik-
stjóranum um kynferðislega áreitni
í garð sumra barna þeirra, hafa
greinilega aukið áhugann í Banda-
ríkjunum.
stríðinu í Bosníu-Herzegovínu.
Allsherjarþingið samþykkti í
fyrrakvöld ályktun þess efnis að
Sambandslýðveldið Júgóslavía, þ.e.
sambandsríki Serbíu og Svartfjalla-
lands, gæti ekki lengur haldið sæti
gömlu Júgóslavíu. Nýja sambands-
ríkið yrði að sækja um aðild að
Sameinuðu þjóðunum að nýju og
fengi ekki að halda sæti gamla rík-
isins á allshetjarþinginu.
Ályktunin var samþykkt með 127
atkvæðum gegn sex, en 26 ríki
sátu hjá. Júgóslavía, Tansanía,
Zambía, Zimbabwe, Svaziland og
Kenýa greiddu atkvæði gegn álykt-
uninni.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
verður að leggja blessun sína yfír
aðildarumsókn Júgóslavíu og hefur
ákveðið að taka málið til athugunar
um miðjan desember. Júgóslavía
getur aðeins öðlast aðild að samtök-
unum ef að minnsta kosti níu af
fímmtán ríkjum öryggisráðsins
samþykkja hana og ef ekkert af
ríkjunum fímm, sem eiga fastafull-
trúa í ráðinu, beitir neitunarvaldi.
Þetta merkir að vestræn ríki geta
komið í veg fyrir aðild Júgóslavíu
að Sameinuðu þjóðunum á meðan
þau telja að ríkið standi ekki við
skuldbindingar sínar um að koma
á friði í Bosníu-Herzegovínu.
Skömmu áður en atkvæða-
greiðslan fór fram biðu níu rnanns
bana í stórskotaárás Serba á sjúkra-
hús í norðvesturhluta Bosníu og
þrír létust í árás á súpueldhús
Rauða krossins í Sarajevo, höfuð-
borg landsins. Að minnsta kosti 48
særðust í árásunum.
Óseyri 4,
Akureyri
Auðbrekku 2, Skeifunni 13, 0
Kópavogi Reykjavik
-NOT/P T/BKlF^R/b -
Mmxvmserr
teurí 1590r
Bandarísku forsetakosningarnar
Bush einbeitir sér að
vígjum repúblikana
Bill Clinton hefur kosriingaherferð í Suðurríkjunum
Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að einbeita sér að því
á næstunni að halda velli í ríkjum sem lengi hafa verið talin trygg-
ustu vígi repúblikana i forsetakosningum en Bill Clinton frambjóð-
andi Demókrataflokksins við bandarísku forsetakosningarnar í byrjun
nóvember hefur aukið forskot sitt á Bush.
Samkvæmt skoðanakönnun sem
gerð var fyrir blaðið Washington
Post og sjónvarpsstöðina ABC News
í byijun vikunnar og birt var í fyrra-
kvöld, styðja 58% kjósenda Clinton
en 37% Bush.
Thomas Cronin, prófessor í stjórn-
málavísindum við Colorado College,
sagði í gær að nú stæðu repúblikan-
ar höllum fæti í Flórída, Texas,
Pennsylvaníu, New Jersey og Ohio,
ríkjum sem verið hefðu örugg vígi
þeirra. Andstæðingar þeirra ættu
góða möguleika á sigri í þessum ríkj-
um. Dick Bennett, leiðtogi stofnunar
sem fæst við stjórnmálarannsóknir,
sagði sömuleiðis að repúblikanar
gætu allt eins tapað Suðurríkjunum
sem verið hefði öruggt vígi þeirra í
þrennum síðustu forsetakosningum.
Þjóðaratkvæðið í Frakklandi
Klofningur hægri-
manna kemur í ljós
París. Rcutcr.
ANDSTÆÐINGAR Maastricht-samkomulagsins í forystusveit Lýðveld-
isfylkingarinnar (RPR) frönsku hundsuðu í gær fund flokkssstjórnarinn-
ar sem Jacques Chirac flokksleiðtogi hafði kallað saman í skyndingu.
í gær hóf Clinton kosningaferðalag
um Suðurríkin og hafði fyrst við-
komu í Georgíuríki.
Bennett sagði að úr þessu virtist
sem einungis hrapalleg mistök af
hálfu Clintons gáetu komið í veg
fyrir sigur hans í kosningunum í
nóvember. Repúblikanar hafa reynt
að gera hann tortryggilegan með
því að hamra á því hvernig hann
kom sér hjá herþjónustu meðan á
Víetnamstríðinu stóð. Skoðanakönn-
un Washington Post/ABC News
bendir til þess að kjósendum finnist
það litlu skipta. Önnur málefni, svo
sem efnahagsmálin, varði þá öllu
meir.
Finni Bush snöggann blett á Clint-
on það sem eftir lifír kosningabarátt-
unnar er hins vegar fræðilegur
möguleiki á að hann geti sigrað í
forsetakosningunum því þriðji hver
kjósandi hefur ekki enn gert upp
hug sinn til frambjóðendanna.
Ný
sending
af prjóna-
fatnaði,
pils,
buxur,
peysur
og peysu-
jakkar.
Stærðir
38-50.
Philippe Seguin og Charles
Pasqua, fyrrum ráðherrar flokksins
gengu harðast flokksmanna fram í
því að hvetja stuðningsmenn Lýð-
veldisfylkingarinnar til að greiða at-
kvæði gegn Maastricht-samkomu-
laginu í þjóðaratkvæðinu sl. sunnu-
dag. Lýstu þeir yfir því í fyrrakvöld
að þeir myndu hundsa flokksstjórn-
arfundinn og hvöttu flokksstjómar-
menn sem andvígir voru Maastricht-
samkomulaginu til að gera það einn-
ig-
Seguin og Pasqua sögðu að fund-
urinn væri boðaður með of litlum
fyrirvara og væri ekki ætlunin að
bijóta úrslit þjóðaratkvæðisins til
mergjar eða draga nauðsynlega lær-
dóma af þeim.
Þykir ljóst að nálega tveir þriðju
hlutar flokksmanna hafi sagt nei í
þjóðaratkvæðinu. Af þeim sökum
ákvað Chirac að kalla flokksstjórnina
saman til þess að leita eftir traustsyf-
irlýsingu við sig. Seguin og Pasqua
sögðu formennsku Chiracs ekki
deiluefni, hann væri ótvírætt foringi
flokksins. Aðalatriði væri hins vegar
að stefnu flokksins í Evrópumálunum
yrði breytt, óbreytt stefna jafngilti
tilræði við frönsku þjóðina.