Morgunblaðið - 24.09.1992, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
Dilkar kílói létt-
ari en venjulega
FALLÞUNGI dilka sem slátrað hefur verið í sláturhúsi Kaupfé-
lags Eyfirðinga á Akureyri er um einu kílói minni en verið hefur
síðustu ár. Meðalvigtin nú er um 14,3 kíló, en á síðustu þremur
árum hefur meðalvigtin verið um 15,4 kíló.
Búið er að slátra tæplega tíu
þúsund fjár af 36.400 sem slátrað
verður nú í haust. Óli Valdimars-
son sláturhússtjóri sagði að bænd-
ur væru ekki ánægðir með fall-
þunga dilkanna nú, en það fé sem
er áberandi léttast að sögn Óla
er frá bændum í Grýtubakka-
Loðnuvertíðin
4500 tonn til
Krossaness
Krossanesverksmiðjan hef-
ur fengið um 4.500 tonn af
loðnu til vinnslu það sem af
er vertíðinni.
Aðfaranótt föstudags lönd-
uðu tvö skip loðnu hja“ verk-
smiðjunni, Guðmundur Ólafur
og Þórshamar, samtals um
820 tonnum og er bræðslu lok-
ið.
„Það er rólegt hjá okkur
núna, við bara bíðum, kijúp-
andi á hnjánum með kreppta
putta,“ sagði Jóhann Pétur
Andersen framkvæmdastjóri.
hreppi. Þetta væri fé sem sleppt
hefði verið í Fjörður og Flateyjard-
al, en sem kunnugt er gerði þar
vonskuveður með snjókomu um
Jónsmessuna. Töluvert drapst af
kindum í hretinu og einnig urðu
ær geldar, þannig að lömbin urðu
ekki eins væn og ella. „Venjan
hefur verið sú að fé sem gengið
hefur þarna í Fjörðum og Flateyj-
ardal hefur verið afar vænt, en
þessi- slæma tíð í sumar hefur sett
strik í reikninginn,“ sagði Óli.
Slátursala hefur farið óvenju
rólega af stað í ár, en Óli taldi
að eitthvað væri farið að lifna yfir
henni nú og töluvert hefði verið
að gera í slátursölunni í þessari
viku. Hann sagði fólk einkum taka
slátur síðari hluta vikunnar, skrið-
an kæmi á fimmtudögum og föstu-
dögum. Þannig átti sláturhússtjóri
von á mikilli sölu í dag, fimmtudag
og hefur pantað 400 slátur frá
Húsavík til að birgja sig vel upp
fyrir helgina.
Sú nýbreytni var tekin upp hjá
sláturhúsinu að selja lagað slátur
og sagði Óli að ekki hefði verið
reiknað með mikilli sölu þar sem
um nýjung væri að ræða, en þó
hefði sýnt sig að margir tækju því
vel að eiga kost á tilbúnu slátri.
Vinabæjarsamband Grenivíkur og Stryn
Ahersla á unglingastarf
TÍU manna hópur frá Stryn í Noregi hefur verið í heimsókn á
Grenivík síðustu dag, en vinabæjarsamband er á milli sveitarfélag-
anna tveggja.
Hópurinn kom til Grenivíku*- á
föstudag og á laugardag var farið
í skoðunarferð að Mývatni. Á
mánudag var sameiginlegur fund-
ur hreppsnefnda vinabæjanna þar
sem rætt var um framahald sam-
bandsins, en fjögur ár eru frá þvi
vinabæjartengslum var komið á.
„Við vorum að reyna að fast-
móta hvert við viljum stefna í
(§0Í Hótel
\=3>Harpa
Nýr gistivalkostur
áAkureyri
Auk hagstæðs gistiverðs, njóta
gestir okkar afsláttar á veitingahús-
unum Bautanum og Smiðjunni.
Fastagestum, fyrirtækjum og hóp-
um er veittur sérafsláttur.
Hótel Harpa
Góð gisting á hóflegu verði
í hjarta bæjarins.
Sími 96-11400
Ath. að Hótel Harpa er ekki i símaskránni.
nánustu framtíð, en stefnan hjá
báðum sveitarfélögum er sú að
hafa tengslin sem víðtækust,"
sagði Guðný Sverrisdóttir sveitar-
stjóri í Grýtubakkahreppi.
Á fundinum á mánudag var
samþykkt að leggja höfuðáherslu
á unglingastarfsemi og verður í
framtíðinni m.a. unnið sameigin-
lega á sviði skógræktar, „þó ég
reikni með að við verðum fremur
þiggjendur en gefendur í þeirri
starfsemi", sagði Guðný. Þá verð-
ur einnig lögð áhersla á fræðslu
af ýmsu tagi og fyrirhugað að
bjóða upp á námskeið ýmiskonar
og loks má nefna að í haust verð-
ur borinn út á hvert heimili í sveit-
arfélögunum tveimur bæklingur á
norsku og íslensku þar sem greint
verður frá því sem boðið er upp á
í hvoru sveitarfélagi fyrir sig og
félagasamtök hvött til að koma á
einhvers konar samstarfi.
Vinabæjarsambandi milli Stryn
í Norgi og Grenivíkur var komið
á árið 1988, en það ár heimsóttu
Norðmenn ísland. Grenvíkingar
héldu síðan til Noregs árið 1990
og nú í ár komu fulltrúar hins
norska vinabæjar Grenivíkur
þangað.
Útvegsmenn Nordurlandi
Aðalfundur Útvegsmannafélags Norðurlands verður hald-
inn á Hótel KEA föstudaginn 25. sept. nk. kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
<wm mommaamanmmt
Ferðakaupstefna Vestur-Norðurlanda
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Vestur-Húnvetningarnir, Sigríður Gróa Þórarinsdóttir ferðamálafulltrúi, Magnús Gíslason veitinga-
maður í Staðarskála og Herbjört Pétursdóttir sem er í stjórn Ferðamálafélags V-Hún. voru að
koma sér fyrir í bás sínum á ferðakaupstefnu Vestur-Norðurlanda í gær.
Um 500 manns koma
vegna kaupstefnunnar
Ferðakaupstefna Vestur-Norðurlanda var sett í Sjallanum í gær-
kvöld, en kaupstefnan stendur yfir fram á laugardag. Kaupstefn-
an sem nú er haldin á Akureyri í fyrsta sinn er ein sú stærsta
sem haldin hefur verið. Hún fer fram í íþróttahöllinni á Akur-
eyri og voru seljendur í óða önn að koma sér fyrir þar í gærdag.
Um 120 fyrirtæki á sviði ferða-
þjónustu frá þremur löndum,
Grænlandi, Færeyjum og íslandi
kynna starfsemi sína á kaupstefn-
unni, en kaupendur eru um 200
frá alls 114 fyrirtækjum frá 23
þjóðlöndum. Þannig er áætlað að
um 500 manns sæki Akureyri
heim þessa daga.
Kaupstefnan hefst í dag,
fimmtudag kl. 9, og stendur til
kl. 17 og verður framhaldið á
sama tíma á morgun, föstudag,
en er þessa daga einungis opin
fyrir skráða þátttakendur. Opið
verður fyrir almenning á laugar-
dag, 26. september, frá kl. 13 til
16 og verða þá ýmsar uppákomur
frá löndunum þremur í gangi.
I tengslum við kaupstefnuna
verður haldin ráðstefna undir yfir-
skriftinni Ferðaþjónusta Vestur-
Norðurlanda til ársins 2000 í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
fyrir hádegi á laugardag.
Menntaskólinn á Akureyri:
Fyrsta árs nemar fá
enga dönskukennslu
Enginn menntaður kennari fékkst til
starfa, en Svíi sér um stærðfræðikennslu
DONSKUKENNSLA fyrstaársnema í Menntaskólanum á Akureyri hef-
ur verið felld niður þar sem engir menntaðir kennarar í faginu feng-
ust til starfa við skólann í haust. Sænskur kennari fékkst til að sinna
stærðfærðikennslu við skólann. Skólinn verður settur næstkomandi
sunnudag og hafa nemendur aldrei verið fleiri en nú.
Tryggvi Gíslason skólameistari
sagði að fella hefði þurft niður
dönskukennslu fyrstaársnema við
skólann á komandi skólaári, þar sem
ekki hefði fengist til starfa menntað-
ur kennari í faginu. Kvaðst Tryggvi
m.a. hafa leitað eftir kennurum frá
Danmörku til starfsins, en ekki tek-
ist. Danskir kennarar hefðu enda
sjálfsagt lítinn áhuga á að taka að
sér kennslustörf á Islandi, atvinnu-
leysisbætur kennara í Danmörku
væru hærri en laun framhaldsskóla-
kennara hér á landi.
Tryggvi sagði að reynt yrði að
bæta þeim nemendum skólans sem
enga fá dönskukennsluna í vetur það
upp síðar á námsferlinum, en það
væri auðvitað háð því að menntaðir
kennarar fengjust til starfa við skól-
ann. Um viðbrögð nemenda við þess-
um tíðindum, sagði skólameistari að
þeir tækju því sem að þeim væri
rétt. Á hvorri önn væri gert ráð fyr-
ir fjórum tímum í dönsku á viku og
þyrftu nemendur að sæta því að fá
nokkur göt í stundatöflu sína í stað
kennslu.
Um tíma var einnig útlit fyrir að
ekki yrði heldur unnt að kenna lög-
boðna kennslu í stærðfræði vegna
skorts á kennurum í greininni, en
úr því hefur ræst. Ráðinn hefur ver-
ið að skólanum sænskur kennari til
að sinna stærðfræðikennslu, en hann
talar íslensku. „Hann er kvæntur
konu héðan úr Eyjafirðinum, þannig
að segja má að heimþrá eyfiskrar
eiginkonu hans hafi bjargað stærð-
fræðikennslu við Menntaskólann á
Akureyri í ár,“ sagði Tryggvi.
Þórunn Magnúsdóttir dvelur í
þessum mánuði í lista- og fræði-
mannsíbúðinni í Davíðshúsi, en á
meðan á dvöl hennar þar stendur er
hún m.a. að safna efni um þær kon-
ur sem stóðu að stofnun fyrstu verka-
lýðskvennafélaganna á Islandi, sem
einmitt voru stofnuð á Akureyri.
Menntaskólinn á Akureyri verður
settur í 113. sinn í Akureyrarkirkju
á sunnudaginn, 27. september og
verða nemendur í vetur 640 talsins.
Hafa nemendur við skólann aldrei
verið fleiri og sagði skólameistari að
húsnæði það sem skólinn hefur til
umráða væri löngu sprungið, en það
gerði með góðu móti ráð fyrir um
300 nemendum. Sagði Tryggvi að
menn biðu nú eftir að reist yrði við-
bótarhúsnæði við skólann, en þess
væri að vænta að gengið yrði frá
samningi þess efnis milli mennta-
málaráðuneytis og Héraðsnefndar
Eyjaljarðar fljótlega. Gert væri ráð
fyrir að framkvæmdir við byggingu
viðbótarhúsnæðis hæfust á vordög-
um árið 1994 og unnt yrði að taka
fyrsta áfanga þess í notkun að hausti
ári síðar.
Þórunn vinnur nú að ritverki um
verkakvennahreyfinguna og er efni-
söflun hennar á Akureyri liður í und-
irbúningi að því verki.
Allt áhugafólk um þessi mál er
velkomið á fundinn í Gagnfræðaskól-
anum í kvöld.
(Fréttatilkynning)
U mræðiifiuidiir um verka-
lýðskvennahreyfingnna
ÞÓRUNN Magnúsdóttir, cand.mag. efnir til umræðufundar um verka-
kvennahreyfinguna í Gagnfræðaskólanum á Akureyri í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 24. september kl. 20.30.