Morgunblaðið - 24.09.1992, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
35
penni sé svo illa notaður. í Júgóslav-
íu notaði Tító sömu aðferð og Oliver
Cromwell forðum á íriandi. Hann
myndaði mótvægi gegn þeim meiri-
hluta sem fyrir var. Til slíkra ráða
hafa valdhafar oft gripið. Þess vegna
voru Kosovo og Vojvodina gerð að
sjálfsstjórnarsvæðum. Þess vegna
var Aibönum plantað niður í Kosovo.
Þannig búa harðstjórar sögunnar til
forsendur fyrir borgarastyijöldum.
Æðstu menn Júgóslavíu voru til
skamms tíma Króatar og Slóvenar.
Staðreyndin er sú að Serbar hafa
oftast fremur goldið fyrir Júgóslavíu
sem stærsta þjóðin. Á þeirra kostnað
hefur iðnaðaruppbygging Slóveníu
og Króatíu verið. Framfarir í Serbíu
sjálfri hafa verið miklu hægari. For-
usta ríkisins var stöðugt að reyna
að friða óánægjuöfl í hinum ríkjun-
um með því að fórna hagsmunum
Serba. Trúlega hefur Alexander
konungur sjálfur hafið þann leik.
Stórveldin bjuggu Júgóslavíu til.
Vafasamt er að ríkið hafi nokkurn
tíma átt sér raunhæfan grundvöli.
Andstæður ríkja í menningu og trú-
arbrögðum og samstaða þjóðanna
hefur ætíð átt sér veikar stoðir í
veruleikanum.
Serbar telja að semja þurfi um
margt ef sambandsríkið á að leysast
að fullu upp. Þeim fínnst lítið rétt-
læti í því að Slóvenar og Króatar
gangi bara út með ágóðann af þeirri
miklu uppbyggingu sem ríkið í heild
hefur staðið fyrir á þeirra landsvæð-
um. Eins og fyrr er sagt hefur Júgó-
slavía að miklu leyti haldist við lýði
vegna stöðugrar fórnarstefnu vald-
hafa ríkisins á hagsmunum Serba.
Alveg eins og rússneska lýðveldið
varð lengstum að fórna sér fyrir hin
sovétlýðveldin, hefur Serbía verið sá
aðili í Júgóslavíu sem stöðugt hefur
verið gengið á. Mörgum Serbum
fínnst komið nóg af slíku. Stjórn
Títós var kommúnistastjóm og þeir
Serbar sem voru nánir samstarfs-
menn hans voru það einkum og sér
í lagi vegna þess að þeir voru meiri
kommúnistar en Serbar. Þeir sam-
þykktu allskyns ólög sem komu illa
ÁRNAÐ HEILLA
niður á Serbum og skertu réttindi
þeirra, vegna þess að þeir trúðu því
að það væri í samræmi við hags-
muni kommúnismans. Þeir fylgdu
Tító ekki sem Júgóslava eða þjóðlegu
sameiningartákni — þeir fylgdu hon-
um af því að hann var kommúnisti.
Tító frysti mál Júgóslavíu og lét
engan komast upp með neinn moð-
reyk. Nú hefur klukkan í vissum
skilningi verið færð aftur til 1945.
Uppgjör alls þess sem átti sér stað
í stríðinu virðist öllum ofarlega í
huga. Tító leysti aldrei upp Ustasha-
herinn í lok stríðsins, en hann réðst
hins vegar með hörku gegn sjetník-
um.
Mihailovic var tekinn af lífi eftir
umdeild réttarhöld, en sagnfræðing-
ar eru nú að endurmeta þessa hluti
í ljósi nýrra gagna sem orðin eru
opinber. Allt bendir til þess að það
endurmat geti breytt mjög ríkjandi
skoðunum á sögulegu hlutverki
þessara tveggja manna í málefnum
Júgóslavíu. Eins og ég hef nefnt
áður í þessari grein studdi kommún-
isminn ekki serbneska þjóðarhags-
muni í Júgóslavíu. Tító var vakinn
og sofinn í því að takmarka sem
mest áhrif Serba sem þjóðar innan
sambandsríkisins. Sagan sannár
þetta ljóslega, ef menn vilja lesa
hana án leiðsagnar frá Zagreb. Von-
andi fara íslenskir ráðamenn með
gát í öllu varðandi málefni Júgóslav-
íu. Oft hefur mér virst meira um
kapp en forsjá hjá ráðamönnum
okkar litlu þjóðar, að minnsta kosti
sumum hverjum, þegar möguleikar
eru á því að baða sig ofurlítið í sviðs-
ljósinu á alþjóðavettvangi. En hér
er um annað og meira að ræða en
ævintýri í Eystrasaltslöndunum.
Neistinn í púðurtunnunni í Evrópu
hefur löngum verið til staðar á Balk-
anskaga. Menn ættu því að fara
með gát ef þeir ætla sér að slökkva
hann. Hann verður nefnilega ekki
slökktur með sleggjudómum.
Höfundur býr á Skngaströnd.
Ljósmyndastofan Nærmynd.
SYSTRABRÚÐKAUP. Brúðhjónin Sigrún Guðjónsdóttir og Jón Kristjáns-
son, búa í Hnífsdal, og Kolbrún Guðjónsdóttir og Finnur Ingimarsson,
Mosfelli, Mosfellsbæ, voru gefín saman í Lágafellskirkju 29. ágúst. Prest-
ur séra Björn Jónsson.
Ljósmynd Ljósmýndastofa Páls, Akureyri.
HJÓNABAND. Þann 1. ágústvoru
gefin saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju Sigrún I. Guðmunds-
dóttir og Ómar Pétursson. Brúðar-
meyjar Margrét Stefánsdóttir og
Helga Vollertsen.
ÁRNAÐ HEILLA
HJÓNABÁND. 22. ágúst sl. voru
gefin saman í Langholtskirkju af
sr. Flóka Kristinssyni, Kristbjörg
Clausen og Ragnar Ómarsson.
Heimili þeirra er að Lindargötu 20,
Rvík.
Ljósmyndastofan Svipmyndir.
HJÓNABAND. Þann 22. ágúst sl.
voru gefin saman í hjónaband í
Dómkirkjunni Vigdís Hauksdóttir
og Þorsteinn Örn Sigurfinnsson til
heimilis á Reynimel 40. Prestur var
séra Hjalti Guðmundsson.
Ljósmyndast. Sigr. Bachmann
HJÓNABAND. 8. ágúst sl. voru
gefin saman í hjónaband í Dóm-
kirkjunni af sr. Sigrúnu Óskarsdótt-
ur Steinunn Guðmundsdóttir og
Guðjón Þ. Kristjánsson.
Ljósmynd Ljósmyndastofa Páls, Akureyri.
HJÓNABAND. Þann 18. júlí voru
gefín saman í hjónaband í Glerár-
kirkju af séra Gunnlaugi Garðars-
syni Monika Axelsdóttir og Haf-
steinn Kristinsson, Móasíðu 6e,
Akureyri.
Ljósmyndast. Þóris
HJÓNABAND. 18. júlí sl. voru
gefin saman í Hallgrímskirlq'u af
sr. Karli Sigurbjörnssyni Gerða
Pálsdóttir og Runólfur Þórhallsson.
ÓDÝRAR FRYSTIKISTUR, KÆLI
O G FRYSTISKAPAR*
V
VESTFROST A FRABÆRU VERÐI
VERÐFRA
Frystikistur í mörgum stœrðum
Yfir 25 ára reynsla á íslandi.
Niðurfall í botni fyrir afþíðingu
öryggisrofar v/httabreytinga og bama
Spamaðarstilling - djúpfrysiirofi
Ljós f loki
Danfoss kerfi
Dönsk gœðavara - 3ja ára ábyrgð
_npr»' í
Orval kœli- og
frystiskápa
• Orkusparandi -
• Tvœr pressur f
sambyggðum
skápum
• Hœgri eða vinstri
,opnun
• Djúpfrystirofi -
ðryggisrofi
• Danfoss kerfi
oa&xi
• FAXAFEN 12 • SlMI 38000 •
•ÓÝRAR FRYSTIKISTUR, KÆLl - OG FRYSTISKÁPAR
GRÓÐRARSTÖÐIN
LAMBHAGI,
110 REYKJAVÍK,
SÍMI 681441
FALLEGAR PLONTUR
FYRIR HEIMILI,
FYRIRTÆKI
OG STOFNANIR
i
I
l