Morgunblaðið - 24.09.1992, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 24.09.1992, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992 t Ástkær eiginmaöur minn og faðir okkar, MOGENS A. MOGENSEN, lyfsali, andaðist aðfaranótt 23. september 1992. Petra Mogensen, Ellen M. Thors, Gunnar Mogensen. t Móðir okkar, JÓNA ÞORLEIFSDÓTTIR, Suðurgötu 17, Akranesi, andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 22. september. Helgi K. Haraldsson, Þorgeir Haraldsson. t Elskuleg dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÓLÖF BÁRAINGIMUNDARDÓTTIR, lést í Borgarspítalanum 15. þ.m. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðrún Guðlaugsdóttir, Eygló Ólafsdóttir, Þorsteinn Egilson, Hulda Haraldsdóttir, Gunnlaugur Gestsson, Eva Þórarinsdóttir, Hjalti E. Sigurbjörnsson, Arna Þórarinsdóttir, Áki Hauksson, Bára, Alma, ísak, Grétar Sveinn og Haukur Ingi. t Móðir okkar, SVANHVÍT JÓHANNESDÓTTIR, andaðist að morgni 23. september í Borgarspítalanum. Anna Svandís Guðmundsdóttir, Bjarni Már Jónsson, Guðbjörg Jónsdóttir, Gróa Jónsdóttir. t Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÁSTU M. EIRÍKSDÓTTUR, Hvftabandinu, áður Stigahlfð 26, verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 25. septem- ber kl. 15.00. Ema Guðbjarnadóttir, Guðmundur Guðbjarnason, Þórunn Magnúsdóttir, og barnaböm t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ANNAS KRISTMUNDSSON, Engjavegi 34, Tsafirði, verður jarðsunginn frá isafjarðarkapellu laugardaginn 26. septem- ber kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Friðgerður Guðný Guðmundsdóttir, Steinunn Annasdóttir, Vilhelm Annasson, Ásgeröur Annasdóttir, Bergþóra Annasdóttir, Sigmundur Annasson, Guðný Anna Annasdóttir, Dagný Annasdóttir, Halldór Benediktsson, Særún Axelsdóttir, Ómar Ellertsson, Kristján Eirfksson, Agnes Karlsdóttir, Sigurjón Haraldsson, Húnbogi Valsson, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar. + EINAR ÁRNASON lögfræðingur, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 25. september kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélagið. Bergljót Sigrfður Einarsdóttir, Páll Lúövfk Elnarsson, Svanbjörg Hróðný Einarsdóttir. Ami Böðvars- son - Kveðjuorð Þegar mér bárust þau sorgartíð- indi vestur til Bandaríkjanna, þar sem ég var staddur snemma í þess- um mánuði, að gamall og góður vinur um nær hálfa öld, Árni Böðv- arsson, væri allur, fiugu mér í hug þessar ljóðlínur Bólu-Hjálmars: „Mínir vinir fara fjöld,/ feigðin þessa heimtar köld.“ Því er að von- um svo farið, þegar menn hafa náð nokkrum aldri, að þeir verða æ oft- ar fyrir þeirri reynslu að þurfa að sjá á bak vinum sínum og samferða- mönnum. Og oftast finnst okkur brottför þeirra ótímabær. Svo er mér líka innanbijósts, þegar Árni Böðvarsson hefur kvatt okkur, enda þótt hann væri kominn nærri sjö- tugsaldri. Þeim, sem þekktu til starfsorku hans og dugnaðar, fannst ekki nema sjálfsagt, að hann ætti eftir að koma í verk mörgum ólokn- um áhugamálum sínum, en þau voru á mörgum sviðum, svo sem komið hefur fram hjá þeim, sem eftir hann hafa mælt. En mennirnir vilja, en guð einn ræður. Undir það jarðamen hljótum við, dauðlegir menn, að ganga, og enginn kaupir sig frí, þegar kallið kemur. Enda þótt nú sé nokkuð um liðið, síðan Ámi Böðvarsson var jarðsung- inn, og margir hafa að maklegleik- um mælt eftir hann, vil ég engu að síður minnast hans með nokkmm kveðjuorðum að leiðarlokum, þar sem svo tókst til, að ég gat ekki fylgt honum síðasta spölinn. Ámi Böðvarsson var fæddur á Giljum í Hvolhreppi 15. maí 1924. Stóðu að honum ágætar ættir um Rangárþing í föðurætt, en móður- ættin var komin austan úr Land- broti í Skaftárþingi. Ámi var því hreinræktaður Sunnlendingur í ætt- ir fram. Við Ámi hittumst fyrst, þegar hann hóf nám við heimspekideild Háskóla íslands í íslenzkum fræð- um, eins og þau vom kennd á fyrri hluta aldarinnar. Settist hann í deildina haustið 1945, en vorið áður hafði hann brautskráðst frá Menntaskólanum 1 Reykjavík sem utanskólastúdent. Fljótt var Ijóst, að Árni hneigðist einkum að mál- fræðinámi, enda fór þá þegar orð af honum sem miklum málamanni. Hygg ég, að honum hafí látið al- mennt málanám ekki síður en sökkva sér ofan í harða málfræði, enda þótt hann væri mjög vel heima á þeim vettvangi, svo sem öll rit hans bera glöggt vitni um. Hann hafði einnig hlotið góðan undirbún- ing undir málakunnátu sína í þeim kunna heimaskóla þeirra Fellsmúla- feðga, séra Ófeigs Vigfússonar og séra Ragnars Ófeigssonar. Ámi lauk jirófí frá Háskólanum árið 1950. A þeim árum lá lítið annað fyrir okkur, sem brautskráð- umst úr heimspekideild, en kennslu- störf, prófarkalestur og annað f þeim dúr. Á Áma hlóðust fljótt margvísleg störf í fræðigrein hans, enda mun ekki hafa af veitt, því að hann var þá orðinn fjölskyldu- maður með konu og tvö böm. Hann hafði fest ráð sitt árið 1946 og geng- ið að eiga Ágústu Ámadóttur frá Látalæti í Landsveit. Eignuðust þau tvö böm, Emu, sem er námsstjóri í menntamálaráðuneytinu, og Sig- urð, sem er sérfræðingur í krabba- meinslækningum við Landspítalann. Árni fór snemma að gera sig lið- tækan í fræðum sínum. Þegar árið 1953 sendi hann frá sér kennslubók í hljóðfræði handa byrjendum. Hann hafði einmitt á þeim ámm á hendi kennslu í hljóðfræði við Kennara- skóla íslands, en hafði þar áður kennt almenna og íslenzka hljóð- fræði við Háskóla íslands 1950-51. Sendikennari varð Árni svo við háskólana í Ósló og Björgvin á áran- um_ 1955-57. Á þessum áram var Ámi ráðinn til þess af stjóm Orðabókarsjóðs Sigfúsar Blöndals að safna saman til viðbótarbindis við Orðabók Blöndals þeim orðaforða, sem mynd- azt hafði frá útgáfu hennar um 1920, og eins bæta ýmsu við, sem í hana hafði vantað og menn höfðu tekið eftir við notkun hennar. Þetta verk vann hann að vonum í nánum tengsium við seðlasafn Orðabókar Háskólans. Viðbótarbindi þetta kom síðan út 1963. Það var einmitt á þessum árum, sem kunningsskapur okkar Áma hófst að marki, þar sem ég var þá orðinn starfsmaður Orðabókarinnar. Einkum varð það þó, þegar hann hóf orðasöfnum fyrir væntanlega íslenzka skólaorðabók fyrir Menn- ingarsjóð og fékk starfsaðstöðu hjá Orðabókinni. Æxlaðist þá svo til, að skrifborð hans var beint á móti mínu skrifborði, svo að við horfð- umst í augu um alllangt skeið, með- an orðabók hans var í smíðum. Eins sat aðstoðarmaður Áma, Helgi Guð- mundsson dósent, í sama herbergi. Ekki verður því neitað, að mörg orð fiugu þá um borð og ekki alltaf „af setningi slegið“, a.m.k. frá minni hálfu. En þá komst ég einmitt bezt að því, hversu Árni var grandvar í orðum og honum lítt gefið um stór- yrði um menn og málefni, þótt hann gæti hins vegar vissulega verið þétt- ur fyrir á stundum og ekki alltaf tilbúinn að láta af skoðunum sínum. En slíkt er ekki galli á nokkrum manni, heldur einmitt hið gagn- stæða. En Ámi var svo ljúfur í allri viðkynningu, að mér er óhætt að fullyrða, að öllum hafí þótt vænt um hann, sem við hann kynntust. Þá áttum við Árni samleið í stjóm Félags íslenzkra fræða um nokkur ár, og þar var reynsla mín hin sama. Á þeim árum hóf félagið útgáfu tímaritsins íslenzk tunga, og átti Ámi einna drýgstan þátt í að hleypa því af stokkunum og sat í ritstjórn þess, meðan það kom út. Því miður lognaðist þetta tímarit út af nokkr- um áram síðar, en vel veit ég, að Áma sámaði þau endalok ekki síður en öðram þeim, sem höfðu í upp- hafí staðið að þessu .tímariti, sem enn í dag hefði átt að geta lifað þokkalegu lífí. Eins og fram hefur komið, var Ámi mikill málamaður. Jafnvel lagði hann stund á ýmis tungumál, sem menn gera ekki almennt hér á landi. Hann mun hafa getað bjargað sér vel í finnsku, og á rússnesku kunni hann góð skil, og prófí lauk hann í búlgörsku við háskólann í Uppsölum 1980. Ámi gerðist meðhöfundur að ís- lenzk-rússneskri orðabók með Val- eríj P. Bérkov prófessor í Len- ingrad. Sú bók kom út árið 1962. Þá var Ámi mikill áhugamaður um esperantó, enda var hann um langt árabil framarlega í röðum esparant- ísta hér á landi. Þeim þætti í lífi Áma hafa þeir, sem með honum störfuðu á þeim vettvangi, gert góð skil í eftirmælum sínum. Orðabók Menningarsjóðs kom út árið 1963 og var síðan endurprentuð nokkram sinnum. Um 1980 var svo ákveðið að endurskoða orðabókina og gefa hana út aukna og endur- bætta. Að því verki stóð með Áma Ásgeir Blöndal Magnússon orðabók- arritstjóri, enda var verkið enn unn- ið í tengslum við söfn Orðabókar Háskólans. Orðabókin hafði líka vaxið mjög á þeim tveim áratugum, sem liðnir voru frá fyrri útgáfu, svo að þar var margs að vænta fyrir nýja útgáfu. Þessi útgáfa kom út árið 1983 og er um margt breytt frá hinni fyrri. Enginn vafí leikur á því, að Orðabók Menningarsjóðs mun um langa framtíð geyma nafn Áma Böðvarssonar, enda var hann frá upphafí aðalhöfundur hennar, þótt hann sé einungis titlaður sem ritstjóri hennar á titilblaði. Árið 1967 gerðist Árni fastur kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð og starfaði þar óslitið til vors 1984. Þar naut þekking hans á íslenzkri tungu og hljóðfræði sín áreiðanlega vel, enda er mér kunn- ugt um, að hann örvaði mjög áhuga nemenda sinna á móðurmálinu, m.a. á þann hátt að láta þá gera verk- efni um ákveðin mállýzkuorð og merkingu þeirra. Jafnvel gleymdi hann ekki heldur unglingamáli og svonefndum slanguryrðum. Allt sýnir þetta víðsýni Áma um tungu okkar og sögu hennar. Málfarsráðunautur Ríkisútvarps- ins varð Árni svo árið 1984 og gegndi því starfí þar til snemma þessa árs, þegar veikindin sóttu á hann. Eins og starfsheitið bendir til, átti hann að leiðbeina starfs- mönnum Ríkisútvarps (og Sjón- varps) um málfarsleg efni og þá eðlilega einkum þeim, sem koma fram fyrir alþjóð með fréttir og annað flutt efni. Til þess að þetta starf yrði sem árangursríkast, kom Árni m.a. á fót litlu innanhúsriti, sem hann kallaði Tungutak. Átti það leiðbeiningarrit að koma þeim að notum, sem settu saman alls konar fréttaefni til flutnings, en um leið ekki síður til að kenna það, sem bezt færi í íslenzku máli. Á þann hátt gæti það einnig um leið orðið hlustendum útvarpsins til fyrir- myndar um gott mál. Hér hafði og hefur því miður oft skort mjög á um nógu vandað málfar að mínum dómi. Þetta vissi Ámi auðvitað vel, ekki sízt frá mörgum þáttum sínum um Daglegt mál í Ríkisútvarpinu. Því miður átti hann hér oft við ram- man reip að draga og áreiðanlega oft úr vöndu að ráða. Þessu leyndi hann ekki heldur fyrir mér, þegar ég var á stundum að hnippa við honum og segja, að mér fyndist hann á stundum heldur linur í sókn- um fyrir hönd tungunnar. En hér kom fram prúðmennska hans í öllu fasi, sem áður hefur verið minnzt á, og það að vilja sem minnst styggja aðra, jafnvel þótt honum þætti á stundum meira en nóg um bögumælin og skort á þekkingu málsins. Hann ætlaðist vitaskuld einnig til þess, að þeir, sem á þyrftu að halda, læsu þær leiðbeiningar, sem hann setti fram, og tækju þær til greina við samningu frétta og annars mælts máls í útvarpinu. Sem betur fer, mun honum líka hafa orðið þar að ósk sinni, þótt lengi megi bæta um. Vafalaust má ýmsum þykja það undarlegt, að svo mikill orðabókar- maður sem Árni Böðvarsson var skyldi ekki lenda sem sérfræðingur við Orðabók Háskólans. Til þessa liggja trúlega ýmsar ástæður,_ en mér segir svo hugur um, að Árni hafí í reynd ekki haft mikinn áhuga á að binda sig fastan við svo sér- hæfð störf, sem þar era unnin, þótt hann hefði vissulega alla burði til þess. Honum hefur áreiðanlega ver- ið meira í mun að geta helgað sig ýmsum öðram störfum, enda ekki víst að miklar innisetur hafí hentað honum vel. Hann var mikill ferða- maður og hafði áhuga á íslenzkri náttúra og íslenzku landslagi. Hann var og leiðsögumaður útlendra ferðamanna um fjölmörg ár, einkum þýzkra, og þar naut málakunnátta hans sín vel. Ég held einmitt, að hann hafí haft einna mestar mætur á þýzkri tungu, enda hún mikið beygingarmál og málfræði um margt flókin, svo sem og er um tungu okkar. Reyndi jiar því vel á þolrifin, og það hefur Árna líkað vel. Þá er komið að leiðarlokum, þótt margt sé enn ósagt um vin minn Áma Böðvarsson. Ekki var annað vitað en hann væri við nokkuð góða heilsu. Giktveikur var hann nokkuð á síðari áram, eins og er um fleiri á þessum aldri, en dugnaður hans var slíkur, að hann lét slíkt lítt á sig fá. Hann ferðaðist alltaf mikið og stundaði sund til þess að liðka líkama og limi. Varð engan veginn annað á honum séð en hann ætti enn marga og góða lífdaga fyrir höndum með ástvinum sínum og öðram vinum. En óvættur lá í leyni, þar sem var illkynja æxli í höfði, sem lagði hann að velli á fáeinum mánuðum. Við slíku varð ekki séð, en einungis þakkarvert, að hann þurfti ekki að búa öllu lengur við sitt helstríð, en því lauk 1. septem- ber sl. Þessum línum mínum vildi ég koma á framfæri, J)ótt síðbúnar séu, til þess að þakka Áma Böðvars- syni ánægjulega samleið á lestaferð okkar. Um leið sendi ég Ágústu og bömum þeirra og öðra skylduliði samúðarkveðjur mínar og fjölskyldu minnar. Jón Aðalsteinn Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.