Morgunblaðið - 24.09.1992, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
41
15 klukkustunda námskeið um þetta öfluga gagnavinnslukerfi á Macintosh og PC.
Spjaldskrár, límmiðar, og alls konar upplýsingaúrvinnsla verður leikur einn. aÖ
hk-92102
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16 • stofnuð 1. mars 1986 ®
Þessir hlutu viðurkenningu frá knattspyrnudeild UMFG fyrir góða
frammistöðu, talið f.v. Ólafur Ingólfsson markahæstur í 1. flokki,
Vilberg Sverrisson, Þorsteinn Bjarnason, Hjálmar Hallgrímsson
knattspyrnumaður UMFG 1992, Björn Skúlason, Þórður Birgir Boga-
son markakóngur UMFG 1992 og Bjarni Jóhannsson þjálfari.
KYNNINGARVERÐ
GERÐ FE 5 4 - STAÐGREITT KR.
39900
KR. 41999 - MEÐ AFBORGUNUM
RONNING
SUNDABORG 15
SÍMI 68 58 68
Morgunblaðið/Krimann Olafsson
Hópur þeirra sem hlutu viðurkenningu fyrir góða frammistöðu í yngri flokkum UMFG í sumar.
ÖMNDAVÍK
Fimmtán ára afmæli fagnað
Grindavík.
Knattspyrnudeild UMFG fagn-
ar um þessar mundir 15 ára.
afmæli deildarinnar. Þá var
haldið lokahóf knattspyrnumanna
í lok íslandsmóts.
„Ég er þokkalega ánægður með
árangur meistaraflokks í sumar
en finnst þó að betur hefði mátt
gera,“ sagði Gunnar Vilbergsson
formaður knattspyrnudeildar við
Morgunblaðið. „Við stefndum
hærra og vorum of langt frá toppl-
iðunum til þess að menn geti ver-
ið sáttir. Starfið í heild hefur hins
vegar gengið mjög vel á þessum
tímamótum hjá félaginu. Yngri
flokkar félagsins hafa staðið sig.
vel í sumar og kvennaflokkarnir
hafa náð sérstaklega góðum
árangri og þær raddir eru þagnað-
ar sem vilja leggja kvennaknatt-
spyrnu niður. Sú ráðstöfun að
skipta starfinu niður og skipa
unglingaráð hefur tekist vel og
sérstaklega vel hefur gengið að
virkja foreldra í samtarfi og er það
vel,“ sagði Gunnar.
Meistaraflokkur félagsins náði
sínum besta árangri í sögu félags-
ins, 3ja sæti í keppni annarrar
deildar og hækkaði sig um eitt
sæti frá fyrra ári. Knattspyrnu-
menn völdu leikmann íslandsmóts-
ins úr sínum röðum og var Hjálm-
ar Hallgrímsson valinn besti leik-
maður sumarsins og hlýtur hann
sæmdarheitið knattspyrnumaður
UMFG 1992. Markahæstur og þar
með markakóngur UMFG var
Þórður Birgir Bogason með 10
mörk og gat Bjarni Jóhannsson
þjálfari þess að það væri eini titill-
inn sem ekki væri hægt að kjósa
um. Bjarni hefur þjálfað meistara-
flokk félagsins þau 3 ár sem hann
hefur leikið í 2. deild en óráðið er
með framhald á því starfí.
Uppskeruhátíð yngri flokkanna
var einnig haldin í mótslok og var
mikill fjöldi bæði keppenda og
aðstandenda þeirra viðstaddur.
Gunnlaugur Hreinsson formaður
unglingaráðs gat þess í upphafi
að vel hefði tekist til við ráðningu
þjálfara fyrir yngri flokka félags-
ins og hefðu verið íþróttamenntað-
ir menn við stjórnvölinn hjá öllum
flokkum félagsins og væri það
óvenjulegt. Þá kom fram að vaxt-
arbroddur væri í knattspymunni í
Grmdavík og sjálfsagt víðar væri
í kvennaflokkum félagsins og mik-
il vinna við þá væri að skila sér í
auknum árangri. Það er því óhætt
fyrir knattspyrnumenn í Grindavík
að líta björtum augum til framtíð-
arinnar.
FÓ
Þýskir ullarjakkar,
glæsilegt úrval.
v/Laugalæk
sími 33755
f/f/
FAGOR