Morgunblaðið - 24.09.1992, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
Christdpher Coluhbus
Hann var valinn af drottningu, hvattur í draumi, hann
fór fram á ystu nöf og hélt áfram að strönd þess
óþekkta.
Þessi stórmynd er gerð af þeim Salkind-feðgum sem
gerðu Superman-myndirnar. Höfundar eru MARIO
PUZO (Godfather I, n, in) og JOHN BRILEY (Gandhi).
Leikstjóri: John Glenn (James Bond).
Búningar: JOHN BLOOMFIELD (Robin Hood).
TILBOÐÁ
POPPIOGKÓKI
FERÐINTIL
VESTURHEIMS
Frábær mynd með
Tom Cruise
og Nicole Kidman.
Sýnd kl.5,9og 11.
Öndvegis mynd fyrir
aila fjölskyiduna
Sýnd kl. 5,7 og 9.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.15 - Bönnuð innan 12 ára. 4
SÝNDI PANAVISIOhl í Á RISATIALDILAUGARÁSBÍÓS
(f) SINFONIUHLJOMSVEITIN 622255
Sala áskriftarskírteina er hafin
Gul áskritarröð - átta tónleikar
Rauð áskriftarröð - sex tónleikar
Græn áskriftarröð - fernir tónleikar
Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl.
9-17. Hægt er að panta áskriftarskírteini
símleiðis. Greiðslukortaþjónusta
SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ÍSLANDS
HÁSKÓLABÍÓI V/HAGATORG SÍMI 622255
eftir Gaetano Donizetti
Frumsýning: Föstud. 2. okt. kl. 20.00
Hátíðarsýning: Sunnud. 4. okt. kl. 20.00
3. sýning: Föstud. 9. okt. kl. 20.00
Miöasalan er opin frá kl. 15-19 daglega en til kl. 20
sýningardaga.
Sími 11475 - Greiðslukortaþjónusta
A veiku svelli
svona við fyrstu sýn. Hún
(Moira) er reyndar frábær
skautadansari en gjörsam-
lega óþolandi í allri samvinnu
og hefur hrakið her dansara
af skautasvellinu heima hjá
sér í rnyndarbyrjun. Hann
(Sweeney) er hins vegar einn
ólíklegasti kandídat í list-
dansi sem sést hefur á hvíta
tjaldinu. Durgur sem verður
að hætta í atvinnumennsku
í ísknattleik vegna sjónmiss-
is. Það skyldi þó ekki vera í
lagi að paufast um svellið
með skerta sjón í þeirri göf-
ugu íþrótt listdansi, á hálum
ís í þokkabót?
Sú er ekki skoðun fram-
leiðendanna og höfundanna
enda ganga myndir sem
þessar alltaf upp. Ekkert
sem kemur á óvart þrátt fyr-
ir þessa sömu, fjóra, fimm
kafla þar sem allt gengur á
afturfótunum hjá hetjunum,
sem þurfa t.d. að kljást við
ósætti, óverðskulduð töp,
ástarerjur, o.s.frv. Allt er
þetta til staðar hér í vita líf-
lausri mynd þar sem kvik-
myndahetjumar virðast ekki
einu sinni getað skrifað átta
á svellið hjálparlaust.
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Saga Bíó:
Á hálum ís — „The Cutting
Edge“
Leikstjóri og handritshöf-
undur Paul M. Glaser. Að-
alleikendur D.B. Sweeney,
Moira Kelly, Roy Dotrice,
Terry O’Quinn. Bandarísk.
MGM 1992.
Sjálfsagt eru vel flestir
kvikmyndahúsgestir búnir
að fá sig fullsadda af draum-
óramyndum um einstaklinga
sem taka sig saman í andlit-
inu og verða þá, nokkurn
vegin upp úr þurru, þetta
stríðshetjur, forsetar, heims-
meistarar í öllum hugsanleg-
um fþróttum og þar fram
eftir götunum. En þetta út-
þvælda form virðist vera eft-
irlæti og árátta kvikmynda-
framleiðenda því hér hefur
ein enn bæst í hópinn. Og
nú er það ekkert minna en
gullpeningur f listdansi á
skautum á Ólympíuleikunum
í Albertville sem dugar kvik-
myndahetjunum.
Annars eru þær heldur
ólíklegar tii stórræðanna,
Ríkið og
tölvumálin
RÍKIÐ og tölvumálin —
hvert stefnir? er heiti ráð-
stefnu sem Skýrslutækni-
félag íslands heldur á Hót-
el Sögu nk. fimmtudag, 24.
september, kl. 13.00. í
fréttatilkynningu frá fé-
laginu segir: „Hefur ríkið
opinbera stefnu í tölvumál-
um? Hvernig_ er hún í
framkvæmd? Á ríkið e.t.v.
ekki að hafa neina stefnu?
Hvernig sjá menn fyrir sér
upplýsingamál ríkisins á
næstu árum í Ijósi reynslu
undanfarinna ára? A að
auka eða draga úr útboð-
um á vél- og hugbúnaði?
Verður sjálfræði ríkis-
stofnana í upplýsingamál-
um aukið eða minnkað?
Margir hafa velt þessum
spurningum fyrir sér á und-
anförnum mánuðum og vill
Skýrslutæknifélagið með
þessari ráðstefnu koma af
stað opinberri umræðu um
þetta mikilvæga mál því það
snertir marga. Á ráðstefn-
unni munu fyrirlesarar m.a.
velta fyrir sér ofangreindum
spurningum og segja skoð-
anir sínar tæpitungulaust."
Jóhann Gunnarsson, deild-
arstjóri í fjármálaráðuneyt-
inu og heiðursfélagi Skýrslu-
tæknifélagsins, setur ráð-
stefnuna, Friðrik Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri
Tölvumynda hf. og formaður
Samtaka íslenskra hugbún-
aðarfyrirtækja, ræðir um
ríkið og tölvumálin, Rúnar
Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Tæknivals hf., flytur
erindi sem kallast PC-tölvur
og ríkið, Halldór Kristjáns-
son, verkfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Tölvu- og
verkfræðiþjónustunnar,
heldur erindi sem heitir Mið-
stýring — leið til ófarnaðar,
Stefán Ingólfsson, verkfræð-
ingur og nefndarmaður í
RUT-nefnd, flytur fyrirlestur
sem heitir Reynsla ríkisins
af útboðum og að lokum flyt-
ur Skúli Eggert Þórðarson
vararíkisskattstjóri erindi
sem heitir Framkvæmd upp-
lýsingastefnu.
Ráðstefnustjóri verður Jó-
hann P. Malmquist prófessor
og mun hann stýra umræð-
um í lokin.
(Úr fréttatilkynningu.)
*j
IK
mm
FRUMSYNIR TOPPSPENNUMYNDINA
ivumiimiii
llie most
daii£erous
»:n lo íolve
HVITIR SflNDAR
Lík finnst með skammbyssu í annarri hendi. Féll maðurinn fyrir eigin hendi
eða var þetta morð? Engin merki finnast um sjálfsmorð og ef þetta var morð,
hvers vegna skilur morðinginn eftir skjalatösku með 500.000 dollurum?
Hvítir sandar er ekta þriller þar sem þú hefur ekki hugmynd um hver er góði
gœinn og hver er vondi kallinn; hún kemur sífellt á óvart allt til enda.
Aðalhlutverk: WILLEM DAFOE (Platoon), MICKEY RODRKE (9'/, Weeksj, MARY
ELIZABETH MASTRANTONIO (Robin Hood, Prince of Thieves) SAMUEL L.
JACKSON (Patriot Games). Leikstjóri: ROGER DONALDSON (No Way Out).
Sýnd kl.5,7,9 og 11.10.
PRINSESS
&DURTAR]
OGNAREÐLI
LOSTÆTI
CxDURlMNIR
ÍSLENSKIR LEIKARAR
Sýnd kl. 5 og 7.
Miðaverð kr. 500.
*★*’/. BlÓL.
****GÍSLI E. DV
Sýndkl. 5,9 og 11.20
Bönnuð innan 16 ára
* * * * SV MBL.
**★ BÍÓLfNAN
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Bönnuð innan 14 ára
VARNARLAUS
KALUM ÞEIM GOMLU
Sýnd kl. 9og11.
★ ★★ Mbl.AI.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð i. 16 ára
REGNBOGINN SÍMI: 19000
Bæjaryfirvöld afhentu
söfnuðinum lóðina við Álfa-
heiði 17, en hún hafði verið
afmörkuð sem kirkjulóð þeg-
ar hverfíð var skipulagt.
Arkitekt er Hróbjartur
Hróbjartsson. Verkfræði-
stofa Guðmundar Magnús-
sonar í Kópavogi annast
burðarþols- og lagnahönnun
og rafhönnuður er Tómas
Kaaber. Einar Þorsteinsson
er hönnuður loftræstikerfis.
Fyrsta skóflustunga var
tekin á hvítasunnudag 1991
og hófust jarðvinnufram-
kvæmdir þá þegar. Verktaki
var Gunnar og Guðmundur
hf. Lokið var steypu sökkla
haustið 1991, verktaki var
Þaksperrur Hjallakirkju hafa verið reistar og í dag verð-
ur reisugildi haldið í kirkjunni.
GET verk sf. Framkvæmdir
við uppsteypu hússins og frá-
gang fyrir tréverk hófust í
apríl í ár. Áformað er að
ljúka þeim áfanga um næstu
áramót. Verktaki er Byrgi
hf. Stefnt er að því að taka
kirkjuna í notkun vorið 1993.
Frestað verður að taka aðra
safnaðaraðstöðu en kirkju-
salinn í notkun um óákveðinn
tíma þar sem ekki verður
ráðstöfunarfé til frekari
framkvæmda í bráð.
Sóknarprestur er séra
Kristján Einar Þorvarðarson.
Sóknamefndarformaður er
Hilmar Björgvinsson. For-'
maður byggingarnefndar er
Karl M. Kristjánsson.
Reisugildi í Hjallasókn
í TILEFNI þess að lokið
er við að reisa þaksperrur
kirkjuhússins, sem er við
Álfaheiði 17, verður fáni
dreginn að húni á bygging-
unni í dag, fimmtudaginn
24. september. Jafnframt
bjóða sóknarnefnd og
byggingarnefnd til reisu-
gildis á neðri hæð bygg-
ingarinnar fyrir starfs-
menn og gesti kl. 17 til 19
í dag.