Morgunblaðið - 24.09.1992, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
49
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI U 18
Ævintýraleg endalok
Erum komnir með ann-
an fótinn til Englands
- segir Pálmi Haraldsson, fyrirliði unglingalandsliðsins
Það var stórkostlegt að leggja
Belgíumennina að velli og
komast áfram í keppninni. Við
erum komnir með annan fótinn
til Englands og það væri stórkost-
legt að komast þangað í úrslita-
keppnina," sagði Pálmi Haralds-
son, fyrirliði íslenska drengja-
landsliðsins.
í 16 liða úrslitum mætir ís-
lenska liðið sigurvegaranum úr
riðli þar sem Búlgarar, írar og
N-Írar eigast við. Úrslitakeppnin
fer fram í Englandi í júní á næsta
ári, en þar leika átta lið. „Við
verðum að undirbúa okkur vel í
vetur og það kostar miklar æf-
inga. Hópurinn er mjög samstillt-
ur emja hafa flestir strákamir
leikið lengi saman. Við tókum
þátt í úrslitakeppni í Sviss í fyrra.
Það kemur til með styrkja liðið
mikið þegar Guðmundur Bene-
diktsson, sem leikur með Ekeren
í Belgíu, verður orðinn góður af
meiðsiunum sem hafa hijáð
hann,“ sagði Pálmi.
Sveinn Sveinsson, formaður
unglinganefndar KSI, sagði að
miklar líkur væru á að næstu leik-
ir liðsins færu fram í apríl eða
maí á næsta ári. „Ég vona að það
verði ekki Búlgarar sem við leik-
um gegn,“ sagði Sveinn.
Þá má geta þess að landsliðið
skipað leikmönnum 16 ára og
yngri, sem vann Danmörku á
Selfossi, 4:1, í fyrradag á góða
möguleika á að komast í úrslita-
keppni Evrópukeppninnar, sem
fer fram í Tyrklandi næsta sum-
ar. Þar leika sextán lið í úrslita-
keppninni. Seinni leikurinn gegn
Dönum fer fram 21. október í
Danmörku.
Unglingalandsliðið tryggði sér rétt til að leika í
16-liða úrslitum Evrópukeppninnar með tveimur
mörkum eftir að venjulegur leiktími var úti
Belgíumenn náðu að jafna á 19. mín. og þá eftir vamar-
mistök í íslensku vöminni. Geoffrey Claeys skoraði mark-
ið með skoti úr vítateig.
Stephane Somberffe kom Belgíumönnum yfir á 37. mín.
rnámmi.......
aður.
*með skallamarki af stuttu færi á, en hann var einn og óvald-
2a Helgi Sigurðsson skoraði markið úr vítaspyrnu, sem hann
rnámf '
*fiskaði sjálfur á 60. mfn.
3a Helgi Sigurðsson var síðan aftur á ferðinni Á 79. mín.,
métmen þá fiskaði hann aðra vítaspyrnu og skoraði örugglega
úr hanni.
4a OHelgi skoraði þriðja mark sitt þegar þijár mín. voru búnar
rnámaf venjulegum leiktíma - 92.51 mín. með skalla, eftir að
Pálmi Haraidsson hafði sent knöttinn fyrir mark Belgíumanna og Ein-
ar Árnason skaliað knöttinn til Helga.
5a Aðeins mín. síðar var knötturinn kominn aftur f net Belgíu-
■ fiimanna. Jóhann Steinarsson átti góðan skalla að marki og
stefndi knötturinn í markið. Lúðvík Jónasson og markvörður Beigíu-
iftanna kepptust við að ná knettinum og Lúðvík hafði betur - náði
að spymti knettinum í netið.
ÞAÐ var boðið upp á ævintýra-
leg endalok á Varmárvellinum
i Mosfellsbæ í gær, þar sem
íslenska unglingalandsliðið
náði að leggja Belgíumenn að
velli, 5:2, og tryggja sér rétt
til að leika í 16-liða úrslitum
Evrópukeppninnar. Strákarnir
tryggðu sér áframhaldandi
þátttöku með því að skora tvö
mörk á einni mín. eftir að
venjulegur leiktími var úti. „Ég
var byrjaður að undirbúa mig
fyrir framlengingu þegar
strákarnir greiddu Belgíu-
mönnum rothöggið með
tveimur leiftursóknum sem
gáfu mörk,“ sagði Guðni Kjart-
ansson, þjálfari unglinga-
landsliðsins.
Endalok leiksins voru hreint ótrú-
leg, því að þegar ellefu mín.
voru til leiksloka var staðan 2:2 og
Belgíumenn virtust
öruggir með að
komast áfram. Þá
skoraði Helgi Sig-
urðsson sitt annað
mark úr vítaspymu, 2:3, þannig að
samanlögð markatala var 5:5 og
allt stefndi í framlengingu, en á
ævintýralegan hátt náðu íslensku
strákarnir að láta kné fylgja kviði
og skora tvö mörk. Fyrst Helgi Sig-
urðsson með skalla og síðan Lúðvík
Jónasson af stuttu færi.
íslensku strákarnir, sem léku
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
ekki vel í fyrri hálfleik, gerðu fyrsta
mark leiksins er ívar Bjarklind
skoraði af stuttu færi, en Belgíu-
menn sem voru betri, svöruðu með
tveimur ódýrurn mörkum eftir varn-
armistök. „Við náðum okkur ekki
á strik í fyrri hálfleiknum og vorum
ákveðnir að gefa allt sem við áttum
í seinni hálfleik. Heppnin var með
okkur og dæmið gekk upp,“ sagði
Helgi Sigurðsson, sem skoraði þijú
mörk. „Það er alltaf gaman að
skora, en að sjálfsögðu hefur það
lengi verið draumurinn að skora
þijú mörk í landsleik," sagði Helgi.
„Það var stórkostlegt að ná að
knýja fram sigur undir lok leiksins,
eftir lélega byijun. Við vorum
ákveðnir að sækja í seinni hálfleik,
enda dugði ekkert annað í stöð-
unni,“ sagði Pálmi Haraldsson, fyr-
iriiði og besti leikmaður íslenska
liðsins.
Pálmi átti mjög góðan leik á
miðjunni - var hreyfanlegur og
ógnandi. Það sem háði íslenska lið-
inu mest var hvað lítil samvinna
var á milli varnar og sóknar. Lítil
uppbygging kom frá öftustu mönn-
um, þannig að miðvallarspilið var
oft á tíðum máttlaust, þar sem leik-
mennimir á miðjunni þurftu að
draga sig aftur til að vinna knött-
inn. Þetta þarf að laga fyrir næsta
verkefni liðsins - í 16-liða úrslitun-
um.
l#\Eftir langt innkast Lúðvíks Jónassonar á 15. mín. náði
i\#ívar Bjarklind knettinum eftir varnarmistök Belgíumanna
og skoraði af stuttu færi.
ísland - Belgía 5:2
Varmávöllur í Mosfellsbæ, Evrópu-
keppni landsliða 18 ára og yngri, mið-
vikudagurinn 23. september 1992.
Aðstæður: Völlurinn góður, logn í
byrjun leiks, en síðan smá gjóla og
svalt.
Mörk íslands: ívar Bjarklind (15.),
Helgi Sigurðsson 3 (60., 79., 93.),
Lúðvík Jónasson (94.).
■Vei\julegur leiktími er 90 mín.
Mörk Belgiu. Geoffrey Cleays (19.),
Stephane Sombreffe (37.).
Gult spjald: Jóhann Steinarsson, Roen
Caluwe, Frédéree Herfoel.
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Steven Lloyd, Englandi.
Áhorfendur: Um 200. Aðgangur var
ókeypis.
ísland. Atli Knútsson - Þorvaldur
Ásgeirsson, Lúðvík Jónasson, Einar
Ámason - Orri Þórðarson, Eysteinn
Hauksson, Pálmi Haraldsson, Daði
Pálsson (Jóhann Steinarsson 70.), Sig-
urbjöm Hreiðarsson (Sigþór Júlíusson
61.) - ívar Bjarklind, Helgi Sigurðsson.
Belgía: Herfoel - De Ridder, Caluwe,
Wuillot - Van Laere, Druyts, Claeys,
De Graef, Ferry - Sombreffe, Van
Hout.
Morgunblaðið/Kristinn
Helgi Slgurðsson í skallaeinvígi við vamarmann Belgíu. Helgi skoraði þijú
mörk, þar af tvö úr vítaspymum.
ENGLAND
Þorvaldur skoraði
og lagði upp mark
Þorvaldur Örlygsson átti mjög
góðan leik með Nottingham
Forest er liðið sigraði Stockport á
útivelli í gærkvöldi, 3:2, í fyrri við-
ureign þeirra í 2. umferð ensku
deildarbikarkeppninnar.
Þulur BBC hældi Þorvaldi mjög,
en það var eftir sendingu hans sem
Gary Bannister gerði fyrsta mark
Forest. Nigel Clough gerði annað
mark liðsins og Þorvaldur það
þriðja. Hann komast þá í gegnum
vöm Stockport eftir fallegt þríhyrn-
ingsspil við Clough og skoraði lag-
lega.
Gascoigne byrjar vel
Enski landsliðsmaðurinn Paul
Gascoigne var í gærkvöldi með
í opinberum leik fyrsta sinni síðan
vorið 1991, er Tottenham, sem
hann lék með þá, heimsótti ítalska
félagið Lazio í Róm — en Gascoigne
er nú á mála hjá því. Og enski
landsliðsmaðurinn byijaði vel, skor-
aði strax og lagði síðan upp annað
mark. Hann fór svo af velli á 66.
mín., ákaft hylltur af áhangendum
Lazio. Leikurinn fór 3:0.
Gascoigne var himinlifandi í
leikslok. „Ég vildi bara reyna að
komast í gegnum leikinn tii að sýna
Dino [Zoff, þjálfara Lazio] að ég
væri kominn í góða æfingu, en að
skora eftir tíu mínútur var ótní-
legt.“ Gazzi sagðist hafa reynt að
vera rólegur eftir markið, en áhorf-
endur hefðu hreinlega sogað hann
til sín — „ég stóðst ekki mátið að
hlaupa til þeirra."
. Enn er með öllu óljóst hvenær
Gascoigne verður með Lazio I deild-
arleik og bæði hann og Zoff sögðu
í gærkvöldi að ákvörðun um það
yrði ekki tekin fyrr en að vandlega
athuguðu máli.