Morgunblaðið - 24.09.1992, Page 51

Morgunblaðið - 24.09.1992, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992 51 HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ Gamanaðfá að vera með - sagði Hans Guðmundsson, sem átti stóran þátt í fyrsta sigri HK „ÞAÐ var gaman að fá loksins að vera með. Ég fór inná með því hugarfari að nú væri að duga eða drepast, og það kom í Ijós að adrenalínstreymið er til staðar og alls ekki stíflað," sagði Hans Guðmundsson eftir að hafa leikið sinn fyrsta leik með HK, á móti KA í Digranes- inu í gærkvöldi. Það var sem þungu fargi væri létt af HK- mönnum í leiknum, sem sigr- uðu með fjórum mörkum, 26:22, unnu þar með sinn fyrsta leik og átti Hans stóran þátt í því. Leikurinn var jafn fyrsta stund- arfjórðunginn og sýndu liðin oft á tíðum ágætan handknattleik. Sóknarleikur KA- Stefán manna var þó heldur Eiríksson einhæfur, og er líða skrífar tók á fyrri hálfleik- inn sigu HK-menn framúr. Síðustu mínútumar í fyrri hálfleik sýndu þeir hreint út sagt stjörnuleik, skomðu m.a. tvö „sirk- usmörk", og gengu til búningsklefa í hálfleik með þriggja marka for- skot. HK-menn héldu forskotinu í síð- ari hálfleik, þrátt fyrir að KA-menn næðu að klóra örlítið í bakkann í byijun hans, og náðu mest fimm marka forskoti. KA-menn reyndu ítrekað að komast aftur inn í leik- inn, tóku fyrst Hans Guðmundsson úr umferð og því næst bæði Hans og Michal Tonar, en lítið gekk. HK-menn ætluðu sér sigur og KA- menn gátu lítið í því gert. Það var allt annað að sjá til HK-manna nú en í fyrstu leikjunum. Þeir spiluðu ömgga vöm og árang- ursríkan sóknarleik. Hans Guð- mundsson átti góðan leik, skoraði sex mörk og lék vel í vörninni. Guðmundur Pálmason átti stórleik í síðari hálfleik, skoraði þá fimm mörk, og Bjami Frostason, sem kom í markið um miðjan fyrri hálf- leik, varði fantavel í síðari hálfleik. Hornamennimir Frosti Guðlaugs- son og Guðmundur Albertsson voru drjúgir í sókninni og skomðu sam- tals tíu mörk. Guðmundur Pálma- son sagði eftir leikinn að það væri ekki spurning að Hans hefðu haft mjög góð áhrif á sjálfstraustið í lið- inu. „Hans var hungraður í að spila og náði upp þeirri stemmningu í liðið sem hefur vantað. Það er kom- inn stígandi í liðið og leiðin liggur núna aðeins upp,“ sagði Guðmund- ur. KA-menn hafa oft gert betur enn í gærkvöldi. Markvarslan var lítil, vömin oft illa sofandi og sóknarleik- urinn eins og áður sagði einhæfur. Erlingur Krisijánsson var sá eini sem lék af eðlilegri getu, skoraði tíu mörk, en viðurkenndi í samtali við blaðamann Morgunblaðsins að þeir hefðu verið afspymu lélegir. Aðspurður hvort innkoma Hans Guðmundssonar hefði gert gæfu- muninn sagði Erlingur: „Það skipti okkur ekki máli, en skipti þá aug- ljóslega miklu máli. Þeir náðu upp baráttuandanum." Hans Guömundsson í HK-búningnum í gærkvöldi. Morgunblaðið/Bjami Valur engin fyrirstaða Morgunblaðið/Bjami Inga Lára Þórisdóttir fyrirliði Víkings var markahæst í liði Islandsmeistar- anna með átta mörk. Hér hleypir hún af í gærkvöldi. Mm FOLK ■ MIKLAR líkur em á að Teitur Þórðarson, sem hættir með Osló- arliðið Lyn í haust eftir að knatt- spymuvertíðinni í Noregi iýkur, taki við þjálfun úrvalsdeildarliðsins Tromsö. Hann átti viðræður við forráðamenn félagsins í fyrradag. ■ HAJRUDIN Cardoklija, Bos- níumaðurinn sem stóð í marki Breiðabliks í sumar, verður áfram hjá Kópavogsliðinu næsta sumar er liðið leikur í 2. deild. ■ DIEGO Maradona verður með spænska félaginu Sevilla í fyrsta skipti á mánudaginn kemur — er liðið mætir þýska stórveldinu Bay- ern Munchen í vináttuleik á Spáni. ■ SEVILLA keypti Maradona frá ítalska félaginu Napolí á sjö og hálfa milljón dollara. Forráða- menn Sevilla reiknuðu í gær með að fá væna fúlgu í kassann frá sjón- varpsstöðvum sem ætla að sýna leikinn gegn Bayern beint — um eina og hálfa milljón dollara. ■ KENNY Dalglish, fram- kvæmdastjóri Blackburn, snaraði peningabuddunni á borðið í vikunni og keypti Nick Marker, 27 ára miðvörð, frá Plymouth á 500 þús. pund. ■ KEVIN Keegan, fram- kvæmdastjóri Newcastle, keypti innheijann Robert Lee frá Charl- ton á 700 þús. pund. ■ ÁHUGINN er geysilegur hjá stuðningsmönnum Newcastle, sem hefur unnið alla leiki sína - sjö. Fullt hús áhorfenda hafa verið á heimaleikjum liðsins, 39 þús. manns. 5.000 áhorfendur þurftu frá að hverfa á St. James’ Park sl. laugardag. VALSSTÚLKUR höfðu Irtið t klærnar á íslands- og bikar- meisturum Víkings að gera þegar liðin mættust i Hlíðar- endanum í gærkvöldi, er keppni í 1. deild kvenna hófst. Úrslit urðu 13:23 en Víkingar höfðu ellefu marka forystu í leikhlé og bættu við næstu þremur eftir hlé. Vamarleikur Víkinga var góður og hinn nýi markvörður þeirra, Marija Samardizja sem kem- ur frá Slóveníu, hirti Stefán flest allt sem slapp Stefánsson 5 gegn. Eftir hlé skrífar slökuðu Víkingar á og leyfðu ■ öllum að spila svo Valsmenn, sem aldrei gáf- ust upp, stóðu í þeim. „Okkur vantar reynslu, annar helmingurinn er við þrítugt og hinn að skríða yfir fimmtán ára aldur,“ sagði Hanna Katrín Friðriksen. Markvörðurinn Arnheiður Hregg- viðsdóttir var best Vals-stúlkna. Hjá Víkingum var Maija best og mikið bar á Ingu Láru Þórisdóttur og Höllu Maríu Helgadóttir. Fram hrökk í gang Grótta náði ekki að halda í við Fram í 1. deild kyenna á Seltjarnar- nesi í gærkvöldi og tapaði 14:19 í mjög kaflaskiptum leik þar sem Fram átti færri slæma kafla en heimamenn. Leikurinn byijaði með miklum sláar- og stangarskotum en aðeins voru skoruð þijú mörk fyrstu tíu mínúturnar. Grótta leiddi fyrst en Fram hrökk í gang og náði mest 5:11 en fímm mörk í röð frá Laufey Sigvaldadóttur hjuggu nærri for- skotinu. Framarar hrukku þá aftur í gang og kláruðu leikinn. Laufey var best hjá Gróttu en Fanney Rúnarsdóttir í markinu og Sigríður Snorradóttir áttu góða spretti. Hjá Fram var Inga Huld Pálsdóttir mótor liðsins og Kolbrún Jóhannsdóttir frábær í markinu. Setfoss hafðí betur Selfoss og ÍBV áttust við á Sel- fossi og lauk viðureigninni með 20:17 sigri heimastúlkna eftir mik- inn baming og mikil mistök á báða bóga. Selfyssingar byijuðu vel og gerðu fyrstu fimm mörkin en ÍBV jafnaði og eftir það var barningur alveg fram í leikhlé en þá hafði hvoru liði tekist að gera tíu mörk. Eyjadömur byijuðu betur í síðari hálfleik en heimastúlkur jöfnuðu 14:14 og jafnt var á öllum tölum upp í 17:17 þegar sjö mínútur voru eftir. Gestunum tókst ekki að gera mark það sem eftir var en heima- stúlkur gerðu þijú mörk og tryggðu sér sigur. Leikheim- ild Hans komtíu mín. fyrir leik Stjórn HK og FH komust að samkomulagi um kvöld- matarleytið í gærkvöldi um fé- lagaskipti Hans Guðmundssonar úr FH í HK, og gat hann því leikið með HK á móti KA í gærkvöldi. Leikheimild fyrir Hans frá HSÍ kom í hús í Digra- nesinu tæpum tíu mínútum fyrir leik, en gengið var frá henni klukkan 19.40, tuttugu mínút- um áður en leikurinn hófst. Hans vildi í gærkvöldi ekki tjá sig um það í hveiju sam- komulagið fælist. Talsmenn félaganna ákváðu að gefa ekki út neina yfirlýsingu um málið, en sögðu að sam- komulag hefði náðst og málinu hefði lokið með friði. Gunnar Kr. Gunnarsson framkvæmdastjóri HSÍ sagðist ekki vita í hveiju samkomulagið fælist, en sagði að liðin hefðu bundið það fastmælum að engir frekari eftirmálar yrðu að þessu máli. Gunnar sagði að nær öll félagaskiptamál væru nú útklj- áð, úr tveimur málum í annarri deildinni myndi greiðast í viku- lokin, og þar með væri þessu lokið. ÚRSLIT Selfoss - ÍBV 20:17 Valur-Víkingur 13:23 Hlíðarendi: Gangur leiksins: 0:1, 1:1, 1:7, 2:14, S:14, 3:17, 7:18, 9:19, 9:22, 10:28, 13:23. Mörk Vals: Sigurbjörg Kristjánsdóttir 5, Hanna Katrfn Friðriksen 3/2, Kristín Am- órsdóttir 2, Ásta B. Sveinsdóttir 1, Lilja Sturludóttir 1, Sonja Jónsdóttir 1. Varin skot: Amheiður Hreggviðsdóttir 11. Utan vallar: 2 mínútur. Mörk Víkings:. Inga Lára Þórisdóttir 8/2, Halla Maria Helgadóttir 8/2, Valdis Birgis- dóttir 3, Svava Sigurðardóttir 1, &vava'-Ýr Baldvinsdóttir 1, Matthildur Hannesdóttir 1, Elísabet Sveinsdóttir 1. Varin skot: Marija Samardizja 15, Harpa Amarsdóttir 3. Utan vallar: 2 mínútur. Dómarar: Guðmundur Sigurbjömsson og Ámi Sverrisson. Áhorfendur: 45 til að byija með en fjölg- aði er á leið þvf kariamir léku strax á eftir. Haukar-FH 12:19 fþróttahúsið Strandgötu: Mörk Hauka: Harga Melsteð 7, Heiðrún Karlsdóttir 3, Ema Amadóttir 1, Ragnheið- ur Guðmundsdóttir 1. Mörk FH: Helga Kristin Gilsdóttir 4, Thelma Ámadóttir 4, Ingibjörg Þorvalds- dóttir 3, Brynja Thorsdóttir 3, Marfa Sigurð- ardóttir 3, Hildur Pálsdóttir 2. Fylklr - Stjarnan 13:35 Mörk Fylkis: Rut Baldursdóttir 4/1, Anna G. Einarsdóttir 2, Ragnheiður Jóhannsdótt- ir 2, Amheiður Bergsteinsdóttir 2, Erla Magnúsdóttir 1, Kristrún Hermannsdóttir 1, Rósa M. Ásgeirsdóttir 1. Mörk Stjörnunnar: Sigrún Másdóttir 9, Guðný Gunnsteinsdóttir 7, Ragnheiður Stephensen 5/2, Margrét Vilhjálmsdóttir 4, Una Steinsdóttir 3, Þómnn Þórarinsdótt- ir 3, Helga Krisjjánsdóttir 2, Sif Gunnsteins- dóttir 2. Grótta-Fram 14:19 íþróttahúsið Seltjaniarnesi: Gangur leiksins: 1:0, 2;1, 3:3, 3:5, 4:8, 5:9, 5:11, 10:12,10:16, 13:17,13:19,14:19. Mörk Gróttu: Laufey Sigvaldadóttir 9/4, Þuríður Reynisdóttir 1, Sigríður Snorradótt- ir 1, Björk Brynjólfsdóttir 1, Elísabet Þor- geirsdóttir 1, Vala Pálsdóttir 1. Varin skot: Fanney Rúnarsdóttir 7/1. Utan vallar: 12 mlnútur. Mörk Fram: Inga Huld Pálsdóttir 6, Ósk Víðisdóttir 5/2, Margrét Pálsdóttir 3, Diana Guðjónsdóttir 3/8, Þómnn Garðarsdóttir 1, Steinunn Tómasdóttir 1. Varin skot: Kolbrún Jóhannsdóttir 12 og Agnes Helgadóttir 8/1. Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Guðjón L Sigurðsson og Hákon Siguijónsson. Áhorfendur: 60.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.