Morgunblaðið - 24.09.1992, Page 52
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉRLEIÐ
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Kaupin á Verðbréfamarkaði
Fjárfestingarfélagsins
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Olympíuförunum fagnað
íslensku keppendunum á Ólympíumóti þroskaheftra í Madrid var vel fagnað þegar þeir komu heim í gær-
dag. Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra og Ellert B.
Schram forseti íþróttasambands íslands voru meðal þeirra sem tóku á móti þeim i Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar. Síðan var haldið kaffisamsæti þeim til heiðurs í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Á myndinni, sem tekin var
í Leifsstöð, sjást fararstjóramir Þórður Hjaltested aðalfararstjóri og Gísli Einarsson læknir og sundkonurn-
ar sem unnu samtals 21 verðlaunapening, þær Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Bára B. Erlingsdóttir, Guðrún
Ólafsdóttir og Katrín Sigurðardóttir. Sjá einnig fréttir á miðopnu.
Skandia óskar við-
ræðna vegna breyt-
inga á afskriftarþörf
FORRÁÐAMENN Skandia íslands hafa óskað eftir viðræðum við sljórn
Fjárfestingarfélags íslands um Verðbréfamarkað Fjárfestingarfélags-
ins sem Skandia Island keypti í apríl sl. og heitir nú Fjárfestingarfélag-
ið Skandia. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur nú verið
upplýst um breytt mat á afskriftarþörf sjóðanna frá því sem var þeg-
ar kaupsamningurinn var gerður og er það ástæðan fyrir ósk Skandia
eftir viðræðum.
Gísli Öm Lárusson, forstjóri
Skandia ísland, sagðist í samtali við
Morgunblaðið einungis geta sagt að
eigendur Skandia væru að fara yfir
6 mánaða uppgjör verðbréfamarkað-
arins, sem verður fullbúið næstu
daga. Þar til það liggur fyrir vildi
hann ekkert segja um málið.
Guðmundur H. Garðarsson, for-
maður stjómar Fjárfestingarfélags
íslands staðfesti í samtali við Morg-
unblaðið að forsvarsmenn Skandia
ísland hefðu óskað eftir viðræðum
um Verðbréfamarkað Fjárfesting-
arfélagsins.
Skandia keypti verðbréfamark-
aðinn sem rekur 4 verðbréfasjóði
ásamt Fijálsa lífeyrissjóðnum fyrir
186,5 milljónir af Fjárfestingafélagi
íslands hf. í apríl og tók formlega
við rekstri Verðbréfamarkaðarins 18.
júní. Við sölu á Verðbréfamarkaðn-
um lá fyrir mat á sjóðunum sem var
yfirfarið bæði af forstjóra og endur-
skoðenda félagsins og einnig af end-
urskoðanda Skandia. Kaupsamning-
urinn kvað síðan á um það að 10%
af kaupverðinu yrði geymt á sérstök-
um geymslureikningi til 1. júní 1993.
Yfirlit um stöðu tíu stærstu lífeyrissjóðanna á árunum 1990 og 1991
Eignir jukust um sex-
Þetta fé yrði til tryggingar því að
upplýsingar Fjárfestingarfélagsins
um fjárhagslega stöðu fyrirtækisins
og sjóðanna hafi verið réttar.
Gripið hafði verið til ýmissa ráð-
stafana til að tryggja stöðu verð-
bréfasjóða í umsjá Verðbréfamark-
aðar Fjárfestingarfélagsins áður en
salan til Skandia átti sér stað. Gengi
sjóðanna var lækkað í ágúst á sl.
ári og til að mæta samdrætti þeirra
var ákveðið að láta dótturfélag Fjár-
festingarfélagsins, Takmark hf.,
kaupa verðbréf af verðbréfasjóðun-
um fyrir um 300 milljónir króna.
Urðu þar fyrir valinu verðbréf sem
ætla mátti að einhvern tíma tæki að
innheimta en með tryggingum sem
taldar voru í lagi.
Digranessöfnuður
Sóknar-
nefnd sækir
um nýja lóð
SÓKNARNEFND Digranessóknar
hefur sótt um nýja lóð undir
kirkjubyggingu og jafnframt skil-
að af sér lóðinni við Víghól. Hin
nýja lóð er neðan Hlíðavegar og
vestan Digranesvegar.
Þorbjörg Daníelsdóttir formaður
sóknamefndar segir að hér sé um
mjög góða úrlausn að ræða og legg-
ur áherslu á að staðsetning kirkjunn-
ar sé ekki aðalatriðið heldur að söfn-
uðurinn eignist athvarf og geti farið
að byggja upp sitt innra starf.
Sjá nánar á miðopnu.
tán milljarða á einu ári
í YFIRLITI sem Samband almennra lífeyrissjóða hefur gert um þróun
eigna hjá tíu stærstu lífeyrissjóðunum á milli árann'a 1990 og 1991
kemur fram að eignir þeirra jukust um 16 milljarða á þessu tímabili.
Aukning eigna hjá þessum sjóðum er yfirleitt um eða yfir 20% á milli
áramóta 1990 og 1991 og í sumum tilfellum fer þetta hlutfall upp í
allt að 27%. Stærsti lífeyrissjóðurinn, Lífeyrissjóður verslunarmanna,
bætir eignastöðu sína úr rúmlega 18 milljörðum króna upp í 22,3
miljjarða eða um tæp 24%.
Þorgeir Eyjólfsson forstjóri Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna segir að
þessi eignaaukning sjóðsins endur-
spegli hið háa raunvaxtastig sem
verið hefur í þjóðfélaginu um nokk-
urra ára skeið. „En hér verður einn-
ig að hafa í huga hvað eignamyndun
varðar að þeim sem greiða iðgjöld í
sjóðinn hefur íjölgað á þessu tíma-
bili og taka verður tillit til almennra
verðbreytinga á tímabilinu," segir
Þorgeir. „Því er þessi aukning á eign
okkar ekki eingöngu tilkomin vegna
ávöxtunar sjóðsins. Og ef við lítum
á tímabilið frá síðustu áramótum og
fram á þau næstu mun aukningin á
eigninni ekki verða eins mikil þar
sem reikna má með að verðbreyting-
ar verði tæpast jafnmiklar og á tíma-
bilinu milli ársloka 1990 og 1991.“
Þorgeir segir að eftir sem áður
sé ljóst að lífeyrissjóðirnir nái tölu-
vert góðri ávöxtun á eigið fé þegar
raunvaxtastig sé jafn hátt og nú.
Hvað Lífeyrissjóð verslunarmanna
varðar fjárfestir hann nú um það
bil 50% af ráðstöfunarfé sínu í hús-
bréfum og lánveitingum til Hús-
næðisstofnunar en afganginn í
markaðsverðbréfum með ríkis-
ábyrgð og skuldabréfum bankanna
auk veðskuldabréfa meðlima sjóðs-
ins.
Ef litið er á aukningu eigin fjár
annarra h'feyrissjóða á listanum yfir
þá tíu stærstu kemur í ljós að hlut-
fallslega varð mest aukningin hjá
Lífeyrissjóði Austurlands sem jók
eign sína úr 2,96 milljörðum króna
í 3,77 milljarða eða um 27%. Söfnun-
arsjóður lífeyrisréttinda jók eign sína
um 26% eða úr 4,68 milljörðum
króna í 5,88 milljarða og Lífeyris-
sjóður sjómanna jók eign sína um
25% eða úr rúmlega 10 milljörðum
króna og í 12,6 milljarða. Aukning
hjá hinum lifeyrissjóðunum, það er
Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins,
Lífeyrissjóði Dagsbrúnar og Fram-
sóknar, Samvinnulífeyrissjóðnum,
Lífeyrissjóði bænda og Lífeyrissjóði
Vestfirðinga var um eða yfir 20%.
Mun meiri veiði í fiestum laxveiðiánum í sumar en á síðasta ári
Hofsá efst með metveiði
Laxveiðivertíðinni er lokið og var Hofsá í Vopnafirði efst með 2.360
laxa. í öðru sæti var Þverá ásamt Kjarrá í Borgarfirði með 2.321
lax. Þverá var efst í fyrra með 1982 laxa, en þá veiddust aðeins
639 laxar í Hofsá. Veiðin í ánni í sumar er metveiði. Laxá í Aðal-
dal var í þriðja sæti með 2286 laxa og Norðurá í Borgarfirði í fjórða
sæti með 1964 laxa.
Stærsti laxinn sem veiðst hefur
hér á landi svo vitað sé var dreginn
úr Bakkaá í Bakkafirði í júnímán-
uði í sumar, 43 punda fiskur, og
auk þess veiddust óvenjulega víða
laxar sem voru 20 pund eða stærri.
Engu að síður var það lax sem
hafði verið eitt ár í sjó sem bar
uppi veiðina og var sá fískur víð-
ast hvar mjög vænn, mun vænni
heldur en síðustu ár. Vænni laxinn
var einnig þyngri að jafnaði og
meðalvigtin í flestum ám var hærri
en um árabil.
Flestar ár landsins bættu veru-
lega við í veiði frá síðasta ári en
þó voru undantekningar frá því og
voru þær markverðustu útkoma
Laxár í Kjós með 1300 laxa á
móti 1604 í fyrra og Laxár í Leirár-
sveit með 650 laxa á móti 850 í
fyrra. Mest varð aukningin i
Vopnafírði og í Borgarfjarðarán-
um. Áður er getið Hofsár og Þver-
ár, en einnig má geta Norðurár,
en hún gaf í fyrra 1.265 laxa en
1.964 nú og Selá gaf nú 1.330
laxa á móti 773 í fyrra. Ennfremur
má nefna Grímsá í Borgarfírði sem
gaf 1.880 iaxa í sumar en 1.350
í fyrra. Mest veiði á dagsstöng var
eins og áður í Laxá á Ásum þar
sem veiddust tæplega 900 laxar á
tvær dagsstangir. Næstar komu
Hofsá með sína stórveiði á sjö
stangir á 70 stangardögum og þar
á eftir'voru Leirvogsá og Úlfarsá
með 556 og 517 laxa hvor á tvær
dagsstangir. Álftá á Mýrum er
einnig ofarlega sem fyrr með um
350 laxa á tvær stangir. Þar veidd-
ust einnig um 200 sjóbirtingar.
Flestir sem nærri veiðiskapnum
komu í sumar eru á einu máli um
að í flestum ám landsins hafí verið
mikið af laxi og heildarveiðin í ein-
stökum ám hefði getað orðið miklu
meiri ef slæm skilyrði til veiða
hefðu ekki sett strik í reikninginn
stóran hluta veiðitímans. Annað
hvort voru langvarandi kuldar,
vatnavextir eða þurrkar, allt eftir
því hvar á landinu menn voru
staddir og kom það mjög niður á
aflabrögðum.
Sjá einnig veiðiþátt bls. 22.
Skotið á
tvo bíla
SKOTGÖT fundust á rúðum
tveggja bíla í Hólahverfi í Reykja-
vík á þriðjudagsmorgun. Ekki er
vitað hveijir hafa verið að verki.
I annað skiptið var skotið í aftur-
rúðu bíls þegar ökumaður hans
var nýlega sestur undir stýri.
Það atvik átti sér stað á þriðju-
dagsmorgun þegar kona var á leið
til vinnu sinnar frá heimili sínu við
Þrastarhóla. Skyndilega heyrði hún
eitthvað smella í afturrúðu bílsins
en gaf því ekki gaum, heldur ók af
stað og í vinnu sína. Þegar þangað
var komið tók hún eftir að afturrúð-
an var brotin og hringdi á lögregluna.
Skömmu áður hafði lögreglunni
verið tilkynnt að skotið hefði verið í
gegnum vörubíl sem stóð kyrrstæður
við Hólagarð.