Morgunblaðið - 23.10.1992, Síða 2

Morgunblaðið - 23.10.1992, Síða 2
2' É Sýnlngarsalur meö ljós- myndum af sölueignum — Vióbrögó seljenda og kaupenda mjög góó, segir Sverrir Kristjánsson fasteignasali. FASTEIGNAMIÐLUN Sverris Kristjánssonar hefur tekið í notkun 100 fermetra sal, þar sem komið er fyrir á vegg ljósmynd- um af þeim eignum, sem þessi fasteignasala hefur til sðlu. Sýn- ingarsalurinn er á jarðhæð að Suðurlandsbraut 12, en fasteign- amiðlunin er á hæðinni fyrir of- an. Salurinn er opinn kl. 4-9 á virkum dögum, á laugardögum kl. 11-5 og á sunnudögum kl. 1- 5. Starfsmaður er ávallt til staðar á þessum timum til þess að gefa upplýsingar um eignimar. Tlgangurinn með þessu er sá að sýna myndir af öllum þeim fasteignum, sem við erum með í sölu og veita um leið þær upplýs- ingar um eignimar, sem til þarf til þess að gera frumathuganir varð- andi kaup á þeim, sagði Sverrir Kristjánsson í viðtali við Morgun- blaðið. — Þegar að því kemur að veita nánari upplýsingar t. d. um greiðslubyrði af lánum, kemur fólk upp á fasteignasöluna á hæðinni fyrir ofan. Upplýsingamar fylgja ljósmyndinni af hverri eign og auk þess liggja þessar sömu upplýsingar frammi á lausum blöðum í bökkum á veggjunum. Fóik getur tekið þessi blöð með sér heim til þess að kynna sér þessar upplýsingar betur, ef það vill. — Ég hef séð þetta innifyrir- kómulag hjá fasteignasölum eriend- is, en ég hef hvergi séð þessu kom- ið fyrir með þessum hætti áður hér á landi, sagði Sverrir ennfremur. — Þetta er auðvitað miklu þægilegri kostur fyrir fólk, en þegar myndir em hengdar upp í útigluggum til þess að skoða þær þar. Þetta er líka að sjálfsögðu dýrara en ég tel samt, að í framtíðinni eigi þetta að geta skilað sér til baka. Viðbrögðin vom líka ótrúlega góð. Fyrstu helg- ina komu hingað yfir 300 manns og síðan hefur fólk verið að koma hingað jafnt og þétt. Segja má, að það sé alltaf einhver inni að skoða eignir. Hér er líka alltaf kaffí á könnunni og aðstaða fyrir fólk til þess að setjast niður og kynna sér margs konar upplýsingar um fast- eignir. Önnur afleiðing er sú, að hingað koma nú enn fleiri eignir í sölu en áður. Sverrir sagði, að fasteignamark- aðurinn hefði verið frekar rólegur yfír hásumarið en sala hefði verið mjög góð í september og það sem af væri októbermánaðar. — At- vinnuhúsnæði hefur verið fremur þungt í sölu á þessu ári, en samt er hér alltaf að seljast eitt og eitt pláss, sagði hann. — Verð á at- vinnuhúsnæði hefur lækkað á jaðar- svæðunum en á miðjusvæðunum er það mjög gott og þó sér í lagi, ef það er við góðar samgönguæðar. Það vantar blátt áfram góðar skrif- stofuhæðir á heppilegum stöðum. Ef um gamalt húsnæði er að ræða, sem þarf að endumýja, er hins veg- ar miklu meiri tilhneiging en áður til þess af hálfu kaupenda að færa verðið niður, því að það er orðið Sýningarsalurinn er um 100 fermetrar og þar er komið fyrir á vegg þeim ljósmyndum, sem þessi fasteignasala hefur til sölu. Salurinn er á jarðhæð að Suðurlandsbraut 12, en fasteignamiðlunin er á hæð- inni fyrir ofan. mjög dýrt að standsetja slíkt hús- næði. Svipaða sögu væri að segja um atvinnuhúsnæði á leigumarkaðnum. — Það er mikið til leigu af atvinnu- húsnæði á jaðarsvæðunum, sem erfítt er að eiga við, sagði Sverrir. — Allt, sem er á miðjusvæðunum og boðið er fram á skaplegu verði, er hægt að leigja út. Eg held því, að markaðurinn fyrir atvinnuhús- næði sé í nokkuð góðu jafnvægi. Að lokum sagði Sverrir, að þó nokkur söluhreyfing væri nú á ný- byggingum og þá fyrst og fremst sérbýli eins og einbýlishúsum, rað- húsum og parhúsum en minni á blokkaríbúðum. — Mér fínnst íbúð- arverð frekar vera að lækka heldur en hitt. Ég tel, að það hafi orðið raunlækkun á markaðnum um 2-5%. BÍLSKÍJRAR BÍ LSKÚRAR við heimahús eru allmisjafnir að stærð og gerð. Víða gerir skipulag gatna og lóða ráð fyrir litlu og þröngu svæði fyrir bílskúr. Einkum á það við um elstu bilskúra, þeir voru oft litlir og þröngir. Bílarnir voru líka minni á fyrstu árum bOanna. Mikil breyting varð á þessu í kringum 1950. að var ekki laust við að mörgum þætti jaðra við óhóf þegar þeim sem fengu lóðir undir einbýlis- hús í Garðabæ var gert að skyldu að hafa tvöfalda bílskúra við hús sín. Ennþá eru skipulögð einbýlis- og raðhúsahverfi þar sem aðeins er gert ráð fyrir litl- um og þröngum bílskúr. Það er gott að hafa nægjanlegt rými í bílskúmum til þess að geta þrifíð bílinn inni, opnað hurðir hans upp á gátt svo að auðvelt sé að ryksuga hann að innan og þurrka af rúðum o.s.frv. Nú er það svo að fólksbíll af venjulegri stærð sem stendur með opnar hurðir á báðum hliðum mæl- ist um 3,3 til 3,7 m breiður. Lengd þeirra er auðitað misjöfn, svona frá 3 til rúmlega 5 m. Víða er bílskúr- inn eina húsnæðið þar sem heima- fólk getur gripið í að vinna við smíðar eða lagfæringar og munu margir eiga sér þann draum að eiga sæmilega stóran bílskúr með vinnu- borði og verkfærum til viðgerða og smíða. Algeng stærð bílskúra er að inn- anmáli 3-3,5 m á breidd og 8 m að iengd. Gluggar Fjölmargir bflskúrar á þéttbýlis- stöðum eru staðsettir þannig á lóð- unum að ekki reynist unnt að hafa á þeim glugga. Oheimilt er að hafa glugga á vegg sem er á lóðamörk- um og mundi því snúa að lóð ná- grannans. Birtumöguleikar gegnum glugga á bílskúrum eru oft aðeins með því að hafa glugga á framhliðinni eða t.d. á endavegg, þ.e.a.s. ef hann nær þá ekki alveg inn að lóðamörk- um bakatii. Það er afar mikilvægt að hafa birtu frá gluggum ef unnið er í bíl- skúmum og einnig að geta opnað glugga. Margir hafa leyst þetta mál að nokkru leyti með því að setja rúður í stóru bflskúrshurðina og er það gott svo langt sem það nær. Sum- staðar hagar svo til að bflskúr stendur dálítið frá íbúðarhúsinu og er þá hægt að hafa glugga á hlið- inni. Það er ekki aðeins birtunnar vegna sem gluggar em nauðsynleg- ir því að stundum er þörf á að lofta vel út, bæði til þess að þurrka raka sem kemur inn með bílnum og eins ef bfllinn gengur eitthvað inn í skúmum, sem þó ber auðvitað að forðast. Hurðir Við vitum að hægt er að velja á milli ýmissra gerða bflskúrshurða. Það skiptir auðvitað mestu máli hverskönar jám og festingar við veljum. Ég ætla ekki að hætta mér út á þá.hálu braut að ráðleggja einhverja eina gerð af bflskúrs- hurðajámum fremur en aðra. Al- gengast hefur verið í 30 til 40 ár að smíða einn hurðarfleka sem síð- an er lyft upp undir Ioft með örmum og gormum sem létta átakið. Marg- ir sem vilja smíða hurðimar sjálfír hafa þó smíðað þrjár til fjórar minni hurðir sem hanga á lömum og opn- ast lóðrétt til hliðanna. Það getur verið ágætt nema þegar hvasst er, þá getur verið mjög erfítt að hemja hurðimar. Algengt er að hurðarflekinn sé hafður 2,1 m hár og 2,7 m breið- ur. Venjulega er hurðin smíðuð þannig að fyrst er smíðaður sæmi- lega sterkur rammi. Efnið getur verið 34-95 mm eða 45-95 mm. Ramminn er blaðaður saman á homunum og svo eru settir þrír póstar sem standa lóðréttir með jöfnu millibili á milli yfír og undir- stykkjanna og em tappaðir inn í þau. Utan á þennan ramma kemur síðan klæðning, oft þunnur panill. Ef við viljum hafa spjöld í hurðinni á milli pósta og ramma, má auðvit- að einnig hafa þverpósta til þess að minnka spjöldin. í svona hurðir getur einig verið hagnýtt að setja rúður í hluta hurð- arinnar. Gönguhurð Það er til mikilla bóta ef hægt er að hafa einnig hæfílega stóra gönguhurð á bílskúmum, maður getur átt þangað margvísleg erindi án þess að þurfa að opna stóm hurðina. A sumum litlum bílskúrum, eins og ég hefí lýst hér að framan, er ekki mögulegt að koma slíkri hurð fyrir, nema með því að fella hana inn í stóru hurðina. Ágætur kunningi minn hóf máls á ýmsum þáttum varðandi um- gengni í bílskúrum og nefndi þá m.a. litlu hurðina sem oft er felld inn í stóm hurðina. Hann gat þess við mig að ef slík hurð er látin op'nast inn þá getur stafað af henni slysahætta. Þetta er alveg hárrétt. Hugsum okkur t.d. að hurðin sé kviklæst eða hafí verið illa lokuð þegar stóru hurðinni er lyft upp, þá getur litla hurðin rotað þann sem er að opna skúrinn, ef hún fellur á höfuð hans. Það er sjálfsagt að láta litlu hurð- ina opnast út því þá fellur hún ekki niður þegar stóru hurðinni er lyft upp. Ljósrofar Annað atriði benti þessi kunningi minn á sem ég ætla að nefna hér, þ.e. staðsetning ljósrofa í bflskúm- um. Hugsum okkur að við setjum bíl- inn oftast inn í skúrinn þannig að við ökum honum áfram inn í skúr- inn en afturábak út. Þá fömm við út úr bílnum vinstra megin og göngum sömu megin út úr skúmum og slökkvum þá væntanlega ljósin um leið. Það er því hentugt að rofí fyrir ljósin sé vinst'ra megin við dymar. Þetta á við þar sem aðeins er um stórar dyr að ræða. Annars er að sjálfsögðu heppilegt að rofínn sé við göngudymar. Mikið hagræði er að því að hafa nokkra rafmagnstengla í bílskúrn- um og einnig vil ég benda á að flúor- ljós, sem em algeng í bílskúmm eru ekki nógu góð sem vinnuljós. Þau deyfa skugga og eru ekki mjög góð vinnuljós. Ef ætlunin er að vinna í bílskúrnum er gott að geta einnig kveikt ljós á lömpum með venjulegar perar. Vatn Það brosa e.t.v. einhveijir lagna- menn er ég nefni vatn og frá- rennsli. Það þykir svo sjálfsagt að bílskúrar séu allvel búnir hvað þetta snertir en sá búnaður er svo mikil- vægur í hveijum bílskúr að búa þarf sem allra best að honum í hveijum skúr. Veðráttan hérlendis er með þeim hætti að við þurfum að geta þvegið bíla okkar inni í upphituðum skúr að vetrinum. Kranamir mega ekki heldur vera staðsettir á þeim stað að hætt sé við að vatn geti frosuð í þeim þeg- ar rok og frost sækir á. Það hefur lengi verið deilumál milli manna hvort óheppilegt sé að geyma bíl í upphituðum bílskúr. Eg hygg að nú orðið séu flestir komnir á þá skoðun að bíla ryðgi minna séu þeir geymdir í upphituð- um skúr, þess þurfi þó að gæta að opna glugga svo að rakt loft nái að þorna inni í skúrnum. eftir Bjarno Ólafsson. I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.