Alþýðublaðið - 13.11.1920, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 13.11.1920, Qupperneq 1
Hvað var heimsstyrjöldin? Mörgrnn hætir til þess að skoða heimsstyfjöidina sem náttúrufyrir- brygði, sem ómögulegt hafi verið að koma í veg fyrir, á sama hátt og efeki er hægt að koma í veg fyrir felhbylji og jarðskálfta, sem oft eyða mannkyninu og spilia eigum þess. Þegar spurt er um orsakirnar ’lil þess, að slyrjaidir hljóti að haldast, þá er venjulega fátt um svör; eitthvað sagt um að styrj- aldir hafi aú altaf verið til og um :jbað, hvað mennirnir séu vondir, <og þessháttar. En því skyldu stríð altaf þurfa að vera tilf Eiau sinni bar hver maður vopn hér á landi, og lík- iegast hefði Njáli gatnla þótt sá maður heldur óskynsamur, sem hefði spáð þvf, að þeir tímar mundu koma á íslandi, að allir gengju óvopnaðir, og væru þá ó- hultari en menn á Njáls dögum. en það er langtum minni tjarstæða nú, að þjóðirnar leggi niður vopn, þ. e. hætti herbúnaði, en að ein- staklingarnir gerðu það á dögum iNjáls. Hver var orsök heimsstyrjaldar- innar f Var það „grimdaræði" þjóð- anna að kennaf Varð stríðið af því að almenningur í Þýzkalandi, verkamenn og bændur, hötuðu enska, franska og rússneska bænd- ur ogjverkamenn f Nei, ónei, langt 'frá því. Það er enginn efi á því, að ef það hefði verið borið undir almenna atkvæðagreiðslu f Þýzka- landi, Frakklandi, Englandi o.s.frv. áður en strfðið byrjaði, hvort fara skyldi í stríð eða láta gerð ardóm skera úr deiluniálunum, að 90 af hverju hundraði hefðu greitt atkvæði á móti stríðinu. Öðru máli var að gegna eftir að stríðið var byrjað og báðir málspartar, Ricð látlausum lygum um hryðju- verk óvinanna, voru búnir að æsa -ahnenning upp, og þó eru Ifkindi ^>1 þess, að á flestum tímum þessa 4 ára stríðstímabils hefði verið meirihluti raeð því, að hætta stríð- inu, ef aimenningur hefði átt kost á að greiða atkvæði um það. En svo sem kunnugt er, voru þeir menn, sem ympruðu á því, að hætta ætti stríðinu, grimmilega ofsóttir af valdhöfunum, sem land- ráðamenn. Það stendur því öllum mönnum fyllilega ljóst nú, að það voru ekki þjóðirnar sjálfar, ekki almenn- ingur, sem réði því að farið var í stríð, og heldur eklci því, hvað lengi var haldið áfram. Þrátt fyrir þingræðið, réðu þjóðirnar því ekki, heldur eingöngu hin ríhjandi stétt, auðmannastéttin. Þingræðið var ekki — og er ekki — annað en aska, sem þeytt er í augu almenn- ings til að villa honum sýn — telja honum trú um að það sé hann, sem með almenna kosningarrétt- inurn stjórni landinu. Almenningur ætti að stjórna þar sem er almennur kosningar réttur, en hann getur það ekki sökum þess, að auðvaldið hefir aitaf á sínu bandi meginhluta blaðanna og meginhluta þingmann anna. Aðferðin, sem það hefir til þess, er alþekt og óþarfi að fara nánar út í hér. (Frh.) Hernaðarútgjöld Dana. Á fjárlagafrumvarpi því er fjár- málaráðherrann Neergaard hefir lagt fyrir þingið, eru útgjöld danska ríkisins áætluð á næsta ári sam- tals 325 milj. kr. Af þessari upp- hæð fer ekki minna en 80 milj. kr. til þess að halda uppi danska hernum og flotanum, Það er lag legur skiidingur, sem þar fer til lftils I Saint-Simon. Fullu nafni hét hann: Claude Henry de Roiivroy greifi aj Saint- Simon, maðurinn sem kallaður hefir verið faðir socialismans í Frakklandi. Eins og nafnið sýnir var hann af aðalsættum, og var afabróðir hans Louis de Rouvroy hertogij) sem var í miklum met- um við hirð Loðvíks XIV., og eru „Minningar" haas eitt helzta heim- ildarrit fyrir sögu þeirra tíma. Saint Simon er fæddur í París 17. október 1760, og dó á sama stað 19 maí 1825. Hann rakti ætt sfna- til Karls mikla (Karla Magnúsar) og hafði það eigi alllítil áhrif á æfi hans sfðar meir, því hann tók Karl sér til fyrirmyndar, og mót- aðist mjög af þvf. Saint-Simon var alla æfi mjög kvikull. í æsku Iærði hann til hernaðar, og fór 19 ára gamalt til Amerfku til þess að taka þátt í stríði nýlendanna gegn Bretum. D’Almbert, einn frægasti rithöf- undur Frakka, var um eitt skeið kennari haus, og höfðu alfræðf- bókarhöfundarnir (Encyklopædist- arnir) vafalaust mikii áhrif á hann. Eftir að stríðinu við Breta var íokið, fór hann til Mexico og bar þar fram þá hugmynd að grafa sundur Panamaeiðið, og sameina. þannig Kyrrahafið og Atlantshaf. 1783 kom hann aftur til Frakk- lands og gekk þá úr hernum ti! þess að gefa sig allan við heim- speki og félagsfræði. Þó vill hann fyrst afla sér þekkingar með ferða- lögum. Á Spáni reynir hann að koma því til vegar, að skipgeng 1) S. Þ. fyrv. skólastj. á Hvít- árbakka hefir f merkilega fárán- legri gyðingahatursgrein í Mgbl., sem reyndar er ekki verri en ann- að úr þeirri átt, sagt að Saint Sí- mon hafi verið Gyðingur. Hvað- an hann hefir þá vizku læt eg ó- sagt, en í þeim heimildarritum sem eg hefi séð, er hvergi drepið á slíkt. En kannske er sögufróð- leikur S. Þ. eftir þessu. /. J.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.