Morgunblaðið - 17.11.1992, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1992
ítmóttamenn heims '92
MBL./KRT HeimilcLForbes
MICHAEL JORDAN 2.118 milljónir kr.
1.888 millj.
1.652
NIGEL
MANSELL,
kappakstur
Til samanburðar má
nefna að bygging
Perlunnar kostaði
1.600 milljónirkr.
Þaraf
auglýsinga-
tekjur frá
NIKE
230 millj.
Laun frá
CHICAGO
BULLS
■ EYJÓLFUR Sverrisson og fé-
lagar hans hjá þýska knattspyrnu-
liðinu Stuttgart fara í æfíngabúðir
til frönsku eyjarinnar Martinique
í Karíbahafinu fyrir jól. Þeir verða
þar í æfingabúðum 13. til 23. des-
ember.
■ DANÍEL Jakobsson, skíða-
göngumaðurinn ungi frá ísafirði
sem er í skíðamenntaskóla í Jerpen
í Svíþjóð, hefur skipt um félag.
Hann keppti áður fyrir Bollnás en
í vetur keppir hann fyrir Ásarna
(Ásana), sem er eitt virtasta skíða-
félag Svia.
■ DANÍEL verður í góðum félag-
skap hjá Ásunum því fyrir hjá félag-
inu eru þrír heimsmeistarar í göngu;
Torgni Mogren, Jan Ottoson og
Thomas Wassberg. Daníel var
annar tveggja ungra skíðamanna
sem var valinn í liðið og þykir það
mikill heiður.
■ PERNILLA Wiberg, ólympíu-
og heimsmeistari í stórsvigi kvenna
frá Svíþjóð sem heimsótti ísland
sl/vor, ætlar sér stóra hluti í heims-
bikamum í vetur. Hún hefur ákveð-
ið að keppa í bruni og tvíkeppni til
að eiga meiri möguleika í heildar-
stigakeppninni.
■ HINGAÐ til hafa sérgreinar
Pernillu verið svig og stórsvig. „Ég
stefni á að ná einu af þremur efstu
sætunum í heildarstigakeppninni í
vetur," segir Wiberg
■ PILLAN eins og Pernilla er
gjaman kölluð ætlar að nota 5 sm
styttri svigskíði en hún notað í
fyrra. Flestir eru á að meiri hraði
náist eftir því sem skíðin eru lengri.
En Wiberg er á öðru máli: „Ég næ
meiri hraða með því að nota styttri
skíði,“ segir hún.
■ TOMASZ Jankowski, sem er
pólskur landsliðsmaður í körfu-
knattleik, varð fyrir því óláni að
missa framan af litla fingri í lands-
leik gegn Portúgal í síðustu viku.
■ JANKOWSKI festi litla putta
vinstri handar í körfuhringnum með
þessum afleiðingum. Leikmaðurinn
er tvítugur og leikur með Lech
Poznan, var strax fluttur á sjúkra-
hús þar sem gert var að sárum hans.
■ STEPHANE Chapuisat, mið-
hetji hjá Dortmund í Þýskalandi
og landsliðsmaður Sviss í knatt-
spymu var um helgina dæmdur í
sex vikna keppnisbann í Þýskalandi
fyrir að taka um kynfæri Norð-
mannsins Rune Bratseth hjá
Bremen í leik.
■ THOMAS Berthold, fyrrum
bakvörður þýska landsliðsins, er
nú launahæsti maðurinn sem situr
á áhorfendabekkjum á leilqum Bay-
ern.
■ BERTHOLD, sem Bayern
keypti frá Róma, er svo lélegur um
þessar mundir að það er ekki not
fyrir hann hjá félaginu. Hann er
með andvirði 114 þús. ÍSK í laun
á dag fyrir að gera ekki neitt og
er kominn á sölulista.
■ ULI Höness, framkvæmda-
stjóri Bayern, segir að það hafi
verið mikil mistök að kaupa Bert-
hold. Enska liðið Manchester City
hefur sýnt áhuga á að fá hann til
sín.
INNJLAUG
Islendingar verða æ kröfuharð-
ari varðandi árangur í alþjóð-
legri keppni og ef að líkum lætur
á afreksmannastefnan,_ sem var
samþykkt á ársþingi ÍSÍ í síðasta
mánuði, eftir að veita þeim, sem
koma til með að
verða styrktir svo um
munar, enn meira
aðhald. Það er eðli-
legt, en hins vegar _
er ekki hægt að setja '
samansemmerki á
milli styrkupphæðar
og árangurs, þegar um íslenska
íþróttamenn er að ræða, fyrr en
þeir búa við sömu aðstæður og
erlendir keppinautar þeirra.
Veðurfarið hér gerir það að
verkum að íþróttafólk í útiíþrótt-
um á gjaman undir högg að
sækja. Ljóst er að knattspyrnu-
menn eiga langt í land i alþjóð-
legum stormótum bestu félags-
liða og landsliða og ekki er von
til að úr rætist fyrr en yfirbyggð-
ir knattspyrnuveliir verða að
veruieika, sem er forsenda fyrir
lengra keppnistímabili og um leið
árangri á alþjóðavettvangi. Það
er verðugt langtímaverkefni
knattspyrnuforystunnar í sam-
ráði og samvinnu við sveitarfé-
lögin, en varla raunhæft enn um
sinn hvað svo sem síðar verður.
Bestu frjálsíþróttamenn lands-
ins hafa verið samkeppnisfærir
vegna þess að þeir hafa stundað
íþrótt sína erlendis, en að undan-
fömu hefur verið komið til móts
við óskir þeirra og þarfir með
góðri aðstöðu í Mosfellsbæ og
enn betri í Laugardal. „Þetta er
besti völluf í heimi," sagði Einar
Vilhjálmsson við Morgunblaðið
eftir að hafa sett íslandsmet í
spjótkasti á frábærum, nýjum
velli á aðalleikvanginum í
Laugardal í lok ágúst. „Þetta
met er gjöf mín til Reykjavíkur-
borgar fyrir þennan glæsilega
völl.“ Viku síðar bætti hann um
betur, sem staðfestir enn frekar
að frjálsíþróttamenn þurfa ekki
að kvarta og ef til vill hillir und-
ir hlaupara í fremstu röð — að-
stæðumar em fyrir hendi.
En aðstæður em ekki allt. Um
það ber árangur íslenska afreks-
fólksins í sundi vitni á síðustu
ámm. Sundfólkið hefur sætt sig
við æfingar og keppni í litium
útilaugum í hvemig veðri sem
er, en þakkað fyrir að fá tæki-
færi erlendis við bestu aðstæður
með því að setja met á met ofan.
Þögul hópur og umburðarlyndur,
sem engu að síður státar af ein-
staklingum karla og kvenna, sem
hafa átt velgengni að fagna og
staðið í fremstu röð íslenskra
íþróttamanna.
Afreksmannastefnan hlýtur
að leiða hugann að þeim grein-
um, þar sem helst er von til
árangurs í alþjóðlegri keppni.
Sundfólkið hefur sýnt hvers það
er megnugt við bág skilyrði og
því er ástæða til að ælla að það
geti gert enn betur við bestu
hugsanlegu aðstæður. Ekki er
því til of mikils mælts að næsta
skref í uppbyggingu íþrótta-
mannvirkja verði 50 m x 26 m
innisundlaug á Reykjavíkur-
svæðinu. Slíkt mannvirki myndi
ekki aðeins nýtast keppnisfólki,
heldur koma til móts við aukna
eftirspurn eftir aðstöðu til ung-
barnasunds, efla sundleikfimi
fyrir alla aldurshópa og ekki síst
aldraða og gera drauma um
sundfimi og dýfingar að veru-
leika. Og þvi má ekki gleyma að
gert er ráð fyrir að Smáþjóðaleik-
ar Evrópu verði á íslandi 1997
og þá gengur varla að bjóða upp
á sundkeppni í útilaug eða 25 m
innilaug.
Steinþór
Guðbjartsson
50 m innisundlaug ad-
kallandi fyrir almenn-
ing sem keppnisfölk
Eru Keflavíkurstrákarnir með JÓN KR. GÍSLASOIM í fararbroddi algerlega óstöðvandi?
Veikleikam-
ir ófundnir
JÓN Kr. Gíslason er þjálfari úrvalsdeildarliðs ÍBK í körfuknatt-
leik, og leikur auk þess með liðinu. Jón stýrði því til sigurs á
íslandsmótinu sl. vor og Keflavíkurvélin hefur ekki hikstað enn
það sem af er keppnistímabilinu — hefur sigrað í fyrstu tíu leikj-
unum. Jón, sem hélt upp á þrítugsafmæli sitt í síðasta mánuði,
er kvæntur Auði Sigurðardóttir. Hann er lærður íþróttakennari
en starfar nú sem almennur kennari.
Jón Kr. var fyrst spurður að því,
er Morgunblaðið sló á þráðinn
til hans í gær, hvort ÍBK-liðið
væri algjörlega
óstöðvandi:
Skapta ”Já; við erum
Hallgrímsson Þa^ e'ns °% er
minnsta kosti.“
Hvernig stendur á því?
„Við tókum þátt í Evrópukeppn-
inni í haust áður en íslandsmótið
hófst og það kom okkur til góða.
Breytingar hafa orðið hjá hinum
Iiðunum þannig að þau eru kannski
enn að prófa sig áfram. Við erum
hinsvegar með sama mannskap og
velgengni okkar í vetur er því rök-
rétt framhald af því sem við vorum
að gera í fyrra.“
En þú vilt kannski meina að
þegar hin liðin verða orðin betur
samæfð muni þau ná ykkur?
„Það má búast við því að við
töpum leik. Mér hefur tekist að
undirbúa Iiðið vel fyrir hvem ieik
í vetur, fundið veikleika andstæð-
inganna en þeim ekki tekist að
fínna veikleika okkar."
Eru þeir einhverjir?
„Já, þeir eru til staðar en ég
veit ekki hvort ég á að vera að
opinbera þá núna. Ég geri það
kannski í lok tímabilsins!"
Hvort ertu betri leikmaður eða
þjálfari að eigin mati?
„Ég mundi telja mig betri leik-
mann því ég á enn svo margt ólært
í þjálfun. Það hefur verið áberandi
í vetur hve ég skora mikið minna
en áður. Ég held að aðalskýringin
sé sú að okkur hefur gengið mjög
vel að ná hraðaupphlaupum, ég er
yfirleitt upphafsmaður þeirra
þannig að ég fæ ekki orðið að
skjóta mjög mikið í þessu liði.“
Manni finnst þú einmitt gera
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Jón Kr. Gíslason þjálfari og leikmaður ÍBK í kennarahlutverkinu — að
fara yfir ritgerðir á heimili sínu í gær.
mun minna af því að skjóta en
áður heldur takir frekar af skarið
þegar með þarf...
„Það er mikið til í því. Áður fyrr
kitlaði það hégómagirndina að vera
mikið i sviðsljósinu; skora mikið
og vera þannig áberandi í blöðun-
um og allt það. Þetta held ég flest-
ir metnaðarfullir menn gangi í
gegnum. En ég þarf ekki lengur á
þessu að halda. Leikur minn hefur
því kannski breyst en ég tel mig
alls ekki síðri leikmann fyrir það.“
Er einhver sérstakur galdur á
bak við velgengni liðsins?
„Ég tel mig engan galdramann!
En ég legg áhei-slu á að menn
komi vel stemmdir fyrir hvern leik.
Ég er með góðan hóp; þarf ekki
að kenna mönnum körfubolta held-
ur er aðalatriðið að ná upp góðri
stemmningu i hvert skipti og und-
irbúa liðið rétt og mitt keppikefli
er að það takist. Ég er mjög metn-
aðargjarn, legg mjög mikla vinnu
í þjálfunina og tel hana hafa skilað
sér. Ég var einmitt að telja það
saman — svo maður monti sig nú
svolítið — að ég er búinn að stjórna
liðinu í 84 leikjum í íslandsmótinu
og þar af höfum við unnið 66. Ég
er mjög stoltur yfir þeim árangri."
Þú segist betri leikmaður en
þjálfari í dag. En markmiðið er
væntanlega að snúa þessu við ?
„Já, já, já, já. En hvenær það
verður veit ég ekki. Ég hef svo
ofboðslega gaman af þessu og
gengur vel, heilsan er í lagi, þann-
ig að á vonandi eftir að spila í
mörg ár enn.“