Morgunblaðið - 17.11.1992, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1992
B 3
KNATTSPYRNA
Breytingar hjá Stuttgart
- óánægja komin upp á yfirborðið hjá nokkrum leikmönnum meistaraliðs-
ins. EyjólfurSverrisson og FritzWaltersettirá varamannabekkinn
Eyjólfur Sverrlsson og Frlt* Walter fagna marki ásamt Júgóslavanum Dubajic. Eyjólfur og Walter voru teknir út
úr byijunarliði Stuttgart um helgina.
Ég blð þolinmóður
- segir Eyjólfur Sverrisson. „Ég hef áður verið í þessari stöðu"
Daum tilkynnti að hann ætlaði
að gera tilraunir með liðið
núna og gefa öðrum leikmönnum
tækifæri. Ég og Fritz Walter vor-
um settir út úr liðinu fyrir leikinn
gegn Wattenscheid," sagði Eyjólf-
ur Sverrisson, landsliðsmaður í
knattspymu, sem hefur leikið
flesta leiki Stuttgart í vetur.
„Stuttgartliðið lék mjög illa og
var heppið að ná jafntefli. Ég
veit ekki hvort breytingar verði
gerðar á ný fyrir næsta leik okkar
- gegn Dortmund hér í Stuttg-
art. Daum er þekktur fyrir að
fara eigin leiðir og gera breyting-
ar þegar hann telur æskilegt."
Þú átt því góðan möguleika á
að leika með næsta leik?
„Já, ég vona það, en annars
bíð ég í rólegheitunum eftir að fá
tækifæri á ný. Það borgar sig að
vera þolinmóður. Það eru yfirleitt
við yngri leikmennirnir sem eru
hvfldir þegar breytingar eru gerð-
ar, en annars er enginn ömggur
með fast sæti - breytingar em
gerðar frá leik til leiks.“
Margir leikmenn liðsins eru
óhressir og hafa verið með yfiriýs-
ingar í fjölmiðlum. Hefur þú verið
með yfirlýsingar?
„Nei, það borgar sig ekki. Mað-
ur verður að sætta sig við ákvarð-
anir þjálfarans og kyngja því þeg-
ar maður er settur út. Bíða þar
til næsta tækifæri gefst og leika
þá betur en áður. Ég hef áður
verið í þessari stöðu og beið þá
þolinmóður eftir nýju tækifæri."
Nú virðist sem Daum geri sér
ekki vonir um að Stuttgart vetji
meistaratitilinn. Er það einnig svo
með ykkur leikmennina?
„Við höldum áð sjálfsögðu í
vonina, en við vitum að það er
erfitt að verða meistari tvö ár í
röð. Eins og staðan í dag er það
raunhæft að við náum að tryggja
okkur UEFA-sæti,“ sagði Eyjólf-
ur.
CHRISTOPH Daum, þjálfari
Stuttgart, gerði breytinga á
leikskipulagi Stuttgart-liðsins
gegn Wattenscheid á útivelli.
Hann færði Guido Buchwald
fram á miðjuna og þar með var
Eyjólfur Sverrisson settur á
varamannabekkinn og einnig
var Fritz Walter, markaskorar-
inn mikli, settur á bekkinn.
Stuttgart lék varnarleik og þeg-
ar uppi var staðið voru meistar-
arnir heppnir að ná jafntefli því
að knötturtinn hafnaði á stöng
þeirra rétt fyrir leikslok.
Blöðin í Stuttgart sendu Daum
heldur betur tóninn eftir leik-
inn og sögðu að það væri ömulegt
þegar meistarar
FráJóni fara til Wattensc-
Halldóri heid til að leika
Garðarssyni vamarleik og hanga
/ Þýskalandi 4 markalausu jafn-
tefli. Leikurinn var ömulega lélegur
að sögn blaðanna og fékk Stuttgart
aðeins eitt marktækifæri. Það var
Waltér sem fékk það undir lokin,
en hann kom inná sem varamaður
á 70 mín.
Leikmenn Stuttgart fengu mjög
lélega dóma 0g var miðvallarspil
liðsins slakt og sóknarleikurinn bit-
laus. Adrian Knup og Maurizio
Gaudino voru í fremstu víglínu og
þóttu þeir ekki eiga góðan leik, en
aðeins markvörðurinn Eike Immel
og Guido Buchwald fengu góða
dóma fyrir leikinn, en það eru ein-
mitt leikmennimir sem hafa staðið
grimmt með Daum að undanförnu.
„Við emm með mjög góðan leik-
mannahóp. Sextán jafna leikmenn,"
sagði Buchwald.
Það er greinilegt að óánægja er
komin upp hjá leikmönnum liðsins
og þá þeim leikmönnum sem fá
ekki að spreyta sig eða em alltaf
teknir af leikvelli, eins og Gaudino.
Walter var mjög óhress með að
vara tekinn út úr liðinu og sagðist
ekki skilja hvernig lið gæti leikið
án eins besta sóknarleikmanns
Þýskalands, en þess má geta að
Walter var markakóngur sl. keppn-
istímabil. Gaudino var óhress með
að vera tekinn af leikvelli fyrir
Walter og benti á að hann hafi leik-
ið betur en Knup. Þá er Alexander
Strehmle óánægður að fá ekki tæki-
færi til að leika.
Það er greinilegt að Daum reikn-
ar ekki með að Stuttgart veiji
meistaratitilinn því að hann segir
að takmarkið sé að ná UEFA-sæti.
Frakkar sluppu
fyrir horn
Happel
látinn
Austurríski knattspyrnuþjálf-
arinn Ernst Happel, einn
sigursælasti þjálfari Evrópu, lést
á sjúkrahúsi í Innsbriik á laugar-
daginn, 66 ára að aldri. Bana-
mein hans var krabbamein.
Happel vann samtals 17 meist-
aratitla sem þjálfari. Hann varð
tvívegis Evrópmeistari; með Fey-
enoord 1970 og Hamborg 1983.
Hann komst með FC Briigge í
úrslit í UEFA-bikarkeppninni
1976 og aftur með Hamborg
1982. Hann þjálfaði meistaralið
í fjómm löndum; Feyenoord í
Hollandi, Brugge og Standard
Liege í Belgíu, Hamborg í Þýska-
landi og Tyrol í Austurríki.
Hann var landsliðsþjálfari Hol-
lendinga 1978 er þeir léku til
úrslita á HM. Hann tók við þjálf-
un austurríska landsliðsins á síð-
asta ári þó svo að hann væri þá
orðinn alvarlega veikur. Hann lék
sjálfur 51 landsleik fyrir Austur-
ríki.
Frakkar máttu teljast heppnir að
næla sér í bæði stigin gegn
Finnum í undankeppni HM í París
á laugardaginn. Frakkar byrjuðu
vel og komust í 2:0 með mörkum
Jean-Pierre Papin og Eric Cantona
eftir aðeins hálftíma leik og voru
betri í fyrri hálfleik. En eftir að
Petri Jarvinen náði að minnka mun-
inn í byijun seinni hálfleiks snérist
dæmið við og Finnar réðu gangi
leiksins og gerðu oft harða hríð að
marki Frakka.
Frakkar em með fjögur stig eins
0g Búlgarir eftir þrjá leiki, en Svíar
hafa forystu með sex stig eftir jafn-
marga leiki. Finnar hafa enn ekki
hlotið stig og var mark Jarvinens
þeirra fyrsta í riðlakeppninni.
Papin gerði mark sitt á 17. mín-
útu eftir hornspyrnu frá Xavier
Gravelaine. Þetta var 24. mark
hans fyrir franska landsliðið. Can-
tona bætti öðru markinu við 14
mínútum síðar af stuttu færi eftir
undirbúning Bixente Lizarazu, sem
lék fyrsta landsleik sinn.
Lið Frakka: Bruno Martini; Jean-Philippe
Durand (Christian Karembeu 71. mín.), Basile
Boli, Alain Roche, Bemard Casoni, Bixente
Lizarazu; Didier Deschamps, Franck Sauzee;
Eric Cantona, Jean-Pierre Papin, Xavier Gra-
velaine (Pascal Vahiraa 78.).
Lið Finna: Kari Laukkanen; Erik Holmgren,
Markku Kanerva, Kari Ukkonen, Erkka Petaja
(Jari Kinnunen 85.); Ari Hjelm, Jari Litman-
en, Markko Myyry, Petri Jarvinen; Kimmo
Tarkkio, Mika-Matti Paatelainen (Pasi Tauria-
inen 25.).
■ PSV Eindhoven tapaði fyrsta
leik sínum á þessu keppnistímabili
í hollensku deildarkeppninni á
sunnudaginn, gegn FC Utrecht á
útivelli 2:0. PSV heldur efsta sæt-
inu sem fyrr, hefur fjögurra stiga
forskot á næsta lið. Pólveijinn
Wlodzimierz Smolarek og Pieter
Bijl gerðu mörk Utrecht.
■ ROMARIO, framherjinn knái
frá Brasilíu, Gica Popescu, Gerald
Vanenburg, Berry van Aerle og
Erwin Koeman léku ekki með PSV
Eindhoven gegn Utrecht vegna
meiðsla. Daninn Jan Heintze í liði
PSV fékk þriðja gula spjaldið á
tímabilinu og tekur sjálfkrafa út
leikbann í næstu umferð.
I AJAX frá Amsterdam vann
Feyenoord 3:0 í Rotterdam. Edg-
ar Davis, 17 ára kantmaður, gerði
fyrsta mark Ajax - náði frákastinu
eftir að Dennis Bergkamp hafði
átt skot í stöng. Svíinn Stefan
Pettersson kom liðiu í 2:0 á 71.
mín. og sex mínútum síðar innsigl-
aði Marc Overmars 3:0-sigur Aj-
ax, sem er í ijórða sæti deildarinn-
ar, einu stigi á eftir FC Twente
og Feyenoord.
É BOAVISTA, mótherji Vals-
manna í Evrópukeppninni, vann
efsta lið portúgölsku deildarinn-
ar, Porto, 1:0 á heimavelli. Fram-
heijinn Marlon Bandao gerði sig-
urmarkið Boavista, sem ekki hefur
tapað á heimavelli í deildinni í 18
mánuði. Brasilíumaðurinn Paul-
ino Cesar fékk upplagt tækifæri
til að jafna á síðutu mínútu leiks-
ins, en skaut yfir.
■ DAVID Platt, leikmaður Ju-
ventus, mun líklega leika með Eng-
lendingum gegn Tyrkjum í undan-
keppni HM á Wembley á morgun,
en fyrir helgi var talið óiíklegt að
hann gæti leikið með vegna meiðsla.
David Batty, miðvallarleikmaður
Leeds, getur ekki leikið og er talið
að Carlton Pahner taki stöðu hans
á miðjunni.
É STEPHANE Chapuisat, fram-
heijinn snjalli í svissneska landslið-
inu var sendur heim úr æfingabúð-
um lándsliðsins í síðustu viku vegna
hnémeiðsla. En á sunnudaginn var
tilkynnt að hann yrði með gegn
Möltu í undankeppni HM á morg-
un. Sviss verður með sama lið og
gerði jafntefli við ítaliu, 2:2, að
undanskildum miðvallarleikmann-
inum, Christophe Ohrel, sem er
meiddur. Sviss er í efsta sæti riðils-
ins.
É ROBBIE Dennison, leikmaður
Wolves, var valinn { norður-írska
landsliðshópinn um helgina sem
mætir Dönum í Belfast. Hann var
kallaður inní hópinn fyrir Bernard
McNally, W.B.A., sem á við meiðsli
að stríða. Dennison lék síðasta með
landsliðinu fyrir ári síðan.
■ TYRKNESKA félagið Galat-
asaray var sektað vegna óláta
áhorfenda á leik liðsins í Evrópu-
keppninni. Félagið var sektað um
tæplega tvær milljónir ÍSK vegna
þess að áhorfendur skuti flugeldum
inn á völlinn í leik gegn Frankfurt
og einnig var ýmsum hlutum kastað
inn á völlinn.
H RÓMA frá Ítalíu fékk 1,9 millj.
ÍSK í sekt vegna óláta áhorfenda
á leik gegn Grasshopper.
M NOKKRIR leikmenn voru
dæmdir í þriggja leikja bann, en
þeir eru: David Hirst (Sheffield
Wednesday, Englandi), Ismail
Kartal og Gerson Candido (báðir
leikmenn Fenerbance, Tyrklandi)
og Igor Simoutenkov (Dynamo
Moskvu, Rússlandi). Mike Marsh
(Liverpool, Englandi) fékk
tveggja leikja bann.
■ LOTHAR Matthus mun ekki
leika með þýska landsliðinu vin-
áttuleik gegn Austurríki á morg-
un. Hann á við meiðsli að stríða.
Olaf Thon mun heldur ekki leika
með.