Morgunblaðið - 17.11.1992, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 17.11.1992, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1992 B 5 ■HHHHhkHhI HhmUHBBI ' ■ ■: Morgunblaðið/Bjami Eiríksson Jonathan Bow treður Bandaríkjamaðurinn Jonathan Bow hefur leikið mjög vel með Keflvíkingum og er geysilega öflug- ur leikmaður bæði í í vörn og sókn. Hér á mynd- inni sést hann troða knettinum í körfu Njarðvík- inga án þess að Gunnar Örlygsson komi vörn við. Teitur Örlygsson var ráðinn þjálfari og var leikur- inn gegn Keflvíkingum fyrsta eldraun hans sem þjálfari. Hér er hann (t.v.) í baráttu við Jón Kr. Gíslason, þjálfara Keflvíkinga og félaga sinn í ís- lenska landsliðinu. Jón Kr. gat brosað eftir leikinn, en Teitur sagði: „Það er Ijóst að við verðum að endurskoða allan leik okkar.“ Morgunblaðið/Björn Blöndal Keflvíkingar óstöðvandi Sigruðu UMFN með 22 stiga mun í Ljónagryfj- unni og hafa unnið tíu lyrstu leiki sína „Þetta var ákaflega sætur sigur og ég er að vonum ánægður með gengi liðsins. Við lékum góða vörn og nýttum þau færi sem gáfust, því út á það gengur leikurinn," sagði Jón Kr. Gíslason þjálfari og leikmaður íslandsmeistara Keflvíkinga eftir að þeir höfðu unniðsinn 10. sigur íröð íÚrvalsdeiidinni gegn Njarðvík- ingum í Ljónagryfjunni í Njarðvík á sunnudagskvöldið. Keflvíking- ar sigruðu örugglega í leiknum með 22 stiga mun, 95:73 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 52:38. Bjöm Blöndal skrifar frá Njarövík Njarðvíkingar ákváðu um helg- ina að láta bandaríska þjálf- arann Paul Colton hætta með liðið eftir slakt gengi þar sem þeir höfðu tapað 5 leikjum af 9 og var tapleikurinn gegn Skallagrími á föstu- daginn það sem fyllti mælinn. Teitur Örlygsson var ráðinn þjálfari og var leikurinn gegn Keflvíkingu fyrsta eldraun hans sem þjálfara. Það var aðeins í upphafi leiksins sem Njarðvíkingar veittu Keflvík- ingum einhveija keppni en síðan hljóp allt í baklás. Liðið skoraði aðeins 2 stig gegn 16 stigum Kefl- víkinga á 6 mínútna kafla þegar staðan var 20:18 og eftir það var ekki aftur snúið. Ekki bætti það úr hjá Njarðvíkingum að þeir voru með eindæmum óheppnir og fátt gekk upp hjá þeim að þessu sinni. Keflvík- ingar áttu enn einn stórleikinn og þeir sýndu oft sannkallaða meistara- takta. Bow var góður bæði í vörn og sókn og sama má segja um Jóni Kr. Einnig léku þeir Nökkvi, Albert og Guðjón vel. Hjá Njarðvíkingum voru þeir Rondey og Jóhannes best- ir. „Ég.veit ekki hvað ekki er að hjá okkur og það er ljóst að við verðum að endurskoða allan leik okkar,“ sagði Teitur Örlygsson leikmaður og nýráðinn þjálfari Njarðvíkinga eftir leikinn. „Þetta er búið að vera afar slakt að undanfömu en ég vil vera bjartsýnn annars hefði ég ekki tekið þetta að mér og ég tel að lið- ið eigi enn möguleika á að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni þrátt fyr- ir þessa hörmulega lélegu byijun í mótinu.“ Sjöundi tapleikur KR-inga KR-ingar töpuðu sjöunda leik sínum í Úrvalsdeildinni gegn Valsmönnum á heimavelli sínum á Seltjarnarnesi á sunnudagskvöld. Lokatölur urðu 84:87 fyrir Vai sem er nú með þægilega stöðu í efsta sæti B-riðils. Leikurinn var jafn og mjög spenn- andi og einkenndist af mikilli bar- áttu og allt að slágsmálum. Vals- menn voru oftast með frumkvæðið og náðu mest 12 stiga mun undir lok leiksins. KR-ingar léku stífa pressuvöm lengst af og gafst hún vel á köflum, en leikaðferðin tók of mikla orku frá sóknarleiknum sem var mistækur. Valsmenn voru skynsamari í leik sínum, léku svæð- isvörn, nýttu tímann vel í sókninni og létu KR-inga um að gera vitleys- urnar og sigur Vals sanngjarn. „Ég er þokkalega ánægður með leikinn. Þetta var mikil barátta og kannski of mikil harka á stundum,“ sagði Svali Björgvinsson, þjálfari Vals, eftir leikinn. „Þó.þeir hafí leik- ið pressuvörn náðu þeir sjaldan að stela boltanum frá okkur. Við héld um haus og erum nú á þægilegum stað í okkar riðli - en við erum ekki á grænum sjó og því má ekk- ert slaka á í næstu leikjum.“ Ungu leikmennirnir hjá KR, Sig- urður Jónsson, Hermann Hauksson og Lárus Árnason, voru bestir. Sig- urður sýndi oft skemmtilega takta og er framtíðar bakvörður. Banda- ríkjamaðurinn Houzer er líklega Valur B. Jónatansson skrifar ekki sá leikmaður sem KR-inga vantar um þessar mundir. Hann gerði afdrifarík mistök undir lok leiksins. Fékk á sig klaufalega tæknivillu, 5. villu sína, þegar stað- an var 81:83 og 16 sekúndur eftir og rétt áður reyndi hann ótímbært iriggja stiga skot sem ratði ekki ofaní. Brynjar Harðarson og Franc Boo- ker voru bestu leikmenn Vals. Magnús Matthíasson var daufur í fyrri hálfleik, gerði þá aðeins 3 stig en bætti það upp í þeim seinni. Erfitt aö vinna Haukana þegar Rhodes er í stuði Magnaður byijunarkafli hjá Haukum, og þá sérstaklega John Rhodes, lagði grunninn að 100:71 sigri á Stefán Tindastól frá Sauð- Stefánsson árkrók á Strandgöt- skrifar unni á laugardaginn. í seinni hálfleik héldu gestimir i við Haukana en endasprettinn áttu Haukar. John Rhodes fór á kostum í byij- un með 11 af 13 stigum Hauka gegn tveimur gestanna, átti tilþrifa- miklar stoðsendingar og góðann vamarleik en hann tók alls 17 frá- köst fyrir hlé. Tilþrifin komu „Stól- unum“ algerlega í opna skjöldu og losarabragur varð bæði á sóknar- og varnarleik þeirra. Munurinn í leikhléi var þó aðeins 17 stig, 44:27, og máttu Sauðkræklingar þakka fyrir að nýtingin var ekki sem best hjá Haukum. Seinni hálfleikur var öllu jafnari og munaði miklu fyrir gestina að Valur Ingimundarsson tók við sér og gerði 23 stig, en munurinn var alltof mikill og Tryggvi Jónsson rauf hundrað stiga múrinn fjórum sekúndum fyrir leikslok. „Við lékum jafnt allann leikinn, ekki þessar sveiflur, og vomm alltaf ofan á og við áttum góðann dag þar sem leikgleðin var mikil. Marg- ir af bekknum fengu að vera með og okkur veitir ekki af, því ef við komust í úrslitakeppnina verðum við hafa mikinn mannskap. Að vísu er enn langt í hana svo að við tökum bara einn leik fyrir í einu,“ sagði John Rhodes í lauslegri þýðingu. Haukaliðið small saman í þessum leik, tók 35 fráköst og nýtingin var 39/69, og auk Rhodes vora bræð- urnir Jón Arnar og Pétur Ingvars- synir góðir. Páll Kolbeinsson lék með Tinda- stól að nýju eftir nokkurra leikja hlé, vegna tognaðs og teygðs lið- bands í ökkla, en náði sér ekki á ■ strik. „Ég er ekki ánægður með úrslitin og sérstaklega ekki fyrri hálfleik. Við verðum þarna fimmtán stigum undir og förum að flýta okk- ur of mikið svo við missum tökin á vöm og sókn. Við komum svo grimmari í seinni hálfleikinn og náum að minnka forskotið í sextán stig en þá er eins og þeir hrökkvi í gang og við dettum niður svo þeir komast langt yfir, því það er erfitt að rífa sig upp. Rhodes er okkur alltaf erfiður, gerði 40 stig á Krókn- um og átti stórleik núna, og það er erfitt að vinna Haukana þegar hann er í stuði. En við erum að komast í gang og ég er kominn á skrið,“ sagði Páll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.