Morgunblaðið - 22.12.1992, Qupperneq 1
t
KNATTSPYRNA
Martha níunda
Martha Ernsdóttir varð í
níunda sæti í víðavangs-
hlaupi sem fram fór í Belgíu á
sunnudaginn. Þetta var annað af
16 mótum sem Alþjóðafrjálsíþrótta-
sambandið gengst fyrir í vetur og
gefa stig. Stigahæstu hlauparamir
komast á heimsmeistaramótið á
Spáni í lok mars.
Það eru tuttugu efstu stúlkumar
í hveiju hlaupi sem fá stig og Mart-
ha varð í fimmta sæti í fyrsta mót-
inu sem var í Frakklandi í byijun
desember. Hún stendur því vel að
vígi eftir tvö hlaup.
Veður var ekki sem best í Belgíu
á sunnudaginn, rigning og smá
gola. Stúlkumar þurftu því að
hlaupa í gljúpum og blautum sandi
og leðju hluta leiðarinnar. Martha
var í forystuhópnum framan af
hlaupinu en eftir því sem leið á
hlaupið skáru þijár stúlkur sig úr,
þær Catherine McKiernan frá ír-
í Belgíu
landi og Esther Kiplagat og Lydia
Cheromei frá Kenýa. Sú síðast
nefnda, sem er aðeins 15 ára göm-
ul og sigraði í fyrsta hlaupinu, var
lengst með forystu en sú Irska átti
mikinn endasprett og sigraði - kom
í mark-á 15,53 mín., en Martha kom
í mark á 16,29 mín.
■ Úrslit / B6
SKÍÐI: 38. SIGUR GIRARDELLIS Á HEIMSBIKARMÓTI / B8
fAof’fintthlttliíh
B
1992
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER
BLAÐi
Guðni Bergsson á ný til liðs við Val?
adidas
HAUKAR
leika í Adidas
Valur sterklega inní
Framarar hafa séð á eftir þremur
leikmönnum úr leikmannahópi
sínum frá sl. keppnistímabili. Jón
Erling Ragnarsson, miðheiji, er far-
inn til FH, Anton Bjöm Markússon,
miðvallarspilari, gerðist leikmaður
hjá ÍBV um helgina og Pétur Ósk-
arsson, vamarleikmaður, er á för-
um til KA á Akureyri.
Fyrir utan þessa þijá leikmenn
byija þrír leikmenn Framliðsins
ekki að æfa með því fyrr en í maí.
Það em Ríkharður Daðason, sem
er við nám í Bandaríkjunum, og
Valdimar Kristófersson og Steinar
Guðgeirsson, sem leika í Belgíu.
myndinni hjá Gudna
Guðni hefur verið útí kuldanum
hjá Tottenham það sem af er
tímabilinu, en hefur nálgast liðið
að undanfömu og verið á bekknum.
Hann var varamaður, þegar Spurs
tapaði 2:1 fyrir Oldham á laugar-
dag, en var ekki skipt inná.
„Það hefur gengið vel vamarlega
hjá okkur og því varla von á breyt-
ingum meðan svo er, en með fram-
haldið í huga er betra að vera við-
loðandi liðið. Ég stefni áfram
ótrauður á meginlandið, en það er
erfitt að komast þar að, sérstaklega
fyrir vamarmenn. Annar möguleiki
er að leika áfram í Englandi, en sá
þriðji er að spila með Val.“
Guðni sagði að framhaldið réðist
mikið af því hvort hanri yrði áfram
viðloðandi lið Spurs eða inní mynd-
inni. Ef ekki, þá gæti vel farið svo
að hann fengi sig lausan og kæmi
heim í maí, en ákvörðun yrði ekki
tekin fyrr en nær drægi vori. „Það
er erfitt að segja á þessari stundu
hvað verður. Eg vona að eitthvað
komi upp, en ef ekki þá spila ég
með Val.“
SAMNINGUR Guðna Bergssonar viðTottenham rennur útívor
og ef ekkert betra býðst kemur hann heim og leikur með Val á
næsta keppnistímabili. „Valur er sterklega inní myndinni hjá mér
og eins og staðan er núna tel ég helmingslíkur á því að ég komi
heim í vor,“ sagði Guðni við Morgunblaðið.
HANDKNATTLEIKUR / KÆRUMAL
Valsstúlkur sýknaðar
Dómstóll Handknattleikssambands íslands hefur sýknað kvenna-
lið Vals vegna kæru ÍBV, sem byggðist á því að ein stúlka
Valsliðsins hafði ekki leikmannaskírteini sem ný reglugerð,
sem var samþykkt á síðasta ársþingi HSÍ, segir til um. '
Dómstóll HSÍ komst að þeirri niðurstöðu að breytingar á lögum
og reglum HSÍ höfðu ekki borist með löglegum hætti til sambands-
aðila, en í 8. grein laga HSÍ segir: „Framkvæmdastjórn HSÍ skal
senda framkvæmdastjóm ÍSÍ og sambandsaðilum HSÍ fundargerð
ársþings og gildandi lög og reglugerðir sambandsins í síðasta lagi
mánuði fyrir upphaf íslandsmóts.“
Þess má geta að félög hafa ekki fengið send ný lög HSÍ með
breytingum og flest félög hafa ekki fengið leikmannaskírteini, sem
heimila þátttöku í mótum á vegum sambandsins.
HANDBOLTI
Guðmundur Albertsson
Guðmundur
brenndist
illa á fæti
Guðmundur Albertsson, hand-
knattleiksmaður úr HK, hafði
ekki heppnina með sér um helgina.
Fyrst meiddist hann á ökkla í leik
gegn KA á Akureyri á föstudags-
kvöldið og er talið að liðbönd á hægri
ökkla séu slitin. Aðfaranótt sunnu-
dagsins brenndist hann illa á vinstri
fæti, eftir að leiðsla sem tengist
þvottarvél í íbúð hans gaf sig. Heitt
vatn flæddi um íbúðina, sem er mik-
ið skemmd. Þegar Guðmundur hopp-
aði á vinstri fæti inn á baðherbergið
til að stöðva lekann var vatnið og
flísar á baðinu það heitar að hann
brenndist illa - fékk annars stigs
brunasár á il og rist.
„Það var lán í óláni að ég meiddist
á hægri fæti. Annars hefði ég brunn-
ið á báðum fótum,“ sagði Guðmund-
ur, sem liggur á Landspítalanum.
Hann er bundinn hjólastól, þar sem
hann má ekki stíga í vinstri fótinn í
fjórar til fimm vikur og heldur ekki
í hægri fótinn.
Anton Björn til Eyja
FRJALIÞROTTI / VIÐAVANGSHLAUP