Morgunblaðið - 02.02.1993, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1993
B 5
Morgunblaðið/Bjami
fær.
cMJtina
eftir veikindi.
ÍBK verður að gera eitthvað ætli
þeir sér sigur í bikarúrslitaleiknum
um helgina. Reyndar léku strákarnir
ágætlega eftir hlé, en fyrri hálfleik-
umn var hörmung. Guðjón hitti vel
fyrir ÍBK í síðari hálfleik og einnig
Jón Kr. sem átti 11 stoðsendingar
eftir hlé. f fyrri hálfleik var Bow sá
eini sem lék vel og Albert var mjög
traustur allan leikinn.
agríms
inn. Okkur tókst hins vegar illa að
hrista þá almennilega af okkur en
sigur er jú fyrir öllu,“ sagði Birgir.
„Við vorum á hælunum á þeim
allan tímann“, sagði Páll Kolbeinsson
og leikmaður Tindastóls eftir leikinn.
„Borgnesingarnir áttu betri byrjun
og náðu að stjóma leiknum lengst
af. Það sem réð úrslitum í þessum
leik var að Ray Foster var of mistæk-
ur undir körfunni og Valur fór ekki
almennilega í gang og það munar jú
um minna“ sagði Páll.
HANDKNATTLEIKUR
Jason tryggði Fram annað
stigið gegn Stjömunni
„ÉG ER ekki sáttur því ég ætl-
aöi mér bæði stigin og með
meiri yfirvegun hefði það tek-
ist“, sagði Eyjólfur Bragason
þjálfari Fram, eftir að fyrsti
leikur hans með Fram, gegn
toppliði Stjörnunnar, endaði
með jafntefli, 22:22. Stjaman
hafði tveggja marka forskot er
rúm hálf mínúta var til leiks-
loka, en Jason Ólafsson sýndi
mikla baráttu og gerði tvö síð-
ustu mörkin í leiknum, og
tryggði Fram annað stigið.
Framarar byijuðu vel og náðu
fljótlega þriggja marka for-
skoti. Það hvarf reyndar fljótlega
■■■■■■ eftir að þeir fóru að
Stefán tínast af velli um
Eíríksson miðjan hálfleikinn.
skrífar Liðin skiptust á for-
ystunni það sem eft-
ir lifði hálfleiksins, en í leikhléi var
staðan 12:11 fyrir Fram.
Stjaman náði tökum á leiknum
strax í byijun síðari hálfleiks og
náði mest þriggja marka forskoti.
Framarar gáfust þó ekki upp og
með mikilli baráttu og góðri
frammistöðu Karls Karlssonar og
Jasonar Ólafssonar tryggðu þeir sér
annað stigið.
„Ég er sáttur við eitt stig á móti
toppliðinu. Þeir bjuggust við að
valta yfir okkur, en með baráttu
og réttu hugarfari náðum við að
sýna okkar rétta leik“, sagði Jason
Olafsson leikmaður Fram.
„Við köstuðum frá okkur sigrin-
um“, sagði Gunnar Einarsson þjálf-
ari Stjömunnar eftir leikinn. „Við
vissum að þeir yrðu erfíðir með
nýjan þjálfara, auk þess sem það
háði okkur að Patrekur og Magnús
[Sigurðsson] em meiddir."
ÍR-ingar náðu fram hefndum
og hirtu stigin af Haukum
STÁLINN stinn mættust í
íþróttahúsi Seljaskóla á
sunnudaginn þegar ÍR sigraði
Hauka 25:24. Eftir mjög jafnan
síðari hálfleik skoruðu IR-ing-
ar mjög vafasamt sigurmark
og hefndu ófaranna úrfyrri
leik liðanna er Petr Baumruk
jafna fyrir Hauka á lokasek-
úndunni.
Breiðhyltingar léku vörnina
framarlega og náðu að bijóta
niður sóknarleik Hauka sem náðu
■■■■■I sér aldrei almenni-
Stefán lega á strik fyrir hlé
Stefánsson en tókst þó að halda
skrífar jöfnu, 14:14. Þeir
náðu forystunni
strax eftir hlé og með stórbættum
varnarleik héldu þeir ÍR-ingum
niðri.' Jafnt var nánast á öllum
tölum og óhætt að segja að leikur-
inn hafi verið í jámum eftir 45
mínútna barning. Þegar hálf mín-
úta var eftir gerði Jóhann Ásgeiys-
son sigurmark ÍR en hörðustu ÍR-
ingar viðurkenndu að líklega hefði
Jóhann verið lentur inní teig þegar
hann blakaði boltanum inn. Magn-
ús Sigmundsson varði síðan frá
Halldóri Ingólfssyni á lokasekúnd-
unni
„Við ætluðum að selja okkur
dýrt o g ekki leyfa Haukum að stela
af okkur stigi aftur. Heimavöllur
er sterkur og munar um áhorfend-
ur. Þetta var harður leikur en
svona verða leikimir sem eftir eru
því stigin í pottinum eru dýrmæt,“
sagði Matthías Matthíasson, geysi-
lega lunkinn leikmaður og öruggur
í hraðaupphlaupum.
Morgunblaðið/Kristsinn
Matthfas Matthíasson gerir eitt marka sinna gegn Haukum án þess að Leifur Dagfinnsson komi vörnum við.
Magnús Sigmundsson varði vel
og Jóhann Ágústsson var geysiör-
uggur í vítunum.
Siguijón Sigurðsson var hetja
Haukanna. Halldór Ingólfsson og
Óskar Sigurðsson áttu góða kafla
en aðrir hafa oft leikið betur. Til
dæmis skoraði Petr Baumruk eitt
mark og það úr vítakasti.
SeHyssingar töpuðu fyrir HK
HK sýndi og sannaði í leiknum
gegn Selfossi á sunnudags-
kvöld að liðið hefur ekki sagt
sitt síðasta orð í baráttunni
um áframhaldandi sæti í 1.
deild. Með baráttu og mikilli
leikgleði yfirspiluðu HK-ingar
slaka Selfyssinga og sigruðu
óvænt þrátt fyrir að hafa verið
einum leikmanni færri í 18
mínútur.
egar í byijun var Ijóst að HK
ætlaði að selja sig dýrt og
ekkert nema sigur kom til greina
^il að eiga von til að
Ómar bjarga sér frá falli.
Jóhánnsson Liðið tók Sigurð
skrifar Sveinsson úr umferð
allan leikinn og
hafði góðar gætur á Einari Gunn-
ari. Við það riðlaðist sóknarleikur
Selfyssinga og því fór sem fór.
Vörnin hjá HK var föst fyrir og
varði mörg skot. Heimamenn nýttu
sér það vel og gerðu mörg mörk
eftir hraðaupphlaup. Eftir um 10
mín. leik höfðu heimamenn náð
þriggja marka forystu, 5:2, þrátt
fyrir að Gísli Felix í marki Selfoss
hafði varið 10 skot, en kollegi hans
í marki HK, Magnús Stefánsson,
varði ekkert skot á sama tíma. Það
átti svo sannarlega eftir að breyt-
ast í seinni hálfleik, en þá lokaði
- Magnús markinu og varði m.a. fjög-
ur vítaskot.
Undir lok fyrri hálfleiks skoruðu
Selfyssingar þijú mörk í röð og
gengu til búningsherbergja í leik-
hléi með eins marks forystu, 10:11.
í byijun seinni hálfleiks, í stöðunni
12:12, fékk Hans Guðmundsson,
þjálfari og skytta HK, að sjá rauða
spjaldið vegna þriggja brottvikn-
inga. Héldu þá margir að eftirleik-
urinn yrði gestunum auðveldur, en
það var öðru nær. Frosti Guðlaugs-
son og Michael Tonar fóru hreinlega
á kostum í seinni hálfleik ásamt
Magnúsi í markinu og lögðu þeir
af öðrum ólöstuðum grunninn að
góðum sigri. Um miðjan síðari hálf-
leik gerði HK fímm mörk í röð og
náði fimm marka forystu, 19:14,
en Selfyssingar neituðu að gefast
upp og minnkuðu muninn í eitt
mark, 19:18. Þeir fengu nokkur
færi til að jafna, en HK var sterk-
ara á endasprettinum og vann sann-
gjarnan sigur, 27:24.
Eins og áður sagði áttu Magnús
markvörður, Tonar og Frosti mjög
góðan leik, en sigurinn var fyrst
og fremst liðsheildarinnar og þá
sérstaklega mikillar baráttu í vörn-
inni, þar sem menn unnu vel saman.
Jón Þórir og Gisli Felix mark-
vörður voru bestir hjá Selfyssing-
um. Einhvem veginn virtust Sel-
fyssingar vanmeta lið HK en slíkt
kann aldrei góðri lukku að stýra.
Einnig virtust landsliðsmenn þeirra
eiga erfitt uppdráttar og tókst þeim
aldrei að komast inní leikinn nema
Gústaf Bjarnasyni undir lokin, en
það var alltof seint og breytti engu
um stöðu mála. Lið, sem spilar ein-
um fleiri í 18 mínútur og nýtir sér
það ekki á ekki skilíð að vinna leik
og segir það mikið um það hugarf-
ar, sem Selfyssingar virtust koma
með í leikinn.