Morgunblaðið - 02.02.1993, Page 8
Jim Courierend-
urtók leikinn frá
því í fyrra
■ ■ og
kast-
aðisér
útí
Yarra-
ána
BANDARÍKJAMAÐURINN Jim
Courier sigraði Stefan Edberg
frá Sviþjóð í úrslitaleik Opna
ástralska tennismótsins á
sunnudaginn. Úrslitaleikurinn
tók tvær stundir og 32 mínútur
og lauk með 3-1 sigri Couriers.
Þessir kappar léku einnig til
úrslita í fyrra og þá, eins og
nú, sigarði Courier.
Það var gífurlegur hiti í Melbo-
ume þegar leikurinn fór fram
og yfirborð vallarins var 65 stiga
heitt. Courier sigraði næsta auðveld-
lega í fyrstu tveimur hrinunum, 6-2
og 6-1. Svíinn gafst samt ekki upp
og vann 6-2 í þriðju hrinu. Fjórða
og síðasta hrinan var æsispennandi.
Staðan var 5:5 og Edberg átti mikla
möguleika á að jafna metin en Couri-
er fékk tvö næstu stig vegna mis-
heppnaðra uppgjafa Edbergs og eft-
irleikurinn var auðveldur.
Courier endurtók leikinn frá því
í fyrra og rauk út að Yarraánni og
kastaði sér útí hana. „Núna vissi ég
þó að hún er átjánda drullugasta á
heimsins," sagði Courier þegar ha:in
kom uppúr. „Það var rosalega hf.tt
í dag og á mörkunum að hægt væri
að anda inná vellinum. Þetta eru
erfiðustu aðstæður sem ég hef leikið
við á stórmóti," sagði hinn 22ja ára
sigurvegari sem hefur nú sigrað á
fjórum af sex síðustu „stórslemmu-
mótum“.
Þrátt fyrir hitann sagðist Courier
sammála mótshöldurum að setja
ekki þakið yfir leikvanginn. „Þetta
er útimót og þá á að leika það und-
ir berum himni," sagði hann.
Edberg var sammála Courier.
„Þetta var hræðilegur hiti en engu
að síður góður tennis leikinn. Það
hefur enginn leikið eins vel gegn
mér eins og Jim gerði í tveimur
fyrstu hrinunum. Hann var ótrúleg-
ur,“ sagði Edberg en hann varð
fyrstur til að vinna hrinu gegn Couri-
er á þessu móti. Þetta er þriðja árið
í röð sem Edberg verður í öðru sæti
í Ástralíu.
Fyrir sigurinn fékk Courier 280
þúsund dollara, liðlega 17,1 milljón
ISK, sem er sama upphæð og Seles
fékk fyrir sigurinn í kvennaflokki.
Edberg fékk hins vegar 140 þúsund
dollara eins og Graf.
Jlm Courler sigraði Stefan Edberg frá Svíþjóð í úrslitaleik Opna ástralska tennismótsins á sunnudaginn. Úrslitaleikur-
inn tók tvær stundir og 32 mínútur.
Hugsaði aðeins
um eitt stig í einu
- sagði Monica Seles eftir sigurinn gegn Steffi Graf
MONICA Seles er aðeins 19
ára en um helgina sýndi hún
enn einu sinni að staða hennar
á toppnum ítennis kvenna er
ekki tilviljun. Hún vann Steffi
Graf í úrslitum á Opna ástr-
alska meistaramótinu og var
þetta þriðji sigur hennar á
mótinu í röð.
Þetta var áttundi sigur hennar á
stórmóti, „slemmumóti", á inn-
an við þremur árum og jafnframt
31. sigurinn í einliðaleik á stóru opnu
móti.
Graf, sem er 23 ára, sigraði í
fyrstu hrinunni 6-4, en júgóslavneski
táningurinn, sem býr í Bandaríkjun-
um, sneri blaðinu við og vann síðan
6-3 og 6-2.
„Ég lék betur, þegar baráttan um
stigin skipti öllu í annarri og þriðju
hrinu,“ sagði Seles. „í þriðju hrin-
unni vissi ég að mikilvægt var að
komast yfir og vera með hvetja lotu
í hendi sér. Þegar mér tókst það
hugsaði ég um að halda fengnum
hlut og bæta við. Þetta var mikil
barátta allan tímann, en ég einbeitti
mér að því að vinna mér inn eitt stig
í einu. Annað er ekki hægt þegar
leikið er gegn Steffi."
15.000 áhorfendur fylgdust með
viðureigninni og fékk Graf góðan
stuðning. Hún sigraði örugglega í
fyrstu hrinunni, en varð að láta í
minni pokann rétt eins og á Opna
franska mótinu í fyrra.
„Ég er ekki ánægð með hvemig
ég lék,“ sagði þýska stúlkan, sem
sigraði Seles á Wimbledon í fyrra.
„Á köflum í annarri hrinu var ég
ekki nógu ákveðin, sérstaklega í
uppgjöfum hennar. Ég hreinlega gaf
eftir.“ Hún sagði að Seles hefði sleg-
ið fastar gegn sér en áður og verið
yfirvegaðri. „Það hefur alltaf verið
erfitt að leika gegn henni, en hún
gerir varla mistök lengur og á það
sérstaklega við um móttökuna. Innst
inni held ég að munurinn liggi ekki
í því að hún leggi meira uppúr þvi
að sigra mig sérstaklega."
Graf átti möguleika í þriðju hrinu,
en nýtti ekki tækifærin. „Ég verð
að breyta um leikaðferð og ég vona
að við mætumst fljótt aftur. Það er
einu sinni þannig að þegar maður
tapar fyrir einhverri skiptir miklu að
fá annað tækifæri eins fljótt og
hægt er.“
Seles á nú mikla möguleika á að
sigra í öllum fjórum „stóru“ mótun-
um á árinu, en hún er jarðbundin.
„Ég hugsa ekki mikið um það, held-
ur tek einn leik fyrir í einu án þess
að vera að spá of mikið í framtíðina.
Hvað Ástralska mótið varðar, þá var
þetta sætasti titillinn, vegna þess að
númer eitt og númer tvö léku til
úrslita og númer eitt sigraði.“
Seles fékk 280.000 dollara (liðlega
17,1 millj. kr.) fyrir sigurinn, en
Graf 140.000 dollara.
kém
FOLX
■ OLYMIAKOS verður að greiða
50.000 dolara í sekt til Alþjóða
körfuknatleikssambandsins, FIBA,
vegna þess að dómari í Evrópuleik
liðsins gegn Real Madrid s.l.
fimmtudag fékk pening í sig og
meiddist, en hálftíma töf varð á leikn-
um fyrir vikið.
■ GRÍSKA liðið, sem vann 63:62
— fyrsta tap Real Madrid á tímabil-
inu — verður einnig að leika alla
heimaleiki í keppninni út mars fyrir
luktum dyrum. FIBA er einnig að
hugsa um að setja liðið í árs bann
og færa úrslitakeppnina í apríl frá
Aþenu.
■ STRÁKARNIR átta frá Alb-
aníu, sem fyrir helgi sóttu um hæli
í Portúgal sem pólitískir flóttamenn,
skiptu um skoðun eftir að hafa verið
gerð grein fyrir afleiðingunum.
„Þetta eru bara krakkar," -sagði tals-
maður innflytjendaskrifstofunnar í
Lissabon um hina ungu knatt-
spyrnumenn.
B PAUL Coffey, sem hefur 10
sinnum verið valinn í stjörnulið NHL-
deildarinnar í íshokkí og er stiga-
hæstur vamarmanna í sögunni með
samtals 1.171 stig á ferlinum (326
mörk og 845 stoðsendingar), var
seldur frá Los Angeles Kings til
Detroit Red Wings um helgina.
B COFFEY, sem er 31s árs og
hefur fjórum sinnum orðið Stanley-
bikarmeistari, þrisvar með Edmon-
ton, þar sem hann hóf ferilinn 1980,
og með Pittsburgh í fyrra, hefur
gert átta mörk og átt 49 stoðsending-
ar fyrir Kings á tímabilinu.
B COFFEY fór ásamt Jim Hiller
og Sylvain Couturier til Detroit,
en Kings fékk Jommy Carson,
Gary Shuchuk og Marc Potvin í
skiptum.
B CARSON er 24 ára og byijaði
með Kings 1986, en var seldur til
Edmonton, þegar Kings keypti
Wayne Gretzky frá félaginu. Hann
er með 25 mörk og 26 stoðsendingar
það sem af er tímabilinu.
B PHIL Whitlock sigraði á Opna
kanadíska meistaramótinu í skvassi,
sem fór fram í Calgary um helgina.
Hann er fyrsti Englendingurinn,
sem sigrar á opnu stórmóti í átta
ár. Englendingar röðuðu sér í fjög-
ur efstu sætin.
B CHRISTIAN Plaziat, Evrópu-
meistari í tugþraut, var á laugardag
settur í þriggja mánaða keppnisbann
fyrir að kenna franska landsliðs-
þjálfaranum að miklu leyti um slæmt
gengi Frakka í alþjóðlegri keppni,
Frakkinn verður því ekki með á HM
í Toronto í Kanada í mars.
B EGYPTALAND verður fulltrúi
Afríku í heimsmeistarakeppninni í
handknattleik í Svíþjóð. Egyptar
leika í A-riðli með Spánverjum,
Tékkum og Austurríkismönnum.
KARFA
Lithai til Þors
Þór frá Akureyri hefur gengið frá
samningum við Azuolas Sedu-
ikis frá Litliáen um að hann leiki
með liðinu það sem eftir er keppnis-
tímabilsins. Seduikis kom hingað til
lands um áramótin til að heimsækja
unnustu sína, sem er badmintonþjálf-
ari á Akranesi, og ákvað sem sagt
að leika með Þór.
„Hann er 1,87 m bakvörður og lék
með liði í efstu deild í Litháen. Liðið
var í efsta sæti síns riðils og þetta
er sterkur leikmaður," sagði Þórir
Óttarsson, sem sæti á I stjórn körfu-
knattieiksdeildar Þórs. „Við ætlum
aðeins að lífga uppá þetta hjá okkur
í restina, erum ekkert frekar á leið-
inni upp. Við erum að byggju upp
ungt lið og ætlum okkur stærri hluti
á næstu árum,“ sagði Þórir.
GETRAUNIR: 222 211 112 1211
LOTTO: 9 10 22 30 32/38