Morgunblaðið - 26.02.1993, Page 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1993
Jeppar af flestum
gerðum í Jeppaklúbbi
starfsmanna Eimskips
FIMMTfU og fírnm manns
á 18 jeppum héldu í Þórs-
mörk um síðustu helgi en
þar var á ferð „Jeppaklúbb-
ur starfsmanna Eimskipa-
félagsins" sem hefúr að
vísu ekki verið formlega
stofnaður sem slíkur en
engu að síður staðið fyrir
nokkrum ferðum jeppaeig-
enda sem starfa hjá Eim-
skip. -Þeim fjölgar smám
saman starfsmönnum sem
eiga jeppa og skella sér í
þessar ferðir og eru þeir
alls nærri 80 um þessar
mundir. Af þeim hafa 11
starfsmenn farið allar ferð-
irnar síðustu þijú árin, seg-
ir Hólmfríður Pálsdóttir en
hún er óformlegur formað-
iu- hópsins ásamt Svavari
Ottóssjmi.
Félagar í jeppaklúbbi Eim-
skipsstarfsmanna koma úr öllum
deildum en þó segir Hólmfríður
að sjómenn hafí lítið getað tekið
þátt í ferðunum af eðlilegum
ástæðum og ekki séu heldur
margir jeppamenn meðal þeirra.
-Þetta er í þriðja sinn sem við
forum í Þórsmörk svo hún er
orðin fastur liður í vetrarferðun-
um hjá okkur, segir Hólmfríður,
-en alls eru þijár fastar ferðir á
ári.
Við höfum farið í Kerlingar-
fyöll, Veiðivötn, Álftavatn og
Emstrur og Eldgjá. Þetta eru
alltaf helgarferðir og því höfum
við ekki náð mikið lengra en við
förum alltaf í óbyggðir.
Tilganginn með þessu starfí
segir Hólmfríður vera þann að
gefa sem flestum jeppaeigendum
tækifæri til að ferðast í óbyggð-
um en það sé ekki nóg að eiga
jeppann, menn verði líka að fá
tækifæri til að nota hann: -Sum-
ir hafa sagt að þeir fari nánast
aldrei út fyrir þjóðvegina og eru
því mjög ánægðir að fá tækifæri
til að ferðast með þeim sem van-
ari eru og þá sakar heldur ekki
að vera í góðum félagsskap. Við
Jafnvel vanir
menn geta fest
jeppa sína en í siík-
um hópferðum eru
margir til aðstoð-
ar.
Félagar í jeppa-
klúbbi starfs-
manna Eimskips
héldu í Þórsmörk
um síðustu helgi.
skála
höfum alltaf vana jeppamenn
bæði fremst og aftast í ferðum
okkar og gætum sérstaklega að
okkur t.d. þegar farið er yfír ár.
Þá er þeim leiðbeint sem á þarf
að halda og þannig fá óvanir
ferðamenn æfínguna.
Þórsmerkurfararnir um síð-
ustu helgi fengu þokkalegt veður
en gist var í skála Útivistar í
Básum. Þar voru saman komnir
18 jeppar og segir Hólmfríður
þá vera af flestum tegundum en
furðu margir starfsmenn eigi
jeppa frá Toyota. ■
BIHIW, Benz og VW tel ja bfla of marga
VIÐ fyrstu sýn kemur mönnum það
ef til vill svo fyrir sjónir að bílafram-
leiðendur sem beijist fyrir því að
banna bílaumferð í borgarkjörnum
séu að vinna gegn eigin hagsmunum.
Forystumenn Daimler-Benz, BMW og
Volkswagen eru þó sannfærðir um
að framtíðarmöguleikar fyrirtækj-
anna séu undir því komnir að það
takist að leysa umferðarhnúta stór-
borganna. Þessi þýsku stórfyritæki
hafa lagt mikla fjármuni í að þróa
tölvustýrt kerfi til umferðarstýring-
ar.
Einkabílar útilokaðir
Með tilraunum sem fljótlega eiga að hefíast
í þremur borgum í Þýskalandi er annars vegar
stefnt að því að finna leið til að gera það
dýrara og tímafrekari að nota einkabíla og
hins vegar að stórbæta
almenningssamgöngur. Einkabflar verða
smám saman útilokaðir frá miðborgunum.
Stuttgart, heimaborg Daimler, stærsta iðn-
aðarfyrirtækis Þýskalands, varð nýlega fyrsta
borg í heimi til að samþykkja að verða vett-
vangur fyrir nýtt og háþróað umferðarstýri-
kerfí sem fyrirtæki er Daimler á hlut í vinnur
nú að.
„Eina leiðin til að ná valdi á umferðinni í
Þýskalandi og annars staðar í Evrópu er
umferðarstýrikerfi," segir Hartmut Weule;
sem sæti á í framkvæmdastjóm Daimler. „I
nýja kerfínu okkar, sem er kallað STORM,
er prófuð tækni, sem mikil og alþjóðleg eftir-
spum verður eftir innan skamms," sagði
Weule við þýska blaðamenn.
Stuttgart, Munchen og Hanover fyrst
Bayerische Motorwerke, BMW vinnur með
öðrum fyrirtækjum, svo og jámbrautafélagi
og borgarstjóm Munchen-borgar að því að
þróa svipað kerfí og sama verkefni er einnig
uppi á borðinu hjá Volkswagen í Hanover.
Kjaminn í umferðarstýrikerfi hverrar borg-
ar verður tölvuheili sem safnar saman, vinnur
úr og miðlar öllum tiltækum upplýsingum um
þann fjölda ökutækja sem stefnir að og ekur
um götur þeirrar borgar. Fullhönnuð munu
kerfin tengjast skiltum, einhvers konar um-
ferðarmerkjum, sem beina munu ökumönnn-
um að fljótfömustu leiðunum og vara við
hættum og tálmunum framundan, t.a.m.
vegna hálku og ísingar, vegaframkvæmda og
tafa vegna umferðarslysa.
Allir með strætó
Þegar umferðarhnútamir eru hvað þéttastir
munu þessi upplýsingaskilti veita ökumönnum
upplýsingar um hve langan tíma líklegt sé að
það muni taka að aka inn í miðbæinn og jafn-
framt veita upplýsingar um það hvemig kom-
ast megi á áfangastað á skemmri tíma með
því að færa sér almenningsfarartæki í nyt.
Þannig verður brugðið upp leiðartöflum þeirra
strætisvagna, sporvagna og járbrautarlesta,
sem skemmst em undan, jafnframt því sem
sýnt verður hvaða leiðir menn geta ekið að
nærliggjandi bflageymsluhúsum.
1 úthverfum verður komið upp stórbættri
aðstöðu til að gera íbúum kleift að skilja bíla
sína eftir við strætisvagnaa- og lestarstöðvar
og ferðast með slíkum farartækjum inn í
miðbæina án þess að ganga langar leiðir. Jafn-
framt verður tekin upp upp sú stefna að gjöld
í stöðumæla fara stighækkandi eftir því sem
nær dregur miðbæ eða bæjarhluta með þéttri
umferð.
Elnka- og vörubílar víkl vlð Ijós
Einn möguleiki sem verið er að kanna hvort
unnt sé að útfæra er að forrita bflaútvörp
með segulbandi þannig að þau taki upp til-
kynningar útvarpsstöðva umhvaðeina viðkom-
andi umferð og geri ökumönnum viðvart um
leið og slíkar tilkynningar berast.
Ferðir lesta, sporvagna og strætisvagna
verða örari og leiðarkerfin bætt þannig að
biðtímar þeirra sem skipta þurfa um farar-
tæki verði sem skemmstur.
Umferðarljós verða forrituð til að veita al-
menningsfarartækjum forgang fram yfir
einkabfla og flutningabfla.
„Kerfi eins og þetta á að vera hægt að búa
til í dag, með þeirri tölvutækni sem við ráðum
þegar yfír,“ segir Christoph Huss, forstjóri
umferðar- og öryggismáladeildar BMW í sam-
tali við Reuters fréttastofúna. „Spumingin
snýst aðeins um það hvort við viljum leggja út
í þetta eða ekki.“
Benz, BMW, VW, Siemens og Bosch
í samvinnu við borgar- og sveitarstjómir,
útvarpsstöðvar og rafeindafyrirtæki á borð
við Siemens og Bosch, hyggjast Daimler og
BMW veija hvort um sig jafnvirði 36,5 millj-
óna bandaríkjadala, í undirbúningskostnað
vegna þessara fyrirhuguðu aðgerða í Stuttg-
art annars vegar og Munchen hins vegar.
í apríl mánuði mun Daimler hefíast handa
við að koma upp tölvustýrðum unnlýsingaskilt-
um sem gera munu íbúum og öðmm vegfar-
endum í Stuttgart kleift að taka ákvörðun um
farkost og leið á grundvelli nýjustu tiltækra
upplýsinga úr umferðinni.
31 milljón bíla
31 milljón bíla er nú í einkaeign í Þýska-
landi og hefur fjöldi þeirra sexfaldast undan-
farin 30 ár en afkastageta vegakerfisins hefur
aðeins verið aukin um 40% á sama tíma. Á
sama tíma og umferðin virðist þyngjast út í
hið óendanlega hefur smám saman gengið til
þurrðar það landrými sem unnt er að bijóta
undir nýja vegi til að létta á umferðarhnútun-
um. Þessi vandi er sérstaklega mikill í austur-
hluta Þýskalands þar sem tölur um bílaeign
einstaklinga hafa tekið mun stærra stökk en
afkastageta vegakerfisins eftir sameininguna
árið 1990.
Stjómarformaður BMW, Eberhard von
Huehnheim segir að til að snúast gegn hinni
síversnandi umferðarteppu þurfi framleiðend-
ur að tileinka sér heildstæðan hugsunarhátt
sem taki fyrst og fremst mið af samgöngukerf-
inu. „Bílaiðnaðurinn getur ekki einbeitt kröft-
um sínum að einu afbrigði samgangna og
flutninga," sagði hann. „Menn verða sjá lengra
og hugsa stærra en svo að þeir séu bundnir
einungis af eigin vörumerki."
Heimsendingarþjónusta stórmarkaóa
til að minnka umferð
Bílaframleiðendur standa nú einnig í samn-
ingaviðræðum við stærstu stórmarkaði um að
koma á fót heimsendingarþjónustu og er því
ætlað að vera enn einn
liðurinn í því að hvetja
fólk til að gera sér
þjónustu almenningsf-
arartækjanna að góðu.
Á síðari stigum
mundu upplýsinga-
kerfin þróast yfir í það
að gera ökumönnum
kleift að fá upplýsingar
í gegnum tölvur eða
jafnvel útvarpstæki bfl-
anna. „Fyrir nokkur
þúsund mörk, munu
menn einnig geta keypt
sér tölvu með korti þar
sem á verður vegakort af öllu Þýskalandi.
Menn geta svo fengið upplýsingar frá miðstöð
umferðarstýrikerfisins og þannig með hjálp
tölvunnar lagt á ráðin um hvaða leið þeir
skuli aka til að sneiða algjörlega hjá umferðar-
hnútum," segir Huss. ■
Ileimild: Reuter.
„Eina leiðin til
aó nó valdi ú
umferúinni I
Þýskalandi og
annars staðar
í Evrópu er
umferöarstýri-
kerfi,"