Morgunblaðið - 06.03.1993, Page 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARZ 1993
í AFAHÚSI
Símalínurnar sem liggja inn í gaflinn
við svefnherbergisgluggann syngja
angurvært stef þegar hvessir, bruna-
stigi liggur upp gaflinn, reynir hefur
verið gróðursettur í garðinum í gæfu-
skyni, fyrir neðan liggur brekkan að
brunninum, þar svamla froskar sem
„verður að veija,“ loks þjóðvegurinn
og skógurinn þar fyrir handan. Fuglar
syngja og narta í sæt ber. Þetta er
hugljúf mynd af eðal-sænskri sveita-
sælu, sem Per Olav Enquist hefur
teiknað upp handa sér og okkur, para-
dís þar sem „allt kemur heim og sam-
an“. I húsinu býr aldurhniginn far-
andpredikari ásamt unguni dóttursyni
sínum, og stundum kemur dóttirin í
heimsókn en hefur skamma viðdvöl.
Sönginn í símastrengjunum segir afinn
óma úr himnahörpu, enda virðast
þræðirnir liggja beint til almættisins
í himnahæðum.
Milli fulltrúa tveggja
kynslóða er kærleiks-
ríkt samband, þeir
njóta sveitakyrrðar-
innar og krydda lítið
eitt með spennusögum af loftbar-
dögum Spitfire-véla við Húna.
Húsið byggði afinn með eigin hönd-
um. Einhvern veginn þannig lítur
baksvið leikritsins „I lodjurets
timma" út. Verkið var frumsýnt á
Kungliga Dramatiska Teatern í
Stokkhólmi árið 1988 og nefnist
Stund gaupunnar í þýðingu Þórar-
ins Eldjáms. Bríet Héðinsdóttir
leikstýrir verkinu, sem verður
frumsýnt í kvöld á Litla sviði Þjóð-
leikhússins, en Elín Edda Ámadótt-
ir hannar leikmynd og búninga.
Höfundur sækir titilinn í orðræðu
stráksins í verkinu, sem er orðinn
stálpaður þegar það hefst og segir
frá gaupunni sem hvílist í tuttugu
og einn tíma á sólarhring, veiðir í
þrjá og matast í eina stund. 25.
stundin er óútskýrt kraftaverk, til
hliðar við tímann og samt innan
hans, alveg eins og hin guðdómlega
fegurð og tilvist...
Sögumaður verksins er rúmlega
sextug kona (Guðrún Þ. Stephen-
sen), fyrrum kvenprestur í sænsku
þjóðkirkjunni. Hún segir frá liðinni
kvöldstund sem olli því að hún lét
af prestskap, og gæðir túlkun
hennar atburði fölum helgiljóma.
Sögusviðið er í hróplegri mótsögn
við sveitalífsmyndina; svartmálað-
ur klefi, grindur fyrir öllum gætt-
um, hermannabeddi á miðju gólfi
undir grófri ábreiðu og tveir klapp-
stólar úr málmi - þar er ekki leikið
á hörpustrengi heldur rimlavirki.
Stráksi (Ingvar E. Sigurðsson) sit-
ur inni fyrir tvöfalt morð og
íkveikju. Eftir að afi hans lést var
húsið selt miðaldra hjónum. Þau
Tilraunadýrið (Ingvar E. Sigurösson) og Lisbet hóskólanemi (Lilja
Þórisdóttir) takast ó um ólíkt gildismat.
heimsótti hann eitt vetrarkvöld en
fann fyrir fátæklegan skilning á
unaðssemdum staðarins og var í
kaupæti fleygt út af fyrrum heim-
ili. Þá braust hann inn og myrti
bæði tvö með jámbút að vopni, dró
þau út og lagði í faðmlögum í snjó-
skafl. Beið síðan eftir mannaferð-
um. Nokkru eftir að hann var vi-
staður á hæli flúði hann til baka
og bar eld að griðarstað æsku sinn-
ar.
Presturinn er sendur til hælisins
milli fyrri sjálfsmorðstilraunar
hans, sem mistókst, og hinnar
seinni, sem tekst. Hún á að leiða
piltinn af stigu villuhugmynda sem
hijá hann, og eiga sinn þátt í að
hann tekur ekki sönsum, að
minnsta kosti að mati Lisbetar
(Lilja Þórisdóttir), ungrar náms-
konu frá nærliggjandi háskóla sem
vinnur að sérstakri tilraun innan
veggja geðsjúkrahússins. Tilraunin
hefur lítt með mannúð að gera, en
á sér, að sögn Lisbetar, fjölda virtra
fyrirmynda úti í hinum stóra heimi.
Eins og í öllum vísindalegum til-
raunum er úrtak tilraunadýra, sem
í þessu tilviki er hópur alvarlega
geðtruflaðra sjúklinga og þ. á m.
strákurinn, og samanburðarhópur,
skipaður öðrum alvarlega geðtru-
fluðum sjúklingum. Fyrri hópurinn
fékk að halda dýr, til að athuga
hvort nánd þeirra yrði til góðs,
seinni hópurinn fékk að horfa öf-
undaraugum á gæludýr hinna.
Strákurinn fékk rauða köttinn
Valla. Þessi tilraun með mönnum
og um menn í einangrun geðsjúkra-
hússins hrindir af stað ófyrirsjáan-
legri keðjuverkan. Valli verðurtákn
fegurðar í huga stráksins, tákn
guðdómlegra sanninda sem engum
leyfist að svipta burt. En þegar
honum er svipt burt, orsakar það
glæp. Spumingin er siðferðisleg;
hver ber hinstu ábyrgð á ódæðinu,
sá er framkvæmdi það eða þeir sem
brydduðu upp á tilrauninni? Inn í
þetta fléttast trúarleg minni tengd
dauðanum og upprisunni, bæði í
andlegum og líkamlegum skilningi,
og ýmislegt annað sem torvelt er
að móta í röklegt samhengi.
HÁSTÖKKVARINN OG
HÖFUNDURINN
Per Olav Enquist er pólitískur
höfundur, í þeim skilningi að hann
reynir með skrifum sínum að öðl-
ast vitneskju um samfélagið og
veruleikann, og ekki síst „kerfið,
Ingvar E. Sigurðsson, Lilja Þórisdóttir og Guðrún Þ. Stephensen í hlutverkum
sínum í Stund goupunnor.
mekanismann í samfélaginu," og
hvernig brotalamir kerfisins birtast
þegar sjónum er rennt til einstakl-
ingsins og stöðu hans í spilverkinu.
Þau skilaboð ganga í gegnum flest
verka hans, að þjóðfélagið leiti yfir-
leitt skýringa á dáðum, dáðleysi
og ódæðum þegnanna í röngum
afkimum lífsins.
Enquist er fæddur 23. september
árið 1934 í Hjoggböle í Vesturbotn-
um í Svíþjóð en ólst upp í bænum
Sjöbötten „meðal samkomuhúsa og
bænastunda, meðal fólks sem
þrýsti sér að trúnni eins og vafn-
ingsviður." Hann lauk háskólanámi
í Uppsölum, var um tíma meðal
fimm bestu hástökkvara Svíþjóðar
en sneri sér jafnframt að skáld-
skap. Frumraun hans kom út árið
1961, og nefndist „Kristallögat."
„Fárdvágen“ (1963) fylgdi í kjöl-
farið, saga um ferðalag eða flótta,
þ.s. atvik ferðalagsins endurspegla
um leið lífsferð aðalpersónunnar.
En „Magnetisörens femte vinter"
(1964) vakti fyrst bóka Enquists
umtalsverða athygli. Miðpunktur
sögunnar er 18. aldar maðurinn
Friedrich Meisner, lærisveinn
Franz Antons Mesmer og kenninga
hans um kraftflutning manna á
milli í gegnum dáleiðslu (animala
magnetism) til. að lækna tauga-
veiklun. Tengjast loddaralegar
lækningar Meisners (sem bera
stundum árangur) hugleiðingum
höfundar um óljós mörk hins falska
og hins upprunalega, sannleika og
lygi. Sama ár kom út bókin „Bröd-
erna Casey“ en bak við höfundar-
nafnið Peter Husberg leyndist
Enquist ásamt þeim Torsten
Ekbom og Leif Nylén. Titillinn á
næstu bók Enquists, „Hess“
(1966), vitnar bæði til nasistans
Rudolfs Hess en einnig annarra
persóna verksins, sem eiga sér
misjafnar stoðir í veruleikanum.
Eins og „Magnetisörens femte vint-
er“ er „Hess“ skáldsaga sem bygg-
ir á eldri skáldskap. Boðskapur
verksins er fremur siðferðislegur
en pólitískur, enda hugrenningar
um ást og völd helsta kjölfesta
verksins, sem þykir ein merkasta
formtilraun í sænskri skáldsagna-
gerð á 7. áratug aldarinnar og með
fyrstu bókum sem stimpla má
póstmódemíska. Tilraunir með
formið einkenndu raunar allar áð-
urnefndar bækur, án þess að frá-
sagnagleðin biði mikinn hnekki.
„Hess“ skipaði Enquist í fylkingar-
bijóst ungra höfunda í Svíþjóð, sem
lét svo ummælt í viðtali á þessum
tíma að: „Skáldsagan er svík, en
nauðsynleg svik.“
„Legionárema - en roman om
baltutlámningen" (1968) rekur í
heimildastíl afdrif baltneskra
flóttamanna í Svíþjóð eftir seinni
heimsstyijöld, en þau eru meðal
pólitískra vafamála í sögu landsins.
Sagan varpar einnig ljósi á skráse-
tjarann og breytingarnar á viðhorfi
hans til rannsóknar sinnar. Höf-
undur hefur sjálfur sagt að hana
mætti kalla skýrslu fremur en
skáldsögu. Ári síðar hlaut Enquist
bókmenntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs. í „Sekonden“ (1971) dregur
hann upp veröld íþrótta sem tákn-
mynd þjóðfélagsins, og gerir sam-
tímis upp hugsjónir sænskra vinst-
rimanna, sem biðu skipbrot við inn-
rás Sovétríkjanna inn í Tékkóslóv-
akíu árið 1968. Svipuð mál brunnu
á honum í smásagnasafninu
„Beráttelser frán de instállda uppr-
orens tid“ (1974). Hann sneri sér
því næst að leikritaskrifum með
góðum árangri. „Tribademas natt“
(1975) sýndi Þjóðleikhúsið í þýð-
ingu Stefáns Baldurssohar undir
nafninu Nótt ástmeyjanna, en
verkið fjallar um hjónaband August
Strindbergs og Siri von Essen með
hliðsjón af leikverki Strindbergs,
„Den Starkere," sem skrifað var
með Siri í huga. Stefán þýddi líka
„Frán regnormarnas liv“ (1981)
sem Leikfélag Reykjavíkur sýndi
árið 1983 undir heitinu Úr lífi ána-
maðkanna, en það fjallar um sam-
band dönsku leikkonunnar Johanne
Luise Heiberg við H.C. Andersen.
Fyrrnefnda leikritið færði honum
alþjóðlega frægð, og hefur hann
síðan hallað sér æ meira að skrifum
fyrir leikhús og sjónvarp en skáld-
sagnagerð. Má þar nefna „Mannen
pá trottoaren (1979) sem hann
skrifaði í samvinnu við Anders
Ehnmark, og „Till Fedra“ (1980)
sem notar goðsögnina um ást hinn-
ar grísku Fedm á stjúpsyni sínum,
sem efnivið. Þijár skáldsögur má
þó nefna eftir þann tíma, „Musi-
kanternas uttág“ (1978), „Ned-
störtad ángel“ (1985) sem brúar
að mörgu leyti bilið á milli Enquist
nútímans og skrifa hans á 7. ára-
tugnum, og „Kapten Nemos biblio-
tek“ (1991) sem greinir frá sann-
sögulegum fjölskylduharmleik frá
æskuslóðum hans í Vesturbotnum,
þangað sem allir þræðir virðast
liggja eins og símalínur.
SFr
MENNING/LISTIR
MYNDLIST
Listasafn ísþtnds
Yfirlitssýning á verkum Hreins Friðfmnsonar
til 21. mars.
Norræna húsið
Færeysk myndlist á færeyskum menningar-
dögum: Amariel Norðoy, Bárður Jákupsson,
Marius Olsen, Thorbjörn Olsen og Trándur
Patursson.
Kjarvalsstaðir
Norræn farandsýning og sýning Guðrúnar
Einarsdóttur til 7. mars.
Mennlngarmiðstöðin Gerðubergi
Sýning á verkum Ástu ólafsdóttur frá 22.
feb. til 23. mars. Sýning á verkum Medúsu-
hópsins til 5. apríl.
Gallerí Sævars Karls
Glerlistaverk Ingu Elínar Kristinsdóttur til 17.
mars.
G-15 gallerí
Sýning á verkum Elíasar Hjörleifssonar til
31. mars.
Hafnarborg
Sýningu á verkum Guðjóns Bjamasonar.
Nýlistasafnið við Vatnsstíg
Sýningar Sigríðar Hrafnkelsdóttur og Kristr-
únar Gunnarsdóttur til 7. mars.
Listasalurinn Portið/Hafnarfirði
Sýning á verkum Björgvins Björgvinssonar
og Willem Labeij opnuð.
Gallerí Úmbra
Sýning á smámyndum Helenar Guttormsdótt-
ur stendur til 17. mars.
Þjóðminjasaf nið
Sýning v. samkeppni um safnmerki.
Menningarstofnun Bandaríkjanna
Málverkasýning Gerdu Cook frá 27. feb. til
14. mars.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sýning á völdum verkum listamannsins.
Gallerí 11
Sýning á verkum Sigurðar Vignis Guðmunds-
sonar til 11. mars.
Listhús í Laugardal
Höggmyndir Helga Ásmundssonar sýndar til
31. mars.
Cafe Mílanó
Verk Titu Heydecker til marsloka.
Gallery Sólon Islandus
Sýning Guðjóns Ketilssonar stendur til 15.
mars.
TONLIST
Laugardagur 6. mars.
Björn Steinar Sólbergsson leikur orgelverk í
Akureyrarkirkju kl. 12.00. Björk Jónsdóttir,
sópran, Svan Víkingsdóttir, píanó, með tón-
leika í Listasafni Siguijóns Ólafssonar kl.
17.00. Kynning á ungu nútfmatónskáldi á
Kjarvalsstöðum kl. 20.30.
Sunnudagur 7. mars.
Minningartónleikar um Pál ísólfsson í Stokks-
eyrarkirlqu kl. 16.00. Kammerh^jómsveit Ak-
urejrar leikur vínartónlist í íþróttaskemmunni
kl. 17.00.
Þriðjudagur 9. mars.
CamiIIa Söderberg blokkflautuleikari og Bac-
hsveitin í Skálholti leika í Hallgrímskirkju kl.
20.30. Emst Sondum Dalsgarð flautuleikari
og Johannes Andreassen, píanóleikari, leika í
Norræna húsinu kl. 20.30.
Miðvikudagur 10. mars.
Háskólatónleikar í Norræna húsinu kl. 12.30.
Tónlistarfélag Vestur-Húnvetninga í Verts-
húsi,, Havammstanga kl. 21.00.
Fimmtudagur 11. mars.
Jazztónleikar færeyskra tónlistarmanna í
Norræna húsinu kl. 20.30.
Föstudagur 12. mars.
Tónleikar færeyskra tónlistarmanna í Nor-
ræna húsinu kl. 20.30.
BOKMENNTIR
Laugardagur 20. feb.
Norræna húsið: Færeyski barnabókahöfund-
urinn Martin Næs les úr verkum sínum á
sunnudag kl. 14.00. Dagskrá Hoydal-systkina
um William Heinesen miðvikudag 10. mars
kl. 20.30. Sýning á ljóðum Stefáns Harðar
Grimssonar á Kiarvalsstöðum til 7. mars.
LEIKLIST
Þjóðleikhús
Stóra sviðið kl. 20.00:
Dansað á haustvöku: Mið. 10. mars, sun. 14.
mars. My Fair Lady: fím. 11. mars, fös. 12.
mars. Hafið: sun. 7. mars, lau. 13. mars.
Dýrin í Hálsaskógi: Sun. 7. mars. kl. 14.00,
lau. 13. mars.
21. feb. Litla sviðið kl. 20.30:
Stund gaupunnar: Frumsýning lau. 6. mars,
sun. 7. mars, fös. 12. mars, sun. 14. mars.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
Stræti: Fim 11. mars, lau. 13. mars.
Borgarleikhúsið
Stóra sviðið:
Kl. 14.00: Ronja ræningjadóttir; lau. 6. mars,
sun. 7; mars, lau. 13. mars, sun. 14. mars.
Blóðbræður: Lau. 6. mars, lau. 13. mars. kl.
20.00.
Tartuffe eftir Moliere frumsýnt fös. 12. mars.
Litla sviðið: Dauðinn og stúlkan frumsýnt fim.
11. mars.
íslenska óperan
Sardasfurstyryan kl. 20.00, lau. 6. mars,
fös.12. mars, lau. 13. mars.
Pé-leikhópurinn
Húsvörðurinn kl. 20.00: Sun. 7. mars.
N emendaleikhúsið
Bensínstöðin kl. 20.00: Lau. 6. mars., sun.
7. mars.
Leikbrúðuland
Bannað að hlæja sun. 7. mars kl. 14 og 16.
Leyni Leikhúsið
„Þrusk’ á Café Sólon íslandus kl. 20.30., sun.
7. mars, mán. 8. mars, mið. 10. mars.
KVIKMYNDIR
MÍR-salurinnn:
„Fávitinn," sun. 7. mars. kl. 16.00.
Norræna húsið
Færeyska kvikmyndin Atlantica Rhapsody
sýnd mánud. 8. mars kl. 17.00.
UMSJÓNARMENN LISTASTOFNANA
OG SÝNINGARSALA!
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eft-
ir að birtar verði i þessum dálki verða að
hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á miðvikudög-
um. Merkt: Morgunblaðið, menning/listir,
Hverfisgötu 4, 101 Rvk. Myndsendir: 91-
691294.
RH