Morgunblaðið - 16.03.1993, Side 1
adidas
Sporthús Reykjavíkur
selur Adidas
HANDKNATTLEIKUR / HM I SVIÞJOÐ
Japanir
bjódast til
að halda
HM '95
Stjórn IHF vantrúuð á að fslend-
ingar geti haldið keppnina
JAPANIR hafa boðist til að halda heimsmeistarakeppnina í hand-
knattleik árið 1995, árið sem keppnin verður, eða á að vera á
íslandi. Japanir eru með fimm manna sendinefnd hér í Svíþjóð
sem er að kynna sér hvernig staðið er að málum því þeir hyggj-
ast halda HM '97. Sá orðrómur gengur fjöllunum hærra meðal
forráðamanna í handknattleiknum að íslendingar geti alls ekki
haldið HM '95 svo vel sé. Þennan orðróm heyrðu Japanir og buð-
Skúli
Sveinsson
skrifar frá
Stokkhólmi
ust því til að halda keppnina.
wnM ákon Gunnarsson, nýráðinn
® ■ framkvæmdastjóri HM-
defndarinnar á íslandi, sagði í sam-
tali við Morgunblað-
ið að rétt væri að
Japanir hefðu
óformlega boðist til
að halda HM ’95,
„en ég veit óskaplega lítið um það
ennþá. Við munum ræða við þá í
vikunni og eins þarf að athuga þessi
mál öll betur,“ sagði Hákon. „Ég
átti fund með Erwin Lanch, forseta
IHF, í morgun og eftir þann fund
er alveg ljóst hvernig tekjuskipting-
in verður af HM á íslandi og IHF
mun ekki taka þátt í uppihaldi
þeirra viðbótarþjóða sem verða
vegna þess að 24 þjóðir munu taka
þátt í stað 16 eins og venja er.“
Stjórnarmenn IHF vantrúaðir
„Þeir hjá IHF eru mjög uggandi
vegna aðstæðna heima og mér sýn-
ist að það verði verulega á brattann
að sækja hjá okkur varðandi þessa
keppni. Stjórnarmenn IHF virðast
mjög vantrúaðir á að við getum
gert þetta eins og mönnum ber.
Við erum hins vegar ákveðnir í að
halda keppnina og gera það vel.
Það þarf að gera breytingar á Laug-
ardalshöllinni fyrst ekki var byggð
ný höll, sem ég hefði talið best því
slíkt hús hefði nýst okkur á ýmsum
sviðurn," sagði Hákon.
„IHF hefur samþykkt tillögur
okkar um breytingar á Höllinni en
vilja fá þær staðfestar þannig að
þeir hafi byggingaráætlunina í
höndunum. Það er ákveðið að þjóð-
irnar verði 24 og það þýðir aukinn
kostnað fyrir okkur og einnig er
rennt dálítið blinnt í sjóinn með
fyrirkomulagið því menn vita ekki
hvernig það gengur," sagði Hákon.
Vonbrigðíí Globen
Morgunblaðið/RAX
ÞESSI mynd segir allt sem segja þarf um leik Islendinga gegn Þjóðverjum í Globen-íþróttahöllinni í Stokkhólmi í gær.
Þeir eru ekki upplitsdjarfir mennirnir sem sitja á varamannabekk íslands, eftir að ungt lið Þjóðveija hafði rassskellt
íslendinga, 16:23. Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, Einar Þorvarðarson, aðstoðarmaður hans og Sigurður
Sveinsson.
■ Allt um HM-keppnina, B2,B3,B6,B7,B10,B12.
KNATTSPYRNA
Mun aldrei starfa sem
þjálfari í Þýskalandi
- segirÁsgeir Sigurvinsson í blaðaviðtali við Waiblingen í Stuttgart
Asgeir Sigurvinsson, þjálfari
Framliðsins í knattspymu,
sagði í viðtali við blaðið Waibling-
en í Stuttgart und-
ir fyrirsögninni;
Framtíð Asgeirs
Siguivinssonai’?,
að hann myndi
aldrei taka að sér starf sem þjálf-
ari í Þýskalandi. „Ég myndi ekki
gera fjölskyldu minni það,“ sagði
Frá
Jóni Halldórí
Garðarssyni
ÍÞýskalandi
Ásgeir Sigurvinsson.
I greininni er sagt að síðasti
leikstjómandinn, sem Stuttgart
hefur átt, sé á förum til íslands
til að reyna fyrir sér sem þjálfari
1. deildarliðs Fram. Ásgeir hefur
starfað sem „yfinijósnari“ lijá
Stuttgart og var hann í Vínarborg
um helgina, til að fylgjast með
tveimur leikmönnum. - Olaf
Marschall, sóknarmanni hjá Adm-
ira Wacker og Peter Schötter,
sóknarmanni hjá Rapid Vín.
„Það hefur verið gaman f þessu
starfi, en ég sé enga framtíð í
því,“ sagði Asgeir, sem hefur enn
ekki ákveðið sig hvað hann ætlar
sér í framtfðinni, en Ásgeir gerði
tveggja ára samning við Fram.
„Ég hlakka til að þjálfa Fi-amliðið.
Það er lið sem hefur á að skipa
góðri blöndu af ungum og reynd-
um leikmönnum. Ég vona að við
náum að tryggja okkur Evrópu-
sæti og það væri gaman ef Fram
myndi leika gegn Stuttgart í Evr-
ópukeppninni,“ sagði Ásgeir. Sagt
er f greininni að Asgeir hafi ekki
enn ákveðið hvað hann geri í fram-
tíðinni. „Ég mun setjast niður með
fjölskyldunni seinna á árinu og
ræða framtíðina. Ég hef verið að
heiman í tuttugu ár,“ sagði Ásgeir.
HANDKNATTLEIKUR: SIGURÐUR SVEINSSON RAUF 600 MARKA MURINN / B6