Morgunblaðið - 16.03.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993
1967 var (sland ekki
inni á listanum,
komst ekki á HM
í Svíþjóð. Tékkar
vom bá í efsta sæti.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
■ ALBANSKIR innflytjendur í
Hyltebruck í Svíþjóð skiptu í tvö
lið á dögunum og spiluðu knatt-
spymu. The European segir leikn-
um hafa lokið sorglega: einn leik-
mannanna var stunginn til bana af
andstæðingunum.
■ SHAQUILLE O’Neal, nýliðinn
frábæri hjá Orlando Magic í NBA-
deildinni, safnar úrklippum úr blöð-
um, en sagði nýlega: „Ég les ekki
greinarnar um sjálfan mig, skoða
bara myndirnar."
■ O’NEAL þénar gríðarlega vel,
enda góður leikmaður. Shaquille
er brosmildur, og segist hafa upp
á þrenns konar bros að bjóða: millj-
ón dollara, tveggja milljóna dollara
og þriggja milljóna dollara...
■ ASTRID Strauss, sundstúlkan
þýska sem féll á lyfjaprófi í fyrra
og kenndi bjórdrykkju um, var tek-
in í rannsókn á föstudag. Skera á
úr um það hvort mikil bjórdrykkja
geti orsakað það að líkaminn fram-
leiði afreksaukandi efni.
Mm
FOLX
■ STRAUSS, sem keppti fyrir
Austur-Þýskaland og er fyrrum
heimsmeistari, var sett í 18 mánaða
keppnisbann í desember, eftir að
karlhormónið testosterone fannst í
þvagsýni hennar, á æfingatímbili í
mars í fyrra, en efnið er grunnefni
allra anabólískra stera. Hlutfall
hormónsins var hærra hjá Strauss
en hjá Ben Johnson, sem settur
var í lífstíðarbann á dögunu.
■ SÝNI var tekið úr Strauss á
föstudag og verður rannsakað bæði
í London og París. Hún heldur því
fram að líkaminn hafi framleitt
hormónið eftir að hún drakk átta
til tíu bjóra í gleðskap fyrir lyfja-
prófið.
■ MICHAEL Anicic, 18 ára Þjóð-
veiji af serbneskum ættum, sem
leikur með Eintracht Frankfurt,
var með aðalliðinu í fyrsta skipti
gegn Bayern Miinchen um fyrri
helgi. Hann stóð sig mjög vel, en
engu að síður var baulað á hann
um helgina á heimavelli og kappan-
um var skipt útaf.
■ ANICIC kom í sjónvarpsviðtal
eftir leikinn gegn Bayern og þótti
svo grobbinn að mönnum ofbauð.
Þjálfari hans, Júgóslavinn Step-
anovic, sagði framkomu drengsins
í sjónvarinu hafa komið sér á óvart.
„Hann sló um sig eins og hann
hefði leikið í 15 ár í deildinni," sagði
þjálfarinn.
É ANICIC var miður sín þegar
honum var skipt út af um helgina
og gekk grátandi af velli. '
■ ALAIN Prost, franski ökuþór-
inn kunni, sigraði um helgina á
fyrsta grand-prix kappakstri ársins;
suður-afríska kappakstrinum í Ky-
alami.
■ PROST var ekki með á síðasta
keppnistímabili en gekk til liðs við
Williams liðið í vetur. Ayrton
Senna frá Brasilíu, sem ekur fyrir
McLaren, varð annar á sunnudag-
inn og Bretinn Mark Blundell þriðji
á Ligier.
MÚTUR
Landsliðsþjálfari Islands í
handknattleik hefur neitað
að tjá sig opinberlega um dóm-
ara í íþróttinni, þó eftir því hafí
verið gengið. A stundum hefur
hann átt erfítt með sig, eins og
eftir leikinn gegn
Ungvetjum s.l.
fímmtudag, en samt
látið kyrrt liggja.
Hann veit af eigin
reynslu að hvað
dómara í alþjóðleg-
um handknattleik varðar bera
fæst orð minnsta ábyrgð. Eins
og málum er háttað eru aðfinnsl-
ur landsliðsþjálfara sem olía á
eld og þær hafa dregið dilk á
eftir sér. Orð í eyra hafa verið
geymd en ekki gleymd, en mál
er að linni.
Þegar Alþjóða handknattleiks-
sambandið eða hinar ýmsu
nefndir þess bera á góma er við-
kvæðið gjarnan að mafían ráði
þessu og mafían ráði hinu.
Óánægja hefur oft blossað upp
í sambandi við dómaramál, en
svo virðist sem menn sætti sig
við orðinn hlut og í stað þess að
leysa vandann í eitt skipti fyrir
öll hugsa margir fyrst og fremst
um hvernig þeir geti nýtt sér
breyskleika dómara eins og aðrir
hafa sannanlega gert. Æ fleiri
reyna að taka þátt í hrunadansin-
um án þess að gera sér grein
fyrir afleiðingunum og samnefn-
ari þátttakenda, alþjóða foryst-
an, hefur alla tíð látið gagnrýni
sem vind um eyru þjóta, borið
allar ásakanir af sér og komist
upp með það. Samt eru þess
dæmi að dómarar hafa orðið að
súpa seyðið af gjörðum sínum —
verið settir í bann — þó aðrir
hafi komist upp með að ráðskast
með leiki að vild. Alþjóða hand-
knattleiksforystan hefur ekki
gengið fram fyrir skjöldu, tekið
á málinu af festu og hreinsað
til. Fyrir vikið nýtur alþjóða
handknattleikur ekki nærri eins
mikillar virðingar og aðrar vin-
sælar íþróttagreinar.
Staðreyndin er sú að sumir
forystumenn leggja mikið í söl-
umar til að fá dómara á sitt
band. Þeim er hreinlega mútað
til að leggja sitt af mörkum til
að úrslitin verði viðkomandi hag-
stæð, íslenska dómaraparið, sem
dæmir á HM í Svíþjóð staðfesti
í viðtali við Morgunblaðið fyrir
keppnina að víða væri pottur
brotinn, en ekki væri reynt að
fá dómara frá Norðurlöndum til
að dæma gegn sannfæringu
sinni, því þeir væru ekki til við-
tals um slíkt.
Alþjóðlegur handknattleikur
stendur á vissum tímamótum.
Með tilkomu Evrópukeppni
landsliða skapast möguleiki á að
efla íþróttina og auka útbreiðslu
hennar, en slíkt er borin von ef
menn geta keypt úrslit.
Vel færi á því að íslensk hand-
knattleiksforysta fylgdi orðum
fyrrnefndra dómara eftir og tæki
málið upp í Stokkhólmi í vikunni.
Næsta heimsmeistarakeppni
verður á íslandi eftir tvö ár og
verður fylgst grannt með fram-
göngu íslensku framkvæmda-
mannanna. Þeir hafa aldrei verið
f betri aðstöðu til að hafa áhrif á
alþjóðlegan handknattleik og með
því að leggja fram ákveðna og
harða stefnu í dómaramálum ná
þeir ekki aðeins örugglega til allra
þátttökuþjóða heldur vinna æ
fleiri á sitt band. Tilfellið er að
mútur eiga ekki uppá pallborðið,
en á meðan aðgerðarleysi Ijöldans
ræður ríkjum hvarflar ekki að
áhrifamönnum í innsta hring að
snúa við blaðinu.
Steinþór
Guðbjartsson
Mútugjaf ir til hand-
knattleiksdómara verð-
urað uppræta
Ætlaði ekkijúdókappinn BJARIMIFRIÐRIKSSON að vera hættur keppni?
Þettaer bara
svo gaman...
BJARNI Friðriksson, besti júdómaður íslands, vann enn ein
gullverðlaunin á erlendri grundu um helgina; varð hlutskarp-
astur í 95 kg flokki á opna skoska meistaramótinu og er það
í fjórða skipti sem hann hrósar sigri á þeim vettvangi. Bjarni
verður 37 ára í sumar. Hann hefur keppt á fernum Olympíu-
leikum og hefur margsinnis lýst því yfir að nú fari ferlinum
líklega að Ijúka en svo virðist sem hann geti bara ekki hætt
að sigra!
Bjarni kom heim frá Skotlandi
á sunnudagskvöldið og Morg-
unblaðið náði tali af honum í gær.
Hvernig var það,
Skapti Bjarni, ætlaðirðu
Hallgrímsson ekki að vera hætt-
skrifar ur?
„Jú, en þetta er bara svo gam-
an! Og árið í fyrra var það besta
hjá mér frá upphafi, þannig að það
er erfitt að hætta svona einn, tveir
og þrír. Ég vann fjögur mót úti í
fyrra, varð annar í einu og var
áttundi á Evrópulistanum í mínum
flokki. En þó ég segi að árið í fyrra
hafi verið það besta standa Ólymp-
íuleikarnir ’84 alltaf upp úr — það
er besta einstaka mótið, en árang-
urinn í heildina var bestur í fyrra.“
Þú rekur eigið fyrirtæki, sem
hiýtur að taka mikinn tíma. Hef-
urðu alltaf tíma til að æfa nóg?
„Það fer rosalegur tími í þetta,
en ég æfi að rnestu leyti á kvöldin
og um helgar. Ég æfí júdóið þrisv-
ar í viku og lyftingar tvisvar, og
svo þegar nær dregur mótum æfi
ég tvisvar suma daga; bæti við
æfingu í hádeginu. Svona verður
þetta að 'vera ef maður ætlar að
ná árangri. Og það þarf líka að
æfa meira eftir því sem maður eld-
ist, til að halda sér við.“
Nú er heimsmeistaramót í ár.
Þú verður væntanlega með þar?
„Já, ég held ég stefni á það. Og
ég stefni alltaf hátt auðvitað. Ég
varð sjöundi á HM ’89, en var
meiddur þegar HM fór fram ’91.“
Og nú eru ekki nema þijú og
hálft ár í Ólympíuleikana í Atl-
anta...
„Já, einmitt. Það styttist í þá!
Nei, ég held ég geti alveg lofað
því að ég verði ekki þar. Að minnsta
kosti ekki sem keppandi. Það gæti
Morgunblaðið/Sverrir
BJarni Frlðriksson kominn úr júdógallanum: Maður spyr sjálfan sig oft
að því þegar komið er á áfangastað og verið er að leggja af stað inn á
dýnuna, hvers vegna í ósköpunum maður sé að standa í þessu.
auðvitað verið spennandi að keppa
í Atlanta, en til að undirbúa það
yrði maður að vera nánast ein-
göngu í þessu. Þá þyrfti ég að
geta farið á sjö til tíu mót á ári
erlendis, en það er mjög dýrt og
ég kosta þetta sjálfur að miklu
leyti. En ég fer á EM og HM í ár
og svo held ég þessu sé lokið. Ég
ætla líka að reyna að sigra í opna
flokknum á Islandsmótinu. Það
yrði fimmtánda árið í röð ef mér
tækist það.“
Þú hefur staðið lengi í eldlín-
unni. Verðurðu aldrei þreyttur á
þessu?
„Jú, maður spyr sjálfan sig oft
að því, þegar maður er kominn á
áfangastað erlendis og að leggja
af stað inn á dýnuna, hvers vegna
í ósköpunum maður sé að standa
í þessu. En það gleymist alltaf um
leið og keppnin byijar."
Aðeins um mótið í Skotlandi um
helgina. Þú hlýtur að vera ánægður
með árangurinn?
„Já, mjög ánægður. Segja má
að ég hafí varla keppt neitt sem
heitið getur síðan í Austurríki í
júní í fyrra. Ég fékk eina glímu í
Barcelona og tapaði eftir tíu se_k-
úndur í Frakklandi í janúar. Ég
fann að ég var rosalega seinn af
stað í byijun í Skotlandi en síðustu
tvær glímurnar voru í mjög góðu
lagi.“
Hvað er svo framundan?
„Opna breska mótið er eftir þijár
vikur og portúgalska mótið viku
seinna. Eg stefni á að fara þangað
ef við náum að safna peningum
fyrir því. Það væri gott í undirbún-
ingnum fyrir EM.“