Morgunblaðið - 16.03.1993, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993
B 5
IÞROTTIR FATLAÐRA / ISLANDSMOT
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Bræðurnir Elvar og Stefán Thorarensen og Sigurrós Karlsdóttir, öll frá íþróttafélaginu Akri á Akureyri, voru sigursæl
á mótinu. Þau unnu meðal annars sveitakeppni 1. deildar í boccia og sína flokka í borðtennis.
Þörf erá
nýjum félögum
Iþróttasamband Fatlaðra er gjarnan
kallað „litla ÍSÍ“ því uppbygging-
in er svipuð en markmið ÍF er að
hjálpa fötluðum ein-
Stefán staklingum til hafa
Stefánsson möguleika á að
skrifar stunda íþróttir og
hafa yfirumsjón með
íþróttagreinum þeirra.
Anna Karólína Vilhjálmsdóttir er
annar tveggja íþrótta- og útbreiðslu-
fulltrúa hjá sambandinu. „Við höldum
fundi og könnum hug til stofnunar
íþróttafélaga fyrir fatlaða en á síð-
asta ári voru stofnuð fjögur félög á
landsbyggðinni; Gróska á Sauðár-
króki, Þjótur á Akranesi, Kveldúlfur
í Borgarnesi og nú síðast Fjörðurinn
í Hafnafirði. Það er mikið af fötluðum
krökkum í Hafnarfirði sem ekki
stunduðu neinar íþróttir og þörfin var
greinilega fyrir hendi. Þegar íþrótta-
félagið Nes á Suðurnesjum var stofn-
að mættu fjórtán fötluð börn á stofn-
fundinn, fyrir utan foreldra. Annars
mætti koma til mun meiri stuðning-
ur, til dæmis frá heilbryggðisstéttun-
um og kennurum."
Anna G. Sigurðardóttir, sem nú
er formaður Ness, var árið 1991 val-
in til að þátttöku á norrænt barna-
og unglingamót en það fréttist fyrir
tilviljun af Önnu og hún ákvað eftir
dálitla umhugsun að taka þátt. Mótið
markaði tímamót í lífí hennar og seg-
ir Anna sjálf að hún sjái sig nú í
nýju ljósi, sjálfstæðari og öruggari -
sé eitthvað- eins og hún segir sjálf.
Morgunblaðið/J6n Svavarsson
Asparstelpurnar sem röðuðu sér í efstu sætin í flestum greinum sínum í
sundinu. Þær eru talið frá vinstri: Bára B. Erlingsdóttir, Sigrún Huld Hrafns-
dóttir og Guðrún Ólafsdóttir.
Akursmenn
bestir í boccia
FATLAÐIR héldu íslandsmót
sitt í Hafnarfirði um helgina
og voru keppendur rúmlega
300 frá 21 félagi. Keppt var í
boccia, borðtennis, lyftingum
og bogfimi í Kaplakrika ítil-
efni af stofnun Fjarðarins, nýs
íþróttafélags fyrir fatlaða í
Hafnarfirði, og synt var í
Sundhöll Hafnarfjarðar.
Mest var spennan í boccia þar
sem keppendur vora um
188. Keppnin var mest á milli
íþróttafélags fatl-
aðra' ReykJavík °g
Stefánsson Iþróttafélagsins
skrifar Akurs frá Akureyri
en þeir norðanmenn
hirtu gull og silfur í einstaklings-
keppni 1. deildar og gull í sveita-
keppni 1. deildar. Sveit Akurs
skipa Sigurrós Karlsdóttir og
bræðurnir Elvar og Stefán Thorar-
ensen og þau létu sér boccia ekki
nægja, þar sem Stefán vann gull
í einstaklingskeppninni og Elvar
silfur, heldur vann Elvar einnig
einliða- og opna flokkinn í borð-
tennis og Stefán vann einliðaleik
þroskaheftra en saman unnu þeir
bræður tvíliðaleikinn í borðtennis.
Sigurrós vann einnig einliðaleik
og opin flokk í borðtennis.
Gullkálfarnir frá Olympíu-
leikunum í Barcelona settu fá met
að þessu sinni. „Keppnin var svo
sem ágæt og ég átti alveg eins
von á afrekum en okkar sterkustu
sundmenn taka því nú rólega áður
en keyrt verður upp fyrir Norður-
landamótið sem fram fer í Svíþjóð
í apríl,“ sagði Erlingur Jóhannes-
son sundþjálfari. „Hinsvegar kom
fram töluvert af nýju fólki utan
af landi og er það vel.“ Þrátt fyr-
ir að „taka því rólega“ unnu Ólaf-
ur Eiríksson og Sigrún Huld
Hrafnsdóttir öll sín sund og Krist-
ín R. Hákonardóttir flest sín. Jón
Heiðar Jónsson, ÍFR, bætti ís-
landsmetin í lOOm skriðsundi og
50m baksundi í sínum flokki en
vann að auki í borðtennis einliða-
leik sitjandfog náði 2. sæti í tvílið-
aliða- og opnum flokki.
Afreksbikar var veittur til stiga-
hæsta einstaklings í hverri sund-
grein. í flokki blindra/sjónskertra
hlaut Birkir R. Gunnarsson, ÍFR,
bikar fyrir lOOm bringusund, í
flokki heyrnaskertra Jón Bjarki
Ásgeirsson, ÍFH, fyrir lOOm skrið-
sund, í flokki þroskaheftra Sigrún
Huld Hrafnsdóttir, Ösp, fyrir
lOOm bringusund og Jón Heiðar
Jónsson, ÍFR, í flokki hreyfihaml-
aðra fyrir lOOm skriðsund.
■ Úrsllt / B10
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Kampakátir sigurvegarar í bogfimi. Talið frá vinstri: Leifur Karlsson, Jón
M. Árnason og Oskar Konráðsson, allir úr ÍFR.
Moi*gunblaðið/Jón Svavarsson
Sigurvegarar í lyftingum í flokki hreyfihamlaðra. Frá vinstri: Reynir Kristófersson, ÍFR, þriðja sæti, Þorsteinn Sölva-
son, ÍFR, fyrsta sæti og Jón Stefánsson, Akri, öðru sæti.
rJ f l f j/ÍBW
k«r 'eiK
Sterkur
tvrkir þitt
félug'-
»,„ki
Leitaðu upplýsinga hjá íþróttafélaginu þínu. Umsóknir liggja þarframmi ogínæsta banka, sparisjóði
og afgreiðslu Kreditkorts hf., Ármúla 28.
KREDITKORT HF„ ÁRMÚLA 28, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 91 -685499.