Morgunblaðið - 16.03.1993, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993
B 9
faém
FOLX
■ MARK Bosnich, markvörður
Aston Villa, var áður varamark-
vörður Manchester United og lék
þtjá leiki með ljðinu. Villa keypti
Ástralann, sem er
FráBob 21 árs’ á síðasta
Hennessy tímabili, en ári áður
ÍEnglandi hætti hann að leika
með United þegar
atvinnuleyfi hans rann út.
■ JOHN Buckley hjá Rother-
ham og Gary Poole hjá Plymouth
skullu saman í leik félaganna á
laugardag með þeim afleiðingum
að Buckley rotaðist og var talið
að hann hefði höfuðkúpubrotnað.
■ TONY Cottee hefur gert átta
mörk í 12 leikjum Everton frá ára-
mótum.
■ IAN Wright gerði 26. mark
sitt á tímabilinu fyrir Arsenal í 2:0
sigri gegn Coventry, en fór síðan
meiddur af velli á 64. mínútu.
■ DAVID Rocastle gerði fyrsta
mark sitt fyrir Leeds og það nægði
til sigurs gegn Manchester City.
■ LES Ferdinand skoraði fyrir
QPR, 15 mark hans á tímabilinu,
en fór meiddur af velli um miðjan
fyrri hálfleik og Wimbledon vann
2:1.
■ TONY Roberts, markvörður
QPR, fékk heilahristing skömmu
áður og lék ekki meira.
■ ALLY McCoist gerði 46. mark
sitt á tímabilinu, þegar Rangers
vann Hibernian 3:0. Rangers hef-
ur leikið 43 leiki í röð án taps.
■ ROY Keane lenti í útistöðum
við stúlku á bar á Jersey í síðustu
viku og lék ekki með Nottingham
Forest á laugardag. Brian Clough
sektaði pilt og gerði honum að
greiða vikulaun, um hálfa milljón.
ÞÝSKALAND
Óvænt
úrslití
úrvals-
deildinni
Mörg óvænt úrslit litu dagsins
ljós í þýsku úrvalsdeildinni
um helgina. Bayern Munchen er
aðeins með tveggja stiga forystu á
toppnum, en Frankfurt skaust í ann-
að sætið.
Dynamo Dresden, sem er í neðri
hlutanum, náði óvænt markalausu
jafntefli gegn Bayern. Gestimir
sóttu stíft, en Rene Muller var hetja
heimamanna og varði vel hvað eftir
annað. Andreas Wagenhaus fékk að
sjá rauða spjaldið um miðjan fyrri
hálfleik, en Bayern tókst ekki að
nýta sér liðsmuninn.
„Við börðumst hetjulega," sagði
Klaus Sammer, þjálfari Dresden og
faðir Matthíasar landsliðsmanns.
„Við þurftum á þessu stigi að halda.
Brottvísunin var rétt, en við getum
fyrirgefið Wagenhaus, því eftir það
tókum við okkur saman í andlitinu."
Christoph Daum, þjálfari Stutt-
gart, var einnig ánægður með stig-
ið, en Stuttgart gerði 1:1 jafntefli í
Karlsruhe. „Við höfum ekki staðið
undir væntingum fyrr en nú, en eft-
ir góða frammistöðu í seinni hálfleik
höfum við eitthvað til að byggja á.“
Werder Bremen færðist í 3. sætið
eftir 2:0 tap gegn botnliði Bochum,
en Eintracht Frankfurt stóð undir
nafni og vann Wattenscheid 4:1.
Norðmaðurinn Jörn Andersen lék
sinn fyrsta leik með Frankfurt og
skoraði tvö mörk.
■ Úrslit / B10
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Stórmeistarajafntefli
Retuer
Hughes gerði mikilvægt mark
Mark Hughes skoraði með skalla gegn Aston Villa; jafnaði aðeins fáeinum mínútum eftir að Steve Staunton hafði náð
forystunni.
SPANN
Barcelona á breiðu brautinni
BARCELONA stendur vel að
vígi í spænsku deildinni eftir
3:0 sigur gegn Deportivo á
laugardag.
Gestimir byijuðu með miklum
látum á Camp Nou, komust
hvað eftir annað inn fyrir vörn
heimamanna og sköpuðu sér mörg
marktækifæri, en varnarmönnum
Barcelona tókst að bægja hættunni
frá á síðustu stundu, Zubizarreta
var frábær í markinu og leikmenn
Deportivo ónákvæmir í skotum sín-
um. Mark virtist liggja í loftinu, en
gegn gangi leiksins var það Barce-
lona sem braut ísinn um miðjan
fyrri hálfleik og við það var allur
vindur úr gestunum. Leikurinn
snerist heimamönnum í vil og eftir-
leikurinn var auðveldur.
Johan Cruyff, þjálfari Barcelona,
var ánægður. „Við vorum sannfær-
andi. Þeir eru góðir, hættulegir, en
við nýttum færin.“
Real Madrid virtist öruggt með
sigur gegn Logrones eftir að hafa
skorað á 88. mínútu, en gestirnir
voru á öðru máli og jöfnuðu áður
en flautað var til leiksloka. Agustin
Abadia jafnaði, en hann gerði einn-
ig fyrra mark Logrones.
Real Madrid sótti stöðugt, en
sóknarleikurinn var ómarkviss og
Logrones varðist vel. 55.000 áhorf-
endur setti hljóða um miðjan seinni
hálfleik, þegar Abadia skoraði úr
vítaspyrnu og gleðin yfir marki
Esnaider tveimur mín. fyrir leikslok
var skammvinn.
STAÐAN á toppnum í Englandi
er óbreytt eftir leiki helgarinn-
ar. Efstu liðin, Manchester Un-
ited og Aston Villa gerðu 1:1
jafntefli á Old Trafford, en í
neðri hlutanum tapaði Notting-
ham Forest dýrmætum stigum,
þrátt fyrir mjög góðan leik hjá
Þorvaldi Örlygssyni.
Bæði liðin á Old Trafford sóttu
stíft til sigurs, en jafnræði var
með þeim og aðeins fjórar mínútur
á milli markanna.
Aston Villa, sem hef-
Frá Bob ur sigrað United í
Hennessy deild og bikar á
/ Englandi heimavelli í vetur, en
aðeins einu sinni haft betur á Old
Trafford í 38 ár, náði forystunni
gegn gangi leiksins á 53. mínútu,
þegar Steve Staunton skoraði með
góðu skoti fyrir utan teig, glæsilegt
mark. Mark Hughes jafnaði skömmu
síðar með skalla eftir undirbúning
Frakkans Eric Cantona.
Mark Bosnich, markvörður Villa,
var í aðalhlutverki og bjargaði meist-
aralega hvað eftir annað, en Lee
Sharpe fékk besta marktækifæri
Villa á 10. mínútu — skaut yfir af
10 m færi.
Norwich er aðeins tveimur stigum
á eftir efstu liðunum eftir 1:0 sigur
gegn botnliði Oldham. Markið kom
á 13. mínútu, Dave Phillips skaut,
en Nick Heniy, sem reyndi að
bjarga, skallaði í eigið mark.
Nottingham Forest átti aldrei
möguleika á Goodison Park og tap-
aði 3:0 gegn Everton. Stuart Pearce
og Neil Webb léku ekki með gestun-
um vegna meiðsla og Roy Keane og
Robert Rosario voru í banni.
Ian Rush tryggði Liverpool öll
stigin í Middlesbrough, þegar hann
skoraði, 2:1, níu mínútum fyrir leiks-
lok.
Ipswich, sem hafði leikið fjóra
leiki í röð án þess að skora, gerði
þijú mörk gegn Southampton, en
heimamenn gerðu einu betur og sigr-
uðu. Matthew Le Tissier innsiglaði
sigurinn mínútu fyrir leikslok —
sjötti heimasigurinn í röð.
Sheffield á
Wembley
Sheffield Wednesday tryggði
sér farseðilinn í úrslitaleik
deildarbikarkeppninnar á Wembl-
ey með því að vinna Blackburn
2:1 á sunnudag { undanúrslitum,
en Sheffield vann fyrri leikinn 4:2.
Svíinn Patrick Andersson skor-
aði fyrir Rovers á 35. mín., en
David Hirst gerði vonir gestanna
að engu á 68. mínútu, þegar hann
skallaði í markið eftir sendingu
Chris Waddle. Fimm mínútum síð-
ar lögðu félagamir upp seinnáT'
markið — Mark Bright var einn
gegn einum og Bobby Mimms
varði, en hélt ekki boltanum og
Bright nýtti seinna tækifærið.
HM 19ARA OG YNGRI
Brasilía og England í úrslit?
BRASILÍA leikur gegn Ástralíu og England mætir Ghana í und-
anúrslitum HM U-19 ára landsliða í knattspyrnu. Þessar þjóðir
sigruðu í átta liða úrslitum um helgina og sem fyrr er gert ráð
fyrir að Brasilía og England leiki til úrslita.
Brasilía vann Bandaríkin 3:0 og
gerði vonir Bandaríkjamanna
um að leika í fyrsta sinn í undanúr-
slitum að engu. Brasilíumenn fóru á
kostum og sköpuðu sér mörg mark-
tækifæri, en brutu ekki ísinn fyrr
en á 32. mínútu og eftirleikurinn var
auðveldur.
Julio Leal, þjálfari Brasilíu, sagði
að undanúrslitin í Melbourne yrðu
erfið. „Ástralía er með sterkt lið, sem
fær góðan stuðning, svo við verðum
að bæta okkur á öllum sviðum.“
Ástralía vann Uruguay 2:1 í
bráðabana, en sigurmarkið kom,
þegar 10 mínútur voru liðnar af
framlengingu og þar með var flautað
til leiksloka. Þessi regla er til reynslu
í keppninni og á að koma í veg fyr-
ir að lið spili uppá að úrslitin ráðist
í vítakeppni.
England vann Mexíkó í vlta-
keppni, 4:3, en ekkert var skorað
fram að henni. David Burnside,
þjálfari Englands, sagðist kenna í
brjósti um Mexíkanana. „Það er
ófært að tapa á þennan hátt í átta
liða úrslitum.“ Barnsley Watson,
markvörður, tryggði liði sínu farseð-
ilinn til Sydney með frábærri mar-
kvörslu, sem réði úrslitum.
Ghana vann Rússland 3:0 og voru
öll mörkin gerð á 10 mínútum í
seinni hálfleik. Fyrri hálfleikur var
daufur, en fjör færðist í leikin eftir
hlé, þó fyrsta markið kæmi ekki
fyrr en á 72. mínútu.
Leikirnir í undanúrslitum verða á
morgun.