Morgunblaðið - 16.03.1993, Síða 12

Morgunblaðið - 16.03.1993, Síða 12
ípfámR ptoraittiltfaMfe HANDKNATTLEIKUR / HM I SVIÞJOÐ MURINIM! Morgunblaðið/RAX LEIKMENN Þýskalands mynda hálfgerðan „BERLÍNARMÚR" fyrir framan Héðin Gilsson þegar fyrri hálfleikurinn var úti og staðan 10:5. Héðin náði að koma knettinum í gegnum múrinn, en Andreas Thiel, markvörðurinn gamalkunni, sá við honum og varði. JUDO Bjami 09 Sigurður ápall BJARNI Friðriksson sigraði í þriðja sinn í -95 kg flokki á opna skoska meistaramót- inu í júdó sem fram fór i' Edinborg um helgina. Sig- urður Bergmann komst einn- ig á verðlaunapall fimmta árið í röð — hafnaði í þriðja sæti í+95 kg flokki. Bjarni vann alla andstæðinga sína, sem voru frá Bret- landi, nokkuð auðveldlega — annað hvort armlás eða fasta- taki. Bjarni sigraði einnig á þessu móti árið 1990 og 1991. Vern- harð Þorleifsson varð í 5. sæti í sama flokki og Bjarni og vann Cross, meistarann frá því í fyrra, óvænt í fyrstu umferð. Þórir Rúnarsson keppti einnig í þess- um flokki og tapaði fyrstu glímu, fékk uppreisn og tapaði aftur. Sigurður Bergmann vann bronsverðlaun í +95 kg flokki þar sem 12 keppendur tóku þátt. Þetta er fimmta árið í röð sem Sigurður kemst á verðlaunapall á þessu móti. Hann sigraði 1990 og hefur unnið bronsverðlaún hin fjögur árin. Freyr Gauti Sigmundsson og Karl Halldórsson, sem kepptu báðir í -78 kg flokki, unnu eina glímu og urðu síðan úr leik og höfnuðu í 13. - 16. sæti af 36 keppendum. Eiríkur Kristinsson keppti í -71 kg flokki og tapaði fyrstu glímu og fékk ekki uppseinar- glímu. Sámar þetta alveg rosalega - segir fyrirliðinn Geir Sveinsson eftir skellinn gegn Þjóðverjum „ÉG skil þetta ekki. Þaö er ekk- ert sem kemur okkur á óvart. Þeir eru ekki að gera neitt sem við vissum ekki um eftir að hafa skoðað þá vel á mynd- bandi, bæði í fyrrakvöld og svo aftur í gær og í dag,“ sagði Geir Sveinsson fyrirliði ís- lenska liðsins niðurlútur eftir tapið gétjn Þjóðverjum. Menn koma ekki „mótiveraðir" til leiks og ekki tilbúnir í átökin sem þarf til að sigur vinnist. Þeir komast í 6:0 Skúli Unnar sem er náttúrlega Sveinsson hrikalegt högg og skrifar það er mjög erfitt að frá Svíþjóð vinna það upp. Síðan kemur smá möguleiki í síðari hálf- leik þegar við minnkuðum muninn í tvö mörk en þá koma brottvísanir sem ég tel alveg út í hött. Það hefur einkennt þetta mót hversu dómgæsl- an er slök, á báða bóga og alla kanta. Á meðan handknattleiknum fer fram eru dómararnir staðnaðir eða þeim fer aftur. Þeir virðast alltaf vera að bæta fyrri afglöp sín fram og til baka og það er synd að sjá hvað þeir eru slakir. Ég er samt ekki að afsaka að við töpuðum leiknum því 6:0 byrjunin er eingöngu okkur sjálfum að kenna. Við fengum á okkur ódýr mörk eftir að við höfðum klúðrað sókninni. Þegar sóknin er svona stutt og illa gerð eins og hjá okkur er eins og enginn sé tilbúinn til að hlaupa til baka. Jú það er rétt hjá þér að við fáum of mörg mörk á okkur með langskot- um og þess vegna lagði ég nú til að við myndum skipta yfir í 3-2-1 vörn. Það skánaði heilmikið við það og okkur tókst að halda jafnvægi framan af en þegar staðan er 15:12 auka þeir við eftir að við misstum menn útaf. Við það þurftum við að fara að leika beittari sókn en við gerum það bara einfaldlga mjög illa og skjótum illa á markvörðinn. Menn fóru ekki eftir því sem fyr- ir þá var lagt og talað var um fyrir leikinn. Maður horfði hvað eftir ann- að á okkur gera mistök sem áttu aldrei að þurfa að koma fyrir,“ sagði Geir. „Ég sá Rússana leika gegn Ung- vetjum á undan okkar leik og ég verða að ségja eins og er að mér leist ekkert allt of vel á þá. Það sem er verst við þetta er að við skyldum tapa með sjö mörkum gegn Þjóðveij- um. Það hefði ef til vill verið í lagi að leika illa og tapa með tveimur mörkum, en við lékum mjög illa og töpum með sjö. Með þessu erum við stöðugt að gera okkur erfitt fyrir og það er ekki spuming að leikurinn gegn Rússum verður gífurlega erfið- ur. Ég er ekkert búinn að tala við strákana en manni sárnar það alveg rosalega að tapa svona. Maður gerir sér miklar vonir hérna og ætlar að gera góða hluti en einhvern veginn virðist ekki hafa verið áhugi fyrir því í þessum leik. Við vissum að þetta var lykilleikur og það bara fór allt til ...,“ sagði Geir. ■ ISLAND vann sinn stærsta sig- ur í HM, er Bandaríkjamenn voru lagðir að velli, 34:19. Stærsti sigur- inn áður, var gegn Dönum, 26:16, í HM í Sviss 1986. ■ ÍSLAND náði ekki að leggja Þýskaland að velli - og þar með náðist ekki að vinna þijá leiki í röð í fyrsta skipti í HM._ ■ SÍÐAST þegar ísland lék gegn táningaliðinu frá Þýskalandi - fyrir Ólympíuleikana sl. sumar, vannst sigur, 29:22, á móti í Þýska- landi, en léikurinn gegn þeim eldri tapaðist, 17:21. ■ ÞJÓÐVERJAR tóku þá ákvörðun eftir ÓL í Barcelona, að byggja upp ungt lið fyrir ÓL í Atl- anta 1996. ■ ALLIR leikmenn íslenska landsliðsins hafa fengið að leika í Svíþjóð. Það hefur ekki gerst síðan 1974 í A-Þýskalandi, að allir leik- menn liðsins fengu tækifæri til að spreyta sig. É GEIR Sveinsson, fyrirliði landsliðsins, mun leika sinn 250. landsleik gegn Rússum í kvöld. ■ ÞAÐ voru ekki margir áhorf- endur sem sáu leikina í 1. riðli í l Halmstad í gær. Rétt um 100 Frakkar fögnuðu sigri sinna manna á Tékkum, 26:18. Sefvel ínótt Eg er svo ánægður að ég veit ekki hvar ég á að byija,“ sagði Armin Emrich þjálfari Þjóðveija eftir sætan sigur á ís- lendingum. „Við fórum vel yfir allt sem við ætluðum að gera, bæði í vörn og sókn og strákarnir héldu sig við áætlunina. Ég við þakka þeim öllum fyrir og óska þeim til ham- ingju. Þrátt fyrir að leikið væri eftir áætluninni höfðu leikmenn mínir nægilega mikið sjálftraust til að gera hluti uppá eigin spýt- ur ef þannig bar við. Ég held að við séum á réttri leið og þýskur handbolti mun í náinni framtíð verða í efstu hæð- um eins og honum ber. Ég sef örugglega vel í nótt,“ sagði hann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.