Morgunblaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1993 dqgskrq C 7 SUNNUPAGUR 16/5 MYIMDBÖND Sæbjörn Valdimarsson AKURINN EFT- IRSÓTTI DRAMA TheField irkVi Leikstjóri og handritshöfund- ur Jim Sheridan. Byggt á leik- riti eftir John B. Keane. Aðal- leikendur Richard Harris, John Hurt, Sean Bean, Brenda Fricker, Francis Tomelty. Bresk. Sovereign Pictures 1990. Skífan 1993.107 mín. Bönnuð yngri en 12 ára. Richard karl- inn Harris er ekki dauður úr öllum æðum. Þessi kunni drykkjurútur, gleðimaður og stórleikari átti góðan dag í Hin- um vægðar- lausu og hann heldur vel á spöðunum hér þó hann leiki kannski meira af líkama en sál. Harris fer með hlutverk roskins bónda sem tekur því ekki þegjandi og hljóðalaust er ekkjan Fricker hyggst selja akur sem hann hefur nýtt og betrumbætt í áratugi. Þá hefur sonur Harris (Bean) lítinn áhuga á að yrkja jörðina og hyggst stinga af frá föðurvaldinu með sígaunastúlku. Til að gera hlutina enn verri kem- ur Bandaríkjamaðurinn Berenger á svæðið og ætlar sér að bjóða á móti Harris í akurspilduna. Svo Harris grípur til örþrifaráða. Mikið drama sem Harris heldur uppi með ábúðarmiklum leik (hann var tilnefndur fyrir Óskarsverð- launin fyrir frammistöðu sína). Harðstjórinn hans verður áhorf- andanum minnisstæður, jafnvel þó að efnið fari úr böndunum und- ir lokin og myndin leysist upp í yfirgengilegt drama. Bean er þokkalegur sem sonurinn, sömu- leiðis Hurt í hlutverki bæjarflóns- ins. Sheridan vakti geysimikla at- hygli með sinni fyrstu mynd, Vinstra fætinum, þar eins og nú naut hann aðstoðar stórleikara, Daniel Day Lewis. Sheridan er flinkur við að leikstýra fólki og andlegum átökum en líkamlegt átakaatriði er svo skelfilega illa gert að maður verður hvumsa við. Og Berenger er einsog álfur úr hól. En hvernig í ósköpunum stendur á því að akurinn er jafnan kallaður taðaríl Einhvern tíma fyrr á öldum þekktist þessi merking orðsins en í dag er hún viðtekin eingöngu sem hey af túni. Þetta er því einstaklega álappalegt, hefði þá ekki alveg eins mátt kalla myndina Tugguna, eða eitthvað álíka gæfulegt? Og ekki bætir úr skák að Harris er sagður sæta móköggla, þeir eru hlaðnir í hrauka. DÓMSDAGUR SPENNUMYND Judgement Day: The John List Story * + Leikstjóri Bobby Roth. Hand- rit Dennis Turner. Aðalleik- endur Robert Blake, Beverly D’ Angelo, Alice Krige, Car- roll Baker. Bandarísk. Republic Pictures 1993.94 mín. Hér segir af sönnum, óhugnanlegum atburðum sem gerðust í New Jersey um miðja öldina. Skrifstofumað- urinn John List (Blake) sekkur æ dýpra í þunglyndi, erfiðleikar í peningamálum steðja að, eins er hann haldinn trúarofstæki. Þegar honum er svo sagt upp störfum skýtur hann móður sína, eiginkonu og þrjú börn. Ástæðan fyrst og fremst sú að hann vill tryggja þeim sæluvist í Himna- ríki en er þess jafnframt fullviss að menn sem fremji sjálfsmorð fari beinustu leið til helvítis. Hann leggur því á flótta og í 18 ár tókst List að fara huldu höfði en þá hafðist loks upp á honum fyrir tilstilli þrautseigs FBI- manns. Það verður að segjast eins og er að Blake er heldur fráhrind- andi, jafnvel svo að hann fer í taugarnar á manni og þó svo að hann eigi að túlka vafasama per- sónu fer hann fullmikið fyrir brjóstið -á manni. Annars er myndin þokkalega skrifuð og gerð og Carroll Baker sómir sér vel í hlutverki kolruglaðrar móð- ur Lists. Hin huggulega Beverly D’ Angelo fær heldur þunnt hlut- verk sem og hin suður-afríska Alice Krige. Judgement Day er nokkuð athyglisverð mynd um forvitnilegt mál en það vantar herslumuninn upp á að hún telj- ist virkilega góð. ÁSTIN BLÓMSTRAR DRAMA Foreign Affairs + + + Leikstjóri Jim O’ Brien. Aðalleik- endur Joanne Woodward, Brian Dennehy, Eric Stoltz, Stephanie Beacham, Ian Richardson. Bresk. Turner Home Entertainment. 90 mín. Ollum leyfð. Frábærlega vel leikin mynd um ástir roskinna hjóna. Tæpast er hægt að hugsa sér meiri and- stæður en menn- takonuna Wo- odward sem kynnist verk- fræðingnum Dennehy á flugi til London. Hún þolir tæpast óheflaða framkomu hans en smám saman sér hún hann í nýju ljósi og að undir ófáguðu yfirborðinu er valmenni. Þau verða ástfangin upp fýrir haus þó aldurinn sé orðinn óvenju hár. Þau eru unaðsleg, Dennehy og Woodward, þau skapa svo aðdáun- arverðar persónur að maður hrífst með og er þakklátur fyrir að slíkar gæðamyndir komist á band þó efn- ið höfði ekki beinlínis til hinna ungu viðskiptavina myndbandaleiganna. En ég mæli engu síður með þessari hlýju og ljúfu mynd fyrir alla ald- urshópa. Richardson gefur þeim Woodward og Dennehy ekkert eftir í vel skrifuðu og fyndnu hlutverki hýrs yfirstéttarbreta. Inn í myndina blandast síður gott ástarævintýri Stoltz og Beacham en myndinni leikstýrir O’Brien, sá hinn sami og átti heiðurinn af hinum eftirminni- lega góðu þáttum Dýrasta djásninu Jewels in the Crown BÍÓMYNDBÖND Sæbjörn Valdimarsson Fyrir strákana - For the Boys + + + Afar vel gerð og leikin mynd sem spilar ekki lítið á tilfinningarnar. James Caan og Bette Midler eru hvort öðru betra sem skemmtikraft- ar í þrem stórstyrjöldum; Seinna stríði, Kóreu og Viet Nam. Myndin er óvenjuleg þar sem hún flokkast í fágætann hóp dans- og söngva- mynda sem ekki eiga sérstaklega upp á pallborðið í dag, einkum hjá unglingunum. Myndin hlaut því heldur dræma aðsókn en ég hvet alla til að sjá þessa vönduðu og góðu skemmtun. Hugsandi hjartaknúsari Shue heldur jafnaðar- geði þótt aðrir sjái ofsjónum yfir útliti hans Þegar hinn 26 ára gamli Andrew Shue byrjaði í „Melrose Place“ sýndi hann fram á það að sjónvarpsstöðin Fox ber refs nafnið ekki að ástæðulausu. Shue er fyrrverandi fótboltastjarna og hef- ur útlit sem allir hjartaknúsarar geta verið stoltir af: feimnislegt bros, þykkt krullað hár, og breiðan brjóstkassa. Þrátt fyrir skyndilegar vin- sældir hefur framkoma Andrew Shues ekkert breyst. Hann er áfram mjög afslappaður og áhyggjulaus. En skörp brún aug- un sýna að hann hugsar enga að síður margt. Útkoman er þess vegna Luke Perry-týpa sem hin hugsandi kona getur verið ófeim- in að fara út með. Venjulegur krakki Andrew Shue ólst upp í South Orange í New Jersey, þriðji í röð- inni af fjórum systinum sem öll voru fótboltafrík og var sem krakki álitinn ósköp- venjulegur útlits. í dag býr hann engu að síður yfir eiginleikum sem konur dást mjög að. „Hann hefur full- komna húð,“ segir Courtney Thorne-Smith í kvörtunartón, en hún leikur ásamt Shue í „Melrose Place“. „Mann langar til þess að drepa hann. Hann fær pínulitla bólu á hálfsárs fresti. Þetta er ekki réttlát. Engar bólur og eng- in fita.“ Haugar af aðdáendabréfum Shue heldur sínu jafnaðargeði þó að aðrir sjái stjörnur vegna útlits hans. En hann fær hauga af aðdáendabréfum í hverri viku. „Það er rétt að ég fæ nokkur bréf en það er ekkert merklegt." Hann segir um eigið útlit: „Ég kann betur við orðið aðlaðandi en fallegur. Sönn fegurð tilheyrir manneskju sem er eðlileg og ein- læg. Athafnir og orð fólks skipta mig meira máli en útlit þess. Ég get engu að síður ekki neitað því að útlitið skiptir máli.“ Lítill íburður Shue býr í rúmgóðu húsi í Hollywood ásamt tveimur félög- um frá Dartmouth, þar sem hann spilaði fótbolta. Það er lítill íburð- ur í híbýlum hans en á símsvaran- um hermir hann eftir rödd John F. Kennedy. Þessi eftirherma tekst nokkuð vel að sögn Elisa- beth Shue, eldri systur hans. Hún er einnig leikari og fór meðal annars með hlutverk í gaman- myndinni „Soapdish". Af tilhugalífi Andrew Shue er það að frétta að samkvæmt sögusögnum er núverandi kæ- rastan ein af leikkonunum í „Mel- rose Place“, Thorne-Smith. Shue er langt frá því að vera eins feim- inn og persónan sem hann leikur í þáttunum. „Ef manni líkar við stúlku þá getur maður ekki bara beðið eftir því að hún taki eftir því. Maður verður að taka áhættu og tala við hana. Ef henni líkar ekki við mann þá hefur maður að minnsta kosti lært eitthvað." UTVARP RÁS 1 FM 92,4/93,5 8.00 Fréttir. 8.07 Morgunandakt. Séra Ingiberg J. Hannesson prófastur á Hvoli flytur ritn- ingarorð og bæn. 8.15 Kirkjutónlist. — Prelúdía, fúga og tilbrigði eftir César Franck. Jean Guillou leikur á orgel. — Dýrð, vald, virðing. Þjóðlag i útsetningu Jóns Hlöðvers Áskelssonar. — Drottinn er minn hirðir, 23. Davíðs- sálmur i tónsetningu Jónasar Tómas- sonar. — Gloría eftir Gunnar Reyni Sveinsson. — Ave María eftir Hjálmar H. Ragnars- son. Mótettukór Hallgrímskirkju syng- ur; Hörður Áskelsson stjórnar. — Introduction og Passacaglia eftir Pál (sólfsson. Ragnar Björnsson leikur á orgel. 9.00 Fréttir. 9.03 Tónlist á sunnudagsmorgni. — Dúó í A-dúr ópus 162 fyrir fiðlu og pianó eftir Franz Schubert. Jaime La- redo og Stephanie Brown leika. — Píanótrió nr. 1 í d-moll ópus 49 eftir Felix Mendelssohn. Oslóar-trióið leik- ur. 10.00 Fréttir. 10.03 Mælskulist 3. þáttur. Umsjón: Árni Sigurjónsson. (Einnig útvarpað þriðju- dag kl. 22.35.) 10.45 Veðurfregnir. 11.00 Messa í Háteigskirkju. Presturséra Arngrimur Jónsson. 12.10 Dagskrá sunnudagsins. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.Tónlist. 13.00 Heimsókn. Umsjón: Ævar Kjartans- son. 14.00 Togað i Norðurhöfum. Þáttur um Remould leikhúsið í Hull á Englandi, sem kemur með sýningu til Islands i maí. Umsjón: Hávar Sigurjónsson. 15.00 Hjómskálatónar. Músikmeðlæti með sunnudagskaffinu. Umsjón: Sol- veig Thorarensen. 16.00 Fréttir. 16.05 Drottningar og ástkonur í Dana- veldi 5. þáttur. Umsjón: Ásdis Skúla- dóttir. Lesari með henni er Sigurður Karlsson. (Einnig útvarpað þriðjudag kl. 14.30.) 16.30 Veðurfregnir. 16.35 I þá gömlu góðu. 17.00 Úr tónlistarlífinu. Tvennir tónleikar Kammersveitar Reykjavikur. Frá tón- leikum i Listhúsinu í Laugardal 14. febr- úar sl.: - Blásarakvintett i g-moll óp. 56 nr. 2 eftir Franz Danzi. Blásarakvintett Reykjavikur leikur. Frá Grieg-hátíð í Is- lensku óperunni 16. mars sl.: - Reverie fyrir flautu, selló og hörpu ettir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, — Angelus Domini eftir Leif Þórarinsson, — Magic Island eftir Arne Nordheim. Þórunn Guðmundsdóttir og Njál Sparbo syngja með Kammersveit Reykjavíkur; Ingar Bergby stjómar. Umsjón: Tómas Tómasson. 19.00 Ódáðahraun. „Öræfabyggðir og eyðigarðar af einherja lands skráðust nær og fjær" 2. þáttur. Umsjón: Jón Gauti Jónsson. Lesari: Þráinn Karlsson. Tónlist: Edward Frederiksen Hljóð- færaleikur: Edward Frederiksen og Pétur Grétarsson. 19.49 Dánarfregnir, Auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Veðurfregnir. 19.35 Funi. Helgarþáttur barna. Umsjón: Elísabet Brekkan. (Endurtekinn frá laugardagsmorgni.) 20.25 Hljómplöturabb Þorsteins Hannes- sonar. 21.05 Leslampinn. Umsjón: Friðrik Rafns- son. (Endurtekinn þáttur frá laugar- degi.) 22.00 Fréttir. 22.07 Æskumyndir ópus 15 eftir Robert Schumann. Cristina Ortiz leikur á píanó. 22.27 Orð kvöldsins. 22.30 Veðurfregnir. 22.35 Vorið, sinfóniskt Ijóð eftir Zdenek Fibich. Útvarpshljómsveitin í Prag leik- ur undir stjórn Frantiseks Vajnar. 23.00 Frjálsar hendur llluga Jökulssonar. 24.00 Fréttir. 0.10 Stundarkorn í dur og moll. Umsjón: Knútur R. Magnusson. (Endurtekinn þáttur trá mánudegi.) 1.00 Næturútvarp á samtengdum rás- um til morguns. RÁS2 FM 90,1/94,9 8.07 Morguntónar. 9.03 Sunnudagsmorg- unn með Svavari Gests. Sigild dæguriög, fróðleiksmolar, spurningaleikur og leitað fanga í segulbandasafni Útvarpsins. Veð- urspá kl. 10.45. 11.00 Helgarútgátan. Umsjón: Lísa Pálsdðttir og Magnús R. Einarsson. Úrval dægurmálaútvarps lið- innar viku. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Helgarútgáfan heldur áfram. 13.00 Hring- borðið. Fréttir vikunnar, tónlist, menn og málefni. 14.15 Litla leikhúshornið. Litiðinn á nýjustu leiksýningarinnar og Þorgeir Þorgeirsson, leiklistarrýnir Rásar 2, ræðir við leikstjóra sýningarinnar. 15.00 Maura- þúfan. íslensk tónlist vitt og breitt, leikin sungin og töluð. 16.05 Stúdíó 33. Örn Petersen flytur létta norræna dægurtónlist úr stúdiói 33 í Kaupmannahöfn. Veðurspá kl. 16.30. 17.00 Með grátt i vöngum. Gestur Einar Jónasson sér um þáttinn. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Úr ýmsum áttum Umsjón: Andrea Jónsdóttir. 22.10 Með hatt á höfði. Þáttur um bandariska sveita- tónlist. Umsjón: Baldur Bragason. Veð- urspá kl. 22.30. 23.00 Á tðnleikum. 0.10 Kvöldtónar. 1.00 Næturútvarp á sam- tengdum rásum til morguns. Fréttir kl. 8, 9.10,12.20,16,19, 22 og 24. NÆTURÚTVARPIÐ 1.00 Næturtónar. 1.30 Veðurlregnir. Næt- urtónar. 2.00 Fréttir. Næturtónar. 4.30 Veöurfregnir. 4.40 Næturtónar. 5.00 Frétt- ir. 5.05 Næturtónar. 6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 6.01 Morgun- tónar. AÐALSTÖÐIN FM »0,9 / 103,2 8.00 Þægileg tónlist á sunnudags- morgni. Björn Steinbekk á þægilegu nót- unum. 13.00 Sunnudagur til sælu. 17.00 Hvíta tjaldið. Þáttur um kvikmyndir. Fjallað er um nýjustu myndirnar og þær sem eru væntanlegar. Hverskyns fróðleikur um það sem er að gerast hverju sinni i stjörnum prýddum heimi kvikmyndanna auk þess sem þátturinn er kryddaður þvi nýjasta sem er að gerast i tónlistinni. Umsjón: Ómar Friðleifsson. 19.00 Tonlistardeild Aöalstöðvarinnar. 20.00 Órói. Bjöm Stein- bekk teikur hressa tónlist. 1.00 Ókynnt tónlist til morguns. BYLGJAN FM 98,9 7.00 Morguntónar. 8.00 Ólafur Már Bjömsson. Ljúfir tónar með morgunkaff- inu. Fréttir kl. 10 og 11.11.00 Fréttavikan með Hallgrimi Thorsteins. Hallgrímur tær gesti í hljóðstofu til að ræða atburði liðinn- ar viku. Fréttir kl. 12. 12.15 Pálmi Guð- mundsson. Þægilegur sunnudagur með huggulegri tónlist. Fréttir kl. 14 og 15. 15.05 Islenski listinn. Endurflutt verða 40 vinsælustu lög landsmanna. Jón Axel Ólafsson kynnir. Dagskrárgerð: Ágúst Héðinsson. Framleiðandi: Þorsteinn Ás- geirsson. Fréttir kl. 17. 18.00 Ólöf Marín Ulfarsdóttir. Þægileg og létt tónlist á sunnudagskvöldi. 19.30 19:19. Fréttir og veður. 20.00 Coca Cola gefur tóninn á tónleikum. Tónlistarþáttur með ýmsum hljómsveitum og tónlistarmönnum. Kynnir er Pétur Valgeirsson. 21.00 Pétur Val- geirsson. Ljútir tónar á sunnudagskvöldi. 24.00 Næturvaktin. BYLGJAN, ÍSAFIRÐt FM 97,9 9.00 Sjá dagskrá Bylgjunnar FM 98,9. 19.18 Fréttir 20.00 Sjá dagskrá Bylgjunn- ar FM 98,9. 1.00 Ágúst Héðinsson. End- urtekinn þáttur. BROSID FM 96,7 10.00 Sunnudagsmorgunn með Ellerti Grétarssyni. 12.00 Sunnudagssveifla. Gestagangur og tónlist hjá Gylfa Guð- mundssyni. 15.00 ÞórirTelló með breska og bandariska vinsældalistann. 18.00 JennýJohansen. 20.00 Eðvald Heimisson. 22.00 Róleg tónlist í helgarlok. Lára Yngvadóttir. 24.00 Næturtónlist. FM957 FM 95,7 10.00 Haraldur Gíslason. 13.00 Helga Sigrún Harðardóttir. 16.00 Vinsældalisti íslands, endurfluttur trá föstudagskvöldi. 19.00 Hallgrimur Kristinsson. 21.00 Sig- valdi Kaidalóns. 24.00 Ókynnt tónlist. SÓLIN FM 100,6 11.00 Gullöldin. Jóhannes Ágúst Stefáns- son. 14.00 Sætur sunnudagur. Hans Steinar. 17.00 Nema hvað. Inger Schiöth. Kvikmyndaþáttur. 19.00 6.-7. ératugur- inn. Guðni Már. 21.00 Meistarataktar. Guðni Már & Co. 22.00 Á síðkvöldi. Systa. 1.00 Ókynnt tónlist til morguns. STJARNAN FM 102,2 9.00 Morgunútvarp. 11.05 Samkoma. Vegurinn, kristið samfélag. 13.00 Lof- gjörðartónlist. 14.00 Samkoma. Orð líts- ins, kristilegt starf. 15.00 Sveitatónlist. 17.15 Samkoma. Krossinn. 18.00 Lof- gjörðartónlist. 24.00 Dagskrárlok. Bænastund kl. 9.30 og 13.00. Fréttir kl. 12, 17. ÚTRÁS FM 97,7 12.00 F.A. 14.00 HA! Umsjón: Arnór og Helgi i M.S. 16.00 Iðnskólinn. 18.00 M.R. 20.00 F.B. 22.00-1.00 Herbert Umsjón: María, Birta, Vala og Sigga Nanna í M.H.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.