Morgunblaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 12
12 C dagskrq MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1993 Hljómsveltin Hljómsveitin - Hljómsveitarmeðlimina um frægð og frama. þokkalega góð tök á honum. Af fyrri leikreynslu Pollack er það að segja að hún hefur t.d. komið fram í mynda- flokknum A fer- tugsaldri (thirtysome- thing). Zachary Throne leikur hljóm- borðsleikarann Lenny. Throne sýndi snemma að hann hafði tónlistar- hæfíleika og aðeins fjögura ára gamal spilaði Throne samið lög fyrir Hijómsveit- ina. Leikreynslu sína hefur Throne frá öðrum myndaflokkum líkt og Cheryl Pollack, þar má helst nefna Melrose Place. Eini svarti hljómsveitarmeðlim- urinn er leikinn af Aiex Desert. Hann fer með hlutverk blíðlynda nbassaleikarans Stan. Desert út- skrifaðist frá New Yorks High School of Per- forming Arts og hefur farið með hlutverk í þátt- um eins og Vistaskiptum (A Different World). Auk þess að leika Stan spilar Desert með hljómsveitinni F Cat en hún hefur nýverið gefið út piötu. Tasia Valenza leikur Jodie hina ófrísku kærustu Dizzy. Hlutverk Valenza er það eina sem ekki krefst tónlistar- kunnáttu af því að Jodie er ekki meðlimur í hljómsveitinni. Það er þó aldrei að vita nema eitthvað komi til með að heyrast frá Valenza í framtíðinni þar sem móðir hennar er söngvari. SJÓNVARPIÐ hefur tekið til sýningar myndaflokkinn Hljómsveit- ina (The Heights). Hann fjallar um átta hress ungmenni sem stofna hljómsveit og láta sig dreyma um frama á sviði rokktónlistar. En sá draumur hefur þegar ræst fyrir leikurunum í raunveru- leikanum. Eitt laganna úr myndaflokknum „Talk to an Angel“ hefur nefnilega notið mikila vinsælda í Bandaríkjunum og vermt toppsæti á vinsældarlistum. Leikararnir eru allir hljóðfæra- leikarar í raunveruleik- anum Stjórnendur myndaflokksins vildu leik- ara sem kynnu á hljóðfæri. Ailir leikararn- ir urðu þess vegna að fara í hæfnispróf og sanna sig sem tóniistarmenn til þess að fá hlutverk. Þeir leikarar er fengu hlutverkin hafa ýmis konar tónlist- arreynslu. Klassískur trommuleikur og óperusöngur Ken Garito fer með hlutverk pípulagningarmannsins Dizzy sem spilar á trommur með hljómsveit- inni. Garito byijaði að spila á trommur í gagnfræðaskóla og hefur komið fram með ýms- um hljómsveit- um. Hann tekur spilamennsku sína alvarlega enda útskrifað- ur úr klassískum trommuleik frá New York University. Auk þess að spila og leika þá hefur hann skrifað tvö lög fyrir myndaflokkinn. Charlotte Ross leikur Hope, einu persónuna í myndaflokknum sem kemur af sterk- efnuðu fólki. Ross hefur hlot- ið þjálfun sem óperusöngvari og þykir hafa nokkuð góða tónlistarhæfí- leika. Hún er I m.a. að vinna að sinni eigin plötu 1 þessa dagana. Fyrir utan að fást 1 við tónlist hefur Ross gert það gott sem leikkona. Hún var t.d. útnefnd tvisvar til Emmy-verðlauna fyrir hlutverk sem hún fór með í sápu- óperunni „Days of Our Lives“. Feimna skáldið Alex er leikinn af James ýValter. Hann hefur að eigin sögn gutlað á gítar frá 13 ára aldri. Nýlega kom út smá- skífa með hljómsveitinni MOR þar sem Walter syngur. Auk spilamennskunnar hefur hann stundað nám í kvikmyndagerð, leik- ið í auglýsingum fyrir Levi’s-galla- buxur, og komið fram í kvikmynd- um. Shawn Thompson fer með hlut- verk JT, aðalsöngvarans í mynda- flokknum. Thompson spilaði með eigin hljómsveit í New York þegar hann fékk hlutverkið. Hann hefur samið nokkur lög fyrir Hljómsveit- ina og þykir nokkuð liðtækur tón- listarmaður. _________________ Einnig hefur Thompson sam- ið tónlist fyrir kvikmyndir. Tónlist • eftir hann var t.d. í gamanmyndinni „Hot Shots“. Eins og Charl- otte Ross hafði Thompson leikið í vinsælum sápu- óperum í Bandaríkjunum áður en hann fékk hlutverk JT. Kvenkyns saxafónleikari I myndaflokknum lætur saxafón- leikari hljómsveitarinnar, Rita, enda ná saman með því að keyra vöru- bfl. Þessa kjarnakonu leikur Cheryl Poilack. Hún byijaði að læra á saxa- fón tíu ára gömul og er talin hafa BIOIN I BORGINNI Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson BÍÓBORGIN Skyttan ★ Tom Berenger leikur leyniskyttu í lam- aðri frumskógarmynd sem vantar rök- réttan söguþráð. Handagangur í Japan ★Vi Meiniaust grín um hafnaboltahetju sem heldur til Japans að keppa þegar ferillinn fer að dala. Best geymd á myndbandi. Stuttur Frakki (sjá Sagabíó) Ljótur leikur ★ ★ ★Vi Ögrandi, afargott verk um tregafull mannleg samskipti og ómanneskjuleg átök og umhverfí. Rómantísk spennu- mynd. BÍÓHÖLLIN Skíðafrl í Aspen ★ Vinskapur og rómantík og frægur skíðastaður. Ospennandi langloka með nokkrum góðum skíðaatriðum. Avallt ungur ★ ★ Mel Gibson í dularfullri samsuðu meló- drama og vísindaskáldskapar. útkom- an geðfelld vitleysa fyrir klútafólk. Háttvirtur þingmaður ★ ★ 'h Smákrimminn Eddie Murphy kemst á þing og verður þjóðhetja. Murphy í ágætisformi en efnið mætti vera fyndnara. Konuilmur ★★★■/! Afar vönduð mynd um samband ólíkra einstaklinga. Eftirminnileg fyrir vel- skrifað handrit og afburðaleik A1 Pac- inos. Bambi ★ ★ ★ Ein af sígildu Disney myndunum sem kann ekki að eldast og enn gleður mannsins hjarta. Hinir vægðarlausu ★ ★ ★ ★ Eðalvestri Clint Eastwoods endur- sýndur í tilefni af níu útnefningum til óskarsverðlauna. Stórkostleg bíó- mynd. HÁSKÓLABÍÓ Lifandi ★★★ Afar vel sviðsett mynd um ótrúlegar mannraunir sem gerðust hátt uppi í Andesfjöllum fyrir tveimur áratugum. Mýs og menn ★ ★ ★ Ljúfsár og vönduð kvikmyndagerð uppúr frægri sögu Johns Steinbecks um vináttu og náungakærleik. John Malkovich er frábær sem Lenny. Jennifer 8. ★ ★ Brokkgengur eltingarleikur lögreglu við fjöldamorðingja. Gott upphaf og endasprettur en langur og lítt spenn- andi miðkafli dregur myndina niður. Vinir Péturs ★ ★ Vi Endurfundir vinahóps eftir tíu ára fjarvistir. Bresk útgáfa af „The Big Chill“ en hvergi nærri eins frísk og frumleg og fyrri myndir Kenneths Branaghs. A engu að síður sína góðu spretti. Elskhuginn ★★'/i Erótísk ástarsaga frá Indókína í leik- stjórn Jean-Jacques Annaud um kyn- ferðislegt samband ungrar franskrar stúlku og helmingi eldri Kínveija. Umdeild fyrir hispursleysi enda An- naud sérstakur raunsæismaður. Karlakórinn Hekla ★★ Bestu stundir Karlakórsins Heklu eru söngatriðin þegar kórinn syngur sig inní hjörtu áhorfenda. Gamanþáttur- inn brokkgengur. Howards End ★★★ Frábærlega vel leikin og gerð bíóút- gáfa af sögu E. M. Forsters sem ger- ist um aldamótin síðustu. Bókmennta- leg, bresk og býsna skondin. LAUGARÁSBÍÓ Feilspor ★ ★ ★ Góð sakamálamynd um glæpahyski sem stefnir á smábæ þar sem hug- rakkur lögreglustjóri bíður þeirra. Fínn leikur og spennandi saga undir leikstjórn Carls Franklins. Flissi læknir ★ Geðsjúklingur sem telur sig iækni gerir banvænar aðgerðir á fórn- arlömbum sínum í vondri unglinga- hrollvekju. Hörkutól ★ 'h Lögreglumaður gerist mótorhaus til að koma upp um glæpsamlega mótor- hjólaklíku. Klisjukennd og iítt spenn- andi þótt byggð sé á sönnum atburð- um. Nemo litli ★ ★ ★ Ungur drengur bjargar draumaland- inu frá glötun í fallegri og hæfilega ógnvekjandi teiknimynd fyrir yngri kynslóðina. Talsetningin ómetanlegt innlegg. REGNBOGINN Loftskeytamaðurinn ★★★ Vel leikin mynd um stórbrotinn ná- unga sem setur heldur betur svip sinn á mannlífið í norskum smábæ. Byggð á sögu eftir Knut Hamsun. Siðleysi ★★★'/! Frábærlega gerð mynd Louis Malle um ástarsamband sem hefur mjög slæmar afleiðingar í för með sér. Leik- hópurinn góður og leikurinn sterkur. Ferðin til Las Vegas ★ ★ ★ Unaðsleg kómedía frá Andrew Berg- man um tregan brúðguma sem er við það að missa ástina sína í hendur milla eftir slæman póker. Frábærar persónur og Elvis-eftirlíkingar. Englasetrið ★★★ Forpokaðir sænskir sveitavargar reyn- ast besta fólk þegar nútímaleg borgar- börn eru búin að skólpa af þeim skin- helgina. Bráðhress. Tommi og Jenni mála bæinn rauð- ann ★★ Lítið fer fyrir gamla góða ástar/hat- urssambandi félaganna í mynd sem einkum ætti að hugnast yngsta fólk- inu. SAGABÍÓ Stuttur Frakki ★★ Skemmtileg mynd um Frakka sem lendir í viilum í Reykjavík. Leikur ágætur. Eggert Þorleifsson stelur sen- unni og Frakkinn er mjög góður. STJÖRNUBÍÓ Öll sund lokuð ★ ★ Van Damme er köttur í bóli bjarnar í afar illa leikinn í nútímaútgáfu af vestranum Shane. Átakaatriðin góð. Helvakinn m ★ >/2 Nálarhausinn ætlar að breyta jörðinni í helvíti í þessari þriðju helvakamynd sem einkennist af klénu handriti og slöppum leik en sæmilegum brellum. Hetja ★ ★ Vi Hnökrótt, skopleg ádeila um ímyndað- ar hetjur og ljölmiðlafár. Góður Hoff- man.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.