Morgunblaðið - 19.05.1993, Síða 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ1993
BLAÐ
^HAGKVÆMS
KVOTA
markaðurinn
Sími 614321 ■ Bréfsími 614323
EFNI
Fyrirtæki
3 Fyrirtæki í skipa-
þjónustu samein-
ast í Skipanetinu
Afiabrögð
4 Aflayfirlit og
staðsetning fiski-
skipanna
IVIarkadsmái
3 Rússneski flotinn
úreltur og fisk-
iðnaðurinn nán-
ast f rúst
Greinar
7 Hrefnuveiðar
Norðmanna
LENGSTA GEIRNYTIN
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
SKIPVERJAR á togaranum Árbaki EA frá Akureyri veiddu á dögun-
um stærstu geirnyt, sem vitað er til að veiðzt hafí hér við land. Kykv-
endið var 137 sentimetrar að lengd og vóg um 15 kíló. Aðra slíka
fengu þeir I sama túr, en hún var „aðeins" 135 sentimetrar að lengd.
Fiska þessa, sem einnig ganga undir nöfnunum hámús, særotta og
rottufiskur, fengu þeir á grálúðuslóð út af Berufjarðarál á um 450
til 460 faðma dýpi. Það er Hallur Jósepsson, skipveiji á Árbaki, sem
er hér með stóru geirnytina í fanginu. í bók Gunnars Jónssonar, is-
lenzkir fískar, segir að geimyt verði lengst 120 sentímetrar.
/
Erum mestu syndaselimir
í rælguinnflutmngi til EB
Röng upprunavottorö héðan
næstum því 60% tollsvikanna
RÖNG uppruna-
vottorð og önnur
sviksemi með sjáv-'
arafurðir, sem
fluttar eru til Evr-
ópubandalagsins, EB, samkvæmt tvíhliða samningi, kostuðu bandalagið
sex milljónir ECU, 464 milljónir ísl. kr., á síðasta ári. Kemur þetta fram
í skýrslu framkvæmdanefndarinnar fyrir 1992 en það vekur athygli, að
íslensk útflutningsfyrirtæki voru þá mestu syndaselirnir með hátt í 60%
svikanna. Helstu niðurstöður skýrslunnar eru birtar í Eurofish Report, nú
í mai.
í EB-skýrslunni segir, að ýmiss kon-
ar sviksemi varðandi inn- og útflutning
og framlög frá EB sé metin á rúmlega
270 milljónir ECU, næstum 21 milljarð
ísl. kr., og er hún að langmestu leyti
tengd landbúnaðinum. Fiskurinn svar-
ar ekki nema til 2% svikanna en hvað
hann varðar er oftast um að ræða röng
upprunavottorð á fiski frá þriðja landi.
Er útdráttur um fiskinn svohljóðandi:
Noregur: Röng upprunavottorð,
sérstaklega hvað varðar þorsk, svara
til þess, að svikist hafi verið um að
greiða 1,3 millj. ECU, rúmar 100 millj.
ísl. kr., í toll til EB.
Island: íslensk fyrirtæki fluttu inn
rækju frá þriðja landi og fluttu hana
síðan til EB á „EUR.1“ skjölum, sem
þýðir, að rækjan sé íslensk og skuli
því tolluð í samræmi við það. Náin
samvinna milli svikadeildar EB og við-
komandi yfirvalda á íslandi hefur tak-
markað þessa iðju verulegu en áætlað
er, að hún hafi kostað EB 3,5 millj.
ECU, 270 millj. kr., á síðasta ári.
Seychelles: Frá Seychelles-eyjum
hefur verið fluttur inn niðursoðinn tún-
fiskur á „EUR.1“ skjölum en vitað er,
að sumt af fiskinum veiddu skip frá
þriðja landi. Tollsvikin er áætluð 77,25
millj. kr.
Auk þessa á Evrópubandalagið úti-
standandi skuldir frá fyrri árum, það
er fyrir 1992, og eru þær áætlaðar
nærri 800 millj. kr. Kemur þar til
dæmis Tæland við sögu en þó einkum
Máritíus, Fiji og Salómonseyjar og að
mestu leyti vegna túnfisks.
Fréttir Markaðir
Mikil sala
á bobbingum
■ SALA á millibobbingum
sem Gúmmivinnslan á Akur-
eyri framleiðir hefur aukist
jafnt og þétt, árið 1988 seldi
fyrirtækið 5 tonn af þessari
vöru, en á síðasta ári var
salan komin upp í 100 tonn.
Millibobbingar Gúmmí-
vinnslunnar eru um borð í
langflestum íslenskum fiski-
skipum og farið er að huga
að útfíutningi./2
----------
Fiskkaup
selja mikið
af saltfiski
■ Á FYRSTU fjórum mán-
uðum þessa árs hefur fyrir-
tæki Jóns Ásbjörnssonar,
Fiskkaup hf., selt 1.053 tonn
af unnum saltfiski til Spánar
en til samanburðar má geta
þess að allt árið í fyrra nam
salan á Spánarmarkað 2.261
tonni. Fiskkaup hafa nýlega
tekið í notkun nýtt verkun-
arhús í Reykjavík og eykur
það vinnslugetuna verulega
frá því, sem var./8
Mikið veitt
af alaskaufsa
Heildarveiði atlantshafs-
þorsks og alaskaufsa
(millj. tonn) 7
- Alaskaufsi
[— Atlantshafs-
þorskur
4
3
1961 19661971 19761981 19861991 1993
2
1
0
■ ALASKAUFSI er mest
veidda einstaka fisktegund í
veröldinni. Árlega veiðast um
6 milljónir tonna og eru þar
Rússar afkastamestir. Síð-
ustu 30 ár hefur afli af
alaskaufsa nær stöðugt farið
vaxandi. Því er öfugt farið
með Atlantshafsþorskinn, en
afli af honum hefur á sama
tíma fallið úr um 3 milljónum
tonna niður í 1,2 og bendir
fátt til annars en sú þróun
haldi áfram. Afli hér við land
hefur fallið verulega, sömu
sögu er að segja um Kanada,
Færeyjar og Norðursjó./6
BEST I NORÐURSJONUM
BEST I ATLANTSHAFINU
BEST I KYRRAHAFiNU