Morgunblaðið - 19.05.1993, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ1993
Fiskkaup hafa selt 1.053
tonn af sattfíski til Spánar
Á FYRSTU fjórum mánuð-
Er tæplega helmingur af *£££*!£!■
aliri sölu á síðasta ári kauphf - “» I1;°»* fon.n af
unnum saltfiski til Spanar
en til samanburðar má geta þess að allt árið i fyrra nam salan á Spánar-
markað 2.261 tonni. Saltfiskútflutningur var sem kunnugt er gefinn frjáls
um síðustu áramót en fram að þeim tíma hafði Jón undanþágu til að selja
einum aðila á Spáni saltfisk. I ár hefur hann hafið framleiðslu fyrir aðra
aðila. Það er netafiskur í öðrum gæðaflokk en línu- og krókafiskurinn fer
í. Af þessu magni í ár eru 180 tonn verkaður netafiskur.
Jon Asbjörnsson segir að það sé
engin spurning að lækkun tolla á þess-
um markaði kæmi sér vel fyrir útflutn-
ingsfyrirtæki hans. Markaðshlutdeild
hans á Katalóníumarkaði á Spáni er
nú um 33% og Sagu, innflutningsfyrir-
tækið sem hann verslar við þar, yrði
samkeppnishæfara um verð við aðra
innflytjendur á þessum markaði sem
er sá stærsti fyrir tandurfisk á Spáni.
„Við höfum eingöngu verkað línu-
og krókafisk fyrir þennan markað og
frá áramótum höfum við selt þangað
meira magn en á sambærilegum tíma
áður,“ segir Jón. Af útflutningnum í
fyrra voru 40% flök og 57% flattur
fiskur en 3% ýmsar aukaafurðir eins
og gellur og kinnfiskur. Af flökunum
fóru 91% í A-flokk og af flatta fiskin-
um fór 77% í A-flokk.
Frelsið skapar möguleika
Jón segir að það sé ljóst að frelsið
í útflutningi hafi skapað möguleika
fyrir hann til markaðssóknar á öðrum
vígstöðvum. „Við erum byijaðir að
framleiða fyrir aðra en Sagu úr neta-
fiski en gæðin á þeirri vöru eru ekki
eins mikil og linufiskinum," segir Jón.
SIGURBJÖRG ÓF HLAUT GÆÐASKJÖLDINN
Skipshöfnin á frysti-
togarnaum Sigur-
björgu ÓF 1 hlaut
gæðaskjöld Coldwat-
er í Bandaríkjunum
fyrir góða fram-
leiðshi á síðasta ári.
Fimm frystihús
fengu gæðasköldinn
en Sigurbjörg er eina
skipið sem hlaut
viðurkenninguna.
Myndin er tekin við
afhendingu skjaldar-
ins. F.v. Svavar B.
Magnússon útgerðar-
maður, Vilhjálmur
Sigurðsson skipstjóri
á Sigurbjörgu OF,
Sigurgeir Magnús-
son útgerðarmaður
og Páll Pétursson
gæðastjóri hjá
Coldwater í Banda-
ríkjunum.
FÓLK
Eskfírðingar fá
viðurkenningn
■ PALL Pétursson, gæða-
stjóri Coldwater, dótturfyrir-
tækis SH í Bandaríkjunum,
er nú á ferð
um ísland
með gæða-
skjöldinn svo-
kallaða. Hann
er viðurkenn-
ing til þeirra
framleiðenda
inna SH, sem
bezt standa
að framleiðslu
sinni hvað gæði varðar og get-
ur hann bæði fallið í skaut frys-
tiskipa og frystihúsa. Eitt þess-
ara frystihúsa er Hraðfrysti-
hús Eskifjarðar, en gárung-
amir segja að við liggi að Alli
ríki og hans menn séu áskrif-
endur að skildinum. Að auki
fengu IíaraldurBöðvarsson
hf. á Akranesi, Utgerðarfé-
lag Akureyringa, Skjöldur á
Sauðárkróki, Fiskiðjan
Freya á Suðureyri ogfrysti-
togarinn Sigurbjörg OF
gæðaskjöldinn að þessu sinni,
en hann er veittur árlega.
Halldór í
forsæti ÚA
MHALLDÓR Jónsson, bæjar-
stjóri á Akureyri, var kjörinn
formaður stjórnar Útgerðar-
Halldór Jónsson LeÓSSOn sit-
ur áfram í
stjórn ÚA. Auk þeirra skipa
stjórnina þeir. Pétur Bjarna-
son, Erlingur Sigurðsson og
Sigurður Jóhannesson. Á
sama fundi voru fulltrúar ÚA
í stjóm Mechlenburger Hoc-
hseefischerei í Rostock
kjörnir. Þeir eru Björgólfur
Jóhannsson, Gunnar Ragn-
ars og Erlingur Sigurðsson.
ÚA keypti 60% af hlutafé
þýzka útgerðarfélagsins í
fyrra og munu togarar þess
ýmist landa afla sínum á
Akureyri eða sækja þangað
nauðsynlega þjónustu. Togar-
amir stunda meðal annars
veiðar við Austur-Grænland,
en þeir hafa kvóta hjá EB,
en þeir eru einnig á úthafs-
karfa á Reykjaneshrygg
utan 200 mílna markanna.
Aðalsteinn
Jónsson
Hunangsgljáð grásleppa
GRÁSLEPPUKYNNING stendur nú yfir á nokkrum stöð-
um á landinu í þvi skyni að auka nýtingu og neyzlu á
ry^7fT|TlTjfrn| þessum fiski. Til þessa hafa nær
MMaayyLiaiÍMJLLaJl eingöngu hrognin verið hirt, en
það þýðir að um 5.000 tonnum af fiski er fleygt í sjó-
inn. Úr þeim mætti vinna um 1.200 tonn af flökum. Ulf-
ar Eysteinsson, matreiðslumaður á veitingahúsinu Þrír
frakkar, er einn þeirra, sem kann að matreiða gráslepp-
una. í réttinn, sem hann kynnir lesendum Versins hér
þarf:
2 flök af grásleppu
1 gulrót
6 sveppi
1/2 meðaistóran lauk
2 rif af hvítlauk, smátt skorn-
um
1 tsk fersk engiferrót, smátt
söxuð
2 msk hunang
1/2 dl hvítvín eða mysu
1/2 dl fisksoð
1/2 tsk karrý
1/2 dl soyjasósu
Hreinsið grásleppuna og skerið í strimla. Veltið upp úr
hveiti og setjið á pönnu með olíu. Seljið grænmeti í
strimlum út í og kryddið með karrý og hunangi. Bætið
engifer og hvítlauk út í, þegar búið er að snúa fiskin-
um. Hellið hvítvíni, fisksoði og soyjasósu út í og látið
sjóða smástund. Með réttinum má ýmist hafa soðnar
kartöflur, grjón, grænmeti eða brauð.
Flutningur EIMSKIPS á saltfíski til Ítalíu er eitt dæmið um sveigjanlega, hagkvæma
og örugga þjónustu við saltfisksútflytjendur til Miðjarðarhafslanda. Val á milli
nokkurra leiða til áfangastaðar gefur kost á mismunandi verði og afhendingartími er
sveigjanlegur. Öflugur bílafloti erlendis og sérhæft starfsfólk EIMSKIPS hér heima
og á skrifstofum okkar í Evrópu annast öruggan flutning alla leið.
Fyrsta flokks kæligámar tryggja kjörhitastig á flutn-
ingstíma (1 - 4 °C) og í Sundahöfn eru kæligeymsl-
ur sérútbúnar með geymslu á saltfiski í huga.
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞER LEIÐ
- fyrir íslenskan saltfisk!
Reykjavík
Flutn.tími:
Aflt.dagur:
ImniiiTgham Hamborg 1 Antwerpen I Rotterdam 1
Milano 1 Milano 1 Milano Milano
Palermo Palermo Palermo Palermo
Napoli Napoli Napoli Napoli
7 dagar 8 dagar 9 dagar 10 dagar
Þriðjud. Fimmtud. Föstud. Laugard.
* Miðað er við 7 - 10 daga ferðir með gámi aðra leiðina. Brottför alla miðvikudaga.
Hagstæðar
og íjölbreyttar
Með
EtWSKVP
tíltato'
sólarlandaferðir