Morgunblaðið - 22.05.1993, Qupperneq 1
Ljósmyndarinn Mary Ellen Mark sýnir á Kjarvalsstöðum
hætt er að segja að þessi sýning á
Omyndum hinnar bandarísku Mary
Ellen Mark sé merkasta ljósmynda-
sýning sem sett hefur verið upp hér
á landi, allar götur frá því að myndir
tíu franskra ljósmyndara, og þeirra
á meðal Henri Cartier-Bressons, voru settar upp
í Listasafninu fyrir rúmum áratug. Og næsta
stórsýning þar á undan var Fjölskylda Mannsins,
sem kom hingað í lok sjötta áratugarins. „Þetta
er í senn ögrandi og hrífandi sýning“, skrifaði
listrýnir The New York Times. „í myndum sínum
nýtir Mary Ellen Mark sér stílræn einkenni heim-
ildarljósmynda, þar sem tengslin við félagsfræði-
lega þætti eru sterk, og ákveðin og sérstök sýn
hennar snertir spurningar um eðli og tilgang til-
vistarinnar.“
Á sýningu Mary Ellen gefur að líta 125 svart-
hvítar ljósmyndir, sem spanna feril hennar, eða
25 ár. Elstu myndirnar eru frá 1965, þegar hún
ferðaðist um Tyrkland í eitt ár eftir að hún lauk
námi. Mary Ellen hefur alltaf ferðast mikið og
eftir Tyrklandsdvölina myndaði hún víða í Evr-
ópu, Suður-Ameríku og loks fór hún til Ind-
lands, lands sem hún tók þegar ástfóstri við og
hefur hún síðan eytt þar ófáum mánuðunum.
Yngstu myndirnar á sýningunni eru einmitt frá
Indlandi, röð mynda úr ferðasirkusum; portrett
af trúðum, dvergum, fimleikafólki, dýrum og
dýratemjurum. Þetta eru oft grátbroslegar ljós-
myndir, en samt fullar af hlýju, formfagrar og
sérstakar, og dæmigerðar fyrir þann persónulega
stíl sem Mary Ellen Mark hefur verið að þroska
með sér í rúman aldarfjórðung.
í vetur var ég það lánsamur að geta starfað
með Mary Ellen Mark í New York. Það er ein-
stakt að fylgjast með Mary Ellen mynda, að sjá
þá orku sem geislar af henni, einbeitinguna sem
er alltaf eins og hún sé að taka sína bestu mynd,
og síðan umhyggjuna fyrir þeim sem hún mynd-
ar. í eitt sinn var hún að gera röð mynda af
eyðnisjúklingum í úthverfum borgarinnar, þar
sem aðstæðurnar voru iðulega æði nöturlegar.
En af sannri einlægni og umhyggjusemi snéri
hún sér alltaf beint að efninu, talaði um sjúkdóm-
inn og erfiðar aðstæðurnar, og hún hefur þann
mcmnlífsins
EFTIR EINAR FAL INGÓLFSSON
„Þessi sýning gefur yfirlit yfir það besta sem Mary
Ellen Mark hefur gert síðustu tuttugu og fimm árin,
og staðfestir að hún er líklega hæfileikaríkasti heim-
ildaljósmyndarinn starfandi í dag. Fyrir utan Sebast-
iao Salgado þá fæst engihn við jafn ögrandi og erf-
ið viðfangsefni, en Mark einbeitir sér að því að skrá-
selja líf þeirra sem hún kallar „hina ófrægu; utan-
garðsmenn samfélagsins — heimilisleysingja, fíkni-
efnaneytenda og sjúklinga." Þessi dómur birtist í
Los Angeles Times fyrir tveimur árum tæpum, þeg-
ar sýningin „Mary Ellen Mark: 25 ár“ var opnuð í
Bandaríkjunum. Hún hefur síðan verið á för um
heiminn og vakið gríðarmikla athygli, og bók með
myndunum hefur náð metsölu. Sýning Mary Ellen
Mark opnar á Kjarvalsstöðum í dag og gefst íslend-
ingum þar sjaldgæft tækifæri til að sjá verk eins
af leiðandi ljósmyndurum heimsins í dag.
Götubarn, Trabzon, Tyrklandi, 1965.
Mary Ellen Mark/Library
MENNING
LISTIR
B
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 22. MAI 1993
BLAÐ
MYNDIR
f rá jöðrum