Morgunblaðið - 22.05.1993, Síða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAI 1993
eiginleika að geta unnið traust
þeirra sem hún hittir og ræðir við.
Að loknum löngum dögum og erfið-
um, og búin að smella af mörgum
myndum, þá var Mary Ellen yfir-
leitt ákaflega þreytt en um leið
ánægð, þar sem hún vissi að hún
hafði gert vel og fólkinu hafði þótt
gott að spjalla við hana. Einn vina
hennar, franski kvikmyndaleik-
stjórinn Louis Malle, segir að það
sé í og með þessi eðlislæga sam-
kennd með fólki sem geri Mary
Ellen að einstökum ljósmyndara.
„Hún kemur aldrei illa fram við
neinn“, segir hann. „Hún finnur til
með fólki, deilir þjáningum með
því, vandræðum og gleði. Meira að
segja þegar hún tók portrett af
nokkrum nasistum þá reyndi hún
ekki á nokkurn hátt að gera þá
fáránlega eða fella yfir þeim dóma.
Þá dáist ég að endalausri orkunni
sem Mary Ellen býr yfir. Hún er
aldrei alveg ánægð, og vitandi að
hún getur gert betur, þá heldur hún
áfram í sinni endalausu leit að hinu
algilda að baki hinu sérstæða."
Mary Ellen Mark segist hafa
áhuga á fólki á jöðrum samfélags-
ins. „Ég finn til ákveðins skyldleika
með þeim sem hafa ekki fengið
bestu tækifærin", segir hún. „Eg
stend alltaf með þeim, og kannski
fínnst mér það fólk eðlilegra. Þar
sem ég vil gera frekar en nokkuð
annað, er að staðfesta tilveru þessa
fólks, að sýna að það á sér líf.“
Þessi áhugi hefur verið drifkraftur-
inn í starfí hennar öll þessi ár.
Myndagreinar Mary Ellen hafa birst
í kunnustu tímaritum heimsins, oft-
ast hefur frumkvæðið og hugmynd-
in komið frá henni sjálfri, og listinn
litmyndum — en þetta er ein af
fáum greinum sem Mary Ellen hef-
ur myndað í lit — kynnist áhorfand-
inn lífinu inni í húsunum, sér stúlk-
urnar með viðskiptavinum og í sínu
daglega lífí. Fýrir tíu árum eyddi
Mary Ellen síðan drjúgum tíma með
útigangsbömum í Seattleborg, og
gerði kunna bók um þau, kallaða
Streetwise. Síðar gerði hún sam-
nefnda heimildarkvikmynd um
börnin ásamt eiginmanni sínum,
kvikmyndaleikstjóranum Martin
Bell, og var hún útnefnd til Óskars-
verðlauna í flokki heimildarmynda.
Þau hjón snéru aftur til Seattle
fyrir tveimur árum síðan og gerðu
þá leikna kvikmynd, byggða á ýmsu
því sem þau kynntust við gerð
Streetwise. Sú kvikmynd, kölluð
American Heart og með leikaranum
Jeff Bridges í aðalhlutverki, var
frumsýnd fyrir viku í Bandaríkjun-
um við ákaflega góðar undirtektir.
Þau hjón hafa unnið meira saman
og þykir samstarfíð gott. Þannig
eyddi Mary Ellen fyrst sex mánuð-
um árið 1989 með sirkusunum á
Indlandi, í fyrra snéru þau saman
þangað og Martin gerði heimildar-
mynd um sirkusana fyrir National
Geographic og nú er rithöfundurinn
John Irving að leggja lokahönd á
handrit að leikinni mynd sem þau
hjón hyggjast gera á Indlandi með
sirkuslífið í bakgrunni.
Á ferli sínum hefur Mary Ellen
aftur sýnt fram á einstæðan hæfi-
leika til að fá aðgang að stöðum
sem aðrir ljósmyndarar kæmust
aldrei inn á, og dytti varla í hug
að reyna við; og þegar hún er kom-
in þangað þá tekur hún áhrifamikl-
ar og hrífandi ljósmyndir. í bestu
Li&ug stúlka með hvolpinn sinn, Grent Rnj Kamal sirkusinn, Indlandi, 1989.
Mary Ellen Mark/Library
Mary Éllen Mark/Library
Laurie í baókarinu ó Deild 81, Oregon Fylkissjúkrahúsinu, Salem, Oregon, 1976.
yfír kunn verkefni hennar er orðinn
langur. Hún myndaði heróínsjúkl-
inga í London; snemma á sjöunda
áratugnum myndaði hún í sex vikur
á öryggisdeild með kvensjúklingum
á geðsjúkrahúsi í Bandaríkjunum
og hún skrásetti líknarstarf Móður
Theresu í Indlandi. Þá eyddi Mary
Ellen nokkrum vikum í Falkland
Road í Bombay, helstu vændisgötu
borgarinnar. Þar komst hún í kynni
við ungar vændiskonur og
„madömmur“, og í raunsæislegum
myndum hennar finnur maður
sterkt fyrir nánu sambandi ljós-
myndarans og fyrirmyndarinnar,
en hún gerir sér far um að setja
sig eins vel inn í líf fólksins og hún
mögulega getur. „Aðstæður fólks
eru oft svo öfgafullar að maður
getur ekki fengist við þær fyrr en
maður hefur kynnst einstaklingun-
um og náð góðu sambandi við þá,“
segir Mary Ellen. „Þegar maður
kemur dag eftir dag og sér hvað
ástandið er alvarlegt, fátækt og
Fjölskyldan
Damm í bílnum
sínum, Los Ang-
eles, Kalifornía,
1987.
Mary Ellen Mark/Library
UM HELGINA
MYNDLIST
Sýna í MÍR og
Síberíu
Tvær listakonur af íslandi, Kju-
regev Argúnova og Katrín Þor-
valdsdóttir, taka í sumar þátt í fjöl-
þjóða sýningu myndlistarmanna frá
norðlægum löndum í borginni Jak-
útsk í Austur-Síberíu. Myndir þeirra
á sýningunni, sem nefnd er Arkt-
ika, verða áður til sýnis í MIR-saln-
um, Vatnsstíg '10, dagana 23. maí
til 6. júní. Jakútsk er höfuðborg
Sakha (Jakútíu), eins af Jýðveldum
rússneska sambandslýðveldisins.
Sýningin er liður í listahátíð sem
menningarmálaráðuneyti Sakha
stendur að og býður listafólki frá
svæðum eins og Alaska í Bandaríkj-
unum, Kanada, sama- og lappahér-
uðum í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð
og af íslandi. Kjuregev sýnir mynd-
saum og Katrín brúður í Jakútsk
og MÍR-salnum. Báðar hafa þær
verið virkar í listalífi hérlendis und-
anfarin ár. Kjuregev er fædd og
uppalin í Sakha en hefur búið á
Islandi í nærri þrjá áratugi. Hún
stundaði nám við listaháskólann I
Moskvu, hefur starfað með fjöl-
mörgmm leikhópum hér og erlendis
og haldið sýningar á myndverkum
sínum. Katrín lærði tungumál, bók-
menntir, leiklist og brúðugerð. Hún
hefur starfað með leikhópum víða
í Evrópu og sýndi brúður í Hafnar-
firði fyrr í mánuðinum. Sýningin í
MÍR-salnum verður opin 17-18.30
á virkum dögum og 14-18 um helg-
ar.
Mary Ellen Mark
I dag opnar á Kjarvalsstöðum
sýning á myndum bandaríska ljós-
myndarans Mary Ellen Mark. Sýn-
ingin spannar fyrstu 25 árin af ferli
hennar og hefur að geyma 125
myndir, allt frá blindum börnum í
Úkraínu til fjölleikahúslistamanna
á Indlandi. Mary Ellen Mark er nú
einn þekktasti fréttaljósmyndari
heims. Eftir nám í listasögu og list-
málun útskrifaðist hún sem frétta-
ljósmyndari 1964 og fékk strax
Fullbright styrk til að mynda í Tyrk-
landi. Eftir ársdvöl þar sneri hún
aftur til Bandaríkjanna og hóf að
skrásetja hvaðeina sem vakti áhuga
hennar; mannlíf í Central Park,
mótmælafundi, líkamsræktarmenn
og kvennabaráttu. Fljótt hlaut hún
alþjóðlega frægð fyrir ijósmyndir
sínar og myndraðir. Nefna má til
dæmis „Deild 81“, „Eiturlyfjaneyt-
endur í London“, „Heimilislausa
fjölskyldu", „Góðgerðarstofnanir
Móður Teresu“ og „Indversk fjöl-
leikahús“. Hún hefur alla tíð ein-
beitt sér að fólki og meðhöndlar
viðfangsefni sín af samúð og virð-
ingu. Sýningin er farandsýning,
skipulögð af alþjóðlega ljósmynda-
safninu við George Eastman House
og styrkt af atvinnuljósmyndara-
deild Eastman Kodak-samsteyp-
unnar. Hún stendur til 11. júlí.
Listamenn í Laugardal
Samsýning þriggja listamanna
opnar í Listhúsinu í Laugardal í
dag. Þetta eru Inga Elín, Óli Már
og Þóra Siguijónsdóttir sem öll
hafa vinnustofur á Álafossi í Mos-
fellsbæ. Þóra útskrifaðist úr
keramikdeild MHÍ 1990, hún sýnir
bæði stóra leirskúlptúra og minni
verk úr postulíni og steinleir. Óli
lauk námi við MHÍ 1980, hann sýn-
ir lítil og stór akrílverk á pappír
og striga. Inga hóf listnám hérlend-
is og hélt síðan til Kaupmannahafn-
ar þar sem hún lauk prófi úr
keramik- og glerdeild Listiðnaðar-
skóla borgarinnar. Hún sýnir verk
úr gleri, járni og postulíni. Sýningin
er opin kl. 10-18 alltaf nema á
sunnudögum kl. 14-18. Henni lýk-
ur 6. júní.
Tarnús í Portinu
Tarnús opnar í dag einkasýningu
á málverkum og skúlptúr í Portinu.
Þetta er fjórtánda einkasýning hans
en auk þess hefur hann tekið þátt
í samsýningum. Verkin í Portinu
eru flest unnin á síðustu tveimur
árum. Kjörorð sýningarinnar, sem
opin er daglega milli 14 og 18,
verður „hver er bestur".
Guðný í Slúnkaríki
Guðný Magnúsdóttir opnar sýn-
ingu á nýlegum verkum sínum í
Slúnkaríki á ísafirði í dag. Þetta
er sjöunda einkasýning hennar en
hún hefur tekið þátt í fjölda sam-