Morgunblaðið - 22.05.1993, Síða 6
U£JB
993
SAMANTEKT JOHANN
HJÁLMARSSON
Á LISTAHÁTÍÐ í HAFNAR-
FIRÐI 4. - 30. júní nk. er
megináherslan lögð á tónlist-
ina. Hátíðin hefst með tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar
Islands, hafnfirskra kóra og
Sigrúnar Hjálmtýsdóttur í
Kaplakrika laugardaginn 4.
júní og lýkur með tónleikum
breska fiðluleikarans, Nigels
Kennedy, 30. júní. Meðal
annarra tónlistarmanna á
hátíðinni eru kúbanski gítar-
leikarinn Manuel Barrueco
og bandarísku blússöngvar-
arnir Chicago Beau og
Deitra Farr. Þekktasta
kammersveit Ítalíu,
Antidogma Musica, leikur og
einnig Cambrian Brass Qu-
intet frá Englandi.
Kostur er að börn undir-
heimanna fá tækifæri til að
njóta sín ekki síður en frægð-
arfólk tónleikasalanna.
Opnunarhótíö í Kaplakrika
Sinfóníuhljómsveit íslands kem-
ur fram ásamt hafnfirskum kórum
á opnunarhátíðinni í Kaplakrika
föstudaginn 4. júní kl. 20:30. Ein-
söngvari verður Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, stjqmandi Petri Sakari. Eft-
irfarandi kórar taka þátt í fiutn-
ingnum: Flensborgarskólinn,
stjórnandi Margrét Pálmadóttir;
Kór Hafnarfjarðarkirkju, stjómandi
Helgi Bragason; Kór Víðistaða-
kirkju, stjómandi Úlrik Ólafsson;
Kór Fríkirkjunnar, stjórnandi Krist-
jana Þ. Ásgeirsdóttir; félagar úr
karlakómum Þröstum.
Á efnisskrá eru Gloria eftir Pou-
lenc og Sinfónía nr. 1 eftir Brahms.
Peter Mate
Peter Mate fæddist árið 1962 í
Roznava í Tékkóslóvakíu. Hann
lærði hjá Ludmila Kojanová í fimm
ár og útskrifaðist frá Tónmennta-
skólanum í Kosice 1982. Á þessum
árum vann hann til nokkurra verð-
launa. Má þa nefna verðlaun tón-
menntaskólanna í Slóvakíu 1979
og 1981 og Smetana pínaókeppnina
1978 og 1980.
Peter Mate vakti fyrst verulega
athygli þegar hann hlaut verðlaun
gagnrýnenda á Listahátíð ung-
menna í Trencianske Teplice 1982.
Hann fékk inngöngu í Tónlistarhá-
skólann í Prag sama ár og lærði
hjá prófessor Valentina Kamen-
iková, virtum tékkneskum lista-
manni, en hélt þó áfram þátttöku
í píanókeppnum innan lands sem
utan. Árið 1985 vann hann fýrstu
verðlaun í píanókeppni mennta-
málaráðuneytisins í Slóvakíu og ári
síðar önnur verðlaun í alþjóðlegu
píanókeppninni í Vercelli á Ítalíu.
Peter Mate hefur verið einleikari
með mörgum hljómsveitum heima
fyrir og víða um heim, m.a. með
Sinfóníuhljómsveit Islands. Að námi
loknu kenndi hann píanó- og kamm-
ermúsík í Tónmenntaskólanum í
Cambrion Brass Quintet
Kosice, en hefur starfað sem tónlist-
arkennari á Stöðvarfirði og Breið-
dalsvík frá haustinu 1990. Margar
útvarps- og sjónvarpsupptökur hafa
verið gerðar með leik hans. Hann
fékk þriðju verðlaun í alþjóðlegu
píanókeppninni í Enna. á Ítalíu
1989.
Tónleikar Peter Mate verða í
Hafnarborg sunnudaginn 6. júní kl.
20:30. Á efnisskránni eru verk eft-
ir Debussy, Janácek, Ginastera,
Martinu, Bartók, Prokofiev og
Hjálmar H. Ragnarsson. Verk
Hjálmars var samið sérstaklega
fyrir Listahátíð Hafnarfjarðar.
Caput-hópurinn
Caput-hópurinn er hópur ís-
lenskra hljóðfæraleikara sem hóf
starfsemi sína 1987 undir nafninu
Nýi músíkhópurinn. Frá upphafi
hefur meginmarkmið hópsins verið
að flytja nýja tónlist, íslenskra sem
erlendra tónskálda og taka þannig
virkan þátt í nýsköpun tónlistar. I
kynningu segir að á þeim árum sem
liðin séu frá stofnun hópsins hafi
ýmsir flytjendur komið við sögu og
sé „óhætt að segja að þar hafí far-
ið einvala lið“ og að undanförnu
hafí verið að myndast „ákveðinn
kjarni innan Caput sem vinnur óeig-
ingjamt starf í þágu nýrrar tónlist-
ar“.
Á Listahátíðinni í Hafnarfírði
verður flutt nýtt einleiksverk fyrir
selló sem Atli Ingólfsson samdi sér-
staklega fyrir hátíðina. Meðal ann-
arrra verka á tónleikunum eru
kvartett eftir Finnann Jukka Kosk-
inen og kvintett fyrir klarínettu og
strengi eftir franska tónskáldið Ti-
erry Blondeau. Til viðbótar breytir
Caput-hópurinn út af venju með því
að flytja tvö rússnesk verk frá 1914,
annað er píanóverk eftir Alexander
Skrjabin, hitt eftir Igor Stravinsky
gert fyrir strengjakvartett.
Tónleikar Caput-hópsins eru í
Hafnarborg miðvikudaginn 9. júní
kl. 20:30. Þeir sem koma fram eru
Auður Hafsteinsdóttir fíðluleikari,
Zbigniev Dubik fiðluleikari, Guð-
mundur Kristmundsson víóluleikari,
Btyndís Halla Gylfadóttir sellóleik-
ari, Snorri Sigfús Birgisson píanó-
leikari og Guðni Franzson klarí-
nettuleikari.
Manuel Barrueco
Manuel Barrueco er klassískur
gítarleikari frá Kúbu, talinn í hópi
bestu núlifandi gítarleikara. Hann
hefur hlotið viðurkenningu fyrir
sérstaklega vandaðan flutning og
næma tilfínningu fyrir viðfangsefn-
inu, auk þess að ráða yfir einstakri
tækni í leik sínum.
Barrueco sem fæddist í Santiago
1952 byijaði átta ára að spila vin-
sæla suður-ameríska tónlist eftir
eyranu. Hann var hvattur til tónlist-
arnáms og nam gítarleik við Tón-
listarskólann í Santiago.
Hann fluttist með fjölskyldu sinni
til Bandaríkjanna 1967 og nam hjá
helstu kennurum í Miami og New
York. Eftir vel heppnað inntökupróf
í Peabody Conservatory í Baltimore
varð hann fyrstur gítarleikara til
að fá fullan námsstyrk við skólann.
Hann varð einnig fyrsti gítarleikar-
inn til að vinna Peabody samkeppn-
ina og leika einleik með hljómsveit
skójans.
Árið 1974 hlaut Manuel Barrueco
fyrstur gítarleikara hin virtu verð-
laun, Concert Artists Guild Award.
í framhaldi af því hélt hann fyrstu
tónleikana í New York og fékk
mikið lof frá gagnrýnendum. Árið
eftir hlaut hann fyrstu verðlaun í
Guitar ’75 keppninni í Toronto.
Þessir listsigrar hafa greitt götu
hans því að hann leikur reglulega
í öllum helstu borgum Bandaríkj-
anna og Evrópu.
Fjöldi geisladiska hefur komið
út á vegum Angel/EMI með leik
Barruecos, hinn fyrsti Virtuoso
Guitar 1988, en á honum eru verk
eftir de Falla, Rodrigo og Ponce.
Tónleikar Manuels Barrueco
verða í Hafnarborg fímmtudaginn
10. júní kl. 20:30.
Vinir Dóra, Chicago Beau
og Deitra Farr
Chicago Beau, L. McGraw-
Beauchamp, skáld, tónlistarmaður
og útgefandi, fæddist í Chicago
1949. Hann hóf feril sinn sautján
ára sem farandtónlistarmaður, kom
fam í ýmsum borgum og bæjum.
Árið 1969 fluttist hann til Parísar
og átti sama ár þátt í að taka sam-
an, ritstýra og gefa út ljóðasafnið
Southside poets. í framhaldi af því
hljóðritaði hann nokkur af bók-
menntaverkum sínum.
Á árunum 1969-1973 var Beauc-
hamp mjög virkur í list sinni jafn-
framt því sem hann hélt fyrirlestra
víða, bæði í Evrópu og Afríku.
Hann bjó í Frakklandi á veturna
en á sumrín á Grikklandi. Hann
sneri síðan aftur til Bandaríkjanna
og settist að í San Fransisco.
Nýtt tímabil hófst í lifí Beauc-
hamps 1974, en þá var hann ráðinn
til starfa hjá bandarísku fjárfest-
ingafyrirtæki og lét að sér kveða á
þeim vettvangi til ársins 1982.
Hann lagði þó ekki niður fyrirlestra-
hald um blús og skyld efni.
Beauchamp hefur starfað með
fólki úr öllum listgreinum og þess
er getið í kynningu að bókmennta-
jöfrar á borð við Jorge Luis Borg-
es, Alejo Carpentier og James
Baldwin hafi haft áhif á hann sem
vinir og ráðgjafar. Hann var meðal
stofnenda útgáfufyrirtækisins Lit-
erati International.
Beauchamp er nú kennari við
enskudeild Columbia College í
Chicago. Meðal tónlistarverka hans
eru Blasé (1969), Certain Blacks
(1970) og Deal for Service (1972).
Hann hefur unnið til margra verð-
launa og viðurkenninga fyrir tónlist
sína og skáldskap.
Deitra Farr, blússöngkona, rit-
höfundur, ljóðskáld og lagahöfund-
ur, hóf feril sinn 1975 með því að
syngja með ýmsum hljómsveitum
Chicagoborgar, en eiginlegur blús-
ferill hennar hófst 1980.
Sagt er að eldur, orka og kraftur
séu oð sem lýsa best flutningi þess-
arar blússöngkonu. Hún er vinsæl
í Chicago. Helstu áhrifavaldar
hennar eru taldir blústónlistar-
mennirnir Muddy Water, Little
Walter og Jimmy Reed.
Vinir Dóra, Chicago Beau og
Deitra Farr koma fram í Bæjarbíói
föstudaginn 11. júní kl. 21:00.
Rage against the Mochine
Bandaríska rokkhljómsveitin
Rage against the Machine er sögð
ein vinsælasta hljómsveitin á Is-
landi um þessar mundir. Hún er
talin dæmigerð fyrir nýja og harða
stefnu rokksins í Bandaríkjunum.
Félagar hljómsveitarinnar vilja
koma á breytingum í þjóðfélaginu,
vekja fólk til umhugsunar. Hug-
myndafræðin er sótt til byltingar-
mannsins Che Guevara.
Rage against the Machine leikur
á tónleikum í Kaplakrika laugar-
daginn 12. júní. Upphitunarhljóm-
sveit er hafnfirsk, Jet Black Joe.
Cambrian Brass Quintet
Cambrian Brass Quintet var
stofnaður 1981 og er skipaður fimm
enskum tónlistarmönnum. Þeir eru
Richard Adams trompetleikari,
Andrew Stone-Fewings trompet-
leikari, John Carvell hornaleikari,
Kevin Pitt básúnuleikari og Melvyn
Poore túbuleikari.
Leikur þeirra félaga er ekki ein-
ungis lofaður heldur þykja þeir hafa
skemmtilega framkomu. Efnisskrá
þeirra er fjölbreytt, nær frá endur-
reisnartónlist miðalda til jass og
bítlatónlistar.
Cambrian Brass Quintet leikur í
Hafnarborg sunnudaginn 13. júní
kl. 20:30.
Leonidas Lipovetsky
Leonidas Lipovetsky er píanóleikari
af rússnesku bergi brotinn. Hann
lék fyrst opinberlega tólf ára í
heimaborg sinni Montevideo í Ur-
uguay. Síðan hefur hann leikið í
öllum helstu tónleikasölum á Vest-
urlöndum og hlotið lof fyrir listræna
túlkun og tækni.
Eftir að Lipovetsky vann sam-
keppni píanóleikara í Uruguay kom
hann fyrst fram með sinfóníuhljóm-
sveit og lék þá konsertverk eftir
Benjamin Britten, en það var jafn-
framt frumflutningur þess í Suður-
Ameríku. Fystu hljómsveitartón-
leikarnir í New York voru í Carnegie
Hall og á eftir fylgdi röð tónleika
í Bandaríkjunum og Kanada. Hann
fékk síðan styrk frá Martha Baird
Rockefeller tónlistarsjóðnum til að
fara í fyrstu tónleikaferðina til Evr-
ópu.
Lipovetsky nam píanóleik hjá
Wilhelm Kolischer í Montevideo og
í Juilliard School of Music í New
York. Þar var hann fyrsti styrkþegi
Van Cliburn sjóðsins. Hann vann
Concerto samkeppnina og sem sig-