Morgunblaðið - 29.05.1993, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1993
B 5.
Listahatíð í Hafnarfirði/Leiklist/Listdans
NÝ ÍSLENSK LEIKRIT OG DANSVERK
SAMANTEKT/JÓHANN HJÁLMARSSON
Þrjú ný leikrit veróa fiutt á Listahátíó í Hafnar-
firði. Höfundar þeirra eru Þorvaldur Þorsteins-
son, Arni Ibsen og félagar Ara-leikhússins .
íslenski dansflokkurinn sýnir m.a. Evridísi eftir
Nönnu Ólafsdóttur við tónlist Þorkels Sigurbjörns-
sonar og Ingibjörg Björnsdóttir semur dans við
tónlist eftir Tryggva Baldvinsson.
Blóð sveltandi stéttar
Mánudaginn 14. júní kl. 20.30 sýnir Leikfélag Hafn-
arfjarðar í Straumi leikritið Blóð hinnar sveltandi stétt-
ar eftir Sam Shepard í þýðingu Ólafs G. Haraldssonar
og Jóns Karls Helgasonar. Leikstjóri er Viðar Eggerts-
son.
Sam Shepard er meðal fremstu leikritahöfunda
Bandarílq'anna. Shepard túlkar rótleysi bandarísks þjóð-
lífs. Kaldriíjað undirheimafólk leikur stór hlutverk í
verkum hans. í kynningu segir: „Þeir sem halda að
Shepard prediki frumlega lífshætti í krafti óljósra hug-
mynda um frelsi eru á villigötum. Allt þetta heillandi
töffa lið á það sammerkt að vera brotakennt og ófull-
nægt.“
Blóð hinnar sveltandi stéttar greinir frá bændafjöl-
skyldu sem stendur á krossgötum. í verkinu eiga sér
stað mikil átök og uppgjör.
í tilefni dagsins og Fiskar á þurru landi
Miðvikudaginn 16. júní kl. 20.30 frumsýnir Pé-leik-
hópurinn tvö ný leikrit í Bæjarbíói, í tilefni dagsins
eftir Þorvald Þorsteinsson og Fiskar á þurru landi eftir
Árna Ibsen.
í tilefni dagsins lýsir sögulegri jarðarför.
Þorvaldur Þorsteinsson hefur vakið athygli fyrir ör-
leikrit í útvarpi. I fyrra kom út eftir hann prósaverk í
tilraunakenndum stfl. Hann er kunnur myndlistarmaður.
Fiskar á þurru landi eftir Árna Ibsen fjalla um Knút
sem alltaf hefur búið heima hjá Emmu, móður sinni.
Hann hefur þann starfa að þjóna kostgöngurum móður
sinnar. Þegar Gummi og Gúa, nýir kostgangarar, bæt-
astj hópinn verða breytingar á lífi Knúts og líka þeirra.
Árni Ibsen er þekktur leikritahöfundur, ljóðskáld og
þýðandi.
Ara-leikhúsið
Ara-leikhúsið var stofnað í byrjun þessa árs. Að því
standa Árni Pétur Guðjónsson leikari, Jón Friðrik Ara-
son skáld og Rúnar Guðbrandsson leikstjóri.
Ara-leikhúsið: Anna E. Borg, Steinunn Ólafsdóttir, Rúnar Guðbrandsson og Árni Pétur Guðjónsson
Hér er um eins konar tilraunastofu leiklistar að ræða.
í kynningu segir að Ara-leikhúsið sé „skapandi tilrauna-
leikhús sem leggur megináherslu á frumflutning
frumsaminna leikverka og fer ótroðnar slóðir til að ná
markmiðum sínum, t.d. með því að brjóta upp hefð-
bundnar vinnuaðferðir í tíma og rúmi“.
Við samningu, uppfærslu og flutning þess verks sem
hér um ræðir er tekið mið af staðnum, Straumi og
umhverfi hans. Verkið verður flutt föstudaginn 18. júní
kl. 20.30.
íslenski dansflokkurinn
Islenski dansflokkurinn sem var stofnaður 1973 starf-
aði lengst af í Þjóðleikhúsinu. Fyrir rúmi ári var flokkur-
inn gerður að sjálfstæðri stofnun og heyrir nú beint
undir menntamálaráðuneytið.
Á efnisskrá að þessu sinni eru Evridís eftir Nönnu
Ólafsdóttur við tónlist eftir Þorkel Sigurbjömsson,
„myndskreyting" eftir Ingibjörgu Björnsdóttur við tón-
list Tryggva Baldvinssonar og tvö verk eftir William
Soleau sem samin eru sérstaklega fyrir Listahátíð í
Hafnarfirði.
Sýning íslenska dansflokksins verður í íþróttahúsinu
í Kaplakrika fimmtudaginn 24. júní kl. 22.00.
Fjölskylduskemmtun
Leikfélag Hafnarfjarðar gengst fyrir fjölskyldu-
skemmtunum sunnudaginn 13. júní kl. 15:00, sunnudag-
inn 20. júní kl. 13:00 og sunnudaginn 27. júní kl. 13:00.
Á þessum skemmtunum koma fram leikarar Leikfé-
lags Hafnarfjarðar, trúðar og fjölmargir aðrir. Lögð
verður áhersla á virka þátttöku barna í leiklistar- og
tónlistaratriðum og hvers kyns gjörningum.
GÍTARINN SITUR
FYRIR ÖLLU ÖÐRU
Morgunblaðið/Skúli Magnús Þorvaldsson
að kennarar kæmu ásamt nemend-
um sínum. Þessi námskeið væru
ekki síður gagnleg fyrir þá.
Að þessu sinni vill svo skemmti-
lega til að tveir nemendur koma frá
Spáni, heimalandi gítarsins; til Ak-
ureyrar til að vera á sumarnámske-
iði í gítarleik. Örn Viðar sagðist
vonast til að í framtíðinni myndu
nemendur koma hingað frá fleiri
löndum og Akureyri hlyti með tím-
anum alþjóðlega viðurkenningu sem
háborg gítartónlistar í norðri.
Halldór Mór Stefánsson lauk
nú í maíbyrjun áttunda stigs
prófi í klassískum gítarleik
frá Tónlistarskólanum á Ak-
ureyri. Hinn 9. maí hélt hann
burtfararprófstónleika við
afar góðar undirtektir f jölda
áheyrenda í Akureyrar-
kirkju. Halldór stefnir nú til
framhaldsnáms í gítarleik og
verður næsta árið nemandi
Arnaldar Arnarsonar í Barc-
elona á Spáni. Þessi ungi
tónlistarmaóur, sem lýkur
stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri 17. júní
næstkomandi, stendur á
þröskuldi í lífi sínu. Alvaran
í tónlistarnáminu er núna
fyrst að hefjast.
r
Aefnisskrá Halldórs Más í Akur-
eyrarkirkju voru Melancholy
Gaillard og Allemande eftir John
Dowland, Fúga eftir Jóhann Se-
bastian Bach, Andante Largo opus
5 nr. 5 eftir Fernando Sor, Etýða
nr. 11 eftir Hector Villa-Lobos, Le
Decameron Noir eftir Leo Brouwer
og Sonatina Meridional eftir Manu-
el M. Ponce.
Aðalalriðið ei að æta sig
óskaplega mikið - ag æfa
sig létt. Og spila svo á
tónleikooi.
Hann var glaðbeittur, gítarleik-
arinn ungi, á sólbjörtum degi,
skömmu eftir tónleikana. Hvernig
leið honum að loknum þessum
áfanga?
„Mér fannst eins og ég væri hálf-
tómur. En það er rosalega gott að
þetta skuli vera búið og ótrúlega
gaman að brjóta ísinn með svona
mörgum áheyrendum. Og undir-
tektirnar voru stórkostlegar. Ég
fann að fólkið hlustaði á það sem
ég var að gera og ætlaði svo áldrei
að hætta að klappa."
Trommuleikari til sýnis
Halldór Már sagðist hafa byrjað
tónlistarnám eins og allir, á blokk-
flautu, þegar hann átti heima á
Hellu. Þar lærði hann líka á píanó
í nokkur ár og spilaði auk þess á
trommur í lúðrasveit. „Það fannst
mér verst, það þótti svo merkilegt
að sjá svona pínulítinn trommuleik-
ara að ég var alltaf látinn standa
upp, hafður til sýnis.“
Tólf ára sagðist Halldór hafa
flutt til Selfoss, hætt að eiga við
tónlist og farið á kaf í fótbolta.
Síðan fluttist hann til Akureyrar.
„Ætli ég hafi ekki byijað að fikta
við gítar eftir að við komum norð-
ur. En það var ekki fyrr en eftir
fermingu að ég fór að læra eitthvað
af viti. Þá fór ég i Tónlistarskólann
til Arnar Viðars og hef verið hjá
honum síðan. Ég tók gítarnámið
ekki mjög alvarlega fyrst, fór í
Menntaskólann og svo eitt ár skipti-
nemi til Kanada, kom til baka og
byijaði á málabraut í Menntaskól-
anum en fór þann vetur að eiga í
alvöru við gítarinn."
Gítarinn tekur völdin
Það var þegar Halldór Már lauk
6. stigi í gítarleik að hann ákvað
að leggja meiri rækt við tónlistina
en áður. Hann hætti á málabraut
og flutti sig yfir á tónlistarbraut
Menntaskólans. Segja má að gítar-
inn hafi tekið völdin. En hvernig
hefur Halldóri tekist að sameina
nám í tónlistar- og menntaskóla,
æfingar, félagsstörf og að búa á
heimavist?
„Það hefur gengið nokkuð vel,
en að vísu verður alltaf eitthvað
undir í svona baráttu. Ég hef látið
gítarinn sitja fyrir öllu öðru í tals-
verðan tíma. Ætli kennurunum
mínum í MA finnist ég ekki þess
vegna dálítið latur og kærulaus
nemandi.
Það var nokkuð erfitt með æfing-
ar framan af. Ég fékk aðstöðu niðri
í Gamla skóla, en tíminn var
skammtaður, klukkutími í einu. Það
var verst að þurfa oft að hætta ein-
mitt þegar maður var í skapi til að
halda áfram. Ég verð að geta ráðið
vinnutíma mínum að mestu sjálfur
og þess vegna bjargaði öllu að ég
fékk í fyrra leyfi til að æfa mig á
kaffistofu starfsmanna MA hérna
í heimavistinni eftir klukkan 4 á
daginn. í vetur hef ég haft lykil að
kaffistofunni og lokað mig þar inni,
jafnvel fram á nótt og núna fyrir
tónleikana fékk ég að æfa heima
hjá kærustunni. Það var gott, því
Stöð 2 var alltaf í gangi í herberg-
inu við hliðina á kaffistofunni
minni.“
Ævilangar æfingar
Halldór Már lýkur stúdentsprófi
nú í júní og fer síðan með hausti
til náms hjá Arnaldi Arnarsyni í
Barcelona.
„Já, blessaður, þetta er rétt að
byija hjá mér. Núna er þetta fyrst
að verða alvara. Ég hlakka óskap-
lega mikið til að fara til útlanda
og læra og það verður gott að byija
þarna, svo er á stefnuskránni að
koma sér inn í góðan tónlistarhá-
skóla, spurningin er bara hvar.
Framundan hjá mér er að læra ný
og ný verk og æfa og æfa. Aðalat-
riðið er að æfa sig óskaplega mikið
- og æfa sig rétt. Og spila svo á
tónleikum. Ef maður verður svo
heppinn að verða nógu góður.“
Texti: Sverrir Páll.