Morgunblaðið - 22.06.1993, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1993
B 3
GOLF
Fjölmennur
bráðabani
Það var fjölmennur bráðabani
á opna Lacoste-mótinu í
Grafarholtinu á sunnudag-
inn. I keppninni án forgjafar
urðu Björgvin Sigurbergsson og
Ragnar Ólafsson að leika bráða-
bana um fyrsta sæti og vann
Björgvin á fyrstu holu. Um
þriðja sætið urðu sex kylfíngar
að leika bráðabana, Gunnsteinn
Jónsson, GK, Karl Ómar Jóns-
son, GR, Ólafur Skúlason, GR,
Sigurður Hafsteinsson, GR,
Sturla Ómarsson, GR og Viggó
H. Viggósson, GR.
Sigurður og Sturla duttu úr
á 1. flöt, Ólafur og Gunnsteinn
á þeirri næstu en þeir félagar,
Viggó og Karl ómar áfram.
Þriðja holan féli en á 17. braut-
inni, sem leikinn vai' næst, sigr-
aði Viggó.
B#%Andri Marteinsson skoraði með
I «%Fgóðu skoti frá vítateig eftir mis-
tök í vöm IBK á 3. mínútu.
2lf%Jón Erling Ragnarsson gaf fyrir
*%#markið frá hægri. Andri átti gott
skot að marki sem Ólafur Pétursson náði
ekki að halda og Hörður Magnússon þakk-
aði fyrir og skoraði frá markteig á 8. min.
2a 4[ Kjartan Einarsson skallaði
■ I knöttinn í netið - hægra hornið
úr þröngu færi á 30. mín. Hann fékk send-
ingu frá Gesti Gylfasyni frá vinstri.
a MB Jón Erling komst upp að enda-
I mörkum hægra meginn og gaf
fyrir. Hörður Magnússon náði að pota í
boltann sem fór í Jakob Már Jónharðsson
og í eigið mark á 31. mín.
4:1
Þorsteinn Halldórsson óð upp
'■ ■ hægri vænginn og gaf snúnings
boita til vinstri á Jón Erling Ragnarsson
sem var öryggið uppmálað í vítateignum
og renndi boitanum í netið á 61. mín.
5a sfl Davíð Garðarsson sendi boltann
a | til Andra Marteinssonar sem
komst í gegnum vörn ÍBK hægra meginn
— hann renndi síðan fyrir markið á Hörð
Magnússon sem skoraði af stuttu færi á
88. min.
Komeev vann besta afrekið
Sjö mótsmet voru slegin á Al-
þjóðamóti Ægis í sundi sem
haldið var í Laugardalslaug um
helgina. Þrír sterkir Rússar tóku
þátt á mótinu og vakti framganga
þeirra athygli. Einn þeirra, Andrej
Korneev, vann besta afrek mótsins,
þegar hann synti 100 metra bringu-
sund á einni mínútu 3,93 sek. og
fékk 881 stig fyrir.
Rússarnir þrír hafa dvalist hér
að undanförnu við æfingar. í sam-
tali við Morgunblaðið sögðust Na-
talía Krupskaja og Roman Sche-
golev kunna vel við aðstæður hér
á landi, þeim liði vel, allt væri hér
mjög hreint en um leið frekar kalt.
Þau halda héðan af landi á mót í
Evrópu og Krupskaja og Korneev
munu taka þátt á Evrópumeistara-
mótinu í ágúst. Krupskaja sagðist
vera ánægð með árangurinn á mót-
inu, en Schegolev sagðist geta gert
betur.
Bryndís Ólafsdóttir var ánægð
með árangurinn, sagði að tíminn
sem hún hefði náð væri góður mið-
að við aðstæður. Hún setti mótsmet
seinni daginn er hún synti 100
metra skriðsund á einni mínútu 0,48
sekúndum. Bryndís hefur náð lág-
mörkum fyrir Evrópumeistaramótið
í Sheffield, og sagðist stefna á þátt-
töku þar. Hún veiktist líkt og flest-
ir sundmennirnir sem kepptu á
Smáþjóðaleikunum á Möltu, en hef-
ur náð sér að fullu. „Ég hef ekki
misst neitt, ég var í það góðu formi
að ég hef hvorki misst niður tækni
né form,“ sagði Bryndís.
Pétur
þjálfar
Val
Pétur Guðmundsson hefur verið
ráðinn þjálfari úrvalsdeildar-
liðs Vals og mun hann einnig leika
með liðinu. Pétur hefur einu sinni
áður þjálfað í úrvalsdeildinni - hann
þjálfaði og lék með ÍR fyrir nokkr-
um árum. Hann tekur við starfí
Svala Björgvinssonar, sem mun
leika áfram með liðinu. Valsmenn
hafa misst tvo leikmenn frá sl.
keppnistímabili - þá Magnús Matt-
híasson, sem er farinn til Bandaríkj-
anna og Símon Ólafsson, sem er
hættur.
Frank Booker hefur áhuga að
vera áfram í herbúðum Vals, en
hann hefur ekki gefið ákveðið svar.
Ef Booker verður ekki áfram fara
Valsmenn að leita af nýjum útlend-
ingi fljótlega.
FH-ingar kafsigldu
Keflvíkinga í Krikanum
Morgunblaðið/Einar Falur
í kröppum dansi
FH-ingar léku við hvern sinn fingur gegn ÍBK. Á stærri mynd-
inni er Jón Erling ágengur við mark Keflvíkinga en Jakob Már
Jónharðsson, varnarmaður IBK, reynir ýmsa tilburði við að veij-
ast. Á minni myndinni er sjálfsmarkið í uppsiglingu. Olafur,
markvörður ÍBK, gerir örvæntingarfulla tilraun til að komast
fyrir boltann, en allt kom fyrir ekki.
FH-INGAR áttu ekki í neinum
vandræðum með slaka Keflvík-
inga á heimavelli sínum í Kapla
krika í gærkvöldi. FH sendi
boltann fimm sinnum í mark
gestanna en ÍBK náði aðeins
einu sinni að svara fyrir sig.
FH-ingar, sem voru lengi að
finna netamöskvana — náðu
ekki að skora mark í fyrstu
tveimur umferðunum, hefur
heldur betur bætt úr því. Liðið
hef ur gert 11 mörk í síðustu
þremur leikjum og Hörður
Magnússon virðist vera búinn
að finna skotskóna. Þetta var
síðasti leikur 5. umferð, sem
var sannkölluð markaumferð
því alls voru 27 mörk gerð í
fimm leikjum.
FH-ingar komu grimmir til leiks
og fengu sannkallaða óska-
byijun. Þeir komust í 2:0 eftir að-
eins 8 mínútna leik
ValurB. og Keflvíkingar þar
Jónatansson með slengnir út af
sknfar laginu. Þeir áttu sér
aldrei viðreisnar von
eftir það en náðu reyndar að skora
næstu tvö mörk, en annað þeirra í
eigið mark.
Keflvíkingar hafa sjálfsagt feng-
ið lexíu hjá Kjartani Mássyni, þjálf-
ara, í leikhléi. Þeir reyndu allt hvað
þeir gátu í upphafí síðari hálfleiks
en baráttuþrek þeirra fjaraði jafnt
og þétt út eftir því sem á leikinn
leið og FH refsaði með tveimur
góðum mörkum áður leikurinn var
úti með vel útfærðum sóknum.
FH-ingar léku nokkuð vel, létu
boltann ganga hratt og voru mjög
hreyfanlegir. Sóknartríóið, Hörður
Magnússon, Jón Erling Ragnarsson
og Andri Marteinsson, fyrir aftan
þá, var mjög ógnandi og þá sérstak-
lega Hörður sem er greinilega að
finna sitt rétta form. Það má ekki
líta af honum þá er hætta á ferð-
um. Vörnin hjá FH stóð sig einnig
vel í þau fáu skipti sem reyndi á
hana með Tékkan Petr Mrazek sem
besta mann.
Keflvíkingar voru ótrúlega slakir.
Það örlaði varla á þeirri baráttu sem
einkenndi fyrstu leiki liðsins og
voru leikmenn búnir að játa sig sigr-
aða um miðjan seinni hálfleik. Og
eins og einn áhorfenda á Kapla-
krikavelli orðaði það: „Loftbólan er
sprungin hjá ÍBK.“ Það er ljóst að
Kjartan verður að ná upp barátt-
unni og sigurviljanum fyrir næsta
leik. Vörnin opnaðist eins og
vængjahurð þegar FH-inga komu á
ferðinni. Sóknarparið, Kjartan og
Óli Þór, voru óvenju daufir.
Fj. leikja u J T Mörk Stig
ÍA 5 4 0 1 19: 5 12
VALUR 5 3 0 2 11:6 9
ÞÓR 5 3 0 2 5: 5 9
ÍBK 5 3 0 2 8: 11 9
FH 5 2 2 1 11: 8 8
KR 5 2 1 2 12: 7 7
FRAM 5 2 0 3 9: 11 6
FYLKIR 5 2 0 3 5: 9 6
ÍBV 5 1 2 2 7: 8 5
VÍKINGUR 5 0 1 4 5: 22 1
27 mörk skoruð
Alls voru 27 mörk skoruð í 5. umferð 1. deildarkeppninnar og hafa
alls verið skoruð 92 mörk í 25 leikjum, sem er að meðaltali 3,68 mörk
í leik.
Skagamenn hafa skorað flest mörk, eða 19 - meðaltal 3,8 í leik.
Víkingar hafa fengið flest mörk á sig - Guðmundur Hreiðarsson,
markvörður þeirra, hefur náð í knöttinn tuttugu og tvisvar (22!) í
knöttinn í netið hjá sér, eða að meðaltali 4,4 sinnum í leik.
SUND / ALÞJOÐAMOT ÆGIS
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KARLA
Island vann 2:0
Islenska landsliðinu í körfuknatt-
leik, sem leikur í Evrópukeppn-
inni í Vín, var dæmdur sigur gegn
Makedóníu 2:0, þar sem Makedó-
níumenn mættu ekki til leiks. Önn-
ur úrslit í riðlinum í gær voru:
Úkraína - Litháen 80:75 og Austur-
ríki - Skotland 91:69.
2. DEILD
Markalaust
á ísafirði
Bí og Breiðablik gerðu marka-
laust jafntefli í rokleik á
ísafirði á laugardaginn. Leikurinn
bar nokkurn keim
Rún'ar Már af því að leikið var
Jónatansson á þurrum malarvelli
skrifar frá 0g einnig var tölu-
verður vindur sem
gerði leikmönnum erfíðara með að
hemja boltann. Blikar léku undan
vindi í fyrri hálfleik og sóttu þá
meira og það gerðu heimamenn svo
í seinni hálfleik. Úrslitin voru nokk-
uð sanngjörn miðað við gang leiks-
ins. Kristófer Sigurgeirsson og Will-
um Þór Þórsson voru bestir gest-
anna en hjá BÍ þeir Stefán Tryggva-
son og Helgi þjálfari Helgason, sem
setti sjálfan sig í liðið eftir slakt
gengi til þessa.
KARFA