Morgunblaðið - 27.07.1993, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 27.07.1993, Qupperneq 3
I MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1993 B 3 að koma frá þeim eða á leiðinni til þeirra. Hvernig þau fóru að þessu þrátt fyrir lítil efni veit ég ekki, en ég veit að þar áttu heima, höfðu athvarf eða voru fastagestir er þeir dvöldu í borginni í upphafi listaferils síns, jafn ólíkir lista- menn og t.d. rithöfundarnir Hall- dór Laxness, Davíð frá Fagra- skógi, Þórbergur Þórðarson og Kristmann Guðmundsson. Stein- unn hafði auk þess hjúkrað Sig- urði Kristófer Péturssyni rithöf- undi á holdveikraspítalanum á Laugamesi og henni þótti fjarska vænt um alla þessa menn sem voru að hennar dómi íslands góðu synir. Þórður var mikill vinur séra Bjama Jónssonar vígslubiskups og voru á milli þeirra reglulegar bréfaskriftir og sá hári þulur séra Friðrik Friðriksson kom þar jafnan við er hann gisti borgina. Hvernig leit svo heimurinn út fyrir þessum tveim ungu mönnum, og hvað var að gerast á þessum áram? það var nú aldeilis margt og þarna á Ráðhústorginu standa þeir í upphafi eins gjöfulasta ára- tugar í list aldarinnar, sem mark- aði mikil tímamót og oft er nefnd- ur gullni áratugurinn eða „Die Goldene Zwanziger Jahre“ eins og það heitir á tungu þeirra þjóðar sem þeir sóttu öðra fremur sína listrænu menntun til. þetta var og áratugur arkitektsins Mies van der Rohe, sem kynnti hugmynd sína um nýstíl í byggingarlist er hann mótaði turn framtíðarinnar „Proj- ekt de Gratie -ciel“ svo sem þeir nefndu það í Frans. Og vísindin voru á fullu við að móta nýjan heim, og rannsaka flókin lögmál m.a. afstæðiskenningu Einsteins, og í því skyni var reistur rannsókn- arturn í Potsdam í nágrenni Ber- línar á áranum 1919-21 eftir arki- tektinn Erich Mendelsohn: E=mc2. Allt gildismat á menningu var gjörbreytt frá því sem var fyrir heimsstyrjöldina og uppstokkunin var hvað mest í hinu sigraða þýskalandi, og þá einkum í Berlín, Dresden og Miinchen. Myndlistar- menn, sem vora úti í kuldanum fyrir stríð eins og t.d. expressjón- istamir vora nú jafnvel orðnir virðulegir prófessorar við nafn- kennda fagurlistaskóla. Og listamenn vora sem fyrr í framvarðsveit þeirra sem voru í óða önn að móta nýja tíma og ryðja ferskum hugmyndum braut. Ekki vora nema tvö ár síðan im- pressjónistinn Auguste Renoir lést, og enn var Claude Monet síð- asti frumkvöðull birtumálverksin á lífi, og þó heyrði listastefnan sögunni til í allri þeirri miklu upp- stokkun gilda sem átti sér stað í málaralistinni. Táknhyggjan og æskustíllin vora sömuleiðis að baki, og hinn frægi belgíski full- trúi táknhyggjunnar Fernand Khnopff lést einmitt í Brassel í þann mund sem Finn bar að garði í Berlín. Kúbisminn í sinni hrein- ustu mynd var einnig liðinn undir lok, en ýmis afsprengi hans lifðu góðu lífi. Svo voru það listastefnur eins og les Fauves, abstrakt, fútur- ismi, expressjónismi, surrealismi, Dada, suprematismi, konstrukti- vismi og frumspekimálverkið eða „peinture métaphysique“. það sem máli skipti var umfram allt að að vera nýr og djarfur. í þýskalandi var „Der Sturm“ hreyfingin í kringum Herwarth Walden enn við líði þótt nokkur ljómi væri farinn af henni því ný viðhorf voru að ryðja sér rúms, en um listhópinn hafði Finnur víst enga eða litla vitneskju né heldur hvað aðra þarlenda nýsköpun snerti. Aðrar hvatir lágu að baki dvöl hans í Berlín og Dresden, og er ekki gott að spá í þær. En þess- ar borgir voru á þeim tíma báðar í brennidepli lista í heiminum og Dresden ósjaldan kölluð Flórenz norðursins og það mun hafa verið alveg nóg til að freista ungs og forvitins manns frá afskekktu þorpi á austurhluta íslands. Menn spurðu ekki um stefnur og stíl- brigði, sem væru efst á baugi í Evrópu á þeim tímum, heldur var hver og ein listaborg í Evrópu út af fyrir sig mikils háttar ævintýri með ótal fyrirheitum, og sjálfsagt fyrir framagjarna menn að reyna fyrir sér sem víðast. Menn vora eiginlega ölvaðir af öllum þeim möguleikum sem Evrópa bauð uppá og freistandi að fara í víking á áður lítt numdar slóðir. Ákvörðun Finns verður að telj- ast alveg rökrétt og um leið ein- kenndist hún af þeirri framsýni sem svo mörgum var gefin á þess- Finnur Jónsson og Ásgeir Bjarnþórsson á Ráðhústorginu í Kaup- mannahöfn 1921. um árum. Og þótt París hafi kannski haft vinningin sem lista- miðstöð, þá var miklu meira að gerast í Þýskalandi en menn vildu lengi vel viðurkenna. Og það sem meira var um vert, í mörgum borg- um Þýskalands, en ekki á einum miðdepli eins og í Frakklandi. Finnut hélt fyrst til Berlínar haustið 1921, þar sem hann nam í einkaskóla hins nafnkennda mál- ara Karls Hofer, en gerði ein- hverra hluta vegna stuttan stanz og hélt til Dresden í febrúar 1922. Margt hlýtur að hafa verið að bijótast um í huga hins unga manns og á jafn skömmum tíma hefur hann trauðla hafa getað melt allt í kring um sig, en hann' kynnist nú fyrst framúrstefnulist í Sturm-listhúsinu á Potsdamerst- rasse. En það var líka fleira í Berlín en Der Sturm, eins og t.d. listhús Otto Burchardt, en þar hafði verið haldin eftirminnileg Dada stefna árið áður. En Berlín eftirstríðsáranna var nöturleg, siðlaus og köld og hinn mikli uppgangur listalífsins var rétt að byija og enn nokkuð í land þar til ljóminn af afrekum leikhús- manna eins og Max Reinhardt og 4. Erwin Piscator lýsti um alla Evr- ópu, og málarar líkt og George Grosz og Otto Dix voru rétt farn- ir að láta að sér kveðá. Ömurleik- inn var helsta einkenni Berlínar og henni var líkt við fjórða flokks biðstofu ( Kurt Tucholsky) eða grátt steinlík ( Geroge Grosz) og sagt: „í austri ríkir afbrotið í mið- borginni svindlið, í norðri neyðin og í öllum áttunum býr glötunin“ (Erich Kástner). Það var því vart að undra þótt hin sögufræga og fagra listaborg við Saxelfi væri freistandi kostur fyrir unga og opna listasál, og svo hafði Finnur lesið sér til um undur hennar. * Nú var íslendingurinn Finnur Jónsson kominn á leiðarenda, og í Dresden dvaldi hann næstu þijú árin og stundaði nám við einka- skólann „Der Weg“ , þar sem nýj- ar stefnur í myndlist voru kynntar og ný grunnmál rannsökuð. Hér urðu til ýmsar tilraunir, sem marka vafalítið það fyrsta sem íslendingur gerir skipulega á sviði núlista á þessari öld. Finnur hlaut mikla viðurkenningu á þessum. nýja vettvangi, er hann var full-1 gildur þátttakandi á vorsýningu Der Sturm listhússins 1925, en verk hans völdu engir minni menn en Vassily Kandinsky og Herw- arth Walden. Og um leið hélt tíminn og núið innreið sína inn á svið íslenzkrar myndlistar. Bragi Ásgeirsson Finnur Jónsson ásamt foreldrum sínum, Ólöfu Finnsdóttur og Jóni Þórarinssyni, og systkinum, Önnu, Birni, Georg, Karli og Ríkharði. Myndin var tekin um 1908. að því að mála landslags- og þjóð- lífsmyndir, einkum úr lífi sjómanna, meirihluta ævi sinnar eða allt til sjötugs. í þessum verkum gætir expressj- ónískra áhrifa með notkun afmark- aðra og sterkra útlína og kröftugra forma. Með tímanum verður þetta hlutlæga myndefni æ huglægara. Þessi verk hafa afar persónulegan og eftirminnilegan stíl og það era þau sem bára hróður Finns og öfluðu honum vinsælda. Finnur hóf á ný að mála óhlutlæg verk á sjöunda áratugnum en hafði áður gert tilraunir í þá átt á þeim fímmta. Verkin frá sjöunda ára- tugnum höfðu beina skírskotun til eldri expressjónískra verka hans. Þessi expressjónísku verk, sem höfðu mjög ákveðnar táknrænar vísanir, voru ótrúlega fersk, og er athyglisvert að benda á að Finnur var um sjötugt er hann hóf að mála þau. Finnur var einn af stofnendum Bandalags íslenskra listamanna og Félags íslenskra myndlistarmanna og sat lengi í stjóm þess og sýning- amefndum. Hann var einn aðal- hvatamanna að byggingu Lista- mannaskálans. Finnur skóf aldrei af skoðunum sínum og lét þær óspart í ljós enda lenti hann oft í hörðum ritdeilum í dagblöðum landsins. En Finnur var sterkur persónuleiki, viljafastur, traustur og fylginn sér. Hann var vinnusamur með afbrigðum og einbeittur í list sinni og trúði á það sem hann var að gera enda bera verk hans þess merki. Finni hlotnaðist margvíslegur lieiður og má þar nefna að hann var á heiðurslaunaskrá Alþingis frá árinu 1973 og var sæmdur stórridd- arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir myndlistarstörf árið 1976. Þá var Finnur gerður að heiðursfélaga Félags íslenskra myndlistannanna árið 1968 og Félags íslenskra gull- smiða árið 1987. En mestan heiður hlaut hann árið 1970 er abstrakt- verk hans voru valin fyrir tilstilli Listasafnsins til sýningar á vegum Evrópuráðsins árið 1970 á sýningu er nefndist Evrópa 1925. Þar voru verk Finns í félagsskap með lista- mönnum eins og Kandinsky, Klee og Léger. Loksins komu þessi verk Finns frá þriðja áratugnum fram í dagsljósið og framlag Finns var metið að verðleikum í alþjóðlegu samhengi. Þessi viðurkenning gladdi mjög hjarta listamannsins. Finnur Jónsson skildi hvers virði það er að eiga gott þjóðlistasafn og mikilvægi þess að þar sé sem best úrval verka eftir höfuðlistamenn þjóðarinnar. í Listasafninu verða verk Finns metin í samhengi við aðra myndlist í landinu, og þau stöð- ugt til taks til sýningar og rannsókn- ar. Eftirlifandi eiginkona Finns er frú Guðný Elísdóttir. Listasafn íslands sendir frú Guðnýju innilegar samúð- arkveðjur og þakkar hlýhug og höfðingsskap þeirra hjóna í sinn ®ai^' Bera Nordal. Við fráfall Finns Jónssonar list- málara á 101. aldursári verða þau tímamót að samfelld myndlistariðk- un á Islandi undir formerkjum vest- rænnar menningar verður ekki leng- ur mæld í eins manns ævi. Finnur er vafalaust einn frumlegasti, djarf- asti og jafnframt sjálfstæðasti lista- maður íslenskrar myndlistarsögu. Á 80 ára starfsferli hafa margir vind- ar oft blásið, að því er virðist úr gagnstæðum áttum, í segl sköpun- argáfu hans, þótt persónuleg ein- kenni á_ sérhveiju verki leyni sér aldrei. Ég sem ekki hef haft nein persónuleg kynni af Finni og reynd- ar aldrei séð hann, hef einkum skynjað nærveru hans í tveimur myndum. Önnur myndin er eftir- prentun sem fósturafi minn, fæddur sama ár og Finnur, bóndi sem þá var fluttur til Reykjavíkur, hafði allt í einu hengt upp í svefnherbergi sínu, sennilega án þess að vita hver hafði málað frummyndina. Á mynd þessari era tveir samanreknir karlar á skektu undir seglum að koma heim með dálítinn afla en allt í kring er dökkblár og úfinn sjórinn. Lífs- baráttan fær hér á sig klunnalega upphafínn blæ, samt á það trúverð- ugan hátt að myndin hefur í sér fólginn alþýðlegan sannleik. Á hinni myndinni, opinberustu mynd hans, sem gerð var um svipað leyti er hins vegar rauður og gylltur tening- ur sem svífur í lausu lofti með þrí- hyrninga og hringi svífandi allt um kring enda heitir myndin „Örlaga- teningurinn" og er gerð 1925. Þessi mynd er einmitt í höndum listfræð- inganna eitt helsta sönnunargagnið fyrir því að íslenskir listamenn hafi haft veður af þeim viðhorfum í list- um sem kölluð hafa verið abstrakji- ón, súrrealismi, jafnvel dadaismi, expressjón og metafýsik áratugum fyrr en efni stóðu til. Utfrá þessum tveimur myndum dreg ég þá ályktun að enginn íslenskur myndlistarmað- ur hafi í senn staðið þjóðinni nær og fjær. Starfandi listamenn eiga Finni Jónssyni margt gott að gjalda og fáir hafa lagt stærri skerf á þá vog- arskál að ijúfa undarlega en inn- gróna einangrun íslendinga jafnt frá eigin kringumstæðum, og menn- ingu annarra þjóða. Fyrir hönd Fé- lags íslenskra myndlistarmanna, þar sem Finnur Jónsson var um margra ára skeið einn helsti drifkrafturinn og síðar heiðursfélagi, votta ég að- standendum og fjölskyldu hans sam- úð mína. Hannes Lárusson, formaður Félags íslenskra myndlistar- manna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.