Morgunblaðið - 10.08.1993, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.08.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIPJUDAGUR 10. ÁGÚST 1993 C 3 KNATTSPYRNA Óli Þór Magnússon og Anthony Karl Gregory skoruðu báðir þrívegis, fyrir ÍBKog Val, í gærkvöldi Keflvíkingar sannfærandi Keflvíkingar héldu upp á sæti í úrslitum bikarkeppninnar með því að vinna Vestmannaeyinga mjög örugglega í 1. Skgptj deildinni í Keflavík Hallgrímsson í gærkvöldi, 4:0. Óli skrífar Þór Magnússon, sem gerði sigur- markið eftirminnilega gegn Val í undanúrslitunum á Laugardalsvelli á dögunum skoraði þrívegis í gær- kvöldi; tvisvar með skalla og eitt mark úr vítaspyrnu. Það var aldrei spurning um hvort liðið sigraði, einungis hve stór sigur ÍBK yrði. Bjarni Sveinbjörnsson fékk ágætt færi fyrir ÍBV strax á KORFUBOLTI Torfl þjálfar Leikni Torfi Magnússon, fyrrum lands- liðsþjálfari í körfuknatíleik, hefur verið ráðinn þjálfari hjá Leikni í Breiðholtinu. Hann mun þjálfa meistaraflokk félagsins sem leikur í 1. deild í vetur, og auk þess tvo yngri flokka. Hann hefur einnig í hyggju að leika eitthvað með félag- inu. Samningur Torfa og Leiknis gildir fram á næsta vor. Samningur Torfa við KKÍ rann út 1. ágúst og er nú enginn starf- andi landsliðsþjálfari. Kolbeinn Páls- son, formaður KKÍ, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að stjórnin færi fljótlega í það að finna landsliðsþjálfara. „Stjórnin tók þá ákvörðun í vor að ekki yrði um áframhaldandi fastráðningu landsl- iðsþjálfara að ræða. Við munum bjóða þetta starf út sem sjálfstætt verkefni,“ sagði Kolbeinn. Hann sagði að Torfi kæmi alveg eins til greina í starfið eins og hver annar. 2. mín. leiksins, en Ólafur Pétursson varði laust skot hans, og síðan ógn- uðu Eyjamenn varla marki Ólafs. Heimamenn voru hins vegar hvað eftir annað ágengir hinum megin. Liðsheild ÍBK var mjög sterk, knött- urinn gekk vel manna á milli, þeir voru hreyfanlegir og höfðu gaman af verkefninu. Gunnar Oddsson átti stórleik á miðjunni hjá ÍBK og Óli Þór var stórhættulegur frammi. Þetta var hins vegar ekki dagur Eyjamanna; það gekk nánast ekk- ert upp hjá þeim að þessu sinni. Liðið getur augljóslega mun meira, en náði sér einfaldlega alls ekki á strik. ofl B^\tíunnar Oddsson og I ■ \#Marko Tanasic prjón- uðu sig glæsilega í gegn vinstra megin, Gunnai- sendi fyrir mark- ið þar sem Óli Þór Magnússon skallaði laglega í markið af stuttu færi á 30. mín. H^%Gestur Gylfason ■ \#sendi upp vinstri kantinn á 45. mín., á Marko Tanasic, sem lék inn á teig, Jón Bragi Ajrnarsson kom aðvífandi og felldi Serbann og víti var dæmt. Óli Þór Magnússon skoraði örugglega úr vítinu og Sæmundur dómari flautaði strax til leikhlés, eftir að knött- urinn þandi út netamöskvana. B#%Tæpai' tvær mín. ■■^#voru liðnar af seinni hálfleik er Marko Tanasie gerði þriðja mark ÍBK; Jakob Jón- harðsson sendi knöttinn af hægri kanti yfir á vinstri væng- inn, Serbinn var við vítateig og skoraði með bogaskoti neðst S fjærhomið. St m ^\Knötturinn kom frá ■♦■^#hægri kanti yfir að vítateig á 65. mín., Gunnar Oddsson sneiddi hann inn að markteig, þar sem Óli Þór Magnússon var fljótari að hugsa en vamarmennirnir, fleygði sér fram og skallaði glæsilega í netið yfír Friðrik markvörð, sem kom út á móti. Þrjú af stutfu færi ANTHONY Karl Gregory skoraði þrisvar gegn Fylkismönnum í gærkvöldi. Valur eygir UEFA-sæti VALSMENN unnu Fylki 4:2 í gærkvöldi, skutust þar með upp í efri hluta 1. deildar og eru með í baráttunni um Evrópusæti að ári. Fylkismenn voru seinir í gang, nýttu ekki færin og eru áfram í fallsæti. Heimamenn léku gegn vindinum í fyrri hálfleik og fórst það vel úr hendi, en gestirnir hjálpuðu til, voru illa á verði og áttu í mestu erf- Steinþór iðleikum með spilið. 2sr™ s»v», J6»r„ stjornaði vorn Vals sem herforingi, Agúst Gylfason og Steinar Adolfsson áttu miðjuna og Anthony Karl Gregory var gráðugur í fremstu víglínu. Allt annað var að sjá til Fylkis- manna eftir hlé. Spilið var markvisst ög þeir fengu vægast sagt gullið tækifæri til að jafna, en þess í stað sofnuðu þeir á verðinum undir lokin og var refsað fyrir. Sjálfstraustið var til staðar í seinni.hálfleik og þá gengu hlutirnir' mun betur. Baráttan var góð í miðjunni, þó of mikið væri um ónákvæmar sendingar, en vörnin var óþétt og því fór sem fór. Valsmenn spiluðu vel og sköpuðu sér mörg marktækifæri, en með ólík- indum var hvað þeir höfðu litlar gætur á mótherjunum í aukaspyrn- um. En sigurviljinn hafði sitt að segja. Baldur Bragason lék ekki með Val og verður sennilega ekki meira með á tímabilinu. Ekið var á landsiiðs- manninn, þegar hann var á heimleið á bifhjóli sínu, eftir æfingu fyrir helgi með þeim afleiðingum að hann tognaði illa á hálsi auk þess sem hann marðist illa. 1*^\Kristinn Lárusson fékk knöttinn rétt utan vítateigs Fylkis, vinstra megin, á 9. mfnútu. Hann skaut ■ ■# að marki, Páli Guðmundsson varði, en hélt ekki boltanum og eftirleikurinn var auðveldur hjá Anthony Karli Gregory, sem var við fjærstöng. 2B^\Sævar Jónsson tók aukaspymu við miðlínu á 37. mínútu, sendi fram og til vinstri á Kristin Lárus- «^#son, sem var við vítateig. Hann skallaði strax þvert yfir á Steinar Adolfsson, sem spymti bolt- anum viðstöðuiaust í fjærhornið uppi. Glæsilegt mark og vel að því staðið. Fylkismenn sneru vörn í sókn á 39. mínútu. Baldur Bjarnason fékk boltann nálægt miðiínu, lék upp völlinn óáreittur og skoraði af öryggi framhjá Bjarna Sigurðssyni. 3b «■ Valsmenn byijuðu á miðju. Jón Grétar Jónsson fékk boltann úti hægra hornið og gaf fyrir markið ■ I á 40. mínútu. Þar var Anthony Karl Gregory mættur og skallaði í markið af stuttu færi. 3« OÁsgeir Ásgeirsson tók homspýrnu frá vinstri á 60. mínútu og sendi fyrir markið. Kristinn Tómas- ■ áEíison var illa valdaður í markteignum, bar höfuð og herðar yfir aðra og skallaði glæsiiega í markið. 4H^^Sævar Jónsson tók aukaspymu náiægt endamörkum hægra megin á 83. mínútu og fór sér að ■ flSáengu óðslega. Boltinn fór framhjá nokkram mönnum og Anthony Karl þakkaði fyrir sig við fjær- stöngina með þriðja marki sínu. Meistararnirfengu óvæntan gest — rússneskan eðlisfræðing og þjálfara — sem vildi aðstoða þá Segist vita hvemig ÍA á að sigra Feyenoord SKAGAMENN fengu óvæntan gest í síðustu viku, sem bauð þeim aðstoð sfna og sagði að kennsla sín yrði ekki aðeins til að íslandsmeistararnir hefðu betur gegn meisturum Albaníu í forkeppni Evrópumóts meistaraliða heldur færu þeir með sigur af hólmi gegn Feyenoord frá Hollandi í 1. umferð. Skaga- menn létu gylliboðið sem vind um eyru þjóta, en ferðalangur- inn hélt frá Akranesi í gær og ætlar af landi brott í dag. Roland Galash kom til landsins s.l. miðvikudag og hélt þegar til Akraness, en sá bikarleikinn gegn KR í Reykjavík um kvöldið. Hann setti sig í samband við Skagamenn og sagðist vera tilbú- inn að hjálpa þeim, en þeir sýndu málinu ekki áhuga. Engu að síður fylgdist hann með æfingum og sá deildarleikinn gegn KR í fyrra- kvöld, en þar sem Skagamenn höfðu ekki tal af honum í gær, tók hann saman föggur sínar og fór. Galash sagði við Morgunblaðið að hann væri eðlisfræðingur að mennt, fæddur 1937, og knatt- spyrnuþjálfari af æðstu gráðu í fyrrum Sovétríkjunum, en hefði flust til Bandaríkjanna fyrir fimm árum. Hann sagðist vera höfundur „total“ knattspyrnu, en Sovétmenn hefðu komið hugmyndunum til Hollendinga og Þjóðverja að sér forspurðum. Jafnframt sagðist hann hafa svar við öllum spurning- um varðandi knattspyrnu, kenning- ar sínar væru byggðar á rúmfræði og hugsun og hann gæti kennt Skagamönnum á skömmum tíma, það sem upp á vantaði, til að þeir yrðu á meðal þeirra fremstu í Evr- ópu. Maðurinn varðist allra fregna af ferli sínum og samstarfsmönn- um, sagði aðeins að illa hefði verið komið fram við sig í heimalandinu sem og annars staðar og hann ein- angraður frá því ,að sanna hug- myndir sínar í verki. Hann sagðist byggja á því að knattspyrna væri list, leikmenn yrðu að sjá fyrir sér komandi leik og hugsa hann út í gegn, en vildi að öðru leyti ekki ræða um lausnina, sagðist vilja láta verkin tala og furðaði sig á sinnu- leysi Skagamanna, því með aðgerð- arleysi sínu væru þeir að kasta ein- stöku tækifæri á glæ. Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, sagði að maðurinn hefði hvorki vilj- AKRAB0RG akranes Morgunblaðið/Kristinn Farinn af Skaganum ROLAND Galash, Rússinn sem bauð Akurnesingum aðstoð sína, fór af Skaganum í gær og hyggst halda af landi brott í dag. að segja nánari deili á sér né starfs- aðferðum og Skagamenn létu ekki bjóða sér hvað sem væri. Þetta væri í alla staði furðulegt, en að sama skapi bráðfyndið. Hjá Knattspymusambandi Rúss- lands fengust þær upplýsingar að viðkomandi maður hefði aldrei tengst sambandinu né Knatt- spyrnusambandi fyrrum Sovétríkj- anna, hvorki sem leikmaður, þjálf- ari né dómari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.