Morgunblaðið - 23.10.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993
D 7
UM HELGINA
MYNDLIST
Rósa Ingólfsdótt-
ir sýnir í Kaffi 17
Farandsýning Rósu Ingólfsdóttur
teiknara sjónvarps, landnára- iðnaður-
sjávarútvegur opnar í dag, laugardag-
inn 23. október kl. 14 f sýningarsal
tískuverslunarinnar 17, Laugavegi 91.
Um er að ræða 9 silkiprent. Sýningin
stendur yfir í 2 vikur.
Síðasti sýningardagur
Ernu
íksýningu Braga Ásgeirssonar. Magda-
lena Margrét Kjartansdóttir grafík-
listamaður kynnir dúkristu á morgun,
sunnudag kl. 15-17.
Sýningu Zachariasar
að ljúka
Sýningu Zachariasar Heinesen lýkur
á morgun sunnudaginn 24. október í
Gallerí Borg. Zacharias sýnir 18 nýleg
málverk. Sýningin eropin frá kl. 14-18.
TONLIST
Páls ísólfssonar
minnst á Isafirði
Sýningu Ernu Guðmarsdóttir á silki-
myndum lýkur í dag, laugardag í
Sneglu, Grettisgötu 7. Sýningin er
opin frá kl. 12-18 virka daga og laugar-
daga kl. 10-12.
Sigrid Valtingojer í
Listasafni ASÍ
Sýning á grafíkmyndum eftir Sigrid
Valtingojer verður opnuð í dag í Lista-
safni ASÍ kl. 16. Sýningin er 10. einka-
sýning hennar, auk þess sem hún hef-
ur tekið í ijölda samsýninga og verið
þátttakandi í alþjóðlegum grafíksýn-
ingum víða um heim. Verkin á þessari
sýningu eru nær. öll unnin á þessu ári.
í verkum sínum lýsir hún áhrifum
sínum frá íslensku iandslagi.
Sýning Sigrid Valtingojer er í boði
Listasafns ASl. Sýningin verður opin
daglega frá kl. 14-19. Lokað er á mið-
vikudögum. Sýningin stendur til 7.
nóvember.
Síðasta sýningarhelgi
í Nýiistasafninu
Sýningum Guðrúnar Hrannar
Ragnarsdóttur, Elísabetar Norseng og
Péturs Magnússonar í Nýlistasafninu
lýkur á morgun sunnudag. Á efri hæð-
um sýnir Pétur Magnússon skúlptúra,
í forsal safnsins sýnir Elísabet Norseng
frá Noregi teikningar og í Gryfjunni
sýnir Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir
skúlptúra. Sýningin er opin frá kl.
14-18.
Grafíkverkstæði í
Listasafni íslands
Grafíkverkstæði hefur verið sett upp
í kjallara safnsins í tengslum við graf-
ísfirðingar halda árlegan tónlistar-
dag í dag, laugardag með minningar-
tónleikum um Pál Isólfsson tónskáld
og organista. Á efnisskránni eru 22
sönglög eftir Pál og þrjú píanóverk.
Tónleikarnir verða í sal grunnskólans
og hefjast kl. 15.
Þrír tónlistarmenn, þau Ingibjörg
Marteinsdóttir sópran, Þorgeir J. Andr-
ésson tenór og Lára Rafnsdóttir píanó-
leikari koma fram á tónleikunum. Með-
al verka á efnisskránni er I dag skein
sól og Maríuvers.
Páll ísólfsson var fæddur 12. októ-
ber 1893 og varð um daga sína eitt
þekktasta tónskáld þjóðarinnar og
frumkvöðull í íslensku tónlistarlífi. Þau
Ingibjörg, Lára og Þorgeir hafa undir-
búið þessa dagskrá og flutt hana
nokkrum sinnum syðra og fengið góða
dóma að sögn Jónasar Tómassonar
tónskálds og framkvæmdastjóra Tón-
listarfélags Isaflarðar sem stendur fyr-
ir tónleikunum.
Tónleikar í Garðinum
Allir tónlistarskólarnir á Suðumesj-
um halda sameiginlega tónleika í hinu
nýja íþróttahúsi í Garðinum f dag, laug-
ardag kl. 15 og er aðgangur ókeypis.
Á tónleikunum munu nemendur leika
og syngja. Vegna stærðar hússins hef-
ur aðaláhersla verið lögð á samleiksatr-
iði og i tilefni íslensks tónlistardags
verður íslensk tónlist í fyrirrúmi.
Á Suðurnesjum eru fimm tónlistar-
skólar; í Keflavík, Njarðvík, Sand-
gerði, Garði og Grindavík. I þeim eru
um 600 nemendur og mun um þriðj-
ungur þeirra koma við sögu í dag.
Eftir tónleika verður foreldrafélag
tónlistarskóians í Garði með kaffisölu.
Til sjós og lands
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Pétur J. Hraunfjörð: SPÁNAR-
FERÐ. Draumar og ljóð. Ólöf
P. Hraunfjörð sá um útg. 1993.
Pétur J. Hraunfjörð var Snæfell-
ingur, fæddur 1885. Hann ólst upp
við strit og allsleysi eins og þá var
tíðast, for ungur til sjós, lærði sjó-
mannafræði en var lengst af verka-
maður í Reykjavík. Pétur hefur
verið greindur,- athugull, trúhneigð-
ur tilfinninganæmur og opinskár.
Slíkir eru alla jafna opnir fyrir
straumum síns tíma. Því var síst
að furða þótt Pétur yrði snemma
snortinn af spíritismanum sem kalla
mátti tískustefnu á fyrstu áratug-
um aldarinnar. Við sósíalismann og
rússnesku byltinguna batt hann líka
vonir eins og fleiri. Þeir póiitísku
stormar sem skóku heiminn fyrir
stríð og í heimsstytjöldinni síðari
orkuðu þar af leiðandi sterkt á Pét-
ur. Samtíðarmenn hans, þeir sem
voru sama sinnis, töldu sig ekki
vita betur en Sovétríkin væru land
friðar og frelsis og hvaðeina stefndi
í sólarátt austur þar. í rauða hern-
um sáu þeir hið frelsandi afl á jörð.
Viðhorf þessi koma glögglega fram
í kvæðum þeim sem Pétur lét eftir
sig, en hann var skáldmæltur vel.
Annað meginefni bókar þessarar
eru svo dagbækur sem Pétur skráði
í Spánarferð 1917. Pétur sigldi
þangað sem háseti á skipinu All-
iance.
Ferð til svo fjarlægs lands taldist
þá til ævintýra nánast. Það var því
síður en svo ófyrirsynju að farmað-
urinn kveddi föðurland sitt með
söknuði því »Guð einn veit hvort
við sjáum það aftur.« Á Spánar-
strönd lá svo við að ungi maðurinn
fengi sig fullsaddan af forvitni sinni
og hrifnæmi því sannarlega kom
þar æðimargt spánskt fyrir sjónir.
Pétur J. Hraunfjörð
Úr fjarlægð að sjá heillaði dýrð
borgarinnar. Nærmyndin reyndist
þó blendnari. Félagarnir teygðu
Pétur inn á skemmtistað þangað
sem farmenn munu gjarnan hafa
lagt leið sína. Þegar inn var komið
reyndist þetta ósvikið pútnahús.
íslendingurinn hafði ekki fyrr aug-
um litið þvílíkt og annað eins, forð-
aði sér í ofboði og slapp með skrekk-
inn. Að athuguðu máli sýndist fleira
að varast í hafnarborginni: »Hér
ægir öllu saman, svikum, lýgi,
þjófnaði, manndrápum, hóruskap
og allra handa prettum af versta
sniði. Falskir peningar eru hér, svo
það er ómögulegt að kaupa nokkuð
af neinum. Allt er jafn svikið, sem
sagt er það lífshættulegt að fara
frá skipinu, að manni verði ekki
stolið blátt áfram sjálfum.«
Jafnaðarmanninum þótti líka
stinga i augu hve lífsins gæðum
virtist misskipt, »sumir hafa allt of
mikið, aðrir allt of lítið, hvergi er
jafnt«.
Nú er kynslóð Péturs öll horfin
af sjónarsviðinu. Réttlætiskennd
hennar og trú á einn ósvikinn mál-
stað telst einnig til liðna tímans.
Reynslu- og hugarheimur Péturs
lýsir veröld sem var.
næsta vetur. Síðan teljast þeir hljóð-
færaleikarar sem spila á hveijum
vetri, meðlimir í Kammersveitinni.
En þótt það sé breytilegt frá ári til
árs, er samt viss kjarni sem spilar
alltaf.
í gegnum árin hafa á annað
hundrað hljóðfæraleikarar og
söngvarar komið fram á vegum
Kammersveitarinnar og þótt þetta
sé ótrúlega mikil vinna, er þetta
alveg einstakt tækifæri fyrir okkur
hljóðfæraleikarana til að kjmnast
og glíma við skemmtileg verkefni.
Kammersveitin á ennþá ekki
niikla peninga, þótt við getum borg-
að nokkrar krónur fyrir hveija tón-
leika núna - en það skemmtilega
er að það hefur aldrei orðið til þess
að fólk vilji ekki spila. Tónlistar-
menn eru kannski eins og aðrir
listamenn og meta mikils það sem
þeir fá út úr samstarfi á borð við
þetta - þótt vissulega sé sú tíð liðin
að tónlistarmenn geti gefið vinnu
sina.“
Það virðist líka hafa orðið tölu-
verð fjölgun í stétt hljóðfæraleikara
á seinustu árum.
„Það eru komnir mjög margir
gbðir hljóðfæraleikarar núna og það
hefur auðvitað_ aukið fjölbreytni í
tónlistarlífinu. Á þeim tíma sem við
stofnuðum Kammersveitina, fór
fólk gjarnan á alla tónleika sem
haldnir voru í Reykjavík, en nú
þarf fólk að velja og hafna. Nú eru
jafnvel tvennir tónleikar á sama
tíma, auk þess sem það kostar
áheyrendur töluvert mikið að fara
á alla tónleika.“
Hvernig sérðu framtíðina fyrir
þér?
„Mér fínnst Kammersveitin eiga
sinn sess í tónlistarlífinu og þótt
mikið hafi breyst á þessum árum,
finnum við að það er nóg pláss fyr-
ir hana og við munum vissulega
halda ótrauð áfram á komandi
Sinfóníutónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Sinfóníuhljómsveit íslands hóf
rauðu tónleikaröðina í Háskólabíói
sl. fimmtudag. Á efnisskránni voru
verk eftir Grieg, Tsjajkovskí og
Uuno Kalervo Klami. Einleikari var
Pascal Devoyon og stjórandi Petri
Sakari.
Tónleikarnir hófust á Sigurði
Jórsalafara, eftir Grieg, hugþekkri
en frekar rislítilli tónlist, sem var
ágætlega leikin. Píanókonsertinn
nr. 2, eftir Tsjajkovskí er erfitt
píanóverk en sú gerð konsertsins,
sem hér var flutt, er frekar laus í
formi, sérstaklega tveir fyrstu
þættirnir. Annar þátturinn hefur
oft verið kallaður „trippelkonsert“,
þar sem einleiksfiðla (Guðný Guð-
mundsdóttir, konsertmeistari) og
selló (Richard Talkowsky 1. selló)
mynda eins konar „concertante"
tríó með píanóinu. Pascal Devoyon
er frábær píanóleikari og lék þenn-
an erfiða konsert og sérstaklega
„kandensumar“ með glæsibrag, svo
og hljómsveitin og strengjadúett-
inn, undir öruggri stjórn Petri Sak-
ari.
Tónleikunum lauk með Kalevala-
svítu eftir finnska tónskáldið Uuno
Kalervo Klami, sem er fæddur árið
1900 í Virölatti og dó í Helsinki
1961. Eftir tónlistarnám í Helsinki
fór hann til Parísar og nam hjá
Ravel og Florent Schmitt og síðar
til Vínarborgar og þáði leiðsögn af
Bruno Walter. Klami var um tíma
tónlistargagnrýnandi við Helsinkin
Sanomat og var veittur ríkisstyrkur
til tónsmíðaiðkana árið 1938.
Klami samdi tvær sinfóníur, tvö
sinfónísk ljóð, tvo píanókonserta,
fiðlukonsert, fantasíu fyrir selló og
Pascal Devoyon
hljómsveit, píanókvartett og margs
konar smáverk fyrir píanó, auk
Kalevalasvítunnar, sem hér var
flutt. Það er nokkuð sérkennilegt
að heyra í fyrsta sinn verk eftir
þetta ágæta tónskáld. Verkið er
, mjög vel samið og bregður fyrir
ýmsu sérkennilegu, einkum í þriðja
Soffía Auður er með kandídats-
próf í íslenskum bókmenntum frá
Háskóla íslands, en hefur undanfar-
in ár stundað nám í almennri bók-
menntafrææði við háskólann í Suð-
Petri Sakari
þættinum, sem er dansþáttur og
þeim fjórða, sem er sorgþrungin
vögguvísa. Pétri Sakari stjómaði
verkinu af mikilli innlifun og stýrði
hljómsveitinni til skemmtilegra til-
þrifa, svo að flutningur verksins var
í alla staði mjög vel framfærður af
Sinfóníuhljómsveit íslands.
ur-Karólínu í Bandaríkjunum. Hún
vinnur nú að doktorsritgerð sinni
og er jafnframt stundakennari í ís-
lensku fyrir erlenda stúdenta við
Háskóla íslands.
Rabb um rannsóknir
og kvennafræði
SOFFÍA Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur mun fjalla um
hugmyndir tvítyngdra rithöfunda um samband sjálfsvitundar og
tungumáls þriðjudaginn 26. október í stofu 311 í Árnagarði kl. 12-13.
Soffía mun m.a. tala um danska rithöfundinn Karen Blixen. Rabb-
fundurinn er á vegum Rannsóknastofu í kvennafræðum við Háskóla
íslands.
MENNING/LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Rodin til 5. des.
Listasafn ASÍ
Sigrid Valtingojer til 7. nóv.
Listasafn íslands
Bragi Ásgeirss. til 31. okt.
Gallerí einn einn
Steingrimur EyQörð, Lars Emil Árnason
til 6. nóv.
Norræna húsið
Skagenrnálararnir, lýkur á morgun.
Sólon íslandus
Jón Óskar til 8. nóv.
Nýlistasafnið
Guðrún Ragnarsd., Eiisabet Norseng,
Pétúr Magnúss., lýkur á morgun.
Safn Ásgríms Jónssonar
Vatnslitamyndir til febrúarloka.
Listasafn Sigurjóns
Hugmynd-Höggmynd fram á vor.
Ásmundarsalur
Torfi Ásgeirsson, lýkur á morgun.
Listasalurinn Portið
Marc Einar Jóhannsson, Berglind Sigurð-
ardóttir tii 31. okt.
Listmunahúsið
Helga Magnúsdóttir til 7. nóv.
Listmunahús Ófeigs
Helga Magnúsdóttir til 7. nóv.
Hafnarborg
5 ára starfsafm. Hafnarb. til 25. okt.
Ráðhúsið
Sýn. Félags húsgagna- og innanhússarki-
tekta lýkur á morgun.
SPRON, Álfabakka
Ingiberg Magnússon til 19. nóv.
Gallerí Sævars Karls
Birgir Bjömsson til 27. okt.
„Rjá þeim“
Hjalti Einar Sigurbjörnsson til 26. okt.
Gallerí Borg
Zacharias Heinesen lýkur á morgun.
Onnur hæð
Roni Horn sýnir út október.
Gallerí Úmbra
Ása Ólafsdóttir til 4. nóv.
Mokka
Bill Dobbins. Ljósm.sýn. til 7. nóv.
Gerðuberg
Finna B. Steinsson til 14. nóv.
Þjóðminjasafnið
Sýningin Nútið við fortíð____________
TONLIST
Laugardagur 23. okt. Tónl. í Vinaminni
kl. 17. Minn.tónl. um Pál ísólfss. t
Grunnsk. Isafj. kl. 15. Tónl. í fþróttah. í
Garðinum kl. 15.
Sunnudagur 24. okt. Sinfóníuhl. Norð-
url. í Akureyrarkirkju kl. 17. Kammersv.
Reykjav. í Áskirkju kl. 17.
Miðvikudagur 27. okt. Vísna og jass-
tónl. í Víðihlíð kl. 21.
Fimmtudagur 28. okt. Tónl. í Norræna
húsinu kl. 20.30. Tóni. Hallfríðar Ólafsd.
i Safnaðarh. Akureyrarkirkju kl. 20.30.
Laugardagur 30. okt. Styrktarsk. í Fé-
lagsh. Hvammstanga kl. 20.___________
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Þrettánda krossferðin, lau. 23. okt. kl.
20, fös. kl. 20
Kjaftagangur, lau. 30. okt. kl. 20
Dýrin í Hálsaskógi, sun. 24. okt. kl. 14.
og 17.
Ástarbréf, fös. 29. okt. kl. 20.30, lau. kl.
20.30
Ferðalok, sun. 24. okt. kl. 20.30, fim. kl.
20.30
Borgarleikhúsið
Spanskflugan, lau. 23. okt. kl. 20, mið.
kl. 20, fim. kl. 20, lau. kl. 20.
Elín Helena, lau. 23. okt. kl. 20, sun. kl.
20, mið. kl. 20, fim. kl. 20, fös. kl. 20.
lau. kl. 20
Englar í Ameríku, sun. 24. okt. kl. 20,
fös. kl. 20
Ronja Ræningjadóttir, lau. 23. okt. kl.
14, sun. kl. 14, lau. kl. 14
Leikfélag Akureyrar
Afturgöngur lau. 23. okt. kl. 20.30
Ferðin til Panama sun. 24. okt. kl. 14.
og 16
tslenska óperan
Fiskar á þurru landi, lau. 23. okt. kl.
20.30, fim. kl. 20.30, fós. kl. 20.30
Coppelía, lau. 30. okt. kl. 20, sun. kl. 17.
íslenska leikhúsið
Býr Islendingur hér, lau. 23. okt. kl. 20,
þri. kl. 20, sun. kl. 20
Nemendaleikhúsið
Draumur á Jónsmessunótt, lau. 23. okt.
kl. 20, sun. kl. 20, mið. kl. 20, fös. kl.
20, lau. kl. 20.
Frú Emilia
Afturgöngur, sun. 24. okt. kl. 20, lau.
kl. 20
Júlía og Mánafólkið, lau. 23. okt. ki. 11,
þri. ki. 10 og 14.30., fim. kl. 10, lau. ki.
11 f.h.
Fijálsi ieikhópurinn
Standandi pina, sun. 24. okt. kl. 20
KVIKMYNDIR
Hreyfimyndafclagið
Sýning þriðjud. kl. 9, fimmtud. kl. 5
og helgarsýningar föstudaga kl. 9.
Norræna húsið
„Mormor og det átte ungene“ kl. 14
MÍR
Hvíti hundurinn, leikstjóri Roshal.
Upplýsingar um listviðburði verða að
hafa borist bréflega á miðvikudögum.
Merkt: Morgunblaðið, menning/listir,
Kringlan 1, 103 Rvk. Myndsendir:
91-691222.