Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ MANNUFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993 Ég þakka hlýjar kveðjur, er mér bárust, á 75 ára afmœlisdegi mínum 16. október sl. Pétur Pétursson, þulur.. Nóvembertilboðin byrjuð Vikan 8.-12. nóvember: Peysur - 25% afsláttur. Iw B-P a ItB 9 r Grænatúni 1, lívl AVlli Kópavogi. - NAMMCO - Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðið Samkeppni um merki NAMMCO 10.000 norskar krónur fyrir bestu tillöguna Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðið - NAMMCO - býður fram verðlaun að fjárhæð NKR 10.000 fyrir bestu tillögu að merki stofnunarinnar. Verðlaunamerkið verður sniðið til notk- unar á öll opinber NAMMCO skjöl. NAMMCO var stofnað með samningi sem undirritaður var í Nuuk árið 1992 af Færeyjum, Grænlandi, íslandi og Noregi. Tilgangur NAMMCO er að stuðla að verndun, skynsamlegri stjórnun og rannsóknum á sjávarspendýrum í Norður-Atlants- hafi með svæðisbundnu samstarfi. Sem ný alþjóðleg stjórnun- arstofnun fyrir sjávarspendýr hefur NAMMCO að markmiði sínu að viðhalda skynsamlegri afstöðu til nýtingar sjávarspen- dýra á Norður-Atlantshafi, afstöðu sem byggir á reglunni um sjálfbæra nýtingu, styðst við áreiðanlegar vísindarannsóknir og tekur tillit til alls vistkerfisins. NAMMCO óskar eftir merki sem endurspeglar tilgang og hlut- verk stofnunarinnar, en er jafnframt svo einfalt í gerð sinni að því verði auðveldlega umbreytt til notkunar á margskonar skjöl og annað efni sem tengist stofnuninni. Tillögur óskast sendar fyrir 10. desember 1993 til: NAMMCO Secretariat, c/o Department of Arctic Biology, University ofTromsö - 9037 Tromsö -Norway. SIÐFRÆÐI/V/vemig veröur hann til? SiÖleysinginn SPURNINGARNAR „hvernig er virkilega siðlaus maður?“ og „hvern- ig verður hann til?“ eru viðfangsefni pistilsins. Það er nefnilega jafn áhugavert'að íhuga hvernig best sé að vera og hvernig menn eigi alls ekki að vera. Siðleysinginn dýrkar sjálfan sig og beitir blygðunarlaust öllum brögðum til að ota sínum tota. Viðm- ið réttlætiskenndar hans er eigin vellíðan og megin- hugsunin sem ligg- ur á bak við gerðir hans, er eigin frami og aðdáun annarra. Einkenni hans er að skeyta ekki um líðan samstarfs- manna sinna. Viðmið góðmenns- kunnar er: Allt er gott sem kemur mér vel. Hann veigrar sér ekki við að beita blekkingum til að notfæra sér aðra. Þó er hann jafnan sakleys- ið uppmálað. Viðmið ábyrgðarkenndarinnar er skyldan gagnvart sjálfum sér. Skaði annarra vegur ekki þungt á metun- um. Siðleysingja skortir samúðartil- fínninguna. Hann kann ekki að finna til með öðrum. Samviskan mælir aðeins eigin gróða og tap. Hann getur því ekki fengið samviskubit þegar hann brýtur á öðrum. Það eina sem skiptir máli er að öðlast sem mest sjálfur, og allt sem hindrar út- rás eigin hvata er sem þyrnir í aug- um. Ef hann setur sér siðareglur snúast þær um að ótakmarkað frelsi hans sjálfs og takmarkað frelsi ann- arra. Hættulegur siðleysingi er aðlag- andi. Hann kemst langt í lífinu því hann hefur persónutöfra og þokka- lega greind. Enginn er betri lygari. Lygin er allrabesta tækið til að fá aðra til að þjóna sér. Hann villir á sér heimildir og leggur sig í fram- króka að sýnast einlægur. Æðstu dyggðir eru aðeins skemmtilegur leikur til að snúa á aðra. Ástin er góð blekkingaraðferð, því flestir eru veikir gagnvart ástúð og það er auð- velt að draga þá á tálar. Flestir vilja vera elskaðir og að virðing sé borin fyrir þeim. Siðleysinginn notfærir sér það til hins ýtrasta. Ef réttlæti er mikils metið, þá þykist hann éinfald- lega vera réttlátur. Markmið hans er þó ávallt skýrt: Að vera ríkur, valdamikill, frægur og dýrkaður. Hvernig verðursiðleysinginn til? Siðleysinginn er góð eftirherma og oft getur verið erfítt að sjá í gegnum leikaraskapinn. Nú vaknar spurningin: Hvernig verður hann til? Hann skortir ást, samvisku og samúð með öðrum. Hann hefur ofgnóttir sjálfselsku og dýrkunar. Spjótin hljóta að beinast að uppeldinu. Börn læra að gera það sem ber árangur og hætta að gera það sem engan árangur ber eða hefur slæmar afleið- ingar. Foreldrar eru kennarar barna sinna. Námið getur mistekist. Ég ætla að nefna nokkur atriði sem geta farið úrskeiðis: 1. Samviskubit: Foreldrar eiga að kenna bömum sínum muninn á réttu og röngu. Samviskan mótast nefni- lega að miklu leyti þegar bömum er umbunað eða refsað fyrir það sem þau gera. Ef þau meiða eða stela reyna flestir foreldrar að gera þeim ljóst að það sé rangt að valda öðrum sársauka. Þeim er kennt að hugsa út í hvernig þolandanum líður. Þannig læra þau að setja sig í spor annarra. 2. Lygin: Börnum er eðlilegt að þylja upp afsakanir þegar þau þurfa að svara til saka. Flestir foreldrar sjá í gegnum það, en ekki allir. Voðinn er vís ef falskar afsakanir eru látnar standa sem góðar og gildar. Þannig fær lygin verðlaun. 3. Fyrirgefningin: Hún er meðal göfugustu hugtaka siðfræðinnar. Foreldrar geta komið henni vitlaust til skila. Börn geta upplifað að það sé nóg að segja „fyrirgefðu" til að sleppa við refsinguna. Slík fyrirgefn- ing er tóm, því það vantar iðrunina. Barn sem sífellt kemst upp með að leika iðrandi syndara fær umbun fyrir leikinn en ekki fyrir að iðrast í raun. 4. Ofdekur: Foreldrum hættir til að Khomení, erkiklerkur. ofdekra böm sín. Dekrað bam þarf ekki að hafa fyrir hlutunum. Það fær allt upp í hendumar. Dekrað bam kann ekki að neita sér um hlutina enda fær það allt sem það óskar sér. Það lærir ekki að standast freist- ingarnar. Að neita sjálfum sér um eitthvað gimilegt er höfuðatriði and- legs þroska. Eða hafa ekki allir helstu spekingar mannsandans orðið víðfrægir fyrir að afneita veraldleg- um gæðum? 5. Ofvernd: Foreldrar geta hlíft börnum sínum um of. Þeir geta falið dauðann, sorgina og þjáningu ann- arra. Þeir geta falsað sannleikann með þvi að ofvemda bamið gagnvart heiminum, og láta eins og það lifí í allt öðmm heimi. Þetta kemur í veg fyrir að þau seti sig í spor annarra, og að þau fái að taka þátt í erfiðleik- um foreldra sinna við að ná endunum saman. En fátt þroskar hraðar en þjáningin. Engir foreldrar eru fullkomnir og eitthvað hlýtur að fara úrskeiðis hjá öllum. Sum börn geta unnið það sem á vantar upp síðar meir. Siðleysingi getur hugsanlega orðið til þegar of- angreind fimm atriði fara saman. En að sjálfsögðu er ekki til nein pottþétt uppskrift á siðleysingja. Mannlífið er of flókið. Ofangreind 5 atriði eru tilgátur um hvemig siðleys- ingi geti orðið til. Speki: Uppskrift að siðleysingja: 500 g sjálfselska, 250 g lygi, 1 dl ofvernd, 2 tsk ofdekur, 250 gr sam- viskuleysi og 1 msk gervi-fyrirgefn- ing. Bleitt í með fölskum persónu- töfmm. Hrært vel saman við ást- leysi. Kælt í frystikistu mannlegra tilfinninga. eftir Gunnar Hersvein LÆKNISFRÆÐI/7>Atf ad færa út kvíamar? Skortur á varahlutum HÉR VORU á dagskrá um síð- ustu helgi flutningar líffæra milli manna og nýjungar á þeim vettvangi. En um vandamálin sem siglt hafa í kjölfar ígræðsluaðgerða mætti einnig margt tíunda, þótt nú verði ein- ungis staðnæmst við þann hörg- ul sem er á nothæfum og fáan- legum líffærum í stað þeirra sem ekki standa nógu vel í stykkinu og ættu að víkja. Flest líffæri til ígræðslu eru tek- in úr líkum þeirra sem hafa látist af slysförum eða úr sjúkdóm- um sem valda snöggum dauðdaga eins og innvortis blæðingu, svo dæmi sé tekið. Ef hugsað er til líf- færaflutnings verður fyrst að fá úrskurð um að lífi væntanlegs gef- anda sé örugg- lega lokið, með öðrum orðum að hann sé heila- dauður. Þann úrskurð gefa læknar sem tengjast ekki málinu að öðru leyti og taka ekki þátt í aðgerðun- um, hvorki á líki né sjúklingi. Þeg- eftir Þórarin Guónason ar úrskurðurinn liggur fyrir þarf að skýra vandamönnum frá honum og leita samþykkis þeirra um að eitt eða fleiri líffæri verði gefin þeim sem bíða eftir slíku og þurfa sárlega á því að halda. Ef sam- þykki fæst er næsta skref að losa þá líkamshluta sem á að nýta og varðveita þá á fullkomnasta hátt þar til ígræðslan getur farið fram. Þegar blóð hættir að streyma um líffæri taka þau fljótlega breyting- um sem kalla mætti byijun á dauða, en kæling dregur úr hraða þess háttar hrörnunar og einnig er dælt inn í æðarnar vökva sem tefur fyrir að illa fari. í þessu millibilsástandi þarf mörgu að sinna — flokka vefinn og senda líffærið að fenginni þeirri niður- stöðu til þess sjúkrahúss, þeirrar borgar eða jafnvel til annars lands þar sem bíður sjúklingur í réttum vefjaflokki og er manna líklegast- ur til að njóta góðs af. Aðkomna líffærið verður að taka til starfa án tafar þegar búið er að gróður- setja það á nýja staðnum. Frumur þess þurfa að vera lifandi og starf- hæfar þótt fyrri eigandi sé ekki lengur í tölu lifenda. Frá upphafi líffæraflutninga hefur helsti þrándur í götu verið afneitun og útskúfun húsráðanda á gestinum. Menn kannast við svipað fyrirbrigði úr sögu blóð- gjafa; munurinn er aðeins sá að einstöku sinnum gekk blóðgjöf eins og í sögu en oftast fór þó allt í bál og brand og ráðning gátunn- ar fékkst ekki fyrr en blóðflokk- arnir fundust um síðustu aldamót. Svo tilfínnanlegur skortur er á líffærum til ígræðslu að mikið vantar á að hægt sé að fullnægja eftirspurn. Dæmi: í Bretlandi bíða hátt í sex þúsund manns eftir líf- færum af ýmsu tagi, í Bandaríkj- unum eru 24 þúsund sjúklingar á biðlistum vegna nýrnaígræðslu einvörðungu og 16 hundruð bíða eftir lifrarskiptum. Það er því ekki nema von að sú hugmynd hafi skotið upp kollinum að bæta mætti úr varahlutaskorti mannslíffæra með því að grípa til parta úr dýrum og freista þess að græða þá í fólk. Reynslan sýnir að þvílíkar tilraun- ir eru dæmdar til að misheppnast, að minnsta kosti enn um sinn. Þrátt fyrir að þau sund virðist lok- uð eins og sakir standa er mikill hugur í mönnum að leita uppi færar leiðir. ígræðslufræðingar víða úr heiminum báru nýlega saman bækur sínar í Cambridge á Englandi, en sú borg er ein þeirra staða þar sem flutninga-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.