Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993 Bær í Borgarf irði státar m.a. af elstu kirkjuklukku landsins. Þar býr hinn ágæti sögumaður Ólafur Þórmundsson eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur BÆR í Borgarfirði er sögufrægur staður. Þar var stofnað fyrsta klaustur á íslandi. Það gerði Hróðólfur biskup frá Rúðuborg, sem að undirlagi Olafs helga kom hingað árið 1030 til þess að vinna að framgangi kristinnar trúar á íslandi. Hróðólfur flutti hingað gras- lauk, sem hann notaði til lækninga og enn vex í Bæ og kirkjuklukku úr kopar sem nú stendur þar í kirkju. „Klukkan er hljómlaus núna, það kom einn fallegur hljómur og svo sprakk hún þegar hringt var til útfarar Björns Blöndals rithöfundar og veiðimanns í Laugarholti, eins virtasta sonar þessarar sveitar," segir Ólafur Þórmundsson, bóndi í Bæ og meðhjálpari í kirkjunni. „Mér þykir vænt um þessa klukku og vil þess vegna láta gera við hana. Hingað komu danskir menn sem sögðu að til væru aðeins fjórar slíkar klukkur i Evrópu og buðust til að láta gera við klukkuna í Þýskalandi en Þór Magnússon þjóð- minjavörður lagðist gegn því að klukkan yrði send úr landi, óttaðist að hún kæmi ekki aftur.“ Þessi þögla klukka hefur horft uppá margt, svo sem þegar rofin voru kirkjugrið í hinum fræga Bæjarbardaga 1237. Kannski hefur hún hringt yfir einhvetjum þeirra 32 manna sem féllu við þetta valdabrölt Stur- lu Sighvatssonar, þegar hann lagði undir sig goðorð Þorleifs Þórðar- sonar. Þá var klaustur löngu aflagt í Bæ. Sagt er að Hróðólfur trúboðs- biskup hafi farið úr landi árið 1049 og skilið þá eftir fjóra munka, en sú ráðstöfun dugði skammt. Kirkja hefur hins vegar verið í Bæ fram á þennan dag. Það var Halldór H. Jónsson arkitekt sem teiknaði kirkjuna sem þar stendur nú og vígð var árið 1967. „Safnaðarfé- lagar lögðu fram í vinnu og pening- um tvo þriðju af þeirri einni milljón króna sem kirkjan kostaði og er þá ekki talin með vinna Halldórs arkitekts, sem tók ekkert fyrir sitt verk,“ segir Ólafur. „Halldór lét kirkjuna njóta þess að afi hans og amma áttu Bæ og dóu þar. Baðið örlagaríka Foreldrar mínir keyptu Bæ af Birni Þorsteinssyni afa hans látn- um og Guðrún Jónsdóttir amma hans var hjá foreldrum mínum þau 12 ár sem hún átti ólifuð; hún vildi ekki fara frá Bæ. Meðal barna hennar var Þorsteinn sem er mér minnisstæður. Hann þótti sér- kennilegur í tiltækjum og svörum. Hann var stór og myndarlegur enda kominn í beinan karllegg frá Snorra á Húsafelli. Ekki var hann vinnufús en skáldmæltur og greindur vel, cand. theol. og prest- ur um tíma vestan hafs. Þar gift- ist hann kanadískri stúlku og setti á stofn nuddstofu sem hann rak með preststörfunum. Sú starfsemi fékk þann endi að Þorsteinn bland- aði einhveiju sinni svo heitt bað- vatn fyrir einn af máttarstólpum samfélagsins að maðurinn hljóp í kvölum sínum upp úr baðinu og datt út um glugga á fjórðu hæð og lét þar líf sitt. Með aðstoð góðra vina komst Þorsteinn heim til ís- lands en hjónabandi hans lauk skömmu síðar. Nokkrum árum seinna barst Þorsteini það til eyrna að þýskar, velefnaðar ekkjur hefðu auglýst eftir eiginmönnum. Hann dreif sig út til Þýskalands til þess að líta á ekkjurnar. Hann ákvað að giftast einni þeirra en ekki var það þó girndarráð. „Hvernig lítur konan út,“ spurði mamma hans. „Þetta er svona kvenmannsbelgur eins og Magga systir,“ svaraði Þorsteinn. „Varla er hún þá mjög óásjáleg ef hún er lík henni,“ svar- aði móðir hans. „Fátt er fallegt við Margréti," svaraði þá Þor- steinn. Margrét systir Þorsteins þótti annars myndarleg og dugleg og þá ekki síður Jón, faðir Halldórs og Selmu listfræðings. Selma átti sumarbústað í Bæjarlandi og sýndi kirkjunni tryggð sína í verki. Hún lét gera við gÖmlu altaristöfluna eftir Þórarin B. Þorláksson sem var í gömlu kirkjunni sem vígð var 1888. Nýju töfluna gerði Karen Agnete Þórarinsson, kona Sveins Þórarinssonar málara. Hún er gef- in til minningar um Guðmund Jónsson á Hvítárbakka, þann mikla ágætismann sem átti drjúgan þátt í að varðveita þann góða sveitar- anda sem hefur jafnan ríkt hér. Sveinbjörn Beinteinsson, sem grúskar í mörgu, segir reyndar að það þurfi að leita langt aftur í tím- ann til þess að finna ágreinings- efni í þessari sveit.“ Þríburafæðingin Ólafur Þórmundsson og bræður hans hafa rekið félagsbú í Bæ fram á þennan dag. Þeir tóku við bú- skap af föður sínum Þórmundi Vigfússyni, sem var bústjóri fyrir baróninn á Hvítárvöllum í eitt ár og kynntist þá stúlku sem Ólöf Helga Guðbrandsdóttir hét. Þau gengu í hjónaband og settu saman Ólafur Þórmundsson í Bæ. bú í Langholti í Borgarfirði. í ág- úst árið 1917 urðu þau tíðindi að þeim hjónum fæddust þríburar og áttu þá fýrir 11 börn. „Það var ekki létt verk að halda á okkur þríburabræðrum hita fyrsta vetur- inn sem við lifðum. Við vorum ekki nema 8 merkur hver og urðum að mæta sjálfum frostavetrinum mikla. Við hefðum sennilega allir dáið strax ef mamma og vinn- ustúlkur hennar tvær hefðu ekki skipst á að raða í sífellu kringum okkur flöskum með heitu vatni. Við lifðum allir af veturinn en haustið eftir gekk umgangspest. Ur henni dó Þórir en ég og Hall- dór hjörðum af. Halldór lést sumar- ið 1969, það er í minningu minni versta sumar sem ég hef lifað,“ segir Ólafur Þórmundsson og rétt- ir mér mynd sem tekin var af þrí- burunum ársgömlum ásamt for- eldrum sínum. „Mamma hafði það ósköp erfitt. Hún átti bam að heita mátti á hveiju ári og mjólkaði stundum tveimur bömum samtím- is. Þegar hún var sextug lagðist hún í rúmið vegna langvarandi þreytu og steig varla aftur á fæt- urna þau tíu ár sem hún átti þá ólifuð. Faðir minn keypti Bæ þegar hann þurfti að standa upp fyrir eiganda Langholts. Þegar hann hætti að búa tókum við Halldór bróðir við hans parti af jörðinni, áður hafði hann látið eldri bræður mína tvo hafa sinn partinn hvorn af jörðinni. Hér bjuggum við svo fjórir bræður félagsbúi og giftumst allir kaupakonum sem hingað komu í sumarvinnu." Við töluðum aldrei um vexti Sú kaupakona sem ég hreppti heitir Auður Þorbjörnsdóttir og við hófum búskap árið 1946 og keypt- um þá kýr af pabba mínum. Ég var búinn að sækja um jarðarkaup- alán í Búnaðarbankanum en þurfti lán þangað til það kæmi. Ég fór til Þorsteins Jakobssonar veiði- manns í Þinganesi og stundi upp að ég þyrfti lán. Þorsteinn vann og vann en gerði lítið fyrir sjálfan sig og hafði stundum lánað fólki peninga. „Ég hef tapað á að lána, ég er hættur því,“ segir Steini við mig þegar ég kem til hans. „Þá nær þetta ekki lengra," segi ég. Hann ansar því engu en gengur um gólf með höndurnar fyrir aftan bak. Svo kemur hann til mín og segir: „Ég skal lána þér þetta, greyið mitt, þú mátt taka það út úr sparisjóðsbók sem er í Kaupfé- laginu.“ Þakka þér fyrir það Þor- steinn, segi ég. „En ég vil nú fá það skriflegt að ég megi taka út úr bókinni." Hann skrifar á miða að ég eigi að fá 8.000 krónur, sem var þó nokkuð mikill peningur árið 1946. Ég vildi láta hann fá skrif- legt að ég skuldaði honum þetta en hann sagði: „Þú borgar ekkert frekar þótt við skrifum eitthvað." Það var ekkert skrifað. Ég var ekki búinn að hafa þetta lán lengi þegar ég fékk jarðarkaupalánið. Þá fór ég til gjaldkera og bað hann að reikna út vexti fyrir lánstímabil- ið og borgaði svo inn á bók Þor- steins lánið og vextina með. Löngu seinna hitti ég Þorstein. „Við töluð- um aldrei um vexti, greyið mitt,“ sagði hann þá töluvert fúll. Ég Þróun kirkjuklukkna. Lag klukkunnar í Bæ er eins og það t.v.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.